Fréttablaðið - 10.12.2008, Page 24
10. desember
2008 MIÐ-
4
„Nú eru allir argir út af ástandinu í
þjóðfélaginu og þá er gott að grípa í
prjónana og róa sig niður,“ segir
Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrunar-
fræðingur, annar höfundur bókar-
innar Prjóniprjón. Hinn er Halldóra
Skarphéðinsdóttir sjávareiturefna-
líffræðingur við Stokkhólmshá-
skóla.
„Við höfum látið okkur dreyma
um að gefa út bók í tvö ár. Höfum
skrifað niður það sem við höfum
verið að prjóna og allt í einu var
komið nóg efni,“ segir Ragnheiður.
Nú er líka prjón í hvers manns
kjöltu, garnbúðir eru fullar flesta
daga og fjölmennt er í prjónakaffi
hvarvetna. Það er ekki af því að
prjón sé svo ódýrt heldur fylgir því
svo margt gott, meðal annars
hlýja.“
Bókin Prjóniprjón inniheldur 35
litríkar myndir og uppskriftir sem
henta byrjendum jafnt sem lengra
komnum. Getið er úr hvaða garni er
prjónað og gefnir upp fleiri mögu-
leikar. Þar er bent á garn úr Nálinni
enda kveðst Ragn-
heiður vera í nánu
samstarfi við
hana og mæta í
prjónakaffi þar
hálfsmánaðarlega.
Það næsta verður
13. desember og þá
er þemað fljótlegar jólagjafir. „Við
ætlum líka að vera með pakkaleik og
skiptast þannig á hnotum, tölum og
einhverju sem tilheyrir
prjónaskapnum,“ upp-
lýsir hún og kemur
síðan með smáskýrslu
um meðhöfundinn. „Hall-
dóra býr ásamt fjölskyldu
sinni í Sveppaskógi norð-
ur af Stokkhólmi í húsi
fullu af garni í öllum skáp-
um og skotum. Hún er
mikil prjónakona og varð
til þess að ég endurnýjaði
mín kynni við prjón þegar ég bjó í
Stokkhólmi. Ég lenti í bakvandamáli
og hún hvatti mig til að fara að
prjóna og taka svo myndir af
afrakstrinum. Það er algert töfraráð
því það er svo uppbyggjandi fyrir
sjálfstraustið,“ segir Ragnheiður og
bætir við að búið hafi verið til bæði
blogg- og facebook-síða í kringum
Prjóniprjón.
Þær stöllur gefa bókina út sjálfar.
Hún fæst í Nálinni á Laugavegi 8 og
kostar 2.990. Einnig er hægt að panta
hana á www.prjoniprjon@gmail.
com. gun@frettabladid.is
Gott að grípa í prjónana
Prjón er iðja sem á vel við unga og aldna í dag. Því fagna margir þegar ný prjónabók skýtur upp kollinum
með íslenskum uppskriftum. Ein slík heitir Prjóniprjón.
Ragnheiður er alltaf með eitthvað spennandi á prjónunum og segir uppbyggjandi
fyrir sjálfstraustið að taka myndir af afrakstrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ein af uppskriftunum
í bókinni er af þess-
ari einföldu og sætu
kassahúfu.
STUBBUR og félagar úr Skemmtilegu smábarnabókunum hafa stytt mörgum
íslenskum börnum stundirnar um árin. Bækurnar eru auðlesnar og ódýrar og til-
valdar í skóinn eða jólapakkann.
www.salka.is
Yndislegar sögur á hljóðbók,
Bryndís Víglundsdóttir les.
„Ég bara gat ekki hætt að lesa.“
Hrafnhildur Sigrún, 11 ára.
Bráðskemmtileg og spennandi saga
eftir Hallveigu Thorlacius.
Þegar bókin er opnuð
fer allt af stað og dýrin
BÓKSTAFLEGA lifna við!
Ný hreyfimyndatækni
sem heillar alla upp
úr skónum!
„ ... tilvaldar til að skoða með
fullorðna fólkinu og njóta
saman ævintýranna sem
bir tast á hverri blaðsíðu.“
- MMJ, Fréttablaðið.
Nú eru ærslabelgirnir komnir í jólaskap
– en hvað með mömmu?
Falleg bók sem jólasveinar setja í skóinn.
Þriðja Bínubókin er komin út og nú
lærir hún undirstöðuatriði í lestri.
Geysivinsælar og gagnlegar bækur
fyrir krakka, kennara og foreldra.
BÖRN EIGA ÞAÐ BESTA SKILIÐ
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
Í jólapakkann
Gleddu uppáhalds frændann eða frænkuna
með gjöf sem nýtist allt árið!
Jólagjafir fyr
ir
útivista
rfólk
SÖLUSTAÐIR:
Enn betra golf 3
Enn betra golf
Eftir
Arnar Má Ólafssonlandsliðsþjálfara ogÚlfar Jónsson
margfaldan
Íslandsmeistaraog golfkennara
Eftir Arnar Má Ólafssonlandsliðsþjálfara ogÚlfar Jónssonmargfaldan Íslandsmeistara
GOLF
ENN BETRA
EN
N
BETRA
G
O
LF
A
rnar M
ár Ó
lafsson og Ú
lfar Jónsson
Golf.umbrot.indd 3
1
Verð kr. 3.490,- m/vsk
Verð kr. 1.490
,- m/vsk