Fréttablaðið - 12.12.2008, Page 36
Gott úrval af fóðruðum
leðurstígvélum fyrir dömur.
Stærðir: 36 - 40
Verð frá 16.750.- til 21.650.
Búum til pening núna
„KOLAPORT”
Í FJÖRÐINN
Örfáir básar lausir.
Vantar þig vinnu? Básapantanir í síma 587-3040
GULL-ÚRIÐ MJÓDDINNI
Axel Eiríksson Álfabakka 16
úrsmíðameistari sími 587 4100
Súkkulaðijólakort að hætti súkku-
laðimeistarans Hafliða Ragnars-
sonar í Mosfellsbakaríi eru
skemmtileg tilbrigði við hefðbund-
in jólakort.
Hafliði prentar kveðju og ljós-
mynd á sérstaka filmu sem hann
bræðir á hvíta súkkulaðiplötu.
Hann notar til þess sérstaka súkk-
ulaðiliti og er platan því fullkom-
lega æt. „Það er svo bara spurning
hvort fólk tími að borða ættingja
og vini,“ segir hann og hlær. „Plat-
an geymist þó vel við stofuhita og
því engin ástæða til að gleypa hana
í einum bita.“
Kveðjan er öðru megin á plöt-
unni en hina hliðina bragðbætir
Hafliði gjarnan með súkkulaðikúl-
um og öðru góðgæti sem gerir kort-
in ómótstæðileg. Þau eru yfirleitt
gerð í hefðbundinni kortastærð en
Hafliði tekur þó við sérpöntunum
hafi fólk aðrar hugmyndir. Hann
segir kortin sniðug við hin ýmsu
tækifæri og að í fyrra hafi þau til
að mynda verið notuð sem boðs-
kort í jólaboð. Þá kaupa einstakl-
ingar þau í auknum mæli til að
gleðja ættingja og vini með
óvæntum hætti.
Hafliði býður upp á fleira
jólagóðgæti og má þar nefna
dísætt jólapúsl. Það er úr mjólk-
ursúkkulaði og skreytt gamal-
dags jólamyndum. Til eru hinar
ýmsu útgáfur sem ættu að geta
glatt unga sem aldna.
vera@frettabladid.is
Ómótstæðileg jólakort
Jólakort úr hvítu súkkulaði með jólakveðju og mynd eru til þess fallin að gleðja ættingja og vini með
óvæntum hætti. Sumir veigra sér þó við því að borða sína nánustu en erfitt er að standast freistinguna.
Gómsætt súkkulaðipúsl með gam-
aldags jólamyndum fæst í Mosfells-
Súkkulaðijólakort með mynd og kveðju
koma á óvart.
Hafliði segir súkkulaðijólakortin skemmtilegt tilbrigði við hefðbundin jólakort. Þau
eru úr hvítu súkkulaði og fullkomlega æt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
UPPSKRIFTIR að alls konar gómsætum jólamat má finna á jóla-
vef Júlla, julli.is/jol. Meðal annars er þar að finna leiðbeiningar um
hvernig á að búa til fyrirtaks heimalagað rauðkál.
Margir eru sífellt að leita leiða til að
finna nýjar og óvenjulegar aðferðir
við að bera fram mat.
Sniðugt ráð til að framreiða eftirrétti
er að taka blómavasana, sem oft
eru ekki nóg notaðir, út úr skápun-
um, og setja réttina í þá.
Sá möguleiki er fyrir hendi að leika
sér með stærð vasanna og form því
sjaldan eru þeir nú eins en muna
verður að þvo þá vel ef þeir hafa
áður verið notaðir undir blóm. -mmf
Borið fram í blómavasa
Blómavasar sem eru sérstakir í laginu geta
verið skemmtilegir undir hina ýmsu rétti.
Sigma linsur
fyrir flestar
gerðir
myndavéla
Leitið upplýsinga
hjá sölufulltrúum;
Jóna María
512 5473
Hugi
512 5447
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...