Fréttablaðið - 10.12.2008, Blaðsíða 2
2 10. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Í umræðum um Ríkisútvarpið á Alþingi í gær vék
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda
flokksins, þessum orðum að Fréttablaðinu:
„Fréttablaðið kastaði sínum trúverðugleika út um
gluggann þann dag sem að eigandinn tók það í
sínar hendur að stýra því hvaða greinar birtust og
lét birta grein eftir sjálfan sig sama dag og
gagnrýni á hann birtist í Morgunblaðinu. Frétta-
blaðið er ekkert annað en áróðurssnepill eiganda
síns og einskis verður sem fréttamiðill um þessar
mundir.“
Af þessu tilefni vilja ritstjórar Fréttablaðsins
taka eftirfarandi fram: Greinin sem Kristinn vísar
til var eftir Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleiganda
útgáfufélags Fréttablaðsins. Hún var andsvar Jóns
við skrifum í sunnudagsblað Morgunblaðsins, sem
þrátt fyrir nafnið kemur út laust eftir hádegi á
laugardögum. Grein Jóns birtist í sunnudagsblaði
Fréttablaðsins, sem kemur út á sunnudögum. Ólíkt
Morgunblaðinu kemur Fréttablaðið út alla daga
vikunnar og nýtur þess í samkeppni blaðanna. Rétt
er að benda á að sama grein Jóns birtist eða var til
umfjöllunar í helstu fréttamiðlum landsins á
laugardagskvöldinu.
Grein Jóns birtist í þeim hluta Fréttablaðsins,
sem meðal annars er tekinn frá fyrir aðsent efni.
Það er hversdagsleg aðgerð að aðsendum greinum
sé hnikað þar til. Sama gildir um slíkar greinar og
annað efni blaðsins. Þær greinar sem þykja varpa
ljósi á líðandi atburði fá forgang.
Þess má geta að sömu helgi var grein eftir
bankastjóra Seðlabanka Íslands tekin til birtingar
með jafn stuttum fyrirvara og grein Jóns. Tveimur
dögum þar á undan var skapað pláss fyrir langa
aðsenda grein eftir Kára Stefánsson með skömm-
um aðdraganda.
Allar þessar greinar áttu sameiginlegt að vera
áhugavert lesefni um málefni sem var í brenni-
depli. Þær eiga það líka sameiginlegt að koma
fréttaflutningi blaðsins ekki við, fremur en annað
aðsent efni, eins og Kristni H. Gunnarssyni á að
vera fullkunnugt um.
Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson,
ritstjórar Fréttablaðsins.
Í tilefni af ummælum Kristins H. Gunnarssonar á Alþingi í gær:
Athugasemd ritstjóra
Álfheiður, er þetta allt að fara
í handaskolum hjá strákunum?
„Já, þetta er allt að fara í handaskol-
um hjá þeim. Það er bara spurning
hver á að þurrka upp eftir þá!“
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, hefur
sagt fjármálaráðherra þvo hendur sínar af
rekstri nýju bankanna. Hún býst við svip-
aðri frammistöðu frá viðskiptaráðherra.
EFNAHAGSMÁL Skilanefndir bank-
anna þriggja neita að upplýsa
skattrannsóknarstjóra um málefni
dótturfélaga sinna í Lúxemborg.
Bryndís Kristjánsdóttir skatt-
rannsóknarstjóri telur hættu á að
rannsóknin gefi ekki rétta mynd
vanti þessar upplýsingar.
Skattrannsóknarstjóri vill ekki
upplýsa um hvaða félag ræðir, en
það er skráð í Lúxemborg og
hefur embættið ástæðu til að ætla
að það tengist einhverjum bank-
anna þriggja. Bryndís sendi fyrir-
spurn um hvort
hver banki, útibú
hans eða dóttur-
félag hefði
komið að stofn-
un eða átt í við-
skiptum við
félagið með ein-
hverjum hætti.
Allir bankarnir
svöruðu hvað
varðar höfuð-
stöðvar hérlendis, en ekki dóttur-
félög.
Skilanefnd Kaupþings sendi frá
sér yfirlýsingu í gær vegna fréttar
RÚV um málið. Þar segir að
nefndin hafi veitt allar þær upp-
lýsingar sem nefndinni eru til-
tækar og óskað hafi verið eftir.
Kaupþing banki hf. hafi ekki haft
neina aðkomu að því félagi sem
var tilefni fyrirspurnarinnar.
Bryndís segir þetta villandi upp-
lýsingar, ekki sé minnst einu orði
á dótturfélag bankans. Hún vitnar
til svarbréfs skilanefndar Kaup-
þings. Þar segir að ekki sé fallist á
að íslensk skattyfirvöld geti lagt
þá skyldu á íslenskt hlutafélag að
„annast um söfnun, úrvinnslu eða
miðlun upplýsinga varðandi við-
skipti eða samskipti erlends dótt-
urfélags við þriðja aðila. [...] Sam-
kvæmt ofangreindu getur
Kaupþing ekki veitt umbeðnar
upplýsingar að því marki sem
beiðnin varðar erlend dótturfélög
bankans“.
Skilanefnd Glitnis vísaði í sínu
svari til umsjónarmanns sem yfir-
völd í Lúxemborg hafi skipað með
dótturfélagi bankans. „Skilanefnd
Glitnis hefur þar af leiðandi ekk-
ert með málefni dótturfélags í
Lúxemborg að gera á þessu stigi
og getur þar af leiðandi ekki hlut-
ast til um þær upplýsingar sem
beðið er um í erindinu varðandi
það félag sem um ræðir.“
Bryndís segist ekki geta skilið
það með öðrum hætti en að skattyf-
irvöld séu ekki með aðgang að
neinum gögnum í dótturfélögum
bankanna í Lúxemborg.
kolbeinn@frettabladid.is
Engin svör um dótt-
urfélög í Lúxemborg
Skattrannsóknarstjóri fær ekki aðgang að upplýsingum um dótturfélög bank-
anna í Lúxemborg. Segir skilanefnd Kaupþings gefa út villandi upplýsingar í
yfirlýsingu í gær. Forsætisráðherra segir embættið verða að geta unnið sín störf.
STJÓRNMÁL „Varla eru þeir að
mynda þjóðstjórn án þess að ég
sé með en það er ekki gott að
segja hvað þetta táknar,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir, starfandi
formaður
Framsóknar-
flokksins.
Hún var spurð
um fréttir af
einkafundi
Össurar
Skarphéðinsson-
ar og Ögmundar
Jónassonar um
helgina.
Skýrt var frá
fundinum í blaðinu í gær og sagði
Ögmundur að þeir hefðu verið að
ræða „sitt af hverju“ en ekki um
stjórnarmyndun.
„Ég hef ekki verið á neinum
leynifundi. En það er ekki gott að
segja hvort það er eitthvað að
gerast,“ segir Valgerður. - kóþ
Formaður Framsóknarflokks:
Þjóðstjórn ekki
komið til tals
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
SLYS Eldur kom upp í ljósabúnaði
sem nýverið hafði verið komið
upp á forvörsluverkstæði
Listasafns Íslands í gær. Deildin
er til húsa á Laufásvegi 14.
Ólafur Ingi Jónsson varð
eldsins var og brást hárrétt við.
Honum tókst að slökkva eldinn
áður en Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins bar að garði. Minni-
háttar reykjarslæða var í húsinu
og var það reykræst. Ekki er útlit
fyrir að nokkrar skemmdir hafi
orðið vegna brunans.
Eldurinn kom upp í neyðarljósi
og brann plastið í kringum ljósið.
Forvarnardeild slökkviliðsins
rannsakar nú hvers vegna
kviknaði í ljósinu. - kóp
Bruni í Listasafni Íslands:
Kviknaði í
neyðarljósinu
ELDSVOÐI Engar skemmdir urðu á
listaverkum sem voru í forvörsludeild
Listasafnsins þar sem eldur kom upp í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Steingrímur J. Sigfússon spurði
forsætisráðherra á þingi í gær hvort
ríkisstjórnin ætlaði að láta það
gerast að mikilvæg rannsóknargögn
töpuðust við sölu dótturfélaga.
Geir H. Haarde svaraði því til að
mikilvægt væri að gögnum yrði ekki
spillt og skattrannsóknarstjóri eigi
að geta unnið sín störf. „Mér er tjáð
að hægt sé að koma eignum Kaup-
þings í Lúxemborg í verð í samstarfi,
það hlýtur að vera háð því að Ísland
afsali sér í engu möguleikum á að
afla rannsóknargagna.“
FORSÆTISRÁÐHERRA SPURÐUR Á ÞINGI
BANKARNIR ÞRÍR Skattrannsóknarstjóri fær ekki upplýsingar um eignarhald dótt-
urfélaga bankanna í Lúxemborg. Rannsókn embættisins geti gefið ranga mynd af
þeim sökum.
BRYNDÍS
KRISTJÁNSDÓTTIR
ALÞINGI Allsherjarnefnd Alþingis
vill að sérstakur saksóknari, sem
til stendur að annist rannsókn á
refsiverðri háttsemi í aðdraganda
bankahrunsins, fái einnig heim-
ildir til að rannsaka atburði í kjöl-
far þess að neyðarlög voru sett.
Í áliti nefndarinnar kemur
fram að hið svokallaða uppljóstr-
araákvæði í lögunum á sér ekki
hliðstæðu á Norðurlöndunum.
Þar kveður á um að komi starfs-
maður fyrirtækis upplýsingum
um ólöglegt athæfi á framfæri sé
heimilt að falla frá því að sækja
viðkomandi til saka.
Allsherjarnefnd vill raunar
víkka ákvæðið út svo það taki
einnig til fyrrverandi starfs-
manna og annarra sem upplýs-
ingar kunni að hafa. Hagsmunir
af því að fá brot upplýst geti verið
mun meiri en að viðkomandi upp-
ljóstrari verði sóttur til saka. Þó
telur nefndin rétt að það komi
fram í dómum sé ákvæðinu beitt.
Rétt er að birt verði opinber-
lega upplýsingar um hlutabréfa-
eign og önnur tengsl sérstaks
saksóknara og fólks í viðskipta-
lífinu sem tengist honum, segir í
nefndarálitinu. Nauðsynlegt sé
að upplýsa um slíkt til þess að
saksóknarinn njóti almenns
trausts.
Þá leggur nefndin til að sak-
sóknarinn fái heimild til að fá
upplýsingar um stöðu mála hjá
réttarvörslu- og eftirlitsstofnun-
um. - bj
Allsherjarnefnd vill gera breytingar á frumvarpi um sérstakan saksóknara:
Rannsaki fyrir og eftir hrun
ALLSHERJARNEFND Nefndin leggur til að
birt verði opinberlega tengsl saksóknar-
ans við viðskiptalífið. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Ekið á tvö hreindýr í Lóni
Tvö hreindýr urðu fyrir vörubíl við
Laxá í Lóni aðfararnótt þriðjudags.
Dýrin drápust við áreksturinn en
bílstjórann sakaði ekki og óverulegt
tjón varð á bílnum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
KÖNNUN Fjármálaeftirlitið (FME)
kom verst út úr nýrri könnun á
trausti almennings til stofnana og
fyrirtækja. Alls sögðu 80,2
prósent aðspurðra að þeir treystu
FME frekar eða mjög lítið.
Könnunin var unnin af markaðs-
rannsóknafyrirtækinu MMR.
Aðspurðir sagðist 80,1 prósent
bera lítið eða mjög lítið traust til
bankakerfisins. Litlu fleiri
sögðust vantreysta Seðlabankan-
um, 74,1 prósent.
Samkvæmt könnuninni bera
54,8 prósent frekar eða mjög lítið
traust til Alþingis, og 61,4
prósent treysta ekki ríkisstjórn-
inni.
Mests trausts njóta Háskóli
Íslands, Fréttastofa Sjónvarps og
lögreglan. - bj
Könnun á trausti til stofnana:
Átta af tíu
vantreysta FME
Styrkja íslensk börn
Norrænu félögin hafa gefið út vin-
áttumerkið „Norrænir vinir Íslendinga“
sem er nú komið í sölu. Tekjurnar
fara allar í að styrkja íslensk börn og
unglinga til að taka þátt í norrænu
samstarfi á næsta ári.
NORÐURLÖND
EFNAHAGSMÁL Björgvin G.
Sigurðsson, viðskiptaráðherra,
segist hafa vitað um rannsókn
KPMG á Glitni. Kastljós hélt öðru
fram í gær.
„Þetta er galin frétt, að
sjálfsögðu vissi ég alltaf um
rannsóknir endurskoðunarskrif-
stofanna á bönkunum. Í gær frétti
ég af hagsmunaárekstrum KPMG
og hafði samband við formann
skilanefndar og Fjármálaeftirlit-
ið. Það gefur augaleið að þeir geta
ekki rannsakað bankann.“
Aðspurður segir hann að
auðvitað hefði átt að rannsaka
hagsmunina strax, það hafi ekki
komið upp fyrr en nú. - kóp
Rannsókn KPMG á Glitni:
Ráðherra vissi
af rannsókninni
SPURNING DAGSINS