Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 16
16 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR SPARNAÐURINN Nýframkvæmdir Rekstrarkostnaður Tilfærslur til ýmissa hópa 11 milljarðar 13 milljarðar 18 milljarðar Stefnt er að því að sparnaður upp á 3 milljarða myndist í meðförum þingsins. Alls: 42 milljarðar ÍS L E N S K A S IA .I S U T I 44 21 0 11 .2 00 8 Skíðapakkar 20% afsláttur Skíðadeildin er í Glæsibæ HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 A ug lý si ng as ím i – Mest lesið Ríkisstjórnin sparar í rekstri og tekjutilfærslum um sem nemur 24 milljörð- um króna, eða 5,7 prósent af heildarútgjöldum ríkis- sjóðs. Ríkisstjórnin hag- ræðir í rekstri og frestar verkefnum auk þess sem hún hækkar skatta á ein- staklinga. Stefnt er að því að halli ríkissjóðs verði um 45 milljörðum minni en var áætlað. Ríkisstjórnin hefur kynnt sparn- aðaraðgerðir vegna fjárlaga- frumvarpsins og er gert ráð fyrir að sparnaður í rekstrarútgjöld- um og tekjutilfærslum nemi um 24 milljörðum króna, eða um 5,7 prósentum af heildarútgjöldum ríkissjóðs. Bæði er um að ræða hagræðingu í rekstri og frestun verkefna auk þess sem skatttekj- ur ríkisins aukast. Með þessu verður halli ríkissjóðs 165-170 milljarðar en hefði annars orðið 215 milljarðar. Mest í ráðuneytum Geir H. Haarde forsætisráð- herra, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir utanríkisráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra kynntu sparnaðartillögurnar í gær. Þau segja að gengið sé út frá því að sparnaður komi minnst niður á velferðarkerfinu, menntakerfinu, heilbrigðiskerf- inu og löggæslu. Hlutfallslega mestur samdráttur verði í utan- ríkisþjónustunni og hjá æðstu stjórn ríkisins. Almennt verður samdráttur í rekstri ráðuneyta um fimm til sjö prósent. Geir segir að tekjugrunnur fjárlagafrumvarpsins hafi rask- ast í kjölfar bankahrunsins og heilu tekjustofnarnir séu að hverfa, til dæmis tekjuskattur fyrirtækja og fjármagnstekju- skattur. Aðrir tekjustofnar hafi rýrnað verulega. Við þessu þurfi að bregðast. Hækka útsvar Tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti einstaklinga aukast um sjö millj- arða króna á næsta ári því gert er ráð fyrir að skattur á einstakl- inga hækki um eitt prósentustig, úr 22,75 í 23,75 prósent. Sveitar- félögin mega hækka útsvar. Dregið verður úr nýfram- kvæmdum fyrir 11 milljarða, eða um fimmtung af áætluðum kostnaði. Framkvæmdir munu nema 41 milljarði króna sem er svipað og á þessu ári. Næsta ár verður því eitt mesta fram- kvæmdaár sögunnar hjá ríkinu. Helmingur af sparnaði í nýframkvæmdum verður í vega- gerð. Framkvæmdum vegna nýrrar flugvélar og varðskips Landhelgisgæslunnar og hús- byggingu Stofnunar Árna Magn- ússonar verður frestað. Lækka laun stjórnenda Verið er að útfæra smærri aðgerðir til að lækka útgjöld rík- issjóðs og endurskoða útgjalda- þætti. Áformað er að spara í launakostnaði í samráði við stjórnendur ríkisstofnana og hlutafélaga í eigu ríkisins með því að lækka hæstu laun í sam- ræmi við launalækkun þing- manna og ráðherra. Geir vonast til að ekki komi til uppsagna en segir að hver stofnun verði að glíma við það sjálf. Lágmarks framfærslutrygg- ing almannatrygginga hækkar um tuttugu prósent um áramót fyrir þá sem lægstar hafa bæt- urnar og 9,6 prósenta hækkun fyrir aðra bótaþega. Kjör lægst settu lífeyrisþeganna hafa aldrei verið hærri samanborið við lægstu laun í landinu, samkvæmt tilkynningu frá ríkisstjórninni. Breytingar á tekju- og gjalda- hlið fjárlagafrumvarpsins leiða til bættrar afkomu ríkissjóðs sem nemur 42 milljörðum króna. Gert er ráð fyrir að við þriðju umræðu komi fram tillögur sem muni bæta afkomu ríkissjóðs um minnst þrjá milljarða til viðbót- ar. Tekjuskattur fólks hækkar SPARAÐ Í VEGAGERÐ Geir H. Haarde forsætisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra kynntu sparnaðaraðgerðir ríkisstjórnarinnar í gær. Þó að skattar hækki verður ríkið samt að draga úr nýfram- kvæmdum, þar af helmingur í vegagerð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FRÉTTASKÝRING: Niðurskurður hjá ríkinu FRÉTTASKÝRING GUÐRÚN HELGA SIGURÐARD. ghs@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.