Fréttablaðið - 11.10.2008, Side 31
LAUGARDAGUR 11. október 2008 19
leggingar um fjárfestingar, hafa
tapast, þarf bankinn að byggja upp
sitt traust á nýjan leik.
Við þurfum líka að setja mál-
staðinn framar okkur sjálfum og
vinna á þeim forsendum.
Svafa: Málstaðurinn er einfald-
ur, við verðum að sjá til þess að
hér verði til það samfélag sem við
viljum búa í. Og þegar á okkur
standa spjót er langbest að snúa
bökum saman.
Auðvitað er fólk reitt yfir því
hvernig komið er, fólk sér líf sitt
allt öðruvísi í framtíðinni en það
var en nú er kominn nýr veruleiki
og hann þarf ekki að vera verri en
sá sem við vorum að koma úr. Ljót-
ustu myndir kapítalismans hafa
birst okkur síðustu árin þannig að
sá veruleiki þarf ekki að vera
slæmur svo lengi sem við pössum
að við förum ekki tugi ára aftur í
tímann í hugsunarhætti og í hug-
rekki.
Þórhildur: Það er aldrei stigið
aftur á bak. Þó eitthvað slíkt verði
tímabundið þá varir það ekki. Það
er ekki hægt að koma með jarðýtu
og ýta öllu þrjátíu ár aftur í tím-
ann.
Edda Rós: Það er bara víst
hægt.
Páll: Það sem blasir við er að við
þurfum að setja okkur ný mark-
mið og endurskoða gildin. Við
höfum verið gífurlega upptekin af
hinum efnislegu og fjárhagslegu
gildum - að reyna að græða pen-
inga. Það hefur verið eini málstað-
urinn. Fólk hefur farið að læra
bara til þess að verða ríkt. Þetta
verður að breytast og við verðum
að átta okkur á að við náum aldrei
samstöðu nema við hugum að þeim
gildum sem skipta okkur öll máli.
Við þurfum líka að endurskoða öll
okkar persónulegu samskipti.
Björn: Er ekki hreinlega hætta á
að samfélagið bugist?
Þórhildur: Nei, mannkynið hefur
mætt alls konar erfiðleikum og
það basla allir áfram. Við höfum
farið í gegnum styrjaldir og hungu-
sneyðir.
Páll: Það brestur ekki á land-
flótti.
Finnur: Það er heldur ekkert
betra annars staðar.
Kunnum að sigrast á erfiðleikum
Þórhildur: Það mikilvægt að ef
ráðist verður í raunverulega end-
urhugsun að í því felist skapandi
kraftur því í skapandi krafti felst
orka og bjartsýni. Þess vegna
segi ég að við lifum góða tíma.
Það eru ekki allar kynslóðir sem
fá að upplifa að samfélag þeirra
sé rifið upp á hárinu, snúið við og
dustað.
En stoltið hefur því miður verið
alltof blandið grobbi og hroka.
Svafa: Það ríkir hræðsla í sam-
félaginu en við erum ekki að bug-
ast. Ef Íslendingar kunna eitt-
hvað þá er það að takast á við
óblíða náttúru og erfiðar kring-
umstæður. Þess vegna held ég að
við séum sú þjóð sem ætti að vera
síst hrædd við svona hamfarir. Ef
við kunnum eitthvað þá er það að
standa traustum fótum og sigrast
á erfiðleikum.
Edda Rós: En við þurfum að
yfirfæra þessa reynslu vegna
þess að þetta eru ekki náttúru-
hamfarir. Þetta eru efnahagsleg-
ar hamfarir og á því er munur.
Það er full ástæða fyrir fólk að
vera uggandi og það má ekki gera
lítið úr því. Ástæðan er sú að það
er svo djúpt í vitund okkar Íslend-
inga að vinna. Við tökumst yfir-
leitt á við öll vandamál með því
að vinna. Og nú stöndum við
skyndilega frammi fyrir því að
það er allsóvíst að það verði nokk-
ur vinna.
Páll: Þá verðum við að hugsa.
Edda Rós: Fyrir marga lítur út
fyrir að allar bjargir séu bannað-
ar. Það er ógnvænlegt fyrir þjóð
sem byggir sína sjálfsmynd á
vinnu og dugnaði og þess vegna
er mjög mikilvægt að við tökum í
taumana strax til að koma bönd-
um á krónuna og tryggja að hjól
atvinnulífsins stöðvist ekki.
Svafa: Ef vinnan verður tekin
frá okkur er mikil hætta á að við
bugumst. Þess vegna á ríkisvald-
ið að dæla fé og örva nýsköpun
svo fólk geti skapað sér sín eigin
tækifæri.
Páll: Ef fólk ætlar að hugsa
skýrt og skynsamlega þá er
númer eitt, tvö og þjú að halda ró
sinni. Það er grundvallaratriði.
Við verðum líka að gefa okkur
tíma. Það er erfitt við þessar
aðstæður því það dynur svo margt
á okkur. En við verðum að gera
það. Og þá kemur að því að huga
að markmiðunum, huga að tengsl-
unum og skapa eitthvað nýtt.
Það getur enginn hugsað fyrir
annan og nú skipta fjölmiðlarnir
gríðarlega miklu máli. Þeir verða
að halda ró sinni og hjálpa okkur
að hugsa. En við höfum allar for-
sendur, við erum ung, kraftmikil
og vel menntuð þjóð.
Björn: Að öllu þessu sögðu
heyrist mér þið telja að full
ástæða sé til bjartsýni.
Svafa: Það er enginn valkostur.
Við verðum að vera bjartsýn.
Finnur: Heimurinn í dag er í
grundvallaratriðum sá sami og
var fyrir sextán mánuðum en
gildin og mannleg hegðun hafa
breyst.
Svafa: Var það ekki Einstein
sem sagði; þú leysir ekki vandmál
með sama hugarfari og það var
skapað. Tækifærið sem við stönd-
um frammi fyrir er einmitt að
endurhugsa samfélagið með tilliti
til frelsis, réttlætis og sjálfstæð-
is.
Við þurfum að halda efnahags-
lífinu gangandi og fólk verður að
halda áfram að kaupa hluti svo
ekki stoppi hér allt.
Finnur: Réttlæti er lykilatriði í
því hvernig við vinnum okkur út
úr þessu. Við horfum fram á að
stór hluti af eignum Íslendinga
verður kominn á eina hendi eftir
eitt til tvö ár og við þurfum að
vinna úr þeirri stöðu af miklu
réttlæti. Það var ekki alltaf staðið
nægilega vel að einkavæðingum
fyrri ára. Það er svo afskaplega
óheppilegt að hér verður nánast
bara ríkisrekstur eftir eins og eitt
ár.
Edda Rós: Ég er sammála þessu
og legg áherslu á að réttlætis
verði ekki bara gætt þegar eignir
verða seldar. Það felast svo gríð-
arleg völd í að skammta fé og
gjaldeyri, skammta afskriftir og
hafa áhrif á hver má kaupa og
hver fær aðgang að fé til að kaupa
þær eignir sem verða seldar.
Þetta má ekki gerast með óeðli-
legum hætti og það skiptir miklu
máli hverjir koma að þessu. Svo
verðum við, þegar um hægist, að
skoða hvað gerðist bæði í innra
kerfi fyrirtækjanna og á hærra
plani. Við lærum ekki af þessu
nema fara skipulega yfir það.
Páll: Hér þarf líka nýsköpun í
stjórnmálum. Núverandi kerfi er
staðnað. Lýðræðið í þessu landi
er mjög lokað, þvert ofaní það
sem menn kunna að halda. Stjórn-
mál hafa hingað til verið rekin of
mikið sem sérhagsmunabarátta
einstakra hagsmunaafla og notuð
sem leið fyrir hagsmunaöfl að
semja sín á milli. Það eru stjórn-
mál ekki. Stjórnmál eru endalaus
tilraun til að skilgreina almanna-
heill upp á nýtt. Hugsa hvað er til
góðs fyrir heildina og ekki bara
efnahagslega heldur fyrst og
fremst menningarlega og siðferð-
islega. Stjórnmál eru siðferði.
Þórhildur: Það þarf líka nýsköp-
un í menntakerfinu. Menntakerf-
ið hefur alltof mikið látið teymast
út í þarfir, ímyndaðar eða raun-
verulegar. Aðrir þættir hafa orðið
eftir. Og það þarf að örva hugsun.
Í allri afþreyingarvæðingunni
þar sem allt snýst um skemmti-
legheit hefur gildi alvarleika -
sem ekki má blanda saman við
leiðindi - verið útrýmt. Fjölmiðl-
arnir hafa verið afskaplega upp-
teknir af afþreyingarvæðingunni
sem á þátt í að svæfa og deyfa
fólk.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Álfabakka 16, 109 Reykjavík sími 585-1300 www.heilsugaeslan.is
Bólusetning gegn inflúensu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli almennings á því að skipulögð
bólusetning gegn inflúensu hefst á öllum heilsugæslustöðvunum mánudaginn 13. október 2008.
Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?
• Öllum sem orðnir eru 60 ára.
• Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og
lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
• Starfsfólki heilbrigðisþjónustu og öðrum sem daglega annast fólk með aukna áhættu.
Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða komu-
gjald samkvæmt reglugerð nr. 1265/2007. Í síðasttalda hópnum eru það þó einungis heilbrigðis-
starfsmenn sem ekki greiða fyrir bóluefnið. Fyrirkomulag bólusetningar getur verið mis-
munandi milli heilsugæslustöðva. Vinsamlegast leitið upplýsinga á vef Heilsugæslunnar
www.heilsugaeslan.is eða hafið samband við hlutaðeigandi heilsugæslustöð.
Heilsugæslan Árbæ, Reykjavík s: 585 7800
Heilsugæslan Efra-Breiðholti, Reykjavík s: 513 1550
Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík s: 585 1800
Heilsugæslan Fjörður, Hafnarfirði s: 540 9400
Heilsugæslan Garðabæ s: 520 1800
Heilsugæslan Glæsibæ, Reykjavík s: 599 1300
Heilsugæslan Grafarvogi, Reykjavík s: 585 7600
Heilsugæslan Hamraborg, Kópavogi s: 594 0500
Heilsugæslan Hlíðum, Reykjavík s: 585 2300
Heilsugæslan Hvammi, Kópavogi s: 594 0400
Heilsugæslan Miðbæ, Reykjavík s: 585 2600
Heilsugæslan Mjódd, Reykjavík s: 513 1500
Heilsugæsla Mosfellsumdæmis s: 510 0700
Heilsugæslan Seltjarnarnesi s: 561 2070
Heilsugæslan Sólvangi, Hafnarfirði s: 550 2600
Heilsugæslan Lágmúla 4, Reykjavík s: 595 1300
Heilsugæslan Salahverfi, Kópavogi s: 590 3900
Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann
verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Þeim sem leita vilja ráðgjafar er bent á
sína heilsugæslustöð.
Upplýsingar er að finna á vef Heilsugæslunnar, www.heilsugaeslan.is
Fræðsluefni um inflúensu má finna á vef Landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is
Reykjavík 11. október 2008.
Páll Skúlason
heimspekiprófessor
Svafa Grönfeldt rektor Háskólans í Reykjavík
Það skipt-
ir miklu
máli að
eyða sem
minnstum tíma í
reiði og nornaveiðar.
Traustið er aðalmálið.
Þórhildur Þorleifsdóttir
leikstjóri
Vilhjálmur Egilsson framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins
Það er
mikilvægt
ef ráðist
verður í
raunverulega endur-
hugsun að í því felist
skapandi kraftur því
í skapandi krafti felst
orka og bjartsýni.
Hér þarf
líka ný-
sköpun í
stjórnmál-
um. Núverandi kerfi
er staðnað. Lýðræðið
í þessu landi er lok-
að, þvert ofaní það
sem menn kunna að
halda.
Ég lít á
þetta sem
tækifæri
fyrir þá
kynslóð sem er að
vaxa úr grasi og það
fólk sem er í háskól-
unum.