Fréttablaðið - 10.12.2008, Síða 18
MARKAÐURINN 10. DESEMBER 2008 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Vika Frá ára mót um
Alfesca 2,6% -43,7%
Atorka 75,0% -92,9%
Bakkavör 26,4% -93,9%
Eimskipafélagið 0,8% -96,2%
Exista -97,0% -99,3%
Icelandair 1,1% -52,3%
Kaupþing 0,0% -100,0%
Marel 5,7% -20,5%
SPRON 0,0% -79,2%
Straumur 58,9% -80,7%
Össur 8,2% 0,0%
*Miðað við lokagengi í Kauphöll í gær.
Úrvalsvísitalan OMXI15 403.
G E N G I S Þ R Ó U N
Árni Mathiesen
fjármálaráð-
herra vermir
toppsætið á lista
bandaríska net-
miðilsins Huff-
ington Post yfir
versta banka-
mann í heimi.
Af athuga-
semdum við
könnunina að dæma virðast les-
endur, jafnt innlendir sem er-
lendir, þó almennt sammála um
að Árni verðskuldi ekki veru á
listanum. Nær hefði verið að
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
keppti þar við kollega sinn fyrr-
verandi, Alan Greenspan, sem
situr í öðru sæti listans með rúm-
lega helmingi færri atkvæði en
Árni. Nú eða Björgvin G. Sig-
urðsson, viðskiptaráðherra, sem
hefur bankamálin á sinni könnu.
Reyndar var starfsfélagi Árna
vestanhafs, Hank Paulson, fjár-
málaráðherra Bandaríkjanna, í
fjórða sæti listans í gær.
Hvorki náðist í Árna vegna
málsins í gær né í fyrradag. - jab
ÁRNI MATHIESEN
Árni verstur í bankaheimi?
Nafn Atkvæðahlutfalll
Árni Mathiesen
(fjárm.ráðherra ÍSL) 41,3%
Alan Greenspan
(bandaríski seðl.) 16,95%
Richard Fuld
(forst. Lehman) 10,52%
Hank Paulson
(fjárm.ráðherra BNA) 9,33%
Vikram Pandit
(forst. Citigroup) 4,73%
Fred Goodwin
(forst. RBS) 4,54%
James Cayne
(forst. Bear Stearns) 3,96%
Alan Fishman
(forst. WaMu) 3,19%
Chris Cox (forst. bandaríska
fjármálaeftirlitsins) 2,24%
* Staðan fyrir hádegi í gær
K Ö N N U N I N *
Evrópureglur hafa á stundum
hamlað samkeppni hér á landi.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í nýrri skýrslu Samkeppn-
iseftirlitsins.
Eitt dæmi er tilraun Iceland
Express til að hefja samkeppni
við Icelandair í áætlunarflugi
til Ameríku og reglur um af-
greiðslutíma á flugvöllum, en
þær gilda á Evrópska efnahags-
svæðinu. „Samkeppniseftirlitið
telur að beiting þessara reglna
hér á landi feli í sér talsverð-
ar aðgangshindranir fyrir nýja
keppinauta,“ segir í kafla skýrsl-
unnar um flugmarkað.
Að auki fjallar Samkeppniseft-
irlitið í skýrslunni um uppbygg-
ingu markaða í kjölfar banka-
hrunsins. Margar tillögur eru
lagðar fram og óskað eftir fleir-
um.
Eftirlitið bendir á að úrlausn-
arefni séu víða. Sveitarfélög hafi
til að mynda sjaldnast mótað
skýra stefnu um áhrif skipu-
lags á samkeppni, eins og fjall-
að hefur verið um í Markaðnum.
Þá er nefnt að stjórnvöld setji oft
lög eða reglur sem gangi gegn
markmiðum samkeppnislaga og
skaði samkeppni.
Samkeppniseftirlitið bendir
einnig á að nýjum keppinautum
á viðskiptabankamarkaði hafi
reynst erfitt að fá aðild að reikni-
stofu bankanna.
Enn fremur nefnir eftirlit-
ið verðstefnu Bónuss, sem geti
dregið úr samkeppni, búvöru-
lög sem ekki geri ráð fyrir að
mjólkurvinnsla geti verið ann-
ars staðar en innan hins ríkis-
styrkta kerfis, mögulega sam-
eiginlega markaðsráðandi stöðu
tryggingafélaga og sameiginlega
ráðandi markaðsstöðu Lyfju og
Lyfja og heilsu. Í henni felist
meðal annars hætta á því að fyr-
irtæki utan keðjanna geti búist
við grimmri samkeppni, sem þó
ríki ekki keðjanna á milli. - ikh
Reglurnar hömluðu samkeppni
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Allir núverandi hluthafar Existu fá að vera með í
forgangsréttarútboði félagsins á næsta ári. Heimild
til hlutafjáraukningar verður lögð fyrir hluthafa-
fund félagsins fyrir áramót.
Eins og fram kom á sérstökum hluthafafundi Ex-
istu í lok október, þar sem stjórn félagsins fékk víð-
tækar heimildir til björgunaraðgerða, ríkir óvissa
um eigna- og skuldastöðu félagsins. Það var stærsti
hluthafi Kaupþings þegar bankinn hrundi. Eignin,
sem var óveðsett, gufaði upp. Þá sitja tugir millj-
arða króna af inneignum og afleiðusamningum fast-
ar í þrotabúum gömlu bankanna. Viðræður standa
yfir um innlausn samninga.
Forgangsréttarútboðið kemur í framhaldi af
kaupum Existu á eignarhaldsfélagi Bakkabræðra,
Kvakki. Kaupin fela í sér að bræðurnir leggja Ex-
istu til einn milljarð króna í aukið hlutafé, eldsneyti
sem tryggði að félagið gat greitt lán á gjalddaga á
fimmtudag í síðustu viku upp á einn milljarð evra.
Hefði greiðsla fallið á gjalddaga er hætt við að Ex-
ista hefði farið í þrot, samkvæmt heimildum Mark-
aðarins.
Eftir viðskiptin eiga félög bræðranna tæp 88 pró-
sent í Existu.
Óvíst er með fjárhagslega burði stærstu hlut-
hafa Existu nú. Á eftir Bakkabræðrum, sem nú
sitja á 45 prósentum hlutafjár, er fjárfestingafé-
lagið Kista næststærst. Það er í eigu Spron, Spari-
sjóðsins í Keflavík, Sparisjóðs Mýrasýslu, Spari-
sjóðs Svarfdæla, Eyraeldis, dótturfélags Sparisjóðs
Vestfirðinga, og Þrælsfells, dótturfélags Sparisjóðs
Húnaþings og Stranda. Þá er Spron skráð fyrir 2,4
prósentum til viðbótar. Gift, eignarhaldsfélag Sam-
vinnutrygginga, er meðal stærstu hluthafa. Ljóst er
að félagið hefur ekki burði til þátttöku í hlutafjár-
aukningu en skuldir þess hlaupa á milljörðum um-
fram eignir.
Eftir bankahrunið í október voru viðskipti stöðv-
uð með hlutabréf Existu í Kauphöllinni. Þá stóðu
þau í 4,62 krónum á hlut. Þegar viðskipti hófust á ný
í gær hrundi gengið um rúm 97 prósent, eða undir
tíu aura þegar verst lét.
Nýja Kaupþing sagði í fyrradag leitað allra leiða
til að hindra gjörning Bakkabræðra enda hafi bank-
inn unnið að því að taka Existu yfir og verja hags-
muni bankans. Í gær barst svo tilkynning þess efnis
að félögin ætluðu ekki að taka á málinu í fjölmiðl-
um heldur leysa ágreininginn sín á milli. Hvorugur
aðila tjáði sig um málið í gær.
Harla lítið er eftir af eignasafni Existu saman-
borið við stöðuna í september. Skömmu eftir hrun-
ið gerðu Bakkabræður samkomulag um að kaup á
hlut Existu í Bakkavör fyrir 8,4 milljarða króna.
Viðræður við lánadrottna Bakkavarar og Existu í
tengslum við kaupin standa enn yfir.
Þá seldi félagið hluti sína í sterkustu fjármála-
fyrirtækjum Norðurlanda, í Sampo og Storebrand.
Eftir standa nú í Existu 100 prósenta eign í Skipt-
um, móðurfélagi Símans, eignaleigufyrirtækið Lýs-
ing, vátryggingafélagið VÍS og líftryggingafyrir-
tækið Lífís. Þá eru ótaldir smærri hlutir, svo sem
helmingshlutur í Öryggismiðstöðinni og rúmur
fjórtán prósenta hlutur í bresku íþrótta-
vöruversluninni JJB Sports.
Ljóst er að tak stjórnar Existu er
lítið eftir hremmingar
síðustu vikna, enda
róinn lífróður. Lík-
legra er, miðað við
stöðuna, að þar haldi
erlendir kröfuhafar
um taumana.
Bakkabræður forð-
uðu þroti Existu
Viðskipti hófust með bréf Existu í gær. Félaginu var forðað
frá þroti í síðustu viku þegar stórt lán var á gjalddaga.
BAKKABRÆÐUR RÝNA Í TÖLURNAR Lýður og Ágúst Guðmundssynir, stærstu
hluthafar Existu, ætla ekki að sitja einir að félaginu þegar birtir til á fjármagns-
mörkuðum. MARKAÐURINN/GVA
ELSKA AÐ GERA SAMA HLUTINN AFTUR OG AFTUR, ALLAN DAGINN
Ljósritunarvélarnar frá Konica Minolta eru einfaldar, hagkvæmar í notkun og krefj ast lítils viðhalds.
Þær prenta fyrir þig með miklum hraða og í fyrirtaksgæðum – og ólíkt öðrum á skrifstofunni eru þær
alsælar með endurtaka sig allan daginn.
BIZHUB C10
Litur: Já
Afköst: 20 bls./mín. í svarthvítu,
5 bls./mín. í lit
Pappírsstærðir: A5–A4
Tengi: USB, Ethernet
Aðgerðir: Ljósritun, prentun,
skönnun, fax og e-mail
BIZHUB 131F
Litur: Nei
Afköst: 13 bls./mín.
Pappírsstærðir: A6–A4
Tengi: USB, Ethernet
Aðgerðir: Ljósritun, prentun,
skönnun, fax og e-mail
BIZHUB 163
Litur: Nei
Afköst: 16 bls./mín.
Pappírsstærðir: A6–A3
Tengi: USB, Ethernet
Aðgerðir: Ljósritun, prentun,
skönnun, fax og e-mail
Konica Minolta
REKSTRARVÖRUR
Alltaf til á lager
KJARAN EHF. · SÍÐUMÚLA 12-14 · 108 REYKJAVÍK · S: 510-5520 · WWW.KJARAN.IS · KJARAN@KJARAN.IS
VIÐ INNRITUN Í LEIFSSTÖÐ Í nýrri skýrslu
Samkeppniseftirlitsins er fjallað um sam-
keppni hér á landi á víðum grundvelli.
Meðal annars um samkeppni á flugmarkaði.
MARKAÐURINN/PJETUR
Nítján svonefndar stórar áhættu-
skuldbindingar voru hjá stóru
bönkunum þremur, um síðustu
áramót. Heildarfjárhæð þess-
ara skuldbindinga var ríflega 930
milljarðar króna og um 95 prósent
af eiginfjárgrunni bankanna.
Þetta kemur fram í fjármála-
stöðugleikaskýrslu Seðlabankans
sem gefin var út í vor. Þar segir
enn fremur að stórum áhættu-
skuldbindingum hafi fjölgað um
fjórar frá árinu áður, en fjárhæð-
in yfir 380 milljarða króna.
Aukningin skýrðist „að nokkru
leyti af hækkun á fyrirgreiðslu
við einstaka viðskiptamenn“ og
tengda aðila sem myndi stórar
áhættuskuldbindingar í fleiri en
einum banka. Dæmi væru um að
hinir sömu væru jafnframt meðal
stærstu hluthafa bankanna, sem
var áhyggjuefni að mati Seðla-
bankans.
Stór áhættuskuldbinding er,
samkvæmt skilgreiningu, skuld-
binding fyrirtækis vegna við-
skiptamanns eða fjárhagslega
tengds aðila sem nemur tíu pró-
sentum eða meira af eiginfjár-
grunni fyrirtækis.
Seðlabankinn benti líka á að
ríflega þrettán prósent heildar-
útlána samstæðna viðskiptabank-
anna væru með veði í hlutabréf-
um. Þá nam lánsfjárhæðin tæp-
lega 970 milljörðum króna. Tæp
40 prósent bréfa til tryggingar
útlánum voru skráð í Kauphöll ís-
lands og námu hátt í fimmtungi af
markaðsverði allra skráðra bréfa
um síðustu áramót. - ikh
Lánuðu sjálfum sér