Fréttablaðið - 11.10.2008, Blaðsíða 46
34 11. október 2008 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. lappi, 6. guð, 8. mál, 9. tímabil,
11. 950, 12. flækju, 14. eyða litlu, 16.
stefna, 17. tilvist, 18. hélt á brott, 20.
samtök, 21. fullnægja.
LÓÐRÉTT
1. gryfja, 3. ólæti, 4. köldusótt, 5.
angan, 7. dávænn, 10. eiturlyf, 13.
óvild, 15. mjög, 16. upphrópun, 19.
kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sami, 6. ra, 8. tal, 9. öld,
11. lm, 12. flóka, 14. spara, 16. út, 17.
líf, 18. fór, 20. aa, 21. fróa.
LÓÐRÉTT: 1. gröf, 3. at, 4. malaría,
5. ilm, 7. allstór, 10. dóp, 13. kal, 15.
afar, 16. úff, 19. ró.
„Ég var búin að hlakka mjög mikið
til að þessi dagur rynni upp. Þetta
hefur eiginlega verið fáránleg törn,“
segir Ilmur Kristjánsdóttir leik-
kona. Á föstudaginn í síðustu viku
frumsýndi Ilmur söngleikinn um
Janis Joplin. Leikkonan gat þó ekki
staldrað lengi við í frumsýningar-
partýinu því strax á laugardags-
morgninum hélt hún áleiðis til höf-
uðborgar Mósambík, Mapútó en
ferðalagið þangað tekur um einn og
hálfan sólarhring. Þar dvaldist hún
á vegum UNICEF ásamt sjónvarps-
konunni Evu Maríu Jónsdóttur og
tók upp efni fyrir dag rauða nefsins.
Tíminn var ekki alveg á bandi Ilmar
í ferðalaginu því hún kom heim á
fimmtudaginn, aðeins skömmu fyrir
aðra sýningu á Janis og slíkur var
hamagangurinn í öskjunni að hún
var sótt út á völl af óperustjóranum,
Stefáni Baldurssyni.
Ilmur hafði því litla hugmynd um
hvað hafði gerst á Íslandi á meðan
hún var stödd í Afríkuríkinu. Hún
týndi þannig ferðatöskunni sinni á
Heathrow og fór með Visa-kortið í
verslanir fríhafnarinnar og bætti
sér aðeins upp tapið úr fataskápn-
um. „Ég hélt náttúrulega bara að
gengið væri í 110 krónum en las
síðan um það á leiðinni heim að það
væri í kringum þrjú hundruð krón-
ur.“
Ilmur er þó ekki mikið að kippa
sér upp við þau tíðindi enda nýkom-
in frá landi þar sem aðstæðurnar
eru mun verri. „Mér fannst þó ynd-
islegt að vera þarna. Því þótt
aðstæðurnar hafi verið skelfilegar
þá var fólkið svo yndislega jákvætt
og brosmilt. Ég varð í raun ekkert
sorgmædd fyrr en ég kom heim og
heyrði af ástandinu hérna,“ útskýr-
ir Ilmur. Hún viðurkennir að hafa
smitast alvarlega af svokallaðri
Afríku-veiki. „Ég er alla vega alvar-
lega að velta því fyrir mér hvernig
ég geti komið mér þangað aftur og
búið með fjölskyldunni minni,“
útskýrir Ilmur í fullri alvöru.
Hún segist í raun koma innblásin
frá örbirgðinni í Mósambík. Henni
finnst auðvitað erfitt að hljóma eitt-
hvað spekingslega, nú þegar fólk er
að missa vinnuna sína og ævisparn-
að. „En ég held að innst inni hafi
fólk verið að bíða eftir því að þetta
myndi springa í andlitið á okkur. Og
nú held ég að það sé kærkomið
tækifæri til að sýna okkar innri
mann.“ freyrgigja@frettabladid.is
ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR: INNBLÁSIN EFTIR VIKUDVÖL Í MÓSAMBÍK
Varð sorgmædd við að
koma aftur heim til Íslands
ILMUR Í GÓÐUM HÓPI Leikkonan segist alvarlega vera að velta því fyrir sér að flytja til Afríku eftir dvölina í Mósambík.
Hjálmar og Megas og Senuþjófarnir munu ekki koma
fram á Iceland Airwaves að þessu sinni. Ástæðan er
einföld. Samningar tókust ekki. „Þetta strandaði
aðallega á flugmiðavandræðum,“ segir Kiddi í
Hjálmum eða Guðmundur Kristinn Jónsson, gítar-
leikari Senuþjófanna og Hjálma. „Ég get ekki spilað
þegar vantar trommarann í bandið. Og ef menn tíma
ekki að flúga með hann til landsins – þá er ekkert
gigg.“ Kiddi er þarna að tala um Nils Olof Törnqvist
sem dvelur í heimalandi sínu Svíþjóð nú um stundir.
Reyndar virðast samningamálin vera að flækjast
fyrir Kidda og Hjálmum því gítarleikarinn knái rak
upp stór augu þegar hann sá greint frá því í Frétta-
blaðinu að þeir hefðu svikið MR-inga um að koma
fram á sérlegum árshátíðartónleikum á miðvikudag-
inn var. Og vissulega var það svo í huga MR-inga en
ekki Hjálma, sem segja þetta byggja á ótrúlegum
misskilningi. Og vilja ekki vera mennirnir ... „sem
sviku litlu greyin í MR“. Kiddi segir svo frá að
Hjálmar hafi verið í Rússlandi og með þeim í rútunni
á leiðinni heim hafi verið ónefndur MR-ingur sem
færði það í tal við hljómsveitina að þeir spiluðu á
þessum tónleikum. Hjálmar töldu í lagi að skoða það
heim komnir. „Svo hringir í mig maður á miðvikudeg-
inum, um klukkan eitt og kynnir sig frá MR, en ég er
þá í miðjum klíðum að taka upp fiðlusnillinginn Karl
Cassidy. Ég sagðist vera upptekinn og bað hann um
að heyra í mér eftir hálftíma. Þetta voru allar
samningaviðræðurnar sem fram fóru um gigg sem
ekki var einu sinni komið á teikniborðið hjá okkur:
Ekki hvar, ekki hvenær ... það eina sem lá fyrir var að
við höfðum lýst yfir því að við værum til í að spila
fyrir MR einhvern tíma einhvers staðar.“ - jbg
Hjámar og Megas ekki á Airwaves
„Jú, það er mikið að gera hjá Erni [Árnasyni].
Haarde kemur við sögu. Dabbi líka, Já já, og
Bubbi. Þannig að það koma þarna við sögu
allir bestu menn Spaugstofunnar,“ segir
Spaugstofumaðurinn Pálmi Gestsson.
Spaugstofan er að vanda með þátt í kvöld og
er nokkur vandi á höndum. Þung ábyrgð hvílir
á þeim. Að lyfta geði þjóðarinnar á þessum
erfiðu tímum. Pálmi gerir ekki lítið úr því.
Segir Spaugstofumenn gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að standa undir þeirri ábyrgð.
„Við ætlum að gera það. Nei nei, þjóðinni er
kannski ekki hlátur í huga og ef til vill verður
erfitt að kveikja á gríninu. En nú verða allir
að finna til ábyrgðar sinnar gagnvart náung-
anum og reyna að létta hver öðrum lífið eins
og hægt er. Fátt er svo með öllu illt að ekki
boði nokkuð gott,“ segir Pálmi. Hann gerir
ekki lítið úr því að grínurunum hafi verið
nokkur vandi á höndum. Og atburðarásin
hröð. „Þegar ástandið var orðið svona urðum
við nokkuð hugsi og veltum því mikið fyrir
okkur hvernig við gætum tekið á málunum.
Ákváðum svo að gera þetta á eins jákvæðum
nótum og hægt er. Án þess að ráðast á einn
eða neinn... sem við náttúrulega gerum aldrei
hvort sem er.“
Spurður hvort það sé ekki óðs manns æði að
ætla að nálgast atburði líðandi stundar á
jákvæðum nótum segir Pálmi ekkert tjóa að
láta sem enginn sé morgundagurinn. Spaug-
stofan ætlar meðal annars að vekja athygli á
jákvæðum hliðum kreppunnar en allir hafa
þeir Spaugstofumenn lifað tímana tvenna. „Jú,
jú, jú, jú, en við ætlum að leggja okkar af
mörkum til að lyfta þjóðinni andlega upp úr
öldudalnum,“ segir Pálmi Gestsson. - jbg
Bestu menn Spaugstofunnar á flot dregnir
HJÁLMAR Samningar við Iceland Airwaves sigldu í strand en
samningar við MR voru aldrei til.
SPAUGSTOFAN Það er ekkert grín að grína á þessum
síðustu og verstu en Spaugstofan gengst við ábyrgðinni.
Víst er að Sigurður Einarsson
og þeir Kaupþingsmenn hugsa
Gord on Brown og Alistair
Darl ing þegjandi þörfina. Það gerir
einn nýjasti hluthafi Kaupþings og
einn af stærstu eigendum þar til
fyrir skemmstu, Sjeik Mohamm ed
Bin Khalifa Al-Thani, bróðir
emírsins af Katar. Hann greiddi 25
milljarða fyrir fimm prósenta hlut
í Kaupþingi – hlutur sem nú er að
engu orðinn. Al-Thani mun nú vera
að safna liði meðal olíuríkja, liði
sem hefur ekkert
gott í hyggju þegar
breskt fjármálakerfi
er annars vegar.
Íslendingar
eru ekki einir
í þessu stríði
við Breta.
Fjármálahamfarirnar setja ýmsar
fyrirætlanir í sérkennilegt ljós.
Þannig mun löngu ákveðið að
starfsmenn eins útibúa Kaupþings
færu í skemmtiferð yfir helgi til
Kaupmannahafnar. Þeir eru þó
tvístígandi þessir tólf sem eru að
fara nú í dag, telja það sérkennilegt
í ljósi síðustu atburða, en láta sig
þó hafa það. Enda ferðin að fullu
greidd og hótelherbergi á Admiral
sem er með flottustu hótelum í
Köben. En teljast verður ólíklegt að
forstjóri Kaupþings, Hreiðar Már
Sigurðsson, sé með í för.
Þótt Geir H. Haarde teljist seint
æsingamaður eru flestir á því að
gáfulegt sé, eins og staðan er í
dag, að lífverðir fylgi honum hvert
fótmál. Sagan segir að það sem
varð til þess að lífverðir voru kall-
aðir til hafi verið þegar veist var að
Geir þar sem hann var við æfingar
í World Class á Seltjarnarnesi
seint í síðustu viku. Þar mun Egill
Helgason sjónvarpsmað-
ur einnig æfa en teljast
verður ólíklegt að Egill
sé æsingamaðurinn þótt
hann hafi haldið uppi
beinskeyttri gagn-
rýni á stjórnvöld
að undanförnu.
-jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Birgir Ísleifur
Gunnarsson
tónlistar-
maður
Aldur: 28 ára.
Starf:
Tónlistar-
maður.
Fjölskylda:
Er í sambúð
með Heiðu Kristínu Helgadóttur og
við eigum saman tvo stráka, Bene-
dikt Espólín, þriggja ára, og Snorra
Espólín, sjö vikna.
Búseta: Við búum á Holtsgötunni í
101 Reykjavík.
Stjörnumerki: Ljón.
Birgir er söngvari hljómsveitarinnar
Motion Boys sem gaf nýverið út plötuna
Hang on.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Alistair Darling
2 Extrablaðið
3 Flensborg