Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 86
62 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
NÝJU JÓLASVEINARNIR
LÁRÉTT
2. ákefð, 6. rykkorn, 8. merki, 9. ætt,
11. átt, 12. rithöfundur, 14. safna
saman, 16. í röð, 17. gaul, 18. skelf-
ing, 20. járnstein, 21. maður.
LÓÐRÉTT
1. strit, 3. íþróttafélag, 4. fugl, 5.
keyra, 7. heimilistæki, 10. lærdómur,
13. háttur, 15. óskerta, 16. nam burt,
19. númer.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ofsa, 6. ar, 8. hak, 9. kyn,
11. na, 12. skáld, 14. smala, 16. tu, 17.
gól, 18. ógn, 20. al, 21. karl.
LÓÐRÉTT: 1. baks, 3. fh, 4. sandlóa,
5. aka, 7. ryksuga, 10. nám, 13. lag,
15. alla, 16. tók, 19. nr.
„Ég er að sjálfsögðu alveg í skýj-
unum með þetta,“ segir tónlistar-
maðurinn Rúnar Eff sem hefur
tryggt sér dreifingarsamning í
Danmörku í kjölfar góðs gengis í
raunveruleikaþættinum All Stars.
Rúnar komst alla leið í úrslit í
þættinum en kór hans náði á end-
anum ekki að tryggja sér sigur.
„Þetta gekk rosa vel. Að flestra
mati vorum við mun sterkari hóp-
urinn sönglega séð. En hinn kór-
inn var með mun sterkara málefni
að berjast fyrir, eða leiksvæði
fyrir munaðarleysingja, á meðan
okkar kór var að berjast fyrir
hljóðstúdíói í Sönderborg,“ segir
Rúnar Eff, en sigurlaun keppninn-
ar runnu öll til góðgerðamála.
Tvö lög Rúnars verða gefin út á
smáskífu í Danmörku á næstunni,
annars vegar Aha-lagið Take On
Me, sem kom út á síðustu sóló-
plötu hans, og hins vegar You sem
er einnig á plötunni. Rúnar hefur
jafnframt sent frá sér nýtt jólalag
sem nefnist Jólin koma. „Ég samdi
þetta fyrir einhverjum sjö árum.
Ég ætlaði alltaf að gefa þetta út
fyrir jólin en hafði aldrei tíma,“
segir hann.
Rúnar flytur til Íslands á sunnu-
dag en verður þó með annan fót-
inn í Kaupmannahöfn vegna söng-
kennaranáms síns. Mun hann nýta
tækifærið og fylgja sólóferli
sínum eftir þar í landi með tón-
leikahaldi.
Danskir fjölmiðlar hafa haft
mikinn áhuga á honum vegna þátt-
tökunnar í All Stars og til að
mynda verður hann gestur þáttar-
ins Go´Aften Danmark á TV2 í
janúar, sem er nokkurs konar
dönsk útgáfa af Kastljósi eða
Íslandi í dag.
Næstu tónleikar Rúnars hér á
landi verða á Glerártorgi 22.
desember og þar mun hann vænt-
anlega koma öllum í jólaskap með
nýja jólalaginu sínu. Hann hefur
einnig verið bókaður á menning-
arnótt í ágúst á næsta ári þar sem
hann stígur síðastur á sviðið með
hljómsveit sinni. - fb
Fékk samning í Danmörku
RÚNAR EFF Rúnar, sem flytur heim til
Íslands á sunnudag, er í skýjunum með
dreifingarsamning sinn í Danmörku.
„Öfl myrkursins eru komin á aft-
urlappirnar, stíga villtan dans.
Hrunadansinn er þess dans,“
segir Gunnar Þorsteinsson, trú-
arleiðtogi í Krossinum.
Gunnari í Krossinum þykir það
furðu sæta að það hafi nánast
farið fram hjá fjölmiðlum að á
laugardag fyrir viku komu
saman sjö hundruð biðjandi
sálir við Austurvöll. En fyrsta
frétt var að sjö manns voru
handteknir við Alþingishúsið.
Sjálfur er Gunnar léttur á því,
segir að þó að kreppa sé í hinu
veraldlega ríki eigi hið sama ekki
við um Guðsríki. „Mér finnst
menn standa þetta furðuvel af
sér. Andrúmsloftið frekar vera
að léttast. En þegar desember er
liðinn fáum við að sjá veruleika
sem við eigum erfitt með að
horfast í augu við.“
Þegar Fréttablaðið náði tali af
Gunnari var hann nýkominn af
bænastund þar sem saman voru
komnir forstöðumenn og leið-
togar ýmissa kristinna safnaða.
„Mönnum finnst ástæða til að
kristin viðhorf og kristin bæn
komi víðar við í ljósi þess að hin
myrku öfl hafa nú gert sig gild-
andi í samfélaginu. Eins og norn-
in við stjórnarráðið, ásatrúar-
menn að reisa níðstangir, dúkkur
stungnar með prjónum og mynd-
ir af leiðtogum þjóðarinnar
brenndar.“
Eva Hauksdóttir norn var stödd
í miðjum mótmælum þegar blað-
ið náði tali af henni, hjá ríkissak-
sóknara þar sem Hörður Torfa-
son var að leggja fram kæru.
Hún lét sér hvergi bregða nema
síður sé þegar hún var spurð
hvernig henni litist á að vera full-
trúi hinna myrku afla í huga
Gunnars. „Þetta þykja mér góðar
fréttir. Ég trúi á hið illa afl sem
gerir gott. Þetta sem boðað er í
bók Búlgakovs Meistaranum og
Margaritu: Fulltrúi þess illa afls
sem flettir ofan af spillingu og
rís gegn valdníðslu. Það gleður
mig að Gunnari í Krossinum og
hans líkum sé uppsigað við mig.
Gunnar er einhver mesti ruglu-
dallur landsins og þetta þýðir að
ég er að gera eitthvað rétt,“ segir
Eva norn. - jbg
Eva norn fulltrúi hins illa afls
EVA HAUKSDÓTTIR NORN Henni þykja
það verulega góðar fréttir að Gunnari
í Krossinum, sem Eva segir einhvern
mesta rugludall landsins, sé illa við sig.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Tvo mánuði.
2. Stormþursarnir.
3. 3,7 milljarða króna.
„Þetta er flott og það er bara
gaman að fá svona fréttir,“ segir
rithöfundurinn Bragi Ólafsson.
Vefsíða bókabúðakeðjunnar Bar-
nes & Noble valdi bók hans, Gælu-
dýrin, eina af fimmtán bestu
skáldsögum þessa árs. Barnes &
Noble er ein elsta og virtasta bóka-
sölukeðja Bandaríkjanna með yfir
átta hundruð bókabúðir víðs vegar
um Bandaríkin. Fyrirtækið var
stofnað 1873 og heldur því fram að
það reki heimsins stærstu bóka-
búð sem er við fimmtu breiðgötu í
New York. Vefur bókabúðarinnar
hefur haft það fyrir sið að velja
bestu bækurnar í lok hvers árs á
heimasíðu sinni.
Bandarískir og breskir bóka-
markaðir þykja nánast óvinnandi
vígi fyrir rithöfunda utan hins
enskumælandi heims. Til marks
um það má nefna að auk Halldórs
Laxness hafa einungis Ólafur
Jóhann Ólafsson og Arnaldur Ind-
riðason náð eftirtektarverðum
árangri þar. Að sögn Jóhanns Páls
Valdimarssonar útgefanda tíðkast
ekki þessi hefð að taka bókmennta-
verk frá öðrum löndum og þýða.
„Að fá svona umsögn hjá Barnes &
Noble hefur mikið gildi og þetta
ætti að auðvelda okkur mjög að ná
augum og eyrum bandarískra
útgefenda,“ segir Jóhann.
Gagnrýnandi Barnes & Noble,
Paul La Farge, rifjar upp í dómi
sínum að Bragi hafi spilaði á bassa
í Sykurmolunum. Hann bætir því
við að tök Braga á súrealískum
aðstæðum hinnar seinheppnu
aðalpersónu, Emils S. Halldórs-
sonar, gefi hinum japanska Mur-
akami lítið eftir. La Farge sparar
ekki stóru orðin og segir The Pets
eiga eftir að verða sígilda sögu um
lokuð rými. Meðal annarra bóka
sem rata inn á lista Barnes &
Noble eru Pride & Prejudice eftir
Jane Austen og Steve the Pig en
sigurvegarinn er Netherlands
eftir Joseph O‘Neill. Kannski ekki
nema von. Þeirri bók var hampað
mjög af menningarkálfi New York
Times sem taldi hana vera bestu
lýsinguna á lífinu í New York eftir
fall Tvíburaturnanna.
Árangur Braga er ekki síst
merkilegur fyrir þær sakir að
engir dómar hafa enn birst um
bókina í bandarískum prentmiðl-
um. Bragi var þó ekkert í öngum
sínum yfir því, sagði að útgefandi
sinn þar vestra hefði sagt sér að
pláss fyrir bókadóma væri sífellt
að minnka. Bragi á ekki bók í
þessu jólabókaflóði en stefnir á að
klára sína næstu skáldsögu í vor.
Hún fjallar um föður ljóðskálds-
ins sem birtist lesendum í Sendi-
herranum. „Hún fjallar um tvo
eldri menn sem eru að skrifa kvik-
myndahandrit en þurfa óvænt að
fara til Hull að sækja arf annars
þeirra,“ segir Bragi.
freyrgigja@frettabladid.is
BRAGI ÓLAFSSON: Á LISTA BARNES & NOBLE YFIR BÆKUR ÁRSINS
Gæludýr Braga ein af bók-
um ársins í Bandaríkjunum
SÁTTUR Bók Braga Ólafssonar er meðal fimmtán bestu bóka þessa árs samkvæmt
vef Barnes and Noble. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Óvíst er hvað má ráða í það en á
kaffistofu samgönguráðuneytisins,
þar sem Kristján L. Möller ræður
ríkjum (eða hvað?) er sjónvarps-
skjár, DVD-tæki og á hillu þar við
hlið allir þættir Já, ráðherra og Já,
forsætisráðherra. Hvort diskarnir
eru þarna að undirlagi Kristjáns
– með það fyrir augum að tekinn
sé vari við ofríki ráðuneyt-
isstjórans Ragnhildar
Hjaltadóttur, og að
Kristján stefni á for-
sætisráðuneytið – eða
Ragnhildur hafi komið
diskunum þarna
fyrir svo ljóst megi
vera hver ræður
för, er ekki vitað.
Þeir eru kátir í Odda, Björn Blön-
dal sérfræðingur, og félagar. Sig
krónunnar hefur orðið til þess að
bókaútgefendur hafa leitað til Odda
með prentun sem aldrei fyrr og í
vikunni rann af færibandinu millj-
ónasta bókin þar prentuð. Í gleði
sinni gátu þeir Oddamenn ekki stillt
sig um að gauka gjafabréfi
upp á 40 þúsund krónur
á veitingahús í þá bók.
Í ár verða tvö hundruð
þúsund fleiri bækur
prentaðar í Odda en
árið 2007, fjöldi
titla er svipaður
en upplög stærri.
Grímur Atlason,
sveitarstjóri í
Dalabyggð, mælti fyrir fjárhags-
áætlun sveitarfélags síns fyrir
skemmstu og var engan bilbug að
finna á honum. Dalabyggð mun
halda áfram hvað sem á dynur og í
núverandi ástandi felast
tækifæri. Og í fjárhags-
áætluninni er reyndar
gráupplagt tækifæri
fyrir orðaleikjadjókara
þar sem gert er ráð
fyrir því að bærinn
Skuld í Saurbæ
verði seldur.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Bjarni Árm kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann komst í sjóði digra
og skammtaði sér fé.
Hann vildi sjúga tærnar,
- á gamla mammoni,
en þegar draslið hrundi,
- hann dvald‘ í Noregi.
Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið | Sími 533 2220 | www.lindesign.is
Hvönnin
Nýjasta blómamynstrið frá Lín Design er Hvönnin sem er bróderuð í
sængurverið. Sængurverið er ofi n úr bestu fáanlegu bómullardamask.
Einstaklega glæsileg hönnun. Komdu við og skoðaðu úrvalið af
blómasængurverunum frá Lín Design.