Fréttablaðið - 12.12.2008, Side 12
12 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR
■ Sendið umboðs-
manni neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð á
neytendur@f
rettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
43
91
1
1/
08
JÓLAGJÖFIN
SEM FLÝGUR ÚT
JÓLAPAKKAR ICELANDAIR
VERÐ FRÁ 26.900 KR.
+ Ferðatímabil er frá 10. janúar til og með 31. mars 2009.
+ Eftir að ferðatímabili lýkur gildir jólagjafabréfið sem inneign
upp í fargjöld með Icelandair.
+ Pantaðu jólapakkann á www.icelandair.is
I EF ÞÚ BORGAR JÓLAPAKKANN MEÐ VILDARKORTI VISA
OG ICELANDAIR FÆRÐU 5.000 AUKA VILDARPUNKTA.
I ATHUGIÐ AÐ HÆGT ER AÐ GREIÐA FYRIR HÓTELGISTINGU MEÐ VILDARPUNKTUM,
FRÁ 14.000 PUNKTUM Á NÓTT FYRIR TVO.
Traustur
íslenskur ferðafélagi
* Innifalið: Flug fram og til baka, skattar og önnur gjöld. Sölutímabil er til 24. des. 2008 kl. 18:00. Bókunartímabil er frá 22. desember til og með 23. jan. 2009.
Jólapakkatilboð gildir til Boston, New York, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Oslóar, London, Manchester, Frankfurt, Parísar og Amsterdam.
Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánari skilmála á www.icelandair.is. Þessar ferðir gefa 750–11.200 Vildarpunkta.
BRUSSEL, AP Leiðtogar Evrópu-
sambandsins hófu í gær tveggja
daga misserislokafund sinn í
Brussel með því að reyna að
bjarga metnaðarfullum áformum
sambandsins um að draga veru-
lega úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda og auka nýtingu endurnýj-
anlegra orkugjafa, þrátt fyrir
svartar horfur í efnahagsmálum
aðildarríkjanna. Horfurnar hafa
skapað efasemdir um að sam-
bandið muni standa við „grænan“
metnað sinn.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, lýsti vilja til að öll aðildar-
ríkin 27 lýstu yfir samhljóða
stuðningi við áformin, þrátt fyrir
efnahagskreppuna. En ítalski
forsætisráðherrann Silvio
Berlusconi hótaði að beita neit-
unarvaldi, og ljóst er að leið-
togarnir munu eiga erfitt með að
finna málamiðlun sem allir geta
sæst á enda miklir hagsmunir í
atvinnulífi ESB-landanna í húfi.
Löngu var ákveðið að eitt aðal-
málið á dagskrá þessa misseris-
lokafundar yrði svonefnd 20-20-
20-áætlun sambandsins í
loftslagsmálum: það er markmið-
in um að ná 20 prósenta sam-
drætti í losun gróðurhúsaloftteg-
unda og minnst 20 prósenta
hlutfalli endurnýjanlegra orku-
gjafa í orkubúskap sambandsins
fyrir árið 2020.
Einnig var reiknað með að leið-
togarnir myndu leggja blessun
sína yfir fordæmalausa áætlun
sambandsins um að dæla allt að
200 milljörðum evra, andvirði hátt
í 30.000 milljarða króna, í að
bjarga fjármálakerfi aðildarríkj-
anna og aðrar kreppuvarnaað-
gerðir.
Þá kynnir Brian Cowen, forsæt-
isráðherra Írlands, fyrir ESB-
koll egum sínum tillögur að því
hvernig unnt kann að vera að
koma þeim umbótum á stofnana-
og ákvarðanatökukerfi sambands-
ins í framkvæmd, sem til stóð
með Lissabon-sáttmálanum svo-
nefnda sem felldur var í þjóðarat-
kvæðagreiðslu á Írlandi í júní. Til-
lögur þessar ganga út á að Írar
kjósi aftur um fullgildingu sátt-
málans fyrir lok október 2009,
gegn því að fyrst verði innleidd í
hann nokkur ákvæði sem koma til
móts við helstu áhyggjuefni Íra.
Þessi ákvæði eru sögð munu
lúta að því að hvert aðildarríki
muni framvegis halda einum full-
trúa í framkvæmdastjórn sam-
bandsins – til hafði staðið að þeim
yrði fækkað – og að því að tryggja
hlutleysi Írlands í alþjóðamálum.
audunn@frettabladid.is
ÍRAFÁR Mótmælendur við fundarstað leiðtoganna í Brussel halda á loft grímu með
andliti írska forsætisráðherrans Brians Cowen, írskum fána og skilti þar sem for-
dæmdar eru tilraunir til að fá höfnun írskra kjósenda á Lissabon-sáttmálanum hnekkt.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Leiðtogar reyna að bjarga
Lissabon- og loftslagssáttmála
Meginverkefni fundar leiðtoga Evrópusambandsins, sem hófst í Brussel í gær, er að bjarga áformum Evrópu-
sambandsins í loftslagsmálum og svonefndum Lissabon-sáttmála sem Írar höfnuðu fyrr á árinu.
STJÓRNMÁL Tillögur að siðareglum
kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkur-
borg voru lagðar fyrir fund borg-
arráðs í gær en þeim er ætlað að
ná yfir borgarfulltrúa sem og alla
aðra sem kjörnir eru til setu í
nefndum og ráðum borgarinnar.
Borgarráð samþykkti á fundi
sínum 26. ágúst síðastliðinn að
stofna starfshóp um gerð siða-
reglnanna. Hópurinn hefur nú
skilað af sér. Í bréfi hópsins til
borgarráðs er lagt til að borgar-
stjórnarflokkarnir fái tillögurnar
til umsagnar.
Í tillögunum kemur fram að
kjörnir fulltrúar megi ekki nýta
sér stöðu sína í þágu einkahags-
muna sinna eða tengdra aðila. Þá
eiga kjörnir fulltrúar ekki að
þiggja gjafir, fríðindi eða önnur
hlunnindi frá viðskiptamönnum
eða þeim sem leita eftir þjónustu
borgarinnar, „ef almennt má líta á
það sem endurgreiðslu fyrir
greiða eða sérstaka þjónustu“.
Undantekning er þó gerð sé um að
ræða „óverulegar gjafir“.
Í siðareglunum kemur einnig
fram að kjörnum fulltrúum sé
ætlað að halda í heiðri grundvall-
arreglur góðrar stjórnsýslu í
störfum sínum, þar með talið
gagnsæi í ákvarðanatöku. Þeim er
einnig ætlað að halda sig frá því
að misnota almannafé. - ovd, bj
Tillaga um siðareglur kjörinna fulltrúa í Reykjavík:
Borgarfulltrúar
þiggi ekki gjafir
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Samkvæmt tillögunum er kjörnum fulltrúum meðal annars
ekki ætlað að þiggja gjafir, fríðindi eða hlunnindi frá viðskiptamönnum eða þeim
sem leita eftir þjónustu borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BARN Á BAKI, VATN Á HÖFÐI Tvær
konur í Harare, höfuðborg Simbabve,
á heimleið frá vatnsbrunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Ríkissaksóknari
Illinois hótaði því í gær að höfða
mál á hendur Rod Blagojevich
ríkisstjóra fyrir hæstarétti
ríkisins til að lýsa hann vanhæfan
til að gegna embættinu, segi hann
ekki sjálfur af sér sem fyrst.
„Ég er tilbúin að hefja aðgerð-
ir,“ tjáði saksóknarinn Lisa
Madigan CNN-sjónvarpsstöðinni.
Mjög hefur verið þrýst á
Blagojevich að segja af sér síðan
alríkislögreglan handtók hann á
þriðjudag vegna rannsóknar á
ásökunum um að hann hefði reynt
að selja þingsætið í öldungadeild
Bandaríkjaþings, sem losnaði
þegar Barack Obama var kjörinn
forseti.
- aa
Þrýst á ríkisstjóra Illinois:
Ríkissaksóknari
hótar málsókn
ROD BLAGOJEVICH Sakaður um að hafa
reynt að selja þingsætið sem losnaði
þegar Barack Obama varð forseti.
ATVINNUMÁL Olíuhreinsunarstöð er
stóra tækifærið fyrir Vestur-
byggð, segir í skýrslu sem unnin
var á vegum Byggðastofnunar.
Skýrslan, sem byggir á viðtölum
við sveitarstjórnarmenn.
Veikleikar Vesturbyggðar,
samkvæmt skýrslunni, eru
slæmar samgöngur, auk neikvæðr-
ar íbúaþróunar. Það vandamál geti
hins vegar verið úr sögunni verði
olíuhreinsunarstöð reist í Arnar-
firði. Samkvæmt skýrslunni á að
vera ljóst fljótlega hvort eitthvað
kemur í veg fyrir að stöðin verði
reist. Hún myndi skapa 500 til 520
störf; alls um 1.500 störf þegar allt
er talið. - shá
Olíuhreinsunarstöð vestra:
Stóra tækifæri
Vesturbyggðar
Höskuldur Darri Ellerts-
son, framkvæmdastjóri
GlobalCall, hafði sam-
band. Hann segir Global-
Call sprotafyrirtæki sem
stofnað var í sumar í þeim
tilgangi að selja ódýrari
símtöl til útlanda en áður
hafi þekkst. „Við bjóðum
símtöl til útlanda á allt að
95 prósent lægra verði en hin símafélög-
in,“ fullyrðir hann. „Við bjóðum mínút-
una til okkar helstu viðskiptalanda
(Danmörk, Þýskaland, Bretland, Svíþjóð
o.s.frv.) á 3,10 kr./mín. eða rúmlega 2,5
klukkustunda taltíma fyrir aðeins 500 kr.
Þá kostar mínútan hjá
okkur til Kína aðeins 4,80
krónur. Hægt er að nýta
sér þjónustu okkar úr
öllum íslenskum símum og
hringja um allan heim.“
Til samanburðar kostar
mínútan hjá Vodafone
20,80 kr. til Danmerkur og
92,90 kr. til Kína. Það
munar því um minna. Kaupin gerast
þannig fyrir sig að keypt er inneign með
PIN-númeri. Inneignina má meðal annars
nálgast hjá Shell, Olís, 10-11, Krónunni og
á globalcall.is. Þar eru líka nánari
upplýsingar um þjónustuna.
Neytendur: GlobalCall
Ódýrari utanlandssímtöl