Fréttablaðið - 12.12.2008, Qupperneq 18
18 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Þjóðarútvarp
nauðsynlegt
„Ég er nú eitthvað farinn að huga að jólahátíðinni.
Hjá mér snýst þetta nú að mestu um samveru
með fjölskyldunni þar sem við borðum góðan
mat. Svo á ég eftir að finn einhverjar jólagjafir. Ég
verð örugglega eitthvað á Sólheimum um jólin en
konan mín vinnur þar. Venjulega er nú eitthvað
skemmtilegt um að vera á Sólheimum um jólin
og því kann að vera að ég taki þátt í einhverjum
hátíðarhöldum þar. Svo verðum við hjónin líklega eitthvað í Hafnarfirði,
hjá tengdaföður mínum og njótum þess að vera með pabba hennar og
systrum og fjölskyldum þeirra. Við eigum alltaf góðar stundir á jólum og
gerum eitthvað saman.“
Rachid Benguella
Jólin snúast
um samveru
Örugglega, en finnst
hann samt slappur
„Gerir hann [Hallgrímur
Helgason] sér grein fyrir því
hve mikið mæðir á forsæt-
isráðherra Íslands 24 tíma á
sólarhring?
RAGNAR HALLDÓRSSON RÁÐGJAFI
Fréttablaðið 11. desember
Auglýsingar auglýs-
ingagerðarmannanna
vegna?
„Í fjórða lagi mun þessi
samdráttur í framleiðslu
koma mjög illa við íslenska
kvikmyndagerð sem hefur
stóran hluta tekna sinna af
framleiðslu sjónvarpsaug-
lýsinga.“
BJÖRN B. BJÖRNSSON KVIKMYNDA-
GERÐARMAÐUR
Morgunblaðið 11. desember
„Foreldrar
mínir eru í
heimsókn
frá Sýrlandi.
Þau komu
með fulla
ferðatösku
af dóti,
meðal
annars ekta
hummus
sem ég
er sólgin
í. Það er virkilega gott að fá þau
í heimsókn en bara verst hvað
veðrið er búið að vera leiðinlegt.
Þetta er í þriðja sinn sem mamma
mín kemur til Íslands. Hún var hér
fyrir um tveimur árum en þá hafði
hún ekki komið til Íslands í þrjátíu
ár. Pabbi kemur hingað mun oftar
enda á hann ættingja hérna. Við
höfum gert ýmislegt saman, fórum
meðal annars út að borða á þriðju-
dagskvöldið. Á fimmtudaginn átti
pabbi kærasta míns afmæli og þá
borðuðum við saman, ég, kærastinn
minn og foreldar okkar. Foreldrar
mínir fara heim á föstudaginn og þá
flýg ég með fjölskyldu kærasta míns
til Bandaríkjanna. Ég hlakka mikið
til ferðarinnar enda gott að komast
burt úr skammdeginu.“
Charlotte Ólöf Jónsdóttir Ferrier
Foreldrar í
heimsókn
VIKA 43
DAGBÓK NÝRRA ÍSLENDINGA
Keramik eldavél EC65121AX
Ryðfrí hönnun. Nýtanlegt rými í ofni: 60 l.
Mál (HxBxD): 90x60x60 cm.
Orkunotkun: 0,79 kWt (blæstri),
0,87 kWt (undir- og yfirhita).
Gorenje eldavél
Reykjavík . Borgartún 24 . Sími 562 4011
Akureyri . Draupnisgata 2 . Sími 460 0800
Reyðarfjörður . Nesbraut 9 . Sími 470 2020
Reykjanesbær . Hafnargata 52 . Sími 420 7200
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
23
41
Algirdas er hin mesta hamhleypa sem fellur
sjaldnast verk úr hendi. „Ég var að klára síðasta
prófið fyrir jól,“ en hann er í fjarnámi hjá Mennta-
skólanum á Ísafirði þar sem hann nemur samfé-
lagstúlkun. „Þetta var próf í íslensku og ég held
ég hafi bara skilað afar góðu verki. En svo er líka
nóg að gera í félaginu,“ en hann er stjórnarmaður í
Félagi Litháa á Íslandi. „Við stöndum fyrir litlu jólunum í Alþjóðahúsinu 26.
desember og hvetjum öll börn, litháísk sem önnur til að mæta. Annars er
ég mikið jólabarn. Ég er búinn að vera að skreyta húsið með konunni og er
kominn í jólaskap.“
Algirdas Slapikas:
Íslenskuprófið
gekk afar vel
„Bara allt fína í Kína,“ segir Ingibjörg
þegar spurt er frétta hjá henni á
Skaganum. „Ég er meðal annars
að vinna fyrir velferðarsjóð barna
en Íslensk erfðagreining stofnaði
hann fyrir átta árum og lagði
í hann hálfan milljarð. Til allrar
hamingju náðum við að verja hann
gegn öllum þeim áföllum sem dunið
hafa yfir svo að við erum að
úthluta úr honum núna af
fullum krafti.“
Aðspurð hvort hún sakni
stjórnmálanna svarar hún
ákveðin, „svo aldeilis ekki.
Ekki eina sekúndu. En ég veit
að það er erfitt hjá stjórninni
núna sem fær allan þennan
storm í fangið. Mér finnst
Geir hafa staðið sig vel og ég sendi mönn-
um allan þann kraft sem ég á afgangs.“
En Framsóknarflokkurinn, hennar gamli
flokkur, hefur líka fengið storminn í
fangið og er farinn að þynnast nokkuð
að undanförnu. „Já, hann er ekki til
skiptanna svo menn verða að koma sér
vel saman.“
Hún segist vera í besta hugs-
anlega félagsskap á Akranesi.
„Hér ver ég mestum tíma
með barnabörnum mínum
en ég á ein tíu sem öll
eru hér. Og ég verð að
segja að þetta er besti
félagsskapur sem ég
hef verið í, með fullri
virðingu fyrir öllum
öðrum.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR, FYRRUM HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Hefur ekki saknað stjórnmálanna
Hjónin Kári Guðbjörnsson og Anna
María Langer eiga óvenjulegt áhuga-
mál en þau framleiða hvítvínið Blind-
flug í Maring í Móseldalnum í Þýska-
landi.
„Þetta er hörkuvinna en það er mjög gaman
að þessu,“ segir Kári Guðbjörnsson um vín-
framleiðsluna. Sjálfur er Kári flugstjóri hjá
Cargolux en Anna María er sálfræðingur. Þau
hjónin hafa búið í Móseldalnum í níu ár og
segir Kári dalinn alltaf hafa heillað þau. Fyrir
nokkrum árum hafi hann, í
gegnum flugið, svo kynnst
þjóðverja sem tilheyri fjöl-
skyldu sem ræktað hefur
vín í fimm ættliði. Hann
segir að hugmyndin hafi
verið að fá að kynnast vín-
ræktun aðeins nánar en það
hafi endað með því að árið
2005 hafi þeim boðist að
leigja vínekru sem gefur af
sér 800 til 1000 lítra af víni á
ári.
Kári segir uppskeruna
þetta fyrsta ár ekki hafa skilað mjög miklu.
„Næsta ár kom hins vegar svo mikil uppskera
að ég sá ekki fram á að geta stundað vinnu ef
ég þyrfti að drekka þetta allt sjálfur og þá
fórum við að setja vínið á markað,“ segir
Kári.
Vínið, sem unnið er úr Riesling-þrúgunni er
hálfþurrt og fæst nú annað árið í röð í vínbúð-
um ÁTVR. Kári segir viðtökur hafa verið
góðar. „Þetta er vín í gæðaflokki en í óbilandi
trú á krónunni fastsettum við gengið svo vínið
er selt á sama verði og í fyrra,“ segir Kári.
Hann segir vínið ekki vera hefðbundið
þýskt vín. „Hefðbundið þýskt vín er sætt en
við fórum strax með vínið í hálfþurrt og erum
að þróa okkur áfram og ætlum að hafa vínið
aðeins þurrara á næsta ári,“ segir Kári. Hann
segir þau hjónin njóta leiðsagnar gamals vín-
bónda.
„Við höfum ekki sett þetta vín á markað í
Þýskalandi þar sem það er svo stór markaður.
Fyrir utan Ísland þá seljum
við vínið til Lúxemborgar
og Aserbaídsjan þar sem ég
flýg þar mikið í gegn. Við
önnum eiginlega ekki miklu
meira en því,“ segir Kári.
Hann segir vínræktun
skemmtilegra áhugamál en
til dæmis gæsaskytterí. „Ég
var í því öllu á Íslandi áður
en það var mjög gaman að
skipta yfir í þetta. Starfs
míns vegna þarf ég að vera
mikið í burtu og þetta er
eitthvað sem við í fjölskyldunni getum verið í
saman.“
„Þetta er áhugamál sem okkur langar til að
halda áfram með en tíminn verður að leiða í
ljós hvort við gerum eitthvað meira. Til að
byrja með ætlum við okkur þó bara að halda
okkur við þessa einu ekru,“ segir Kári.
olav@frettabladid.is
Íslenskur flugstjóri framleiðir
íslenskt hvítvín í Móseldalnum
BLINDFLUG Kári Guðbjörnsson með flösku af Blindflugi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
■ Enginn efast um tilvist svæðis
sem gengið hefur undir nafninu
Svæði 51 (e. Area 51). Svæðið er
í Nevada-eyðimörkinni í Banda-
ríkjunum og þar er herstöð
flughersins. Herstöðin heitir
reyndar Groom Dry Lake-her-
stöðin og flugherinn segir hana
eingöngu ganga undir heitinu
Svæði 51 hjá áhugamönnum um
geimverur. Margir eru sannfærðir
um að í herstöðinni séu geymd
sönnunargögn um komu gesta
úr geimnum til jarðarinnar. Því
hafa bandarísk stjórnvöld neitað.
Hvort sem geimverur hafa haft
viðkomu þar eða ekki leggur
mikill fjöldi ferðamanna leið sína
á svæðið til að reyna að leita
sannleikans.
SVÆÐI 51
LEITA SANNLEIKANS
„Mér virðast hugmyndirnar sem
birtast okkur í þessu frumvarpi
vera frá því fyrir 6. október.
Og skyldi hafa farið fram hjá
einhverjum þá upplifðum við
hugmyndafræðilegt gjaldþrot.
Ríkisútvarpið er gríðarlega mikil-
væg menningarstofnun.
Þjóðarútvarp er nauðsynlegur
vettvangur fyrir lýðræðið í okkar
agnarsmáa samfélagi sem eins
og sannast hefur er ekki mjög
sterkbyggt. Við stöndum á þeim
tímamótum að allir ættu að átta
sig á því að menning okkar og
lýðræði verða ekki rekin á mark-
aði. Veikjum við almannaútvarp-
ið, veikjum við samfélagið.“
SJÓNARHÓLL
FRUMVARP UM RÍKISÚTARVPIÐ
SIGTRYGGUR MAGNASON
Rithöfundur.