Tíminn - 27.06.1982, Blaðsíða 3
SUNNÚDÁGÍJR 27. JÚNÍ 1982.
upp tónlistarskóla. Skólanum var komið
á stofn og ég tók ti! við að kenna þar og
æfa Hljómsveit Reykjavikur.Hljóm-
sveitin hélt jafnan tvo til þrjá konserta
á ári meðan ég stjómaði henni og enn
hélt Tónlistarskólinn nemendatónleika.
Ég stofnaði trió með violine og
sellóleikara og þetta trió kom oftsinnis
fram hér og lék m.a. vikulega i útvarpið.
Það var árið 1931, ef ég man rétt..
Þann tima sem ég var héma setti ég
einnig upp með hljómsveitinni þrjú
sviðsverk: „Meyjaskemmuna“, „Bláu
kápuna" og „Systumar frá Prag“, sem
var létt, kómísk ópera.
Já, ég var aðeins 27 ára þegar hingað
kom og ég fann fljótt að hér var
tómarúm, en jafnframt jarðvegur fyrir
hendi til þess að hefja uppbyggingu.
Uppbyggingarstarfið réðst ég i af
eldmóði ungra manna og árangurinn fór
að koma í ljós, hægt og bítandi, því
hæfileikamir vom fyrir hendi hjá
íslenskum tónlistarmönnum. Mörg ártöl
hafa gleymst, eins og gengur og gaman
væri að geta rifjað upp marga þessara
tónleika, sem sýna hvernig viðfangsefn-
in verða smátt og smátt viðameiri og nú
birtast aftur á hljómleikaskránni sömu
verkin og hjá Sigfúsi fyrir 1930, en loks
með hljómsveit sem er nógu stór til þess
að valda þeim. Ég rakst hér á bók með
prógrömmum frá þessum tíma, en þau
fann ég hjá Tónlistarfélaginu. Ég bý
einmitt í húsakynnum þess meðan ég
dvelst hér nú. Þar kemur þetta all vel i
ljós. Einnig hefur Kristján Sigurðsson,
sem var einn af „postulunum tólf,“ sem
svo voru nefndir vegna framlags þeirra
til tónlistar í Reykjavík, ritað um starf
Hljómsveitar Reykjavíkur og eins kæmi
mér ekki á óvart þótt Ríkisútvarpið ætti
sitthvað í fórum sínum, sem gaman væri
að rifja upp.
Við komuna til íslands var mér boðið
að sjá Meyjaskemmuna og ég hafði
mikla ánægju af þvi. Þetta var góð
sýning. Nei, ég vil alls ekki fara út i
samanburð á sýningunni nú og þeirri
— rætt við
dr. Franz
Mixa,
brautryðj-
anda í
tónlistarlífi
íslendinga
sem við settum upp. Það verða aðrir að
gera.
Dr. Franz Mixa er fjarri skapi að
halda verki sínu fram og þegar litið er
yfir tónleikaskrámar frá Tónlistarfélag-
inu má sjá að hann hefur fremur dregið
úr en hitt. Þau margvislegu og erfiðu
tónlistarverk sem hann flutti með
Hljómsveit Reykjavikur bera því vitni
að mikið starf hefur legið að baki og
óþrjótandi vinnukraftur. Þótt dr. Mixa
hafi orðið áttræður þann 23. júni sl., er
fágætt að hitta mann sem talað getur af
jafn leiftrandi áhuga og flugskýrri
hugsun um hugðarefni sitt, - sem i hans
dæmi er heimur tónlistarinnar. Það varð
ekki betur heyrt en dr. Mixa hefði á
hraðbergi hvern kafla og innkomur
strengja eða blásarasveitar i öllum
helstu verkum meistaranna. Það fannst
að minnsta kosti þeim sem þetta skrifar.
Hann talaði um hvert verkanna sem var
eins og hann hefði verið að stjórna'því
siðast i gærkvöldi.
íslendingar eiga honum mikið að
þakka, til dæmis var það hann sem sendi
okkur einn nemenda sinna í tónlistar-
fræðum, Pál P. Pálsson, sem nú er
stjómandi Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands. íslendingum sem skil kunnu á
tónlist á fjórða áratugnum var líka ljóst
að hér fór maður sem kunni sitt starf,
t.d. segir Páll ísólfsson um hann í dómi
um „Meyjaskemmuna" að stjórn hans
hafi verið „framúrskarandi og borin
uppi af listrænum skilningi," og Kristján
Albertsson i dómi um sömu sýningu um
hver heimsborgarabragur mönnum
hafi þótt í því fólginn að stjórnin skyldi
vera i höndum „þessa unga meistara frá
sjálfri Vínarborg, dr. Mixa, samlanda
Schuberts."
En samlandar dr. Mixa hafa einnig
kunnað að meta hann. Eftir að hann hélt
frá fslandi 1938 varð hann lektor i
tónfræði við háskólann i Graz í
Austurriki og stjórnandi Óperuskólans
þar, auk þess sem hann hefur ritað mikið
um tónfræðileg efni að ógleymdri
doktorsritgerð hans, sem fjallaði um
„Klarinettuna hjá Mozart.“ Sú ritgerð
er enn lesin við tónlistarháskóla. Hér
hefur ekki verið vikið að tónsmíðum
hans sem eru miklar að vöxtum og þar
á meðal fimm sinfóniur, sú síðasta samin
1974-1975. Þá má nefna „Þýska messu“
hans, sem samin er 1949, kórverk,
óratoríum (Sonnengesang), sem telst til
þekktustu verka hans og hefur verið flutt
víða, fjölda tónsmíða um islensk efni og
byggð á íslenskum stefjum og er þá
ótalinn mikill bálkur ljóðasöngva við
Ijóð ýmissa stórskálda þýskra, þ.á.m. 30
ljóðasöngvar við Ijóð úr „Des Knaben
Wunderhorn1' og 22 við ljóð eftir Storm.
Er hér fátt eitt talið.
Dr. Mixa hefur verið margvíslegur
sómi sýndur i heimalandi sínu og honum
hafa hlotnast fjölmörg heiðursmerki
fyrir starf sitt. Riddarakross islensku
Fálkaorðunnar hlaut hann þegar árið
1947. Austuriska útvarpið heiðraði
hann með klukkustundarlangri dagskrá
á áttræðisafmæli hans fyrr i þessum
mánuði.
Honum fylgja góðar óskir er hann
heldur heimleiðis á ný og megi dvöl hans
hér nú verða honum sem ánægjulegust.
- AM
Kaupfélaqsstjóri
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Stykkis-
hólms, Stykkishólmi er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 12. júlí n.k.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist formanni félagsins
Dagbjörtu Höskuldsdóttur, Stykkishólmi eða
Baldvini Einarssyni, starfsmannastjóra Sam-
bandsins, er veita nánari upplýsingar.
Kaupfélag Stykkishólms
Stykkishólmi
< *
3
Ábendingtil launagreiðenda
Skv. lögum nr. 51/1980 um Húsnæðisstofnun rík-
isins er öllum einstaklingum á aldrinum 16-25
ára skylt að leggja til hliðar 15% af launum sínum,
enda hafi þeir ekki formlega undanþágu.
Atvinnurekendum og öðrum launagreiðendum er
skylt að halda þessum skyldusparnaði eftir af
launum starfsmanna sinna.
Skv. 76. gr. þessara laga getur skattyfirvald
ákveðið sérstakt gjald á hendur þeim atvinnurek-
anda, sem vanrækir skyldu sína í þessu efni.
Húsnæðisstofnun ríkisins beinir þeirri áskorun til
atvinnurekenda og annarra launagreiðenda að
gæta þessara lagaákvæða.
#Hú$næðis$tofnun ríkisins
Tónlistarskóli Eskifjarðar
og Reyðarfjarðar
Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðar-
fjarðar óskar að ráða kennara á pianó og
orgel. Fleiri kennslugreinar koma til
greina.
Umsóknir eða fyrirspurnir sendist i póst-
hólf 24 Eskifirði.
Upplýsingar i sima 97-6324.
Skólanefnd
Ulferls
húsgagnaheimurinn
( nýja litmyndabæklingnum getið þið valið húsgögn í
alla íbúðina. Skrifið eða hringið eftir eintaki strax í
dag. Ulferts húsgögn eru til sýnis og sölu í verslun
Okkar ^ * * KRISTJÁn
SIGGGIRSSOn HF.
LAUGAVEG113,
SMIÐJUSTÍG 6, SÍMI 25870
Ég óska eftir að fá sendan ULFERTS litmyndalistann.
Nafn:__________________________________________________
Sendist til: Kristján Siggeirsson h.f. Laugavegi13. 101 Reykjavík