Fréttablaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 6
6 9. nóvember 2008 SUNNUDAGUR
Magnús Sigurðsson hlaut Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar 2008. Aðrir sem áttu handrit í
keppninni eru beðnir að vitja þeirra á skrifstofu Menn-
ingar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, Ingólfsnausti
- Vesturgötu 1, sem fyrst eða fyrir 15. janúar 2009. Einnig
er unnt að fá handrit send í póstkröfu. Gefa þarf upp
dulnefni. Aðeins var opnað umslag með nafni
vinningshafa.
Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar
Menningar- og
ferðamálasvið
Reykjavíkurborgar,
Ingólfsnausti -
Vesturgötu 1,
101 Reykjavík,
menning@reykjavik.is
AUGLÝSING UM SVEINSPRÓF
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða
haldin sem hér segir ef næg þátttaka fæst:
Í bifvélavirkjun 6. febrúar 2009, bifreiðasmíði
30.-31. janúar og í bílamálun 6.-7.febrúar.
Umsóknarfrestur er til 20.desember 2008.
Með umsókn skal leggja fram afrit af náms-
samningi, lífeyrissjóðsyfi rlit og burtfararskírteini
með einkunnum eða staðfestingu skóla á því
að nemi muni útskrifast í desember 2008.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er
mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu
okkar, veffang: www.idan.is og á skrifstofunni.
IÐAN - fræðslusetur,
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík,
sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401,
netfang: idan@idan.is
EFNAHAGSMÁL „Ég er algjörlega
sammála meginrökum greinarinn-
ar,“ segir Daniel Gros um grein
þeirra Heiðars Más Guðjónssonar
og Ársæls Valfells sem birtist í
Fréttablaðinu í gær. Þar lögðu þeir
til að í stað þess að taka sex millj-
arða króna lán verði gjaldeyris-
forði Íslendinga notaður til að taka
einhliða upp aðra mynt sem lög-
mynt hér á landi. Gros er forstöðu-
maður Centre for European Policy
Studies í Brussel og aðstoðaði
hann Svartfellinga við einhliða
upptöku á evru.
„Sérstaklega er ég sammála
þeim viðvörunum að þessi lán,
sem ríkisstjórnin hyggst taka,
muni leggja
þungar byrðar á
heilar kynslóð-
ir. Hjá þessu
verður að kom-
ast með öllum
tiltækum
ráðum.“
Alls er verið
að leita eftir sex
milljarða doll-
ara láni til að
styrkja krón-
una. Þar af myndu um tveir millj-
arðar koma frá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum, en fjórir milljarðar
dollara kæmu frá hópi ríkja. Þar
af hafa lánsloforð þegar fengist
frá Noregi, Færeyjum og Pól-
landi.
Gros segir að besti kosturinn
fyrir Ísland nú sé að taka upp evr-
una. „Ég myndi ekki bíða fram í
janúar til að skipta um gjaldmiðil.
Það getur gerst nánast strax.“
Hann segir að þá þurfi einhliða
upptaka evru ekki að tákna pólit-
ískar deilur við Evrópusambandið
„ef Ísland útskýrir að þetta sé
neyðarráðstöfun og að Ísland hafi
fullkominn skilning á að það muni
þurfa að uppfylla Maastricht-skil-
yrðin að einhverjum tíma liðnum,
ef landið vill taka þátt í evrumark-
aðnum, eftir að það hefur gengið í
Evrópusambandið.“ - ss
Forstöðumaður Centre for European Policy Studies um niðurfellingu krónu:
Ekki bíða, skiptið strax
DANIEL GROS
STJÓRNSÝSLA Sigurður Einarsson,
fyrrverandi stjórnarformaður í
Kaupþingi, segir Davíð Oddsson
seðlabankastjóra hafa hótað því
að koma bankanum á kné.
Þetta kom fram í máli Sigurðar
í sjónvarpsþættinum Markaðnum
á Stöð 2 í gær. Í þættinum játti
Sigurður aðspurður því að honum
og Davíð hafi „lent illilega saman“
á fundi hjá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum í Washington í fyrra.
„Það er rétt, já, okkur lenti illa
saman þar,“ sagði Sigurður og
staðfesti að Davíð hafi þá hótað að
Kaupþing yrði „tekið niður“. Orð
Davíðs hafi verið óþægileg. „Mér
var mjög brugðið og ræddi þetta
við mína nánustu samstarfs-
menn.“
Að sögn Sigurðar byggðist
andúð seðlabankastjórans meðal
annars á þeim fyrirætlunum
Kaupþings að skrá hlutafé bank-
ans í evrum. Andstaða Seðlabank-
ans við það hafi hins vegar verið
misráðin og ekki málefnaleg. Orð
Davíðs voru að sögn Sigurðar þó
aðeins hluti af þeirri ákvörðun
Kaupþings að draga ósk um evru-
skráninguna til baka.
„Við vorum kallaðir ítrekað á
fund í fjármálaráðuneytinu og
beðnir um að draga þetta til baka.
Við gerðum það vegna þess að við
töldum ekki við hæfi, eins og
umhverfið var þá, að stærsti
banki þjóðarinnar væri í einhvers
konar átökum við seðlabanka
þjóðarinnar og fjármálaráðuneyt-
ið líka,“ útskýrði Sigurður sem
sagði Árna Mathiesen fjármála-
ráðherra síður hafa viljað kveða
upp úrskurð í málinu.
Sagði Sigurður það hafa verið
óþægilegt að reka stærsta banka
landsins og hafa það á tilfinning-
unni að æðstu ráðamenn þjóðar-
innar beittu öllum brögðum til að
koma höggi á bankann. „Þetta er
mjög sérkennileg staða að vera í,“
sagði Sigurður sem rifjaði upp
þegar Davíð tók innstæður sínar
út úr bankanum til að mótmæla
kaupréttarsamningum.
„Maðurinn er forsætisráðherra
þá og síðan þegar viðkomandi
hættir sem forsætisráðherra þá
er hann gerður að formanni
bankastjórnar Seðlabankans.
Okkur fannst það alltaf mjög sér-
kennileg ráðstöfun,“ sagði Sigurð-
ur.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
Geir Haarde forsætisráðherra
síðdegis í gær kvaðst hann hafa
verið á fundum allan daginn og
hvorki séð viðtalið við Sigurð Ein-
arsson né kynnt sér innihald
þess.
„Ég sé ekki ástæðu til að svara
þeirri spurningu núna,“ svaraði
Geir aðspurður hvort ástæða væri
til þess að sannleiksgildi ummæla
Sigurðar yrðu rannsökuð. Kvaðst
forsætisráðherra þurfa að hlusta
á viðtalið áður en hann gæti tjáð
sig um málið.
Ekki náðist í seðlabankastjór-
ana þrjá í gær. gar@frettabladid.is
Fullyrt að Davíð hafi
hótað Kaupþingi falli
Fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings segir seðlabankastjóra hafa hótað því
að knésetja bankann, meðal annars vegna áforma um að skrá hlutafé í evrum.
Forsætisráðherra kveðst ekki hafa séð ummælin og tjáir sig ekki um þau.
DAVÍÐ ODDSSON GEIR HAARDE
SIGURÐUR EINARSSON „Þetta er mjög sérkennileg staða að vera í,“ segir fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings, sem telur bankann hafa verið beittan brögðum af
æðstu ráðamönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
EFNAHAGSMÁL Að sögn Sigurðar
Einarssonar, fyrrverandi
stjórnarformanns Kaupþings,
stóð Seðlabanka Íslands til boða
mjög stór fjármögnun aðeins
nokkrum vikum áður en hrun
bankakerfisins fór af stað.
Seðlabankinn hefði ekki viljað
taka lánið því kjörin hafi ekki
þótt nógu góð. Þetta kom fram í
sjónvarpsþættinum Markaðnum
á Stöð 2 í gær. Sagði Sigurður
einn lánveitandanna hafa verið
bandaríska bankann JP Morgan.
Rætt hafi verið um að lánið yrði á
bilinu 3 til 5 milljarðar dollara.
Það er jafnvirði 75 til 125
milljarðar króna í dag. - gar
Gagnrýni á Seðlabankann:
Risaláni hafnað
fyrir hrunið
EFNAHAGSMÁL Tryggvi Þór
Herbertsson, sem var efnahags-
ráðgjafi Geirs Haarde forsætis-
ráðherra þar til hann hætti
óvænt um miðjan síðasta mánuð,
segist hafa mælt gegn yfirtöku
ríkisins í Glitni í byrjun október.
Þetta kom fram í viðtali við
Tryggva í Markaðnum á Stöð 2 í
gær.
„Ég sá það mjög fljótlega að
með því að fara svokallaða
Glitnisleið myndi það valda
dómínó-áhrifum inn í hagkerfið,“
sagði Tryggvi og játti því í
Markaðnum að sér hefði fundist
að hans rödd næði ekki nægjan-
lega í gegn. - gar
Efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar:
Var andvígur
yfirtöku Glitnis
NOREGUR Landssamtök bygginga-
geirans í Noregi óskar eftir því að
norska ríkisstjórnin grípi til
ráðstafana til að koma í veg fyrir
að kreppa verði á byggingamark-
aði í Noregi.
Ný spá gerir ráð fyrir að 60
þúsund launamenn finni fyrir
kreppunni þegar framkvæmdir
verða fyrir töfum eða stöðvast á
næstu tveimur árum, eftir því
sem fram kemur í norska
ríkisútvarpinu, NRK.
Landssamtökin telja að
efnahagur sveitarfélaganna þurfi
að styrkjast og að sveitarfélögin
þurfi að fá bætt tap og tekju-
minnkun. - ghs
Norskur byggingageiri:
Óttast kreppu á
tveimur árum
VIÐSKIPTI „Ef tilfellið er að Kaup-
þingsmenn hafi hætt við umsókn
um að fá að gera upp í evrum
vegna pólitísks þrýstings voru
það mistök hjá þeim, og líka mis-
tök hjá þeim sem um málið fjöll-
uðu að gera ekki allt sem hægt
var til að bankinn gæti gert upp í
evrum,“ segir Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, um þau ummæli
Sigurðar Einarssonar, fyrrum
stjórnarformanns hjá Kaupþingi,
að hætt hafi verið við umsókn
bankans um að fá að gera upp í
evrum vegna tregðu fjármála-
ráðherra til að úrskurða í mál-
inu.
Vilhjálmur segir að það hefði
aukið mjög stöðugleika hagkerf-
isins í heild hefði bönkunum
verið gert kleift að gera upp í
evrum allt frá árunum 2002 eða
2003. „Það hefði dregið úr hags-
veiflunni. Krónan ýkir hana en
evran vinnur gegn henni. Bank-
arnir hefðu ekki getað lánað eins
mikið út þegar gengi krónunnar
var sem hæst, og það hefði hjálp-
að við að draga úr þenslu,“ segir
Vilhjálmur.
Spurður um meintar hótanir
Davíðs Oddssonar í garð Kaup-
þings telur Vilhjálmur ekki þörf
á sérstakri rannsókn á þeim.
„Andstaða Davíðs við að bank-
arnir gerðu upp í evrum lá fyrir
allan tímann. Davíð hefur aldrei
legið á skoðunum sínum á mönn-
um og málefnum. Ég hef heyrt
hann tala vel um menn og svo
ekki jafn vel um aðra menn.“ - kg
Framkvæmdastjóri SA um uppgjör banka í evrum:
Mistök að hindra bankana
EVRA Vilhjálmur Egilsson segir umræð-
una til framtíðar snúast um hvort
bankarnir ættu að gera upp í krónum
eða evrum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ertu sátt/ur við skipan nýrra
bankaráða ríkisbankanna?
Já 28,4%
Nei 71,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Mættir þú á mótmæli í mið-
borginni á laugardag?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN