Fréttablaðið - 11.10.2008, Side 22
11. október 2008 LAUGARDAGUR4
KVENFÉLAG KRISTSKIRKJU stendur fyrir kaffisölu, basar
og happdrætti næsta sunnudag, 12. október, frá kl. 11.30-16.30 í
safnaðarheimili Kristskirkju, Hávallagötu 16. Þar má finna
ýmsa eigulega muni og engin núll eru í happdrættinu!
Náttúran.is - vefur með umhverfisvitund
Skrifstofan – Planta
Síðan að við mannfólkið fórum að
hreiðra um okkur innan dyra hafa
plönturnar fylgt okkur eftir.
Nálægð við gróðurinn er mikil-
væg á margan hátt. Plöntur þjóna
því hlutverki í náttúrunni að fylla
loftið af súrefni* svo að á jörðinni
þrífist líf. Plöntur innan dyra
auka súrefnisflæði, jafna raka-
stigið og hreinsa eiturefni úr loft-
inu. Það er sérstaklega mikilvægt
að hafa plöntur þar sem mikið af
rafmagnstækjum eru í gangi t.d.
á skrifstofunni.
*Með ljóstillífun grænna
plantna er koltvíoxíð (CO2) úr
andrúmsloftinu notað til að
mynda kolvetni eða sykrur. Um
leið er vatnssameind (H2O) klof-
in í frumum til að halda uppi
ljósttilífun og afleiðing þess er sú
að súrefni (O2) losnar.
Talið er að jörðin hafi verið
súrefnislaus fyrir 3,5 milljónum
ára en síðan hafi smám saman
myndast súrefni við ljóstillíf-
un örvera. Nú er súrefni um
20% í andrúmsloftinu.
Meira um alla hluti í
skrifstofunni á: http://
www.natturan.
is/husid/1352/
Hér má sjá dæmi um snyrtilegt eldhús
með fallegu veggfóðri á einum veggj-
anna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Einföld leið til að gjörbreyta
eldhúsinu er að skella veggfóðri
á einn vegginn.
Vissulega fer það eftir rýminu
hversu vel það hentar en sum eld-
hús beinlínis lifna við þegar fallegt
veggfóður bætist við. Skynsamlegt
er að velja sterkt og endingargott
veggfóður. Einnig er til bóta að
setja það á veggi sem eru ekki
undir miklu álagi, til dæmis ekki
þar sem gufan frá eldamennskunni
og þess háttar nær að leika um það.
Einnig má setja veggfóður á milli
skápa en þá er skynsamlegt að
setja plexígler yfir til að verja það
fyrir hnjaski.
Lífgað upp
á eldhúsið
alla
Gospelstund
Sunnudaga
kl. 14:00
Beðið fyrir einstaklingum sem þjást af
kvíða, vanlíðan og veikindum
Allir aldurshópar velkomnir
Sálrænn
stuðningur
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.
Leiðbeinandi er Margrét Blöndal .
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 www.redcross.is/kopavogur opið virka daga kl. 10-16
Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings
í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Þátttakendur læra að gera
sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem lendir í
sársaukafullum aðstæðum og hvernig þeir geti veitt stuðning
og umhyggju.
Viðfangsefni eru meðal annars: Mismunandi tegundir áfalla;
Áhrif alvarlegra atvika á einstaklinginn; Sálræn skyndihjálp;
Stuðningur við úrvinnslu alvarlegs atviks; Sorg og sorgarferli
Sálrænn stuðningur í Hamraborg 11, 2 hæð.
Námskeið I miðvikudaginn 15. október kl. 17-21.
Námskeið II mánudaginn 20. október kl. 17-21.
Viðfangsefni eru meðal annars: mismunandi tegundir áfalla,
á rif lvarlegra atvika á einstaklingin , sálræn skyndihjálp,
s i r við úrvinnslu alvarlegs atviks, sorg og sorgarferli.
M
Skráning í síma 554 6626, á www.redcross.is/kopavogur
eða á kopavogur@redcross.is
Námskeið án endurgjalds