Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 24
24 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 171
381 -2,14% Velta: 259 milljónir
MESTA HÆKKUN
EXISTA 20,00%
ATLANTIC PETROL. 6,25%
MESTA LÆKKUN
STRAUMUR-BURÐA. 4,21%
MAREL 3,59%
ÖSSUR 2,31%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,90 +0,00% ... Bakkavör
3,55 -0,84% ... Eimskipafélagið 1,32 -0,75% ... Exista 0,06 +20,00%
... Icelandair Group 13,20 +0,00% ... Kaupþing 0,00 +0,00% ... Marel
Food Systems 75,30 -3,59% ... SPRON 1,90 +0,00% ... Straumur-
Burðarás 2,73 -4,21% ... Össur 97,20 -2,31%
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR: 200,4 +0,90%
Heimskreppan og fyrsta dómínóið
Boðið verður upp á áhugaverðan fyrirlestur í
Hátíðarsal Háskóla Íslands í hádeginu í dag,
þegar Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræði,
heldur fyrirlestur um þær slæmu horfur sem nú
eru í efna- hagslífi um heim allan.
Ætlar Gylfi að leita
skýringa á þessari
stöðu og hvað
verið geti fram
undan, sérstak-
lega hér á landi.
Yfirskrift erindisins
ætti að gefa ágæta
mynd af efnistökunum,
en það er: „Heimskrepp-
an og fyrsta dómínóið.“
Allir eru velkomnir
og er aðgangur
ókeypis.
Sheikinn tapaði stórt
Sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani lítur á
25,5 milljarða kr. fjárfestingu sína í Kaupþingi
sem glatað fé. Vísir hafði eftir Telmu Halldórs-
dóttur, talsmanni Q Iceland Finance, í gær, að
Al-Thani hafi greitt fyrir 5 prósenta eignarhlut
sinn í Kaupþingi með reiðufé og mjög tryggum
veðum í eignum sínum erlendis.
„Ég reikna samt með að hann sé ekki á
flæðiskeri staddur þrátt fyrir þetta tap sitt á
Kaupþingi,“ segir Telma aðspurð.
Al-Thani tilheyrir konungsfjölskyldunni í
Qatar en fjölskyldan hefur
stjórnað
þessu
auðuga
arabaríki
frá því á
nítjándu
öld.
Peningaskápurinn ...
Vatnsfyrirtækið Icelandic Water
Holdings, sem er í eigu Jóns Ólafs-
sonar, sonar hans og bandaríska
drykkjavörurisans Anheuser
Busch, og framleiðir átappað vatn
á flöskum í Ölfusinu, hefur landað
þriggja ára samningi við NetJets,
eina umsvifamestu einkaþotuleigu
Evrópu.
Fátt liggur fyrir um verðmæti
samningsins en ætla má að þetta
jafngildi útflutningi á tuttugu
gámum af vatni á ári, að sögn
Jóns, stjórnarformanns fyrirtæk-
isins. Hann er jafnframt afar
ánægður með samninginn.
Helstu viðskiptavinir NetJets
er fólk í viðskiptalífinu og fyrir-
tæki. Þorstlátir farþegar í vélun-
um geta nú svalað þorsta sínum
með eins lítra og 330 milllítra
flöskum næstu þrjú árin. - jab
VATNIÐ RENNUR Á FÆRIBANDI Vatn
á flöskum úr Ölfusinu verður fáanlegt
næstu þrjú árin hjá umsvifamestu
einkaþotuleigu Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Íslandsvatn í einkaþotum
Til þess að fasteignaverð nái hér
jafnvægi á ný þarf það að lækka
um 25 til 30 prósent á næstu þrem-
ur árum. Er þá miðað við að laun
hækki á sama tíma um 10 til 15
prósent.
Þetta kemur fram í fyrsta hluta
úttektar IFS-Greiningar um fast-
eignir og vænleika þeirra sem
fjárfestingarkosts.
Þar kemur jafnframt fram að
hér hafi fasteignaverð lækkað að
raunvirði um 16 prósent síðustu
tólf mánuði og að lækkunin hafi
ekki verið meiri í yfir 20 ár. Í
fyrra, þegar fasteignaverð var
hvað hæst, segir í skýrslunni að
það hafi verið ofmetið um 40 til 50
prósent. - óká
Fasteignaverð
fjarri jafnvægi
Fleiri hundruð milljarðar
hafa tapast hjá Existu á
síðustu mánuðum þessa
árs, eftir að níu mánaða
uppgjör félagsins var birt.
Hlutir félagsins í Sampo,
Storebrand og Bakkavör
voru seldir á mun lægra
verði en nemur því verð-
gildi sem fram kom í
bókum félagsins í septem-
berlok.
Ætla má að fjárfestingarfélagið
Exista hafi tapað yfir 400 millj-
örðum króna á seinasta fjórðungi
þessa árs, miðað við uppgjör sem
félagið birti í september.
Forsvarsmenn Existu segjast
ekki geta tjáð sig um einstakar
tölur varðandi reikninga félags-
ins, enda sé félagið skráð á mark-
aði. Hins vegar sé ljóst að félagið
hafi orðið fyrir verulegu fjár-
hagslegu tjóni eftir lok síðasta
uppgjörstímabils.
Exista seldi hlut sinn í Sampo,
norrænu fjármálafyrirtæki, fyrir
ríflega 200 milljörðum króna
lægri fjárhæð en bókfærð var í
uppgjöri félagsins fyrir þriðja
ársfjórðung. Þá var hluturinn í
Sampo færður til bókar á 2,7
milljarða evra, en skömmu síðar
var hann seldur fyrir 1,3 millj-
arða evra.
Þá var eignarhlutur Existu í
Kaupþingi metinn á 1,2 milljarða
evra, um 180 milljarða íslenskra
króna miðað við gengið í haust, í
níu mánaða uppgjörinu, en hann
gufaði upp í bankahruninu.
Hlutirnir í Sampo og Kaup-
þingi voru færðir í bækur Existu
með svonefndri hlutdeildarað-
ferð, sem felur í sér að ekki er
miðað við markaðsverð þeirra.
Ætla má að Exista hafi tapað
tugum milljóna evra á sölunni á
Storebrand, eða hátt í tíu millj-
örðum króna.
Svipað tap má ætla að Exista
hafi tekið á sig með sölu á næst-
um fjörutíu prósenta hlut í
Bakkavör.
Því má ætla að samanlagt tap
Existu frá því að níu mánaða upp-
gjör félagsins var birt, nemi yfir
2,6 milljörðum evra, eða yfir 400
milljörðum króna, miðað við
gengi krónunnar í byrjun októb-
er, rétt fyrir hrun.
Lýður Guðmundsson, stjórnar-
formaður Existu, sagði við kynn-
ingu á uppgjörinu að í lok sept-
ember hefði efnahagsreikningur
félagsins sýnt styrk félagsins.
„Bókfært eigið fé nam þá tveim-
ur milljörðum evra, eitt það
mesta meðal íslenskra fyrir-
tækja,“ sagði hann.
Við uppgjörið var greint frá
því að eftir bankahrunið væri
mikil óvissa um félagið. Það hafi
átt eignir umfram skuldir í
bankakerfinu „og er enn ekki
ljóst hvort og þá hvenær skuld-
bindingum bankanna gagnvart
Exista verður fullnægt. Þess
vegna liggur eignastaða félags-
ins ekki fyrir.“
Eftir því sem næst verður kom-
ist munu þær skuldbindingar fel-
ast að einhverju leyti í gengis-
vörnum Existu. ingimar@markadurinn.is
Tap Existu hleypur á
hundruðum milljarða
HELSTU EIGENDUR EXISTU Lýður og Ágúst Guðmundssynir eru helstu eigendur
Existu. Svo virðist sem félagið hafi tapað hundruðum milljarða frá síðasta uppgjöri.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Veiðisumarið 2008 í máli og myndum
Fæst hjá útgefanda og á öllum helstu bóksölustöðum.
Jólabók veiðimannsins
Vatnagörðum 14 – 104 Reykjavík
Sími 563 6000 – www.litrof.is
JÓLABÓK
VEIÐIMANNA