Fréttablaðið - 12.12.2008, Qupperneq 74
12. desember 2008 FÖSTUDAGUR
Kvikmyndirnar The Curious Case
of Benjamin Button, Frost/Nixon
og Doubt fengu flestar tilnefning-
ar til Golden Globe-verðlaunanna,
eða fimm talsins.
Meryl Streep og Kate Winslet
hlutu tvær tilnefningar hvor,
Streep fyrir hlutverk sín í Doubt
og Mamma Mia! og Winslet fyrir
frammistöðu sína í Revolutionary
Road og The Reader. Anne Hatha-
way, Angelina Jolie og Kristin
Scott Thomas voru einnig tilnefnd-
ar sem bestu dramatísku leikkon-
urnar. Hjá körlunum voru Leonar-
do DiCaprio, Frank Langella, Brad
Pitt, Sean Penn og Mickey Rourke
tilnefndir sem bestu leikararnir í
dramatískri mynd.
Hinn látni Heath Ledger var til-
nefndur fyrir aukahlutverk sitt
sem Jókerinn í The Dark Knight
en stutt er síðan hann vann til
verðlauna Samtaka gagnrýnenda í
Los Angeles fyrir frammistöðuna.
Þetta var eina tilnefningin sem
The Dark Knight hlaut og olli það
mörgum vonbrigðum.
Í flokknum besta dramatíska
myndin voru tilnefndar The Curi-
ous Case of Benjamin Button,
Frost/Nixon, The Reader, Revoluti-
onary Road og Slumdog Milli-
onaire. Samkvæmt hefðinni er lík-
legt að flestar þessara mynda
berjist einnig um Óskarinn á
næsta ári.
Í flokknum besta gaman- eða
söngvamyndin voru tilnefndar
Burn After Reading, Happy-Go-
Lucky, In Bruges, Mamma Mia! og
Vicky Christina Barcelona.
Golden Globe-verðlaunin verða
afhent við hátíðlega athöfn 11. jan-
úar á næsta ári. - fb
Nýtt lag fer í spilun af plötu Mot-
ion Boys í dag, titillagið sjálft
„Hang On“. Lagið verður til á ton-
list.is og grapewire.is og með því
fylgja fimm nýjar útgáfur í kaup-
bæti. Allir fimm meðlimir sveitar-
innar gera sína eigin útgáfu af lag-
inu. Bjössi trommari syngur
sjálfur útgáfu sem hljómar eins
og blanda af Sinead O‘Connor og
Prince. Tobbi hljómborðs er með
rólega kántríútgáfu sem hann
syngur sjálfur. Birgir söngvari er
búinn að hraða á laginu og Doddi
trommari hefur endurhljóðbland-
að það. Þá er ótalin útgáfa Gísla
Galdurs sem býður upp á stórund-
arlega saxófónútgáfu. - drg
Titillag endurbætt
SEX LÖG FYRIR EITT Hljómsveitin The
Motion Boys.
FIMM TILNEFNINGAR The Curious Case
of Benjamin Button hlaut fimm tilnefn-
ingar til Golden Globe-verðlaunanna.
Þrjár myndir með
fimm tilnefningar
Erlendir vefmiðlar eru
fullir af fréttum um ís-
lenskt efnahagslíf; IceSave
og hrun íslensku bankanna.
Inn á milli má þó finna
greinar sem sýna glöggt
hvaða augum erlendir
blaðamenn sjá íslenskt
samfélag um þessi jól.
Einna athyglisverðust er frétt
vefmiðilsins Press Associ-
ation sem birtist á vef
þess í gær. Þar var
fjallað um jólahald
hrímverja í skugga
efnahagsþrenginga og
blaðamaðurinn full-
yrðir að Íslendingar
séu að bíta úr nálinni
eftir stanslaust góð-
æri í tíu ár. Meðal þess
sem greinarhöfundur
segir að seljist hvað
best í höfuðborg lands-
ins, Reykjavík, er
þurrkaður fiskur,
hrossakjöt og notuð
DVD-útgáfa Söngva-
seiðs með Julie Andr-
ews í aðahlutverki.
Haft er eftir Hólm-
fríði Kristinsdóttur,
verslunarkonu í Kola-
portinu, að Íslending-
ar hafi lítið pælt í því
hvað hlutir kost-
uðu. Nú hafi dæmið
snúist við og nánast
allt snúist um verð og
verðsamanburð. „Ef við
til dæmis kaupum bjór
þá kaupum við íslenskan
bjór af því að hann er
ódýrari,“ segir Hólmfríð-
ur sem sjálf selur þurrk-
aðan fisk. Blaðamaður PA
segir að þrátt fyrir að
Íslendingar séu að njóta
hátíð ljóss og friðar, börn-
in setji sem fyrr skóinn út
í glugga og jólaljós lýsi
upp nítján tíma svartnætti
þá vofi efnahagsvofan yfir
öllu. „Íslendingar horfa
fram á frosið efnahagskerfi, þjóð
sem eitt sinn átti flesta Range
Rovera miðað við höfðatölu,“
skrifar blaðamaðurinn.
Og svo virðist, ef marka má
Sigga Garðarsson, sölumann kjöt-
vara á flóamarkaði, að hrossakjöt
verði sums staðar á boðstólum
yfir jólin. „Ég hef allavega fundið
fyrir aukinni eftirspurn eftir því
kjöti,“ segir Siggi. Og sama á við
um Ólaf Ólafsson sem selur her-
mannaföt. „Þetta er einn besti
mánuður sem ég hef upplifað,“
segir Ólafur. Blaðamaður lætur
þess síðan getið að ein vinsælasta
myndin í Kolaportinu sé notuð
DVD-útgáfa af Sound of Music
eða Tónaflóði og við hana ætli
Íslendingar að orna sér næstu
mánuði. freyrgigja@frettabladid.is
HROSSAKJÖT OG NOTAÐUR
SÖNGVASEIÐUR Á DVD
HROSSAKJÖT Á JÓLADISKINN Á vef Press Assosiation er því
haldið fram að margir Íslendingar ætli sér að hafa hrossakjöt um
þessi jól. Það sé jú helmingi ódýrara en lambakjöt.
STJARNA ÍSLENSKU
JÓLANNA Julie Andrews
verður stjarna hinna
íslensku jóla þetta árið
en notuð dvd-útgáfa af
Söngvaseiði rokselst í
höfuðborginni um þessar
mundir.
Sun: 12-16
Opið:
Mán-Föst: 10-18
Lau: 11-16
: 2-16
í Súlnasal Hótels Sögu annan í jólum
Upplýsingar í síma 525 9930
og á hotelsaga@hotelsaga.is
Milljónamæringarnir verða í hátíðarskapi á jóladansleik í Súlnasal Hótels Sögu
annan í jólum, 26. desember. Húsið opnar kl. 22. Miðaverð aðeins 2.000 kr.
Miðasala í Súlnasal frá kl. 13 samdægurs. Upplýsingar í síma 525 9930.
Söngvarar eru: Bogomil Font, Bjarni Arason og Raggi Bjarna.
Leynigestur mætir á svæðið.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
82
29
9
Dansaðu út jólin
með Millunum