Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.10.2008, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 11.10.2008, Qupperneq 32
20 11. október 2008 LAUGARDAGUR „Glímufélagið Ármann var stofnað 15. desember 1888, þegar þrjátíu áhuga- menn um glímu hittust á túninu þar sem Stjörnubíó stóð við Laugaveg og nefndu blettinn Skell, því menn komu nú harkalega niður til jarðar í glímu. Nafnið var svo ákveðið með ferföldu húrrahrópi og upp hófst starfsemi sem enn blómstrar í dag,“ segir Snorri Þor- valdsson, formaður Glímufélagsins Ár- manns, sem í dag heldur mikla afmæl- isveislu í íþróttamiðstöðinni Laugabóli í Laugardal, í tilefni 120 ára afmælis- árs félagsins. „Ármann er elsta íþróttafélag lands- ins og ól af sér elstu íþróttakeppnina sem enn er við lýði, en það er Skjald- argríma Ármanns, sem fyrst var haldin 1889. Glíma er þjóðaríþrótt Íslendinga og nú í dálítilli lægð, en þannig hefur hún alltaf gengið fyrir sig og þarf sinn tíma til að ganga upp og niður öldudal- inn. Ármann varð fljótlega eftir alda- mótin 1900 orðið fjölgreinafélag og stórveldi á árunum 1927 til 1964, þegar Jens Guðbjörnsson var formaður fé- lagsins,“ segir Snorri sem höfðar til allra Ármenninga að mæta til veislu í dag og hitta fyrir gamla félaga á merk- um tímamótum. „Ármenningar eru nánast þjóð- in öll, því alls staðar hefur einhver í fjölskyldunni tengst Ármanni á öllum þessum árum. Ármenningar verða allt- af Ármenningar því fólk hefur sterkar taugar til félagsins. Við viljum því sjá sem flesta sem hafa í áranna rás verið viðloðandi félagsstarfið,“ segir Snorri, sem hlakkar til veisluhaldanna, sem óvænt verða haldin í ógnarkreppu. „Ármann hefur áður lent í kreppu og fengið á sig marga brimskafla, en allt- af haldið áfram starfinu. Menn keyptu kannski ekki kol til að hita upp glímu- salinn þegar stríð braust út 1918, því þá þótti mikilvægara að eiga til hnífs og skeiðar, en íþróttaiðkanir hófust aftur af krafti þegar færi gafst,“ segir Snorri. Um þrjú þúsund manns æfa nú mis- munandi íþróttir í níu deildum Ár- manns sem deilir húsnæðinu í Lauga- bóli með Knattspyrnufélaginu Þrótti. „Húsnæðið er löngu sprungið utan af okkur, en þetta er frábær staður með sérhönnuðum bardagasal fyrir glímu, júdó og taekwondo, og fékk vitaskuld nafnið Skellurinn, eins og vera bar. Sprenging hefur orðið í fimleikadeild- inni undanfarið og telur nú yfir þúsund manns, mikill uppgangur er í körfubolta og skíðadeild Ármanns er feiknarlega öflug. Ármann státar því af blómlegu starfi, þótt ekki séu innan félagsins fót- bolta- og handboltadeildir sem rata inn á síður blaðanna. Við erum alveg ör- ugglega meira í huga fólks í staðinn.“ Hátíðahöldin hefjast í Laugabóli klukkan 14.30. Allir eru velkomn- ir í tertu og skemmtilega dagskrá. Sjá nánar á www.armenningar.is. thordis@frettabladid.is LEIKARINN DAVID MORSE ER 55 ÁRA „Það gildir einu hversu margir ráðleggja að fara vel með pen- inga. Fæstir leggja fyrir þegar þeir eiga nóg af þeim. Ein- hverra hluta vegna virðist það ekki mikilvægt þá; kannski af því menn þekkja blankheit of vel og neita að lifa þannig lífi.“ Bandaríski leikarinn David Morse lék í áratug á sviði áður en hann fékk tækifæri í kvikmyndum og varð einn af virtustu skapgerðar- leikurum samtímans. Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Mik- hail Gorbatsjev, forseti Sovétríkjanna, hittust á fundi í Reykjavík dagana 11. til 12. október. Fund- urinn var í upphafi hugs- aður sem undirbúnings- fundur fyrir síðari samn- ingalotur um takmörkun vígbúnaðar en þegar til kom breyttist eðli fundarins því Reagan og Gorbatsjev hófu óvænt viðræður um meiri afvopnun en verið höfðu á dagskrá. Á tíma- bili virtist stefna í sögulega niðurstöðu um stórkostlega fækkun kjarnorkuvopna, en upp úr viðræðum slitnaði þegar Reagan neit- aði að hverfa frá áætlun um varnarkerfi í geimnum. Þegar frá leið þótti leiðtogafundurinn hafa rutt nýjar brautir í samskiptum stór- veldanna og marka upphaf að lokum kalda stríðsins. Hafði þjóðin gaman af og spennandi að vera stödd í hringiðu heimsviðburða. ÞETTA GERÐIST: 11. OKTÓBER 1986 Leiðtogafundur í Höfða 120 ÁRA GLÍMUFÉLAG Snorri Þorvaldsson er formaður Glímufélagsins Ármanns, sem í dag heldur upp á 120 ára afmæli sitt með pomp og prakt í Laugabóli í Laugardal. Í bakgrunni eru eldri borgarar í leikfimi og dansi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GLÍMUFÉLAGIÐ ÁRMANN: HELDUR UPP Á 120. AFMÆLISÁR SITT Í DAG Skellir á túnfæti við Laugaveg timamot@frettabladid.is Hjartans eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Steinunn Hjartardóttir, áður til heimilis að Melhaga 6 í Reykjavík, lést á Dvalar og hjúkrunarheimilinu Grund aðfaranótt miðvikudagsins 8. október. Hannes Þorsteinsson, Hjörtur Hannesson Sigrún Axelsdóttir Guðrún Hannesdóttir Vilhjálmur Þór Kjartansson Una Hannesdóttir Geir Ingimarsson barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæru, Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur. Líney Hrafnsdóttir Georg Páll Kristinsson Hanna Stella Georgsdóttir Daníel Þór Gunnarsson Alvilda María Georgsdóttir Heiðar Brynjarsson Lilja Kristinsdóttir Kristinn Georgsson Líney Mist Daníelsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Einar Kristinn Friðriksson, Stelkshólum 4, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. október. María Vilbogadóttir Vilbogi M. Einarsson Heiða B. Jónsdóttir Friðrik S. Einarsson Jakobína Þórey Hjelm Kristín H. Einarsdóttir Þorsteinn A. Þorgeirsson og barnabörn. 80 ára afmæli Doris Jelle Konráðsson verður áttræð sunnudaginn 12. október. Hún tekur á móti gestum í Rafveituheimilinu milli kl. 12 og 16 á sjálfan afmælisdaginn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hluttekningu og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og fósturafa, Haralds Stefánssonar Hlégerði 23, Kópavogi. Guðrún Ólafía Haraldsdóttir Olav Ingvald Olsen Ólöf Fjóla Haraldsdóttir Halldór Óskar Arnoldsson Stefán Már Haraldsson Elísa Sjöfn Reynisdóttir Ragnar Harald Reynisson Steinunn Lilyan Reynisdóttir Þurí Ósk Elíasdóttir Morten Stokkenes Lelíta Rós Ycot Arnold Halldórsson Jökull Halldórsson Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sveinsína Oddsdóttir Vogatungu, 23, Kópavogi, áður á Hlíðarvegi 5 í Kópavogi, varð bráðkvödd á heimili dóttur sinnar í Los Angeles í Kaliforníu mánudaginn 6. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigríður Lúthersdóttir, Sveinn Þórðarson, Jóhann Lúthersson, Magnea Þorfinnsdóttir, Hilmar Lúthersson, Kolbrún Guðmundsdóttir, Reynir Lúthersson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, tengdasonar, föður, tengdaföður, afa og langafa, Haraldar Sigurjónssonar Gullsmára 9, Kópavogi. Innilegar þakkir sendum við öllu því góða fólki sem annaðist hann á gjörgæsludeild og lungnadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur í Fossvogi. Sérstakar þakkir til Óskars Einarssonar lungnalæknis og séra Gunnars R. Matthíassonar. Guð blessi ykkur. Fyrir hönd aðstandenda, Rannveig Leifsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Svanhvít Friðriksdóttir, Fannborg 8, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þriðjudaginn 7. október. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 15. október kl. 15.00. Friðrik Sveinn Kristinsson Þóra Jakobsdóttir Flóki Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn. Örn Hólmar Sigfússon Lindargötu 57, Reykjavík. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa. Fríða Valdimarsdóttir Rúnar V. Arnarson Eygló Sigurjónsdóttir Ísar Guðni Arnarson Ingólfur Arnarson Þórhildur Guðlaugsdóttir Sævar Arnarson Halldór Sigdórsson Marta Katrín Sigurðardóttir Ævar Sigdórsson Una Lilja Eiríksdóttir Sylvía B. Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.