Fréttablaðið - 11.10.2008, Page 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Ég var komin í haustlitaferð til Stokkhólms, borgar sem teygir
sig yfir margar eyjur en er samt
svo undarlega smá. Það sem lítur út
fyrir að vera óravegur á korti reyn-
ist aðeins smáspotti fyrir fótgang-
andi ferðalang. Og þarna er nóg að
sjá. Ég heilsaði upp á beinagrind-
urnar sem liggja svo brosmildar og
rólegar í tíðinni á Vasa-safninu og
kastaði kveðju á konuna sem hafði
setið í hnipri í gröf sinni í mörg
þúsund ár þegar hún loks fannst.
Svo fór ég í búðarráp. Það eftir-
minnilegasta sem þar rak á fjörur
mínar var ungur maður sem
afgreiddi í gallabuxnabúð og hafði
látið tattúvera á sér innanverða
framhandleggina.
Á öðrum handleggnum stóð
„AFTER DARKNESS“ en á hinum
„LIGHT WILL APPEARS“. Letrið
var það sama og konur nota þegar
þær merkja handklæði. Þegar ég
leit út um gluggann minn blöstu við
mér setningar úr leikritum Strind-
bergs, enda Blái turninn þar sem
hann bjó síðustu árin skammt
undan. „Klók rotta verður að hafa
marga hala“ beið mín í hvert skipti
sem ég sté út á götu en nokkru
neðar gat að líta setningu sem var
eitthvað á þá leið að hagfræði hefði
bara verið fundin upp af ríku fólki
svo það gæti arðrænt þau sem
minna mættu sín.
ALLAR þessar orðsendingar, hvort
sem þær voru á handleggjum unga
mannsins eða steyptar ofan í göt-
una, fannst mér hljóta að gefa mér
vísbendingar um íslenskt efnahags-
líf. Það var nefnilega ekki laust við
að ég hefði velt því eilítið fyrir mér,
kona sem eitt sinn kom fram í aug-
lýsingaherferð fyrir KB-banka og
sagði: „Vöxtur – þú færð meira.“
Meira en hvað? Ég var aldrei alveg
viss en hvað um það, ég var ung og
þurfti á peningunum að halda. Nú
þyrfti bara að beita hyggju og bíða
þetta af sér. Þá myndi ljósið skína á
nýjan leik.
ÞRÁTT fyrir alla bjartsýnina kom
loks að því að gengið réðist á mig
og þá var ekkert annað að gera en
að taka á sprett út úr verslunar-
höllunum. Ég vafraði inn í
Söder malm, fallega hverfið þar
sem Greta Garbo ólst upp og var
einmitt stödd þar í almennings-
garði þegar töfrarnir urðu. Ofan
úr undurháum hlynum svifu laufin
eitt af öðru, gul, brún og rauð. Ég
skimaði í kringum mig og velti því
fyrir mér hvort ekki væri örugg-
lega selt inn á þessa sýningu en
hvergi var lúgu að sjá. Þetta var
allt svona líka algjörlega ókeypis.
Sá sem lærir að meta það litla í líf-
inu fær alveg örugglega meira.
Þegar gengið
réðst á mig!
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Í dag er laugardagurinn
11. október, 284. dagur ársins.
8.07 13.14 18.20
7.56 12.59 18.01
395,-/6 í pk.
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is