Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 28
12. desember 2008 FÖSTUDAGUR
Verðbólga í desember eykst um
prósent milli mánaða gangi spá
IFS-Greiningar, sem birt var í
gær, eftir. Tólf mánaða verðbólga
mælist þá 17,2 prósent og hækkar
um 0,1 prósentustig frá fyrra mán-
uði.
„Mikil óvissa er um verðþróun
milli mánaða, en tíðar og miklar
sviptingar í gengi krónu hafa leitt
til tíðari breytinga á vöruverði,“
segir í spánni, en þar kemur fram
að tveir þættir togist á í verðþró-
uninni. „Annars vegar mikil lækk-
un á eldsneyti, það er bensíni og
dísilolíu, og hins vegar hækkun á
öðrum innfluttum vörum.“
Fram kemur að þótt viðsnúning-
ur hafi orðið í gengisþróun krón-
unnar síðustu daga, hafi styrking
hennar líklega lítil áhrif á vöru-
verð nú. „Áhrif gengisbreytinga á
vöruverð eru að öllu jöfnu nokkra
mánuði að seytla inn og gerir IFS
greining ráð fyrir að áhrif gengis-
veikingar krónu séu enn að koma
inn í vöruverð.“
Í verðkönnun IFS-Greiningar
kom fram töluverð hækkun á verði
matvöru á milli nóvember og
desember. „Mestu munar þar um
mikla hækkun á grænmeti og
ávöxtum. Sömuleiðis er mikil
hækkun á innfluttum matvörum
og gosdrykkjum,“ segir í grein-
ingu fyrirtækisins. Einnig virðist
verð á fatnaði hækka töluvert. „Og
virðist því sem jólafötin verði dýr-
ari í ár,“ segir þar, en um leið er
bent á að mikill munur geti verið á
milli verslana. „Sums staðar hefur
verð fatnaðar staðið í stað eða
lækkað á meðan það hækkar um
30 til 40 prósent annars staðar. „Á
móti kemur lækkun á eldsneytis-
verði, frá því um miðjan nóvem-
ber hefur verð á bensíni og dísilol-
íu lækkað um 10 til 12 prósent.
„IFS-Greining gerir ráð fyrir að
eldsneytisverð muni enn lækka.“
- óká
VIÐ BÚÐARKASSANN Hækkun á verði
matvöru vegur þungt inn í verðbólgu-
mælingu desembermánaðar samkvæmt
spá IFS-Greiningar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Jólafötin líkast til dýrari í ár
IFS-Greining spáir verðbólgu í 17,2 prósent í desember. Matarverð hækkar mest.
Breska íþróttavörukeðjan JJB
Sports hefur samið við lánar-
drottna sína um lengingu á
lánum.
Á meðal þeirra eru 75 milljónir
punda við tvö breska banka og
tuttugu milljóna punda brúarlán
frá Kaupþingi, sem var á gjald-
daga á mánudag í næstu viku.
Viðræður JJB Sports um frek-
ari endurskipulagningu í rekstri,
svo sem fyrirætlanir um sölu á
líkamsræktarstöðvum, munu
halda áfram, að sögn Bloomberg-
fréttaveitunnar.
Exista keypti 29 prósenta hlut í
versluninni í félagi við Chris
Ronnie, nú forstjóra JJB Sports, í
júní í fyrra fyrir 190 milljónir
punda, jafnvirði 24 milljarða
króna.
Væntingar voru miklar þá. Það
gekk ekki eftir líkt og sést á gengi
hlutabréfa í versluninni, sem
hefur hrunið um tæp 97 prósent
síðan þá. Það sat í níu pensum á
hlut í gær og hafði aldrei verið
lægra.
Lýður Guðmundsson, stjórnar-
formaður Existu, sagði í samtali
við Markaðinn á dögunum, að
kaupendur hefðu haft ákveðna
rekstraráætlun í vasanum á
sínum tíma en hremmingar á
alþjóðlegum fjármagnsmörkuð-
um og skellur í breskum versl-
anarekstri hafi gert hana að engu.
- jab
DÚNDRAÐ Í TUÐRUNA Emile Heskey,
leikmaður Wigan, með auglýsingu frá
JJB á búningi sínum. Fjárfesting Exista í
JJB hefur gufað upp frá í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PARTNERS
JJB semur um framlengingu lána
Í nýju riti Efnahags- og
framfarastofnunarinnar
(OECD) kemur fram að
lífeyrissjóðir aðildarríkja
stofnunarinnar hafi tapað
5.000 milljörðum Banda-
ríkjadala milli október-
mánaða þessa og fyrra árs.
Hlutur Íslands í þeirri tölu
nemur 42,5 milljörðum
króna, samkvæmt nýbirtum
tölu Seðlabanka Íslands.
Séreignalífeyrissjóðir innan aðild-
arríkja Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar (OECD) töpuðu
fimm þúsund milljörðum Banda-
ríkjadala frá desember í fyrra til
októbermánaðar. Þetta jafngildir
tæplega tuttugu prósenta tapi, eða
um 580 þúsund milljörðum
íslenskra króna, sem hurfu úr
bókum sjóðsfélaga.
Á sama tíma drógust heildar-
eignir íslensku lífeyrissjóðanna
saman um 3,6 prósent, samkvæmt
nýlegum tölum Seðlabankans.
Munar þar mestu um verðfall á
hlutabréfum, ekki síst þeim
íslensku eftir bankahrunið í okt-
óber.
Heildareignir erlendu séreigna-
lífeyrissjóðanna námu 28 þúsund
milljörðum Bandaríkjadala, að því
er fram kemur í riti OECD um
stöðu sjóðanna í skugga hruns á
fjármagnsmörkuðum.
Í ritinu kemur fram að 66 pró-
sent tapsins liggi í Bandaríkjun-
um en afgangurinn í Bretlandi,
Ástralíu, Kanada, Hollandi og
Japan.
Frændur okkar á Írlandi koma
verst undan hremmingum á hluta-
bréfamörkuðum en þeir horfðu á
30 prósent sparnaðarins gufa upp
á árinu.
Í ritinu er bent á nauðsyn þess
að hraða breytingum á fjárfest-
ingarstefnu sjóða innan aðildar-
ríkja OECD með það fyrir augum
að tryggja hag sjóðsfélaga. Slík
vinna standi þó fyrir dyrum og sé
jafnvel von á að nýjar reglur líti
dagsins ljós í næsta mánuði.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í gær standa íslensku lífeyris-
sjóðirnir sterkir þrátt fyrir banka-
hrunið. Þeim sé hins vegar sniðinn
þröngur stakkur á hlutabréfa-
markaði enda fjárfestingarkostir
fáir. Á sama tíma bólgna banka-
bækur og aðrar innistæður sjóð-
anna.
Sjóðirnir hafa takmarkaðar
heimildir til fjárfestinga lögum
samkvæmt en unnið er að því að
veita þeim auknar heimildir til
kaupa í óskráðum félögum.
jonab@markadurinn.is
Fimmtungur lífeyris-
sparnaðar gufar upp
KÁTIR ELLILÍFEYRISÞEGAR Unnið er að því að breyta fjárfestingarstefnu erlendra
séreignalífeyrissjóða innan aðildarríkja OECD til að tryggja hag viðskiptavina.
LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 2008
Sköpun Skaparans
Þau hafa verið mér hugstæð að
undanförnu, segir Jóhann
Jóhannsson tónlistarmaður
Njóttu laugardagsins til fulls.
Tryggðu þér áskrift á mbl.is/
askrift eða í síma 569 1122