Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 50
14 föstudagur 12. desember
SNYRTISKÓLI - naglaskóli - förðunarskóli - fótaaðgerðaskóli
S N Y R T I -A K A D E M Í A N
www.snyrtiakademian.is • Hjallabrekka 1 • sími 553-7900
tíðin
✽ jólaglögg... hik...
DÍANA MIST
Föstudagur 5. desember: Jólagjöfin er ég...
Jólastuðið alltaf í algleymingi. Ákvað að gera svolítið jólalegt í höllinni og gróf
eftir músastigunum sem ég föndraði þegar ég var átta ára og setti seríu í
gluggann. Eftir þetta var ég komin í svo mikið jólastuð að ég sendi sms á lín-
una og heimtaði að vinir mínir færu með mér í glögg. Þegar við vorum komin
á staðinn hvarf löngunin í glöggið þegar vinur minn kom
með vodka í trönuberjasafa. Auðvitað langaði okkur miklu
meira í það. Eftir þó nokkra drykki og annað rugl kíktum
við yfir á b5. Þar var piparsveinninn ógurlegi, Sveinn Andri
Sveinsson, í stuði, Heiðrún Lind Marteinsdóttir lögmaður,
Tinna Ólafsdóttir og Karl Pétur Jónsson, Hanna Stína
stjörnuarkitekt og Svana Friðriksdóttir hjá Baugi. Hitti
gamlan sleik þegar ég var að labba út af staðnum. Stóðst ekki freistinguna
þegar hann bauð mér með sér upp í sumarbústað um miðja nótt...
Laugardagur 6. desember: Vaknað í Grímsnesi
Eins og það var nú eitthvað huggulegt og rómantísk tilhugsun að keyra með
riddara á hvítum hesti út fyrir borgina þá var það ekki alveg eins sjarmerandi
í morgunsárið. Tannburstalaus í djammgalla dröslaðist ég fram í eldhús í leit
að æti en fann ekkert nema kampavínsflösku. Draumaprinsinn svaf á sínu
græna eyra og ég var að velta því fyrir mér hvað ég ætti eiginlega til bragðs
að taka. Ég var varla búin að sleppa hugsuninni þegar ég
sá bíl koma akandi að sumarbústaðnum og neyddist því
til að vekja draumaprinsinn. Hann varð frekar skelfdur,
klæddi sig í snatri og hljóp með mig út í bíl. Þegar hann
ætlaði að bakka keyrði hinn bíllinn í veg fyrir okkur. Út
úr bílnum steig eiginkona hans bandbrjáluð. Ég lét mig
sökkva niður í framsætið svo ég þyrfti ekki að horfast
í augu við þetta og skyndilega urðu ævintýri næturinnar
að engu. Velti því fyrir mér af hverju menn gætu verið svo
miklir lúserar...
KK OG ELLEN Uppselt er á tvenna aukatónleika KK
og Ellenar í Bæjarbíói svo öðrum aukatónleikum hefur verið
bætt við sunnudaginn 14. desember. Viðtökurnar hafa verið
frábærar svo nú er um að gera að grípa tækifærið og fara á
tónleika í notalegri og hlýlegri stemningu í Hafnarfirði.
EMILÍANA TORRINI Það seldist strax upp á tónleika
Emilíönu annað kvöld, en nú hefur aukatónleikum verið
bætt við á sunnudaginn og mun Lay Low hita upp fyrir
hana bæði kvöldin. Tvö og hálft ár er liðið síðan Emilíana
hélt tónleika á Íslandi síðast.
Hvað dreymir þig um að
eignast í vetur? Mig langar
alveg ofboðslega mikið í hvít/
grásleginn loðfeldsjakka með
hettu, nýjan snjóbrettagalla og
House of Holland-bol.
Hvað keyptir þú þér síðast?
Ég keypti mér leðurlíkis
gammósíur, en ég tók eftir því í
Vogue-blaði um daginn að þær
verða alveg í tísku í allan vetur
þannig það var best að fjárfesta
í einum svoleiðis.
Uppáhaldsverslun? Ég var að
vinna í All Saints í Kringlunni í
smátíma og alveg kolféll fyrir
þeirri verslun. Annars fer ég allt-
af einu sinni á ári til Köben og
þar versla ég mest og þá helst í
Urban Outfitters, Flying A, H&M,
Topshop, ACNE og Miss Sixty.
Uppáhaldsfatamerki? Chanel,
Roberto Cavalli, Dolce&Gabb-
ana, Anna Sui, Christian Lou-
boutini, Mark Jacobs og Bur-
berry. Ef ég væri rík frú mundi
ég bara ganga í fötum frá þess-
um tískuhúsum.
Eru einhver tískuslys í
fataskápnum þínum?
Það leynast einar gull-
buxur einhvers stað-
ar vel faldar inni í
fataskáp. Keypti
þær fyrir eitt-
hvað diskó-
glimmer-partí í
sumar og ætla
mér aldrei aftur
að nota þær.
Í hvað myndir þú aldrei
fara? Ég mundi aldrei fara í
gegnsæjan kjól.
Hvaða snið klæðir þig best?
Ég er frekar smágerð öll svo að
mínu mati klæða aðsniðin föt
mig best.
Af hvaða líkamsparti ertu
stoltust og hvernig und-
irstrikar þú það með
klæðaburði? Ég hef aldrei
pælt í því að klæða mig á
ákveðinn hátt til þess að
undirstrika einhvern
líkamspart sér-
staklega.
Hvert er
skuggalegasta
fatatímabilið
þitt? Þegar ég var í
grunnskóla var ég föst
í Stjörnu-fimleikagallan-
um mínum. Þessi íþróttagalli
var það eina sem ég vildi vera
í og ekkert annað nema Nike-
íþróttaföt komu til greina. Mjög
fyndið tímabil. - ag
Lína Ágústsdóttir háskólanemi
LANGAR Í LOÐFELDS-
JAKKA MEÐ HETTU
1 Hvít skyrta úr Topshop og leður-
líkisleggings frá Only 2 Hálskragi
frá nýju hönnunarbúðinni KRAKK á
Skólavörðustíg. 3 Grár leðurjakki frá
All Saints. 4 Gullhálskeðja frá Gi-
venchy Paris, gjöf frá ömmu minni.
Stjörnuhálsmen frá All Saints, gjöf frá
kærastanum. 5 Bláir háhælaðir sat-
ínskór frá Carvela, keyptir í London. 6
Kósý stór hettupeysa frá All Saints.
Þráinn Skóari Skóbúð • Grettisgata 3
1
3
4
5
2
6