Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 82
58 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR KÖRFUBOLTI Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU hafa byrjað tíma- bilið í bandaríska háskólaboltan- um afar vel og nú síðast vann liðið sigur á Collier-hraðmótinu í Kali- forníu. TCU vann heimastúlkur í Kaliforníu-háskólanum sem var talinn vera með þriðja besta lið landsins. Helena hefur spilað frá- bærlega í nýju hlutverki sem fyr- irliði og leikstjórnandi liðsins og á mikinn þátt í góðri spilamennsku þess. Hún fékk líka tvö verðlaun í þessari viku. Þetta var í fyrsta sinn í sögu TCU-skólans sem liðið nær að vinna svona sterkt lið á útivelli. Eftir þennan sigur og alls 8 sigra í fyrstu 10 leikjum sínum er skólinn kominn upp í 19. sætið á styrk- leikalistanum yfir bestu háskóla- lið Bandaríkjanna. TCU hefur ekki verið hærra á listanum síðan vet- urinn 2003-2004 þegar skólinn komst upp í 16. sætið. Árangur TCU-liðsins hefur vakið mikla athygli enda missti liðið marga lykilleikmenn frá því á síðasta vetri sem sést best á því að núverandi leikmenn tóku aðeins þátt í að skora 31,8 prósent stig- anna, taka 31,1 prósent frákast- anna og gefa 24,5 prósent af stoð- sendingum liðsins á síðasta vetri. Helena var kosin besti leikmað- ur mótsins eftir að hafa verið með 20 stig og 11 fráköst í undanúr- slitaleiknum á móti Saint Louis og 17 stig og 10 stoðsendingar í úrslitaleiknum á móti Kaliforníu- háskólanum. Þetta er í fyrsta sinn sem Helena nær að gefa 10 stoð- sendingar í einum leik og enn fremur í fyrsta sinn í þrettán ár sem leikmaður TCU nær að gefa svona margar stoðsendingar í einum leik. Helena var með 18,5 stig, 7,5 fráköst og 6,0 stoðsend- ingar að meðaltali í mótinu en Hel- ena hitti úr 50 prósentum skota sinna og tapaði aðeins 2 boltum á 78 mínútum í þessum tveimur leikjum. Í kjölfarið var Helena síðan kosin besti leikmaður vik- unnar í sinni deild. „Við vorum að gera allt saman. Við vissum alltaf hvað var í gangi og áttum svör við öllum þeim vörnum sem þær buðu upp á gegn okkur. Við spiluðum mjög góðan liðsbolta í kvöld,“ sagði Helena í viðtali við heimasíðu TCU. Þetta er annar sigur TCU-liðsins á mjög sterku liði því fyrr í vetur vann liðið glæsilegan sigur á Maryland- háskólanum sem var þá einnig í þriðja sæti á styrkleikalistanum. Helena var með 18 stig og 7 stoð- sendingar í þeim leik. Þetta var sem dæmi fyrsta tap Kaliforníu-háskólans á tímabilinu og enn fremur í fyrsta sinn í sex ár sem skólinn vinnur ekki þetta hraðmót sem hann heldur árlega. „Allt liðið áttaði sig á því að ég var með minni mann á mér. Hel- ena stóð sig frábærlega í að lesa vörnina og koma til mín boltanum. Hún átti frábærar sendingar þegar þær voru að reyna að loka á hana,“ sagði Rachel Rentschler, félagi Helenu í TCU, í viðtali á heimasíðu skólans en Rentschler var stigahæst í úrslitaleiknum með 24 stig auk þess að taka 10 fráköst. Rentschler var einnig valin í úrvalsliðið eins og Helena. Helena er mjög áberandi á öllum tölfræðilistum í sinni deild. Hún er í þriðja sæti í stigaskori (17,1 í leik), í 2. sæti í stoðsending- um (5,1) og þrettánda í fráköstum (6,2). Þá hefur aðeins Rentschler hitt betur úr þriggja stiga skotum en 57,1 prósent þriggja stiga skota Helenu hefur ratað rétta leið. Næsti leikur TCU er á móti Oklahoma State á útivelli á sunnu- daginn. Leikurinn fer fram í Still- water en Oklahoma State er talið vera með 23. besta lið landsins og er því fjórum sætum neðar á list- anum en TCU. ooj@frettabladid.is Helena sankar að sér verðlaunum TCU er komið upp í 19. sæti á lista yfir bestu liðin í bandaríska háskólakörfuboltanum og vann um síðustu helgi mót í Kaliforníu. Helena Sverrisdóttir á mikinn þátt í árangrinum sem fyrirliði og lykilmaður liðsins. ÖFLUG Helena Sverrisdóttir er í stóru hlutverki hjá TCU-liðinu. AP KÁT Helena Sverrisdóttir fagnar hér sigri TCU á Kaliforníu-háskólanum. AP FÓTBOLTI Íslensk knattspyrna 2008 er komin út en þetta er 28. bókin í þessum bókaflokki sem hóf fyrst göngu sína árið 1981. Höfundurinn, Víðir Sigurðsson, hefur komið að öllum bókum nema þeirri fyrstu og hefur skrif- að þær einn frá og með árinu 1983. Víðir hefur að auki skrifað þrjár aðrar fótboltabækur og bókin í ár er því þrítugasta fót- boltabókin sem Víðir skrifar frá árinu 1982. Bókin í ár er stærri en nokkru sinni fyrr en hún stækkar um sextán síður frá því í fyrra auk þess sem fleiri litmyndir eru í henni en áður. Bókin er alls 240 síður og þar má finna ítarleg við- töl við þau Dóru Maríu Lárus- dóttur, Davíð Þór Viðarsson, Hólmfríði Magnúsdóttur og Guð- mundur Steinarsson. Bókin er gefin út í samstarfi við KSÍ og í henni er að finna úrslit allra leikja í KSÍ-mótum 2008. Það má einnig finna í henni að venju litmyndir af öllum meistaraliðum í öllum flokkum á Íslandsmótinu 2008 ásamt bikar- meisturum og landsliðum. Það kom fram á kynningar- fundi um bókina að fjölgun í efstu deildum hefði kallað á stækkun á krepputímum. Í tilefni af útgáfu bókarinnar veittu Víðir og bóka- útgáfan Tindur sérstök verðlaun. Kvennalandsliðið fékk sérstök heiðursverðlaun fyrir sögulegan árangur á árinu og þá voru þeir Guðmundur Benediktsson og Tryggvi Guðmundsson verðlaun- aðir fyrir að leggja upp flest mörk í úrvalsdeild karla. Bókin Íslensk knattspyrna er orðin ómissandi fyrir allt áhuga- fólk um knattspyrnu enda er þar að finna allt um íslenska knatt- spyrnu á árinu skrifað um leið og hlutirnir gerast. - óój Íslensk knattspyrna er komin út í 28. skiptið og hefur aldrei verið stærri: Þrítugasta bókin hans Víðis AFKASTAMIKILL Víðir Sigurðsson hefur skrifað 30 fótboltabækur á síðustu 26 árum. Hann afhendir hér Geir Þorsteinssyni, formanni KSÍ, nýju bókina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÖRFUBOLTI Benedikt Guðmunds- son og Yngvi Gunnlaugsson fengu fína aðstoð við valið á Iceland Express-liðunum sem mæta íslenska landsliðinu í Stjörnu- leikjum KKÍ á laugardaginn. Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, aðstoðaði þá við valið en í þeim er athyglisverð blanda af erlendum leikmönnum og ungum og efnilegum leik- mönnum. Stjörnuleikir kvenna og karla fara fram á Ásvöllum klukkan 13.30 og 16.00 á morgun. - óój ÚRVALSLIÐ ICELAND EX- PRESS KARLA: Jason Dourisseau KR Nemanja Sovic Breiðablik Thomas Viglianco FSu Justin Shouse Stjarnan Caleb Holmes Hrunamenn Jason Pryor Hamar Darri Hilmarsson KR Rúnar Ingi Erlingsson Breiðablik Vésteinn Sveinsson FSu Hjörtur Hrafn Einarsson Njarðvík Árni Ragnarsson FSu Haukur Helgi Pálsson Fjölnir ÚRVALSLIÐ ICELAND EX- PRESS KVENNA: Ashley Bowman Fjölnir Julia Demirer Hamar LaKiste Barkus Hamar Guðbjörg Sverrisdóttir Haukar Slavica Dimovska Haukar Telma Fjalarsdóttir Haukar Hrönn Þorgrímsdóttir Keflavík Helga Einarsdóttir KR Sara Sædal Andrésdóttir Snæfell Íris Sverrisdóttir Grindavík Ólöf Helga Pálsdóttir Grindavík Jóhanna Björk Sveinsdóttir Hamar Úrvalslið Iceland Express: Þjálfararnir fengu fína hjálp MARGIR UNGIR Blikinn Rúnar Ingi Erlingsson er einn af mörgum ungum leikmönnum í liði Benedikts Guð- mundssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.