Tíminn - 27.06.1982, Blaðsíða 10

Tíminn - 27.06.1982, Blaðsíða 10
10______ bergmál? SUNNUDAGUft 27. JÚNÍ 1982. FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982 ■ Pistill, sem ég skrifaði fyrir nokkrum vikum um þá ósvinnu fjármálaráðherra að láta með valdboði loka áfengisversl- unum daginn fyrir hvitasunnuhelgina, hefur kallað á fjórar greinar frá þremur bindindispostulum. Sjálfur höfuðpaur- inn, Halldór frá Kirkjubóli, gat skilj- anlega ekki látið sér nægja færri en tvær greinar og hefur nú lofað (eða hötað, - eftir því hvernig menn vilja líta á hlutina) þeirri þriðju. Ég finn mig því knúinn, sem „einn af talsmönnum Bakkusar" eins og einn templaranna titlar mig, til að svara þessum heiðurs- mönnum með nokkrum línum. Halldór byrjar fyrri grein sína með orðréttum tilvitnunum í einhverja laga- bálka og þykist með því hafa hrakið allar efasemdir um rétt ráðherra til tittnefndr- ar lokunar áfengisverslana. Þvi er til að svara að gagnrýni mín og fleiri beindist að þvi með hverjum hætti ráðherra teldi sér siðferðislega heimilt að níðast á sjálfsákvörðunarrétti fólks með þessum hætti. Ég efaðist hins vegar ekkert um að ráðherrann hefði lagalega heimild til þess arna, - ef svo hefði verið hefði ég einfaldiega kært hann. Af þessu má Halldór sjá að það er langt frá þvi að mér sé runnin reiðin yfir valdniðslunni, þótt hann virðist gera sér einhverjar vonir i þá veru. Templarabábiljur Þessu næst tekur Halldór til við að lýsa því fjálgum orðum hvað Alþingishátíðin á Þingvöllum 1930 hafi verið stórkostleg upplifun, og templaravananum trúr er hann auðvitað þeirrar skoðunar að allt hafi það verið því að þakka, að áfeng- isverslanir hafi verið lokaðar þessa daga, - það er nánast eins og hátíðartilefnið sjálft hafi engu máli skipt i þessu sambandi. Staðreyndin er auðvitað sú að hér er um að ræða eina af mörgum furðulegum bábiljum stúku- manna, - Alþingishátíðin hefði undir öllum kringumstæðum orðið stórfeng- legur og eftirminnilegur atburður. Hvort áfengisverslanir væru opnar eða lokaðar þessa daga hefði engu breytt þar um, en auðvitað er Halldóri og jábræðrum hans frjálst að trúa þeim bábiljum sem þeir helst vilja. Málum blandin samúð Pað gladdi mig ósegjanlega að sjá votta fyrir samúð Halldórs í minn garð þegar hann skrifar: „Þegar um mannlíf er að tefla mun mörgum finnast að ekki dugi að horfa f það þó að Páll Magnússon verði að fresta því i fjóra daga að hafa rauðvín með matnum“. Samúð Halldórs er þó nokkuð málum blandin, þvf eins og margra templara er háttur þegar einhver vogar sér að efast um ágæti þeirra á opinberum vettvangi, þá dylgjar Halldór svona smekklega um það, að gagnrýni andmælendanna sé sprottin af því einu að þeir fái ekki nóg brennivin til eigin nota. Sé „samúð“ Halldórs sprottin af göfugri hvötum get ég huggað hann með þvi að ég þurfti ekki að biða fjóra daga eftir rauðvini með matnum, - ég átti nefnilega tvær flöskur af prýðilegu búrgundarvíni, en af þvi ég býst ekki við að Halldór kunni að meta slíkt, læt ég vera að tilgreina tegund og árgang hér. Dómgreindarskortur nátt- tröllanna. Halldór gerist nokkuð drjúgur með sig þegar hann fer að tala um slæma umgengni og drykkjuskap unglinga í Húsafelli um sjálfa hvítasunnuhelgina, - telur greinilega að ef áfengisverslanir hefðu verið opnar á föstudeginum þá hefði drykkjan- orðið enn meiri og umgengnin enn verri. En hver skyldi vera sannleikurinn í þessu máli? Ef þeir steinrunnu ráðamenn, sem tóku ákvörð- un um lokun áfengisbúðanna, hefðu minnstu innsýn í háttu þeirra unglinga sem hér um ræðir hefðu þeir gert sér grein fyrir þeirri einföldu staðreynd, að langsamlega flestir þeirra krakka sem fara úr bænum um hvítasunnuhelgina leggja upp strax á föstudeginum og eru þá búnir að útvcga sér hinar eftirsóttu veigar fyrr i vikunni. Sem tilraun til þess að draga úr drykkjuskap unglinga um hvitasunnu- helgina var þessi lokun áfengisbúðanna þvi gjörsamlega út i hött, auk þess að HER ÞARF FLEIRA AÐ SEGJA eftir Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli eigi n Sighv Þórð mér Mag blað að kor, eig Hyad heldu Pa,f ad hann ur umaAj.. Gegn áfengis- varnaofstækinu! ar áfengissýki að menn drykkjumenn. Það er ein viti ekki um öll ósköpin þ fara sjálfum sér og öðrum ölvunarástandi löngu áður um dettur i hug að tala un sýki „sem slíka“. Fréttam þó að þekkja nóg af slikum atvikum. Ahrif áfengisvamaráös og bindindishreyflngar Pað r ' ^°ðt> fAI. faandi. Zl&"2Szm °g s, °g tilefn vera sú sviðvirðilega valdniðsla sem áður er að vikið. Dómgreindarskortur nátttröllanna í öllum ráðunum og ráðuneytunum gæti svo verið efni í aðra grein. Af hveriu voru ekki allir fullir á H. júní. Og úr þvi að verið er að tala um Páll Magnússon, fréttastjóri, skrifar hvitasunnuna er ekki úr vegi að minnast á 17. júní, en ótal siðferðispostular hafa ekki mátt vatni halda af hneykslan yfir framferði unglinganna á þjóðhátíðar- deginum undanfarin ár. Nú hefðu sjálfsagt Halldór og hans nótar viljað vera gasalega sniðugir og láta loka vínbúðum á miðvikudeginum fyrir 17. júni, eða jafnvel alla þá viku ef einhver tök hefðu verið á sliku. Af einhverjum ástæðum var það þó ekki gert og samkvæmt kenningum Halldórs og hinna nátttröllanna hefði það átt að leiða til taumlausrar drykkju herfilegrar hegðunar unglinganna. En hvað gerð- ist? Allir lögreglu- og eftirlitsmenn luku einum rómi upp lofsorði yfir því með hverjum ágætum hátíðarhöldin tókust. Menn mundu jafnvel ekki eftir svo prúðmannlegri framkomu unglinga og annarra á 17. júní í áraraðir. Skyldi þetta ekki segja nokkra sögu um áhrifamátt starfsaðferðanna hjá bannpostulunum? Svari hver fyrir sig. Heróin -bjór? Halldóri er mikið niðri fyrir þegar hann spyr mig hvort ég telji það ekki líka brot á mannréttindum að fólki skuli ekki heimiluð frjáls kaup á heróíni, kókaíni og L.S.D. Nú er það svo að ég veit ekki til þess að umrædd efni séu beinlinis inni í neyslugrundvelli vísitölu- fiölskyldunnar á sama hátt og vinið er. Ég þekki heldur ekki marga sem fá sér heróín-sprautu stöku sinnum til að kitla bragðlaukana og hressa lundina, - sér og öðrum til ánægju. En það er einmitt með þeim hætti sem mikill meirihluti fólks, um 80% þjóðarinnar ef trúa má Halldóri sjálfum (hann giskar á að 10% missi vald á áfengisneyslunni og önnur 10% drekki ekkert), notar áfengi. Nei, Halldór á Kirkjubóli, ég legg ekki að jöfnu vöru, sem fyrir yfirgnæf- andi meirihluta fólks er tiltölulega meinlítill gleðigjafi, og eiturefni, sem ganga af yfirgnæfandi meirihluta neyt- enda sinna dauðum. Það er ekki ámælisvert að banna þau síðarnefndu. Ef hins vegar Halldór og hans nótar í raun og veru leggja að jöfnu bjór og heróín, þá*eru þeir enn forstokkaðri i sinu ofstæki en hingað til hefur komið fram, - og er þá langt til jafnað. Sælir era hógværir. En það var ekki bara Halldór á Kirkjubóli sem tók viðbragð þegar hann barði augum hvítasunnupistil minn. Sigurvin Einarsson sendi Tímanum hugljúfa vamaðarhugvekju, sem ég sé raunar ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um nema hvað ég vil þakka grcinarhöfundi fyrir sæmdarheitið „einn af talsmönnum Bakkusar". Á lofgjörð Kristjáns nokkurs Jónsson- ar um boð og bönn á sem flestum sviðum sé ég heldur ekki ástæðu til að eyða miklu púðri, en get þó ekki stillt mig um að endurbirta hér gullvægan kafla úr grein hans: „Ég er einn þeirra manna, sem aldrei hafa bragðað áfengi, og svo sannarlega sé ég ekki eftir þvi. Og ég held ég megi fullyrða að grönnum minum og góðvin- um hafi aldrei fundist það nein vöntun. Ég þykist því vera lifandi sönnun þess að hófleg áfengisneysla sé alls ekki nauðsynleg, og svo má guði fyrir þakka, að þær sannanir eru fjölmargar". Sælir eru hógværir. En Kristján er ekki „lifandi sönnun“ fyrir annað en það, að templarahreyfingin i dag er ekki til annars nýt en að félagsmenn geti barið sér á brjóst og miklast yfir ágæti sínu. Og þeir um það - þeim er það frjálst. En i guðanna bænum látið vera að stjóma lifi okkár hinna. Skál! Ég held ég láti vera að taka áskorun Halldórs á Kirkjubóli um að standa i ritdeilum við hann um bindindismál fram eftir sumri, - ætla mér að eyða þvi í eitthvað skemmtilegra en að reyna að koma vitinu fyrir menn sem ekki hafa tekið rökum i fjörutiu ár. Ég kveð því Halldór og sálufélaga hans að sinni. Ykkar skál, heiðursmenn! Páll Magnússon

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.