Fréttablaðið - 10.12.2008, Síða 34
10. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
Sölvi Tryggvason fréttamaður í Íslandi í
dag ætlar að kúpla sig frá öllu í afmæl-
isviku sinni og skella sér í borgarferð til
Akureyrar. „Ferðin er farin í tilefni af-
mælisins og einnig af því ég hafði kost
á því. Það er ágætt að hvíla sig aðeins
eftir törn síðastliðinna vikna,“ segir
Sölvi og telur einn helsta kost Akureyr-
ar sem áfangastaðar vera þann að ekki
þarf að borga þar með evrum.
Sölvi og kærasta hans munu dvelja í
húsi Blaðamannafélagsins og stefna á
að gera sem minnst. „Ég verð með tærn-
ar upp í loft, tek með mér bækur, slekk á
símanum og passa að fara ekki í tölvu,“
segir Sölvi, sem hefur undanfarnar
vikur rakið garnirnar úr ráðamönnum
landsins.
En á ekki að gera eitthvað sérstakt
á afmælisdaginn sjálfan? „Mig hefur
lengi langað að fara á Friðrik V og ætla
að reyna að borða þar,“ segir Sölvi, sem
lítur á ferðalagið sem borgarferð. „Við
ætlum að kíkja á kaffihús og reynum að
fara í leikhús. Það er mjög langt síðan
ég hef komið til Akureyrar og það verð-
ur gaman að kynnast bænum,“ segir
hann.
Þrítugsafmælum fylgja oft mikil
veisluhöld, er ekki von á slíku? „Ég er
lítið formlegur og hugsaði ekki um þetta
afmæli öðruvísi en þegar ég varð 29 ára.
Síðan fór fólk að kvabba í mér að halda
partý fyrir mánuði. Það getur vel verið
að ég láti verða af því en það verður ein-
hvern tíma þegar ég verð búinn að hvíla
mig,“ segir Sölvi og telur líklegt að hann
hefði skotist til útlanda á afmælinu sínu
ef aðstæðurnar hefðu verið öðruvísi.
„Hins vegar fylgir þessum utanlands-
ferðum mikið áreiti en það sem ég þarf
á að halda núna er að vakna á morgnana
og finnast ég ekki þurfa að gera eitthvað.
Þetta hefur verið rosaleg törn og óbeina
álagið mest. Það hafa allir svo sterkar
skoðanir og allir með lausn á málunum.
Maður getur hvergi farið nema fólk vilji
segja manni hvað maður eigi að fjalla
um og hvað sé mikilvægast,“ segir Sölvi
sem var kominn í þann vítahring að vera
alltaf í vinnunni í huganum. „Það er því
best að hætta þessu, slökkva á símanum
og skilja fartölvuna eftir heima.“
solveig@frettabladid.is
SÖLVI TRYGGVASON: ÞRÍTUGUR Í SLÖKUNARFERÐ Á NORÐURLANDI
Borgarferð til Akureyrar
AÐ HEIMAN Á AFMÆLISDAGINN Sölvi Tryggasvon hefur staðið í ströngu undanfarið og skellir sér
í slökunarferð til Akureyrar til að kúpla sig frá öllu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KENNETH BRANAGH ER 48 ÁRA
Í DAG.
„Það er furðulegt að fólk-
ið sem þú elskar er yfirleitt
einnig það fólk sem þú ert
andstyggilegastur við.”
Írski leikarinn Kenneth
Branagh er þekktastur fyrir
hlutverk sín í kvikmynd-
um á borð við Hinrik V, Much
Ado About Nothing og Mary
Shelley‘s Frankenstein.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Kristmann Jónsson
Hofslundi 4, Garðabæ,
lést 29. nóvember sl. Útför fer fram frá Garðakirkju
föstudaginn 12. desember. kl. 11.00.
Sigurlaug Gísladóttir
Stefán Sólmundur Kristmannsson Johanna Engelbrecht
Sigurjón Kristmannsson
Sigrún Hrönn Kristmannsdóttir Peter Landvall
Gísli Ólafsson Katrín Guðrún
Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
Þuríður Sigurjónsdóttir
(Systa)
Frá Bjargi, Mosfellssveit,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir þann 26. nóvember.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirar fyrir frábæra
umönnun og vináttu.
Jón E. Sveinsson Toni Sveinsson
Sveinn Sveinsson Bergrós Þorgrímsdóttir
Sigríður Huld Sveinsdóttir Kristján L. Guðlaugsson
Vigdís Sveinsdóttir Guðjón Rudólf Guðmundsson
Guðmundur Ingi Sveinsson Þóra Einarsdóttir
Kristinn Már Sveinsson Elín Bára Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Þorbjörg G. Bjarnadóttir
Eiríksgötu 9, Reykjavík,
sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans þann 30.
nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 10. desember kl. 11.00. Jarðsett verður í
Bólstaðarhlíðarkirkjugarði.
Ríkharð B. Björnsson Hrafnhildur Hansdóttir
Helga Björnsdóttir
Ragnheiður E. Björnsdóttir Friðrik Stefánsson
Marinó B. Björnsson Guðbjörg Birkis Jónsdóttir
Efemía G. Björnsdóttir Steinar Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jónheiður Björg
Guðjónsdóttir
Krummahólum 6, Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstu-
daginn 5. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Börn hinnar látnu.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hreiðar Jónsson
klæðskerameistari,
Norðurbrú 5, Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 12. desember kl. 13.00.
Þórdís Jóna Sigurðardóttir
Sigurður Arnór Hreiðarsson Kristín Ragna Pálsdóttir
Guðrún Erna Hreiðarsdóttir
Valdimar Hreiðarsson Thanita Hreiðarsson
Birna Hreiðarsdóttir Pétur Gunnar
Thorsteinsson
Guðlaug Dröfn Hreiðarsdóttir Ásgrímur Skarphéðinsson
Sólveig Sif Hreiðarsdóttir Ólafur Arnarson
barnabörn og barnabarnabörn.
timamot@frettabladid.is
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengda-
faðir
Friðrik Stefánsson
skipstjóri frá Fáskrúðsfirði,
Hraunvangi 3 Hafnarfirði,
lést á hjartadeild Landspítalans föstudaginn 5. desem-
ber. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn
12. desember kl. 15.00.
Elín Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Bjarni Sigmar Helga Kristjánsdóttir
Gréta Ingvaldur Ásgeirsson
Hanna þóra Ómar Bjarnþórsson
Friðrik Kristborg Ingibergsdóttir
Árný Bára Ægir Kristmundsson
Stefán Berglind Hilmarsdóttir
Aðalsteinn Linda Þorvaldsdóttir
Ingibjörg Margrét
Steinunn Guðfinna
Bergþór
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
Guðmundur Rúnar
Júlíusson
tónlistarmaður og útgefandi
Skólavegi 12, Keflavík,
lést á bráðamótttöku Landspítalans föstudaginn
5. desember. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 12. desember kl. 14.00. Athöfninni verð-
ur einnig sjónvarpað í Duus-húsum, Reykjanesbæ og
Fríkirkjunni í Reykjavík. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Minningarsjóð Rúnars Júlíussonar í Sparisjóðnum í
Keflavík.
María Baldursdóttir
Baldur Þórir Guðmundsson Júlíus Freyr Guðmundsson
Þorbjörg M. Guðnadóttir Guðný Kristjánsdóttir
Björgvin Ívar Baldursson Kristín Rán Júlíusdóttir
María Rún Baldursdóttir Brynja Ýr Júlíusdóttir
Ástþór Sindri Baldursson Guðmundur Rúnar Júlíusson
Theodore Roosevelt
(1858-1919), 26. for-
seti Bandaríkjanna,
hlaut friðarverð-
laun Nóbels á þess-
um degi árið 1906 fyrir
að stuðla að friði milli
Rússa og Japana árið á
undan.
Roosevelt reyndi
sleitulaust í þrjá mán-
uði að fá Japana og
Rússa til að semja um frið árið
1905, en þjóðirnar höfðu síðan í
janúar 1904 átt í stríði sem óttast
var að leitt gæti til heimsstyrjaldar.
Bandaríska forsetanum tókst
loks að sannfæra þjóðirnar um
að semja frið fyrir júlí árið 1905
og áttu þær fund um
sumarið í Portsmouth
sem varði í hvorki
meira né minna en
þrjátíu daga. Þar beitti
Roosevelt diplómatísk-
um áhrifum sínum til
fullnustu sem varð til
þess að þjóðirnar und-
irrituðu Portsmouth
friðarsamninginn 5.
september árið 1905.
Roosevelt fékk friðarverðlaun
Nóbels árið eftir fyrir milligöngu
sína í friðarsamningum Rússa og
Japana. Hann varð þar með fyrsti
Bandaríkjamaðurinn og jafnframt
fyrstur þriggja Bandaríkjaforseta til
að hljóta þessi verðlaun.
ÞETTA GERÐIST: 10. DESEMBER 1906
Roosevelt fær Nóbelsverðlaun