Fréttablaðið - 12.12.2008, Qupperneq 63
FÖSTUDAGUR 12. desember 2008 39
UMRÆÐAN
Benedikt S. Lafleur
skrifar um samfélags-
ástandið
Aðskilnaður löggjafar-valds og fram-
kvæmdavalds er einn
helsti hornsteinn lýðræð-
issamfélags. Það hlýtur
því að sæta undrun að langflest
lagafrumvörp skuli koma frá
handhöfum framkvæmdavalds
en ekki löggjafarvaldinu. Óhóf-
legt vald hefur í gegnum tíðina
safnast saman á hendur örfárra
manna sem hafa í raun mótað
samtíð okkar og hagkerfi, þó þeir
hafa jú haft meirihluta þings á
bak við sig og vissulega sótt vald
sitt upphaflega til þjóðarinnar.
Bæði almenningur og þing-
heimur þráðu sterka leiðtoga til
að þurfa ekki að taka þátt í stjórn-
málum sjálf, leiðtoga sem hvik-
uðu aldrei frá sannfæringu sinni
en tóku um leið ekki nauðsynleg-
um breytingum. Þó að þjóðin hafi
þroskast smám saman frá þess-
ari þörf, hefur umgjörð stjórn-
sýslunnar ekki breyst í takt og
enn hefur framkvæmdavaldið
þingheim meira og minna í vas-
anum. Þjóðin hefur uppskorið
það sem hún sáði í upphafi: Ráð-
þrota þing sem hlýtur þau niður-
lægjandi örlög að þurfa að sætta
sig við vanmátt sinn. Hvað hefur
nú orðið um stolt okkar af elstu
þinghefð í heimi? Í skjóli valds-
ins hafa æðstu embættismenn
þjóðarinnar hrundið málum
sínum í gegn á undrahraða án
þess að fara í gegnum hreinsun-
areld gagnrýnnar umræðu.
Útkoman birtist á víxl í leifturs-
nöggri lagaframkvæmd ellegar
töfum á brýnum lagafrumvörp-
um sem gætu aukið skilvirkni í
ríkisfjármálum og spornað gegn
stjórnlausri þenslu. Allar umræð-
ur, hvort heldur um breytingu á
stjórnarskránni til að skerpa skil
þrígreiningar ríkisvaldsins elleg-
ar um hugsanlega aðild Íslands
að ESB, hafa ekki fengið að njóta
sín í eðlilegum og heilbrigðum
farvegi því ráðherrar hafa stýrt
þeirri umræðu frá A til Z.
Trúnaðarbrestur þjóðarinnar í
garð stjórnmálamanna, sem fjár-
málakreppan ýtir nú upp á yfir-
borðið, er því í raun bara birting-
armynd þess stjórnmálaleiða og
sofandaháttar sem einkennt
hefur íslenska pólitík alltof lengi
og drepið hefur í dróma þátttöku
almennings í stjórnmálaumræð-
unni. Hreinskilin orðaskipti ráða-
manna og alþýðunnar í hópsam-
komum er því í sjálfu sér merk
tímamót í íslenskum stjórnmál-
um og til þess fallin að styrkja
lýðræðið. Ljóst er að til að hrinda
í framkvæmd meiriháttar breyt-
ingum á stjórnskipan landsins og
hagstjórn, t.d. með myntbreyt-
ingu og/eða aðild Íslands í ESB,
þarf trúlega að sækja um það
umboð til kjósenda. Tímasetning
þeirra kosninga skiptir
þó sköpum núna og miklu
máli skiptir að endurnýj-
un og endurstokkun í
stjórnmálum komi í senn
innan frá, þ.e. innan raða
núverandi flokka sem og
utan frá, það er að segja
með endurnýjun í flokk-
unum og heilbrigðara
viðhorfi æðstu ráða-
manna sem sýni á sann-
færandi hátt að þeir hlusti á kröf-
ur fólksins í landinu. Höfum samt
hugfast að það skiptir ekki máli
hver er við stjórnvölinn ef rætur
þeirrar kreppu sem nú kemur
upp á yfirborðið eru ekki upp-
rættar að fullu heldur fá að
krauma áfram í sjúkri þjóðarsál.
Allir þeir flokkar sem nú eru
við lýði þurfa fyrst að vinna
heimavinnuna sína: Greina vand-
ann, kalla einstaklinga til ábyrgð-
ar og bjóða upp á róttækar leiðir
til að skapa nýtt og betra þjóðfé-
lag. Þetta á jafnt við um stjórnar-
andstöðuna og ríkisstjórnina.
Geir og Ingibjörg hafa alla burði
til að leiða flokka sína og þjóðina
í gegnum hið stórkostlega
umbreytingarskeið sem þjóðin
stendur frammi fyrir núna og þá
áskorun sem það felur í sér svo
fremi sem þau gæta þess að
hlusta á fólkið í landinu. Í janúar
á næsta ári, fara áhrif björgunar-
aðgerðanna að skila sér og í
febrúar ættu stjórnvöld að vera
búin að varða nýjan stjórnarsátt-
mála inn í framtíð Íslendinga. Sá
stjórnarsáttmáli ætti að fela í sér
gagngerar breytingar í stjórn-
skipan landsins og peninga-
stjórn.
Óvitlaust væri af hálfu ríkis-
stjórnar Íslands að taka ofurlitla
pólitíska áhættu þegar nær dreg-
ur jólum og láta í ljós vilja sinn
um að eitthvað slíkt væri á döf-
inni. Mikilvægast af öllu er þó að
viðurkenna sem fyrst þau mistök
sem hafa verið gerð og boða ský-
lausan vilja um endurnýjun, óháð
kosningum, og koma þannig ekki
aðeins til móts við háværar kröf-
ur almennings heldur og þær sem
gerjast nú í stjórnarliðinu sjálfu.
Sameinumst öll um óhjákvæmi-
legar og skynsamlegar breyting-
ar á stjórnarháttum. Tökum
örlögin í okkar hendur og miss-
um ekki af þeim dýrmætu mögu-
leikum sem þau hafa fært bæði
land og þjóð um þessar mundir.
Þjóðin er ekki fórnarlamb eins
eða neins, heldur fyrst og fremst
sinn eigin gæfu smiður. Afdrátt-
arlaus viðurkenning á þessu er
trúlega farsælasta jólagjöfin sem
Íslendingar geta gefið sjálfum
sér í ár.
Höfundur er forleggjari.
Jólagjöf Íslendinga í ár
BENEDIKT S.
LAFLEUR
Þjóðin hefur uppskorið það
sem hún sáði í upphafi:
Ráðþrota þing sem hlýtur þau
niðurlægjandi örlög að þurfa
að sætta sig við vanmátt sinn.
D
10/16/08 1:57:40 PM
D
Featuring the voices of
Miriam Margolyes & Dermot Morgan
A classic tale of friendship and survival
D
Ógleymanlegt brúðkaup!
D
FJÖLSKYLDU
SKEMMTUN
FYRIR ÞAU
YNGSTU
SPENNA OG
HASAR KLIKKAREKKI!
Hörðu pakkarnir
fást hjá okkur!
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík
www.netto.is
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
Skoðaðu
tilboðin áwww.netto.is
GERÐUBERG
Í DESEMBER
13. desember kl. 13-16
Desembermarkaður
Jólastemmning í húsinu;
Ingveldur Ýr & sönghópur troða upp,
upplestur á ýmsum tungumálum
og alþjóðlegur skiptibókamarkaður
18. desember kl. 12:15
Klassík í hádeginu
BRAHMS
Sólveig Samúelsdóttir
Svava Bernharðsdóttir
Sigurbörn Bernharðsson
Nína Margrét Grímsdóttir
GERÐUBERG
www.gerduberg. is