Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 6
6 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR Clarins kynning verður í dag í Snyrtistofunni Hrund Clarins sérfræðingur veitir ráðgjöf um húðumhirðu og kynnir nýju förðunarvörurnar fyrir jól 2008. Í tilefni dagsins verður boðið upp á 15% afslátt af öllum Clarins vörum Gjafabréf frá Hrund Dekraðu við hana í ár og gefðu henni gjöfi na sem hún gleymir aldrei. Með gjafabréfum í andlits og líkams- meðferðir frá Clarins fylgir falleg gjöf. Snyrtistofan Hrund Grænatún 1 - 200 Kópavogur - Sími 554 4025 - hrund@hrund.is Ertu sátt/ur við að greiða tæpar 18 þúsund krónur í nefskatt til RÚV? JÁ 20,8% NEI 79,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ferð þú í jólaköttinn í ár? Segðu skoðun þína á vísir.is Stöð 2 hækkar verð Mánaðargjald Stöðvar 2 hækkar um tíu prósent um áramótin. Mánaðar- gjald Stöðvar 2 verður 6.590 krónur. Stærstur hluti samninga Stöðvar 2 um kaup á sjónvarpsefni er í erlendum gjaldmiðli. SJÓNVARP VIÐSKIPTI Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, hefur gengið frá skammtímafjármögnun með láni frá Glitni, viðskiptabanka félagsins. Einar Sigurðsson, forstjóri Árvakurs, segir að tryggingar hafi verið lagðar fram fyrir láninu. Búið er að gera áætlanir fyrir framtíð Árvakurs og næst á dagskrá sé að vinna að endurfjármögnun með nýju hlutafé, segir Einar. Næstu dagar og vikur verði notaðar til að ræða við þá sem sýnt hafi áhuga á að koma að rekstri félagsins. Einar vildi ekki gefa upp hversu langan tíma megi reikna með að það taki né hvaða tryggingar hafi verið lagðar fram fyrir láninu. Starfsmenn sem ekki fengu öll laun sín greidd um síðustu mánaðarmót afganginn útborgað- an í gær. Einar vonast til þess að ekki verði dráttur á greiðslum um næstu mánaðarmót. - bj Lausafjárstaða Árvakurs leyst: Glitnir lánar fyrir rekstri EINAR SIGURÐSSON UTANRÍKISMÁL „Kröfuhafarnir eiga síðasta orðið,“ segir Helgi Sig- urðsson, lögmaður Kaupþings. Þar vísar hann til hugsanlegrar mál- sóknar á hendur breskum stjórn- völdum. Hann segir að óvissa sé fólgin í málum af þessu tagi og að ljóst að kostnaður yrði töluverður. Kaupþing fól breskri lögmanna- stofu um miðjan október að kanna möguleika á málsókn gegn Bret- um vegna dótturfélags Kaupþings í Lundúnum, Singer og Friedland- er. Breska fjármálaeftirlitið tók bankann yfir í svörtu vikunni svo- nefndu, sömu viku og hryðju- verkalögum var beitt gegn Lands- bankanum. Þar með féll Kaupþing og víst þykir að gríðarleg verð- mæti hafi farið forgörðum. Lögmennirnir eru nú orðnir mjög áhyggjufullir, eftir því sem Fréttablaðið kemst næst. Þeir ótt- ast að ekki verði hægt að hefja málarekstur fyrir 7. janúar næst- komandi, en þá renni út frestur til þess. Takist það ekki, telja lög- mennirnir að tækifæri til að sækja rétt Íslendinga fyrir dómstólum heyri sögunni til. Lögmennirnir skrifuðu skilanefnd Kaupþing um þessi mál. Helgi Sigurðsson bendir á að enn sé beðið álitsgerðar frá lög- mönnum, hún komi væntanlega fljótlega. Eftir því sem næst verður kom- ist telja stjórnvöld óvíst að kröfu- hafar verði tilbúnir til þess að leggja út í þann kostnað sem í mál- sókn gæti falist. Kröfuhafarnir vilji fyrst og fremst fá eitthvað upp í kröfur sínar á hendur bank- anum en þeir séu yfirleitt frekar tregir til að leggja út í óvissu í málum af þessu tagi. Samningamenn Íslands gáfu utanríkismálanefnd Alþingis skýrslu í fyrradag um stöðu mála. Nefndarmenn segjast bundnir trúnaði um það efnislega. „Ég er orðinn langeygur eftir því að málsóknir hefjist, því það er orðið lífsspursmál að við leik- um þennan leik gagnvart gamla Kaupþingi og líka gamla Lands- bankanum, sem var beittur hryðju- verkalögum. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að við ætlum að klúðra þessu líka,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon, fulltrúi Vinstri grænna í utanríkismála- nefnd. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er Exista, sem átti fjórð- ungshlut í gamla Kaupþingi, að kanna með möguleika á málsókn. Ákvörðun um framhaldið hefur ekki verið tekin. - ikh Málsókn Kaupþings gegn Bretum í óvissu Breskir lögmenn hafa miklar áhyggjur af því að frestir renni út og ekki verði hægt að sækja mál vegna Kaupþings í Bretlandi. Lögmaður Kaupþings segir að kröfuhafar verði að ráða hvort farið verði í mál við stjórnvöld í Bretlandi. DÓMSMÁL Haukur Helgason öku- kennari hefur verið dæmdur í héraðsdómi í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum ungum drengjum. Þeir höfðu ýmist verið að læra á skellinöðru eða bíl hjá honum. Upphaflega steig einn drengj- anna fram og kærði manninn. Sex piltar kærðu svo í kjölfarið. Nemendurnir voru á aldrinum 14 til 17 ára. Ökukennarinn taldi sig ekki hafa framið lögbrot. Frá vori 1996 til nóvember 1998 kenndi hann pilti á aldrinum 14 til 17 ára á skellinöðru. Í tugi skipta fróaði hann piltinum. Kynferðis- mökin áttu sér oftast stað á heim- ili Hauks eða í bifreið hans í Heið- mörk. Á sama tímabili kenndi Haukur pilti á sama aldri á skellinöðru og síðar bifreið. Hann fróaði piltin- um að jafnaði einu sinni í viku. Hann notaði sömu staði til athæf- isins. Ökukennarinn kenndi þriðja piltinum, 15 til 16 ára, á skelli- nöðru. Af honum tók maðurinn fjölda nektarmynda, svo og fjórða piltinum. Á heimili Hauks var samtals lagt hald á 3.804 ljós- myndir, sem hann tók margar sjálfur, er sýndu börn á kynferð- islegan eða klámfenginn hátt. - jss KENNDI Á MÓTÓRHJÓL Ökukennarinn fór gjarnan með drengina upp í Heiðmörk. Karlmaður dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir misnotkun og vörslu barnakláms: Ökukennari misnotaði pilta HRYÐJUVERKALÖGUM BEITT Á ÍSLENDINGA Breski fjármálaráðherrann Alistair Darling var í fararbroddi þegar hryðjuverkalögum var beitt gegn Íslendingum. Lögmenn Kaupþings hafa áhyggjur af málsókn fyrirtækisins. NORDICPHOTOS/GETTY EFNAHAGSLÍF „Það er alrangt að öryrkjar verði verst úti og ég skil ekki hvað forseta ASÍ gengur til með svona málflutningi. Við erum fyrst og fremst að verja kjör aldr- aðra og öryrkja í þessum þreng- ingum,“ segir Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra. „Fjórðungur lífeyrisþega, 12 þúsund manns, fær vísitöluhækk- unina að fullu bætta sem er 20 prósent hækkun. Hjá þeim hækk- ar lífeyrir um 30 þúsund krónur á mánuði, úr 150 í 180 þúsund krón- ur, um 20 prósent. Þeir sem eru með tekjur yfir 180 þúsund krón- ur hækka um 9,6%, líkt og gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarp- inu. Þá eru margs konar kjarabæt- ur sem náðust á síðara ári varðar. Bætur lífeyristrygginga á næsta ári hafa aldrei verið hærri saman- borið við lægstu laun ASÍ.“ Jóhanna segir að tveimur millj- örðum sé bætt í almannatrygg- ingakerfið miðað við fjárlaga- frumvarpið í haust. „Algjör viðsnúningur hefur orðið á fjárlögum, úr 57 milljarða tapi í haust í 214 milljarða halla og við reynum að spara þar sem hægt er. Ég fullyrði að engu síður er betur gert við aldraða og öryrkja á næsta ári og því sem er að líða, í þessum þrengingum öllum, en í uppsveiflu liðinna ára, þar sem voru 80 til 100 milljarðar í afgang á fjárlögum.“ - kóp Jóhanna Sigurðardóttir segir gagnrýni forseta ASÍ óskiljanlega: Segir kjör öryrkja vera varin FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA Segir bætur lífeyristrygginga á næsta ári aldrei hafa verið hærri miðað við lægstu laun ASÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR SVÍÞJÓÐ, AP Sænska stjórnin tilkynnti í gær um áform um að leggja allt að 28 milljarða sænskra króna, andvirði um 390 milljarða íslenskra, til stuðnings bílaiðnaðinum í landinu. Stuðningsáætlunin felur í sér ríkistryggingar fyrir lánum, bein neyðarlán og aukið fé til rann- sókna og þróunar til að efla stöðu alls iðnaðar í landinu sem tengist bílaframleiðslu. Fólksbílaverksmiðjurnar Saab og Volvo hafa lengi kallað eftir ríkisaðstoð vegna fjármálaörðug- leika móðurfyrirtækjanna GM og Ford. Líklegt þykir að þau selji bæði sænsku bílamerkin. Tug- þúsundir starfa eru í húfi. - aa Bílaiðnaðurinn í Svíþjóð: Ríkið býður milljarðaaðstoð ÓVISSA Nýir XC-60-jeppar við höfuð- stöðvar Volvo í Gautaborg. Fjárhags- aðstoð ríkisins miðar að því að bjarga tugþúsundum starfa. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN SJÁVARÚTVEGUR Rammi hf. á Siglufirði er að undirbúa að hefja veiðar og vinnslu á úthafsrækju í vor. Ráðgert er að veiða um tvö til þrjú þúsund tonn og að um fimm til átta manns muni stafa við landvinnsluna en verið er að innrétta litla verksmiðju í húsnæði fyrirtækisins á Siglufirði. Ólafur H. Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Ramma, segir að nú þegar olíuverð hafi lækkað sé tæki- færi til þess að nýta rækjukvótann sem fyrirtækið eigi en Rammi gerði út fimm togara á úthafs- rækju fyrir nokkrum árum en hætti veiðum árið 2005 og vinnslu á aðfluttri rækju í lok árs 2006. - jse Lækkað olíuverð skapar færi: Rækjuvinnsla á ný á Siglufirði SKEMMTANIR Embætti ríkislög- reglustjóra hefur sent frá sér tilkynningu er varðar reglur um skemmtanahald um hátíðirnar. Á aðfangadag, 24. desember, er allt skemmtanahald bannað frá klukkan 18.00. Jóladag, 25. desember, er allt skemmtanahald bannað. Annan dag jóla, 26. desember, er skemmtanahald leyft frá klukkan 6.00 til klukkan 3.00 aðfaranótt 27. desember. Á nýarsdag, 1. janúar, er skemmtanahald leyft til klukkan 3.00 aðfaranótt 2. janúar 2009. - kg Embætti ríkislögreglustjóra: Skemmtanir um hátíðirnar Hjólastíganet í Hafnarfjörð Umhverfisnefnd Hafnarfjarðar ætlar að óska eftir hugmyndum um reiðhjólastíganet í bænum eftir að nefndinni voru kynntar áætlanir um samgöngunet til hjólreiða og hvernig hagnýta megi reynslu annarra landa við íslenskar aðstæður. SAMGÖNGUR KJÖRKASSINN N O R D IC PH O TO S/G ETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.