Fréttablaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 2
2 9. nóvember 2008 SUNNUDAGUR
VIÐSKIPTI Viðvörunarbjöllur hjá
fjármálaeftirliti á Íslandi,
Bretlandi og í viðskiptaráðuneytinu
varðandi Icesave í Bretlandi fóru
að hringja í marsmánuði, segir
Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings.
Hann telur að enn vanti svör við
þeirri spurningu, hvers vegna
Landsbankinn hafi fengið að halda
áfram að safna innlánum inn á
Icesave í Bretlandi og svo í fleiri
löndum, þegar eftirlitsaðilum hafi
verið ljóst að hann stæði ekki
undir því.
„Þetta er í marsmánuði. Bankinn
fær áfram í sex eða sjö mánuði að
auglýsa og safna frekari innlánum
sem gera vandann enn
illviðráðanlegri og ég skil ekki af
hverju þetta var ekki stoppað þá
af íslenska Fjármálaeftirlitinu eða
íslenska bankamálaráðherranum
sem síðar gerir sér sérstaka ferð
til Bretlands og hittir
fjármálaráðherrann hér og ekkert
gerist. Þetta verður enn þá
óskiljanlegra í mínum huga þegar
haft er í huga hvernig var komið
fram við Kaupþing hér í Bretlandi
í lok september og byrjun október,“
sagði Sigurður.
Sigurður telur stjórn
Seðlabankans gjörsamlega hafa
brugðist með því að stórefla ekki
gjaldeyrisvaraforðann, þótt
margir hafi kallað eftir því að
innviðir íslensks efnahagslífs
yrðu styrktir, þar á meðal hann.
Sigurður bendir á að Kaupþing
hafi á undanförnum árum reynt að
minnka umsvif sín hér á landi og
eftir á að hyggja hafi stærstu mis-
tökin verið þau að flytja ekki höf-
uðstöðvarnar úr landi, úr mynt-
svæði íslensku krónunnar sem
bæri augljóslega ekki slíka starf-
semi. Þetta hefði átt að gera þegar
viðræður voru um kaup á hol-
lenska bankanum NIBC. Hægt
hafi verið að láta hollenska bank-
ann taka Kaupþing yfir, sem væri
þá hollenskur banki í dag og hefði
ekki farið í þrot. „Þetta voru
stærstu mistökin sem við gerð-
um.“
Sigurður segir einnig að ákvörð-
unin um að þjóðnýta Glitni sé
algjört lykilatriði í því sem síðar
gerðist. Hann segir að um leið og
þær fréttir bárust Kaupþings-
mönnum hefði þeim litist afar illa
á blikuna. „Um nóttina hringdi ég
síðan í iðnaðar- og forsætisráð-
herra og bað þá um að nota ekki
þessa aðferðafræði. Þetta væri
það versta sem menn gætu gert.
Það hlaut engan hljómgrunn hjá
þeim og okkur fannst skrýtið að
við sem stærsti banki landsins
hefðum ekki verið hafðir með í
ráðum.“
Sigurður segist geta fullyrt að
þetta hefði ekki farið eins og þetta
fór ef Ísland væri með evru og
með stuðning frá Evrópska seðla-
bankanum.
bjorn.ingi@markadurinn.is
FÖÐURLAUS
SONUR NÍU MÆÐRA
Sniglar í brjóstahaldara,
fæðing út um eyra – og
föðurlaus sonur níu mæðra.
Þetta eru dæmi um furður
sem fjallað er um í þessari
bráðskemmtilegu
bók eftir Jón Björnsson.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Fjármálaeftirlitið átti
að stoppa Icesave
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, segir að strax í
mars hafi verið ljóst að Landsbankinn stæði ekki undir Icesave-reikningunum.
FÓLK Svo virðist sem vinsældir
Kolaportsins séu meiri nú en
nokkru sinni fyrr, því allir básar
eru þegar upp
pantaðir fram
að jólum. „Það
hefur yfirleitt
verið mikið að
gera hjá okkur á
þessum tíma
árs, en það er að
gerast miklu
fyrr núna.
Vinsældir
Kolaportsins
hafa vaxið jafnt og þétt, en það er
engin spurning að það er meiri
fólksfjöldi sem kemur að versla
núna,“ útskýrir Gunnar Hákonar-
son, framkvæmdastjóri Kolaports-
ins, og segir kreppuna óneitanlega
hafa sitt að segja. „Hvort sem fólk
hefur lent illa í kreppunni eða ekki
er það farið að hugsa betur um
notagildi hlutanna og að hver
króna skiptir máli,“ bætir hann
við. - ag / sjá síðu 22
Allir básar upp pantaðir:
Kolaportið fullt
í kreppunni
GUNNAR
HÁKONARSON
Ölvaðir undir stýri
Þrír voru handteknir á höfuðborgar-
svæðinu í gær grunaðir um ölvun við
akstur. Einn þeirra er á tvítugsaldri
en hinir tveir á fimmtugsaldri. Að
sögn lögreglunnar gekk fyrrinótt stór-
áfallalaust fyrir sig en eitthvað var um
pústra á milli manna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SLYS Þrír voru fluttir á slysadeild
eftir harðan árekstur strætis-
vagns og tveggja fólksbíla á
Hringbraut vestan við Njarðar-
götu um hálfáttaleytið í gær-
kvöldi.
Talið er líklegt að annar
bílstjórinn hafi verið að gefa
hinum bílnum rafmagn og kom
þá strætisvagninn aðvífandi með
fyrrgreindum afleiðingum.
Samkvæmt slökkviliðinu í
Reykjavík er hugsanlegt að sá
sem gaf rafmagnið hafi klemmst
á milli bílanna. Vagnstjórinn var
einn þeirra sem var fluttur á
slysadeild en hann mun ekki
hafa slasast illa. Tíu til fimmtán
farþegar voru í strætisvagninum
og fengu þeir áfallahjálp hjá
starfsfólki Rauða krossins. - fb
Þrír á slysadeild eftir árekstur:
Strætisvagn ók
á tvo fólksbíla
HARÐUR ÁREKSTUR Áreksturinn í
gærkvöldi var harkalegur. Þrír voru fluttir
á slysadeild og tíu til fimmtán fengu
áfallahjálp. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
DÝRALÍF Svartfugl af langvíuætt
sem Náttúrugripasafnið í Vest-
mannaeyjum tók að sér í sumar
hefur ekki sýnt neinn áhuga á að
fara aftur út í frelsið þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir til að koma
honum þangað.
Kristján Egilsson, forstöðu-
maður safnsins, segir að fuglin-
um verði sennilega ekki sleppt
fyrr en eftir áramót. „Það var
komið með hann í byrjun júlí.
Strákar sem voru á tuðru úti á sjó
fundu hann kaldan og hraktan.
Við tókum hann í fóstur og höfum
alið hann í sumar,“ segir Kristján,
sem reyndi að sleppa honum fyrir
hálfum mánuði. „Ég fór með hann
út í Stórhöfða og setti hann þar á
bjargbrúnina, skildi hann þar
eftir og labbaði í burtu frá honum.
Svo ætlaði ég að fylgjast með
honum þegar hann tæki flugið en
þegar hann heyrði hljóðið í öðrum
fuglum hljóp hann til baka, kúrði
sig við hliðina á mér og neitaði að
fara.“
Kristján segir svartfuglinn
mjög félagslyndan og að honum
leiðist að vera einn. „Hann kallar
sífellt á mig og vill bara fá að
vera einhvers staðar nálægt. Ég
er að sýna fólki hann sem kemur
á safnið og set hann á gólfið. Þá
virðist hann alveg þekkja mig því
þótt hann fari aðeins frá þá endar
hann alltaf á því að stilla sér upp
við hliðina á mér,“ segir hann og
bætir við: „Þegar hann var minni
átti hann til að fara upp á skóinn
hjá mér og troða hausnum undir
buxnaskálmina til að fá skjól.“
Spurður hvort hann vilji ekki
bara taka svartfuglinn að sér sem
gæludýr segir Kristján að það
gæti orðið snúið. „Það er kannski
ekki vinsælt að vera með þetta
heima hjá sér. Hann lætur frá sér
fara þar sem hann stendur, hann
fer ekkert eins og kötturinn í
kassa.“ - fb
Svartfugl af langvíuætt neitar að yfirgefa Náttúrugripasafn Vestmannaeyja:
Félagslyndur og vill ekki frelsi
GÓÐIR VINIR Kristján Egilsson, for-
stöðumaður Náttúrugripasafnsins, og
svartfuglinn eru orðnir góðir vinir.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra neitar því að hafa vitað um vand-
ræði Landsbankans með Icesave-reikninga í Bretlandi í mars á þessu ári.
Í samtali við ríkisútvarpið í gær kvaðst viðskiptaráðherra fyrst hafa vitað
um vandann í lok ágúst. Þetta stangast á við fullyrðingar Sigurðar Einarsson-
ar, fyrrverandi stjórnarformanns í Kaupþingi, á Markaðnum á Stöð 2 í gær
og í Fréttablaðinu í dag. - gar
VANDI ICESAVE VAR FYRST LJÓS Í ÁGÚST
EFNAHAGSMÁL „Af umræðum má ráða að Landsbank-
inn hafi ekki haft eignir til að setja á móti Icesave-
innstæðum og því ekki orðið af dótturfélagavæðingu
reikninganna. Þetta er alrangt,“ segir í yfirlýsingu
frá fyrrverandi stjórnendum Landsbankans.
Landsbankamennirnir segjast gefa yfirlýsinguna
vegna ítrekaðra umræðna um að aðgerðir breskra
yfirvalda gegn dótturfélagi Kaupþings, Singer &
Friedlander, tengdist á einhvern hátt málefnum
Landsbankans og umræðum um Icesave-reikning-
ana. Aðgerðirnar gegn Singer & Friedlander hafi
verið á eigin forsendum eins og meðal annars hafi
komið fram á breska þinginu.
Að sögn Landsbankamannanna átti bankinn ávallt
nægilegt safn eigna til að mæta öllum skuldbinding-
um, þar með töldum innlendum og erlendum
innlánum. Rangt sé að ekki hafi náðst að breyta
Icesave í Bretlandi úr útibúi í dótturfélag vegna þess
að Landsbankinn ætti ekki nægar eignir. Það hafi
strandað á lagalegum atriðum:
„Bresk yfirvöld voru því miður ekki tilbúin til að
koma til móts við Landsbankann um að leyfa
bankanum að mynda jafnvægi milli inn- og útlána í
skrefum og þannig tryggja að lánasamningar
bankans stæðust.“
Þá kemur fram í yfirlýsingunni að eignasafn
Landsbankans þurfi að rýrna um helming til þess að
ekki séu til nægar eignir til að mæta forgangskröf-
um á hendur bankanum, þar með töldum kröfum
vegna Icesave. - gar
Fyrrverandi stjórnendur Landsbankans mótmæla fullyrðingum um Icesave:
Nægar eignir til fyrir Icesave
FYRRVERANDI BANKASTJÓRAR LANDSBANKANS Segja helming
eigna þurfa að glatast svo þær dugi ekki fyrir Icesave innlánum.
LÖGREGLUMÁL Tveir pólskir
karlmenn voru handteknir fyrir að
hnupla matvörum úr verslun í
Keflavík í fyrradag. Annar
mannanna var handtekinn fljótt og
örugglega en hinn náði að komast
undan. Hann var handsamaður í
gær með dúkahníf á sér sem hann
sagðist nota til vinnu.
Mennirnir, sem eru á þrítugs-
aldri, voru báðir viðriðnir
Keilufellsmálið sem kom upp í
Breiðholti fyrir nokkru síðan
þegar hópur manna réðst inn í hús
þar sem Pólverjar búa og börðu þá.
Að sögn lögreglunnar í Keflavík
eru báðir mennirnir taldir
hættulegir og eru þeir í farbanni
vegna Keilufellsmálsins. Báðir eru
þeir búsettir í Reykjanesbæ. - fb
Tveir handteknir í Keflavík:
Keilufellsmenn
stálu úr verslun
Páll, stendur til að buffa seðla-
bankastjórnina?
„Ekki í dag.“
Hljómsveitin Buff hafði verið bókuð á
árshátíð Seðlabankans sem hefur verið
frestað fram í janúar. Buff þurfti því að
bóka sig á Sjallann á Akureyri í staðinn.
Páll Eyjólfsson starfar hjá umboðsskrif-
stofunni Prime, sem hefur Buff á sínum
snærum.
SPURNING DAGSINS