Tíminn - 27.06.1982, Blaðsíða 4

Tíminn - 27.06.1982, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1982. ■ Það er kannski ekki að furða þött nafn Kristins Péturssonar málara hljómi ókunn- uglega í eyrum flestra - þótt Kristinn væri starf- samur og sfleitandi allt fram á dánardag, þ. lta september í fyrra, var honum ekki mikið um að sýna myndir sinar almenningi hin síðari ár, síðustu málverka- sýningu sina hélt hann í vinnustofu sinni i Hveragerði árið 1954. En nú gefur að líta í ■ Kristinn Pétursson i vinnustofunni í Seyðtúni, húsinu sem hann reisti sér í Hveragerði. Vötn a himnum sýning á verkum Kristins Péturssonar í Listasafni alþýðu Listasafni alþýðu brot af ævistarfí Kristins, myndir sem spanna tímann frá þriðja ára- tugnum og langt fram á þann áttunda. Þegar Kristinn lést var hann kominn hátt á 85ta aidursár. Hann skildi ekki eftir sig neina löglega erfingja eða erfðaskrá, svo vitað sé. Því fóru ættingjar hans þess á leit við Listasafn alþýðu að safnið varðveitti verk Krist- ins. Það varð úr með samþykki félagsmálaráðherra sem hefur stjórn yfir erfðafjársjóði. Þegar betur var að gáð kom i ljós að verkin voru hvorki fleiri né færri en 1367, þar af 1346 eftir Kristin sjálfan, málverk, krítarmyndir, teikn- ingar, málmætingar og mótuð verk úr ýmislegum efniviði. Á efri árum var Kristni mjög umhugað um að halda myndum sínum, seldi ekki málverk, og keypti jafnvel aftur myndir sem hann hafði áður selt dýrum dómum. Björn Th. Björnsson listfræðingur segir frá þvi i sýningarskrá hver áhrif endurfundir hans við list Kristins nú i vor höfðu: „Þeim sem þetta ritar mun seint liða úr minni sú stund, þess 12. maí 1982, er hann gekk inni áðurnefndan sal ásamt forstöðumanni safnsins. Þótt ýmislegt þættist hann áður vita um STOLL Vestur-þýskar fjölfætlur á kynningarverði STOLL Z 400 A dragtengdar 4. stjörnu- 6 arma - Vinnslubr. 4.10 m. Verð kr. 18.502.- STOLL Z 500 A dragtengdar 4. stjörnu - 6 arma - Vinnslubr. 5.10 m. Verð kr. 22.552.- Góð greiðslukjör 2 LU( 11 L' SUNDABORG Klettagörðum 1 • Simar 8-66-55 8 8-66-80 Krístin Pétursson, og hefði raunar sett saman skrif um hann, að bestu vitund, en þó í eilitlum ótta um að hafa gert hlut hans of; stóran, þá blasti hér við það lífsverk og ævintýr, sem heimtuðu endurskoðun allra dóma. Og það er sannarleg undrun sem verk þessi vekja, og munu um langa hríð. í þeim sem hér hafa verið tekin úr til sýnis, sannast sá grunur á glassilegan hátt, að Kristinn Pétursson rataði það bil, þar sem hið huglæga listviðhorf 20. aldar og frásagn- arhefðin smeltast saman i ljóðræna tjáningu, myndljóð, þar sem staðreynd er aðeins kveikja, en hugur listamanns- ins allur gerandi. Andinn er þar ofar efninu, sem i allri góðri list.“ Krístinn Þorgeir Pétursson fæddist á Bakka í Dýrafirði þann 17da nóvember 1896, sonur Guðmundu Jónsdóttur og Péturs Benediktssonar sjómanns. Tveggja ára að aldri missti Kristinn föður sinn, en þrátt fyrir krappar aðstæður á bemsku- og unglingsárum tókst honum að brjótast til náms, fyrst á Núpi í Dýrafirði, siðar í Flensborgar- skólanum og loks í Kennaraskólan- um, þaðan sem hann lauk kennaraprófi 1919. ísland var á uppvaxtarárum Kristins heldur myndsnautt þjóðfélag, því lýsir hann i æviminningum sínum: „Fyrsta myndin sem ég sá hversdags- lega og gat fengið yfirráð yfir var Fjallkonumynd utan af rótarstöngl- um...en fyrsta litprentaða málverka- eftirprentunin, sem ég sá, var hjá smávinkonu minni á næsta bæ. Það var mynd af Kristjáni IX. Danakóngi i útreiðatúr með öðmm greifa eða máske bara með sinum þjóni... Þegar ég var 18 ára sá eg svo i fyrsta sinn gifsafsteypur af höggmyndum, það vom portrett- myndir af þremur dönskum skáldum sem hafði verið stillt upp í Ungmenna- skólanum á Núpi. Nokkm seinna sá ég svo fyrstu raunverulegu höggmyndina, Útilegumanninn eftir Einar Jónsson." Eftir að hafa legið um árabil í berklaveiki á Landakotsspítala réðst Kristinn til Noregsferðar árið 1923 og hóf fyrst myndlistarnám i listiðnaðar- skólanum i Voss á Hörðalandi, en haustið eftir náði hann svo prófi inn i myndhöggvaradeildina í Listaháskólan- um í Osló. En ekki virðist Kristinn hafa með öllu verið sáttur við þá braut, því siðasta veturinn sinn i skólanum sækir hann tima í málaradeild Axels Revolds, þess er nokkru síðar varð kennari þeirra Snorra Arinbjamar og Þorvalds Skúla- sonar. Næsta áratuginn er Kristinn mjög á faraldsfæti, einkum í Kaupmanna- höfn, Reykjavík og París og helgar sig einkum eirstungulist, en myndir af þvi tagi voru uppistaðan í fyrstu sýningu hans, að Laugavegi 1 í Reykjavík i nóvember 1930. En hann var einnig byrjaður að fást við landslagsmálverk, bæði hér heima og i Danmörku, og um sýningu hans i Oddfellowhúsinu vorið 1934 segir Jó- hannes Kjarval í umsögn i Visi að myndir hans beri vott um „ást til birtunnar og hins hreina, tæra útilofts, og mætti kalla það sál þessara mynda.“ Um þessi umskipti sín segir Kristinn í æviminningum sínum: „Strax og ég kom heim og fór að mála hér úti i náttúmnni, varð mér ljóst að ég yrði að taka islenskt landslag sömu námstökum og er ég var að stúdera mannslikamann i Listaskólanum i Osló. Ég yrði helst ef vel væri að stúdera jarðmyndunarfræði, svo að ég skildi formin og tilurð þeirra, því maður litur það öðmm augum og tekur það öðmm tökum til túlkunar sem maður þekkir og skilur en það sem maður litur frenjulegum og skilnings- vana augum... Það sem talaði sterkast til tilfinninga minna í landslaginu var tímatalið, sem alls staðar blasir við manni. Frá hinum stystu og smágerðustu timatakmörkunum til hinna tröllauknu timabila, sem maður getur ekki skynjað öðmvisi en frá eilífð til eilifðar." Kristinn heldur sýningu á Akureyri haustið 1938 og líkar svo vel að hann ilendist fyrir norðan i heilt ár. Þar kynnist hann í bókasafni Daviðs skálds frá Fagraskógi bókinni „Punktur og lina á fleti“ eftir Kadinsky, sem hafði svo djúpstæð áhrif á hann að hann afritaði alla bókina frá orði til orðs. Upp frá þessu má segja að Kristinn hafi sniðið sina listfræði eftir kenningum Kadinskys um óhlutbundna myndskipun. Enda tók náttúran i verkum Kristins á sig mun huglægari mynd næstu árin, fyrirmynd- imar urðu stöðugt torkennilegri, en i staðinn var kominn skáldlegur leikur með form, liti og birtu - viðhorf hans færðust stöðugt nær hinum abstrakta sjónarhól. Þetta frjóasta tímabil i list Kristins má segja að standi fram á byrjun sjöunda áratugsins. Látum Kristinn sjálfan um að skilgreina hinar óhlutlægu landslagsmyndir sinar:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.