Fréttablaðið - 12.12.2008, Side 80
56 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson,
atvinnukylfingur úr GKG, hóf
leik á Alfred Dunhill Champions-
hip í Suður-Afríku snemma í
gærmorgun og lék fyrsta
hringinn á 72 höggum eða pari
vallarins en mótið er hluti af
Evrópumótaröðinni.
Birgir Leifur var með átta pör
og einn skolla á fyrri níu holunum
í gær og átta pör og einn fugl á
seinni níu holunum og er því að
leika öruggt golf í Suður-Afríku.
Þetta er annað mótið sem hann
tekur þátt í eftir að hafa jafnað
sig á erfiðum meiðslum. - óþ
Evrópumótaröðin í golfi:
Birgir lék á pari
í Suður-Afríku
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Sleggjukastar-
inn Bergur Ingi Pétursson úr FH
og spjótkastarinn Ásdís Hjálms-
dóttir úr Ármanni voru valin
frjálsíþróttafólk ársins í gær.
Bergur Ingi tvíbætti Íslands-
metið á árinu. Í heildina bætti
hann Íslandsmetið um rúma fjóra
metra.
Bergur er í 61. sæti á heimslist-
anum og er búinn að ná lágmarki
fyrir heimsmeistaramótið sem
fram fer í Berlín á næsta ári.
Ásdís tvíbætti Íslandsmetið í
spjótkasti einnig tvívegis á árinu
og í heild um 2,70 metra. Hún er í
36. sæti á heimslistanum og hefur
einnig tryggt sér þátttökurétt á
HM í Berlín. - hbg
Frjálsíþróttafólk ársins:
Bergur Ingi og
Ásdís best
BEST Bergur Ingi og Ásdís sjást hér á ÓL
síðasta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Þó svo að efnilegasti leik-
maður síðasta Íslandsmóts, Blik-
inn Jóhann Berg Guðmundsson, sé
ekki enn búinn að yfirgefa her-
búðir Blika er flest sem bendir til
þess að hann muni hafa vistaskipti
þegar janúarglugginn opnar. Alls
hafa fjögur lið sýnt honum áhuga
og líklegasti áfangastaðurinn í dag
er Coventry á Englandi.
Hann var kominn með annan
fótinn til HSV í Þýskalandi á dög-
unum en Þjóðverjarnir drógu í
land með gott tilboð á endanum og
sendu Blikum annað sem var langt
frá því sem Blikar vilja fá fyrir
leikmanninn eftir því sem heim-
ildir Fréttablaðsins herma.
HSV hefur þó ekki gefist upp en
líkurnar á því að Jóhann fari þang-
að eru samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins ekki miklar sem
stendur enda virðast Þjóðverjarn-
ir ekki á þeim buxunum að hækka
tilboð sitt sem stendur.
Jóhann Berg fór til Coventry á
dögunum og vakti áhuga stjórans
Chris Coleman á sér og Coventry
hefur mikinn áhuga á að kaupa
leikmanninn.
„Mér leist vel á allt hjá Covent-
ry sem og Coleman. Gæti vel hugs-
að mér að fara þangað en boltinn
er hjá Blikum. Ég bíð bara rólegur
og er ekkert að æsa mig of mikið
yfir þessu,“ sagði Jóhann Berg við
Fréttablaðið í gær.
Fréttablaðið hafði samband við
Einar Kristján Jónsson, formann
knattspyrnudeildar, en hann vildi
ekkert tjá sig um málefni Jóhanns.
Var þögull sem gröfin.
Heimildir Fréttablaðsins herma
aftur á móti að viðræður við Cov-
entry séu vel á veg komnar og
gæti farið að draga til tíðinda þar
bráðlega.
Tvö hollensk félög hafa einnig
sýnt Jóhanni áhuga. AZ Alkmaar
hefur lengi verið með augastað á
kantmanninum fljóta en lítið hefur
þokast í því máli. Fyrir hjá Alkma-
ar er annar Íslendingur, Kolbeinn
Sigþórsson.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins kom annað hollenskt
félag inn í myndina en það er
úrvalsdeildarfélagið Heerenveen
sem hefur einnig Íslending innan-
borðs, Arnór Smárason frá Akra-
nesi. henry@frettabladid.is
Fjögur lið vilja fá Blikann
Jóhann Berg í sínar raðir
Enn er óvíst hvar Blikinn efnilegi Jóhann Berg Guðmundsson leikur á næstu
leiktíð. Fjögur lið hafa verið að bera víurnar í hann en sem stendur er líklegast
að hann fari til Coventry. Blikar hafa ekki tekið neinu tilboði í leikmanninn.
EFTIRSÓTTUR Jóhann Berg spilar tæplega hér á landi næsta sumar og fer líklega til
nýs liðs í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/XX
FÓTBOLTI Leikmenn danska félags-
ins AaB frá Álaborg voru allt
annað en sáttir við framgöngu
framherjans Wayne Rooney hjá
Man. Utd eftir 2-2 jafnteflisleik
félaganna í Meistaradeildinni í
fyrrakvöld.
„Hann hagaði sér bara eins og
svín á vellinum. Beitti alls kyns
lúabrögðum þegar dómarinn var
ekki að horfa,“ segir Michael Jak-
obsen í viðtali við TV 2 í Dan-
mörku.
Það var þó fyrir brot á Kasper
Risgard, snemma í seinni hálfleik,
sem Rooney gæti lent í vandræð-
um út af en Laurent Duhamel,
dómari leiksins, sá ekki hvað gerð-
ist. Risgard var allt annað en sátt-
ur við framgöngu Rooney en kvað
hann þó hafa beðið sig afsökunar
eftir leik.
„Ég átta mig ekki almennilega á
hvað gerðist en hann var greini-
lega eitthvað pirraður. Ég vissi
ekki fyrr en hann var búinn að
traðka á mér. Ef þetta hefði átt sér
stað annars staðar en á Old Traff-
ord þá hefði þetta verið beint rautt
spjald,“ segir Risgard svekktur.
Þó svo að dómari leiksins hafi
misst af atvikinu þá sleppur Roon-
ey líklega ekki við refsingu þar
sem aganefnd evrópska knatt-
spyrnusambandsins er talin ætla
að skoða atvikið nánar og fram-
herjinn skapstóri gæti þá átt yfir
höfði sér leikbann sem hann þyrfti
þá að taka út í 16 liða úrslitunum.
Rooney sjálfur lét sér fátt um
finnast um ásakanirnar.
„Svona er fótboltinn, þetta er
líkamlega erfið íþrótt. - óþ
Leikmenn AaB voru ósáttir með Wayne Rooney á Old Trafford í fyrrakvöld:
Danirnir segja að Rooney
hagi sér eins og svín á velli
SAKLEYSIÐ UPPMÁLAÐ Rooney biðlar til dómarans eftir að hafa traðkað á Risgard.
NORDIC PHOTOS/AFP
GOLF Skrautlegasti golfari heims,
Bandaríkjamaðurinn John Daly,
er að spila í Ástralíu þessa
dagana og heldur uppteknum
hætti við að vekja á sér athygli
með hegðun sinni.
Hann gerði sér núna síðast lítið
fyrir og hrifsaði myndavél af
áhorfanda og fleygði henni utan í
tré svo hún eyðilagðist.
„Ég var að fara að taka víti og
þessi myndavél var alveg ofan í
andlitinu á mér,“ sagði Daly í
yfirlýsingu en hann sagði við
áhorfandann eftir atvikið að ef
hann vildi nýja myndavél skyldi
hann kaupa hana.
„Það hefði engu breytt þótt
þetta atvik hefði átt sér stað
þegar vel gekk. Hann var allt of
nálægt með vélina og ég er enn að
drepast í augunum eftir flassið,“
sagði Daly.
Áhorfandinn sem gekk of nærri
Daly er ekki viss um hvort hann
ætli í skaðabótamál við Daly þar
sem hann sé stór maður að vexti.
- hbg
John Daly er alltaf hress:
Eyðilagði
myndavél
SVEKKTUR Áhorfandinn er hér með
myndavélina sem Daly skemmdi.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FORMÚLA 1 Heimsmeistarinn
Lewis Hamilton sér það ekki
gerast að reglum verði breytt á
þann hátt í íþróttinni að öll lið
muni keyra með sömu vél.
„Ég sé það ekki gerast. Ekki
nokkurn tímann. Framleiðendurn-
ir spila allt of stóra rullu í þessari
íþrótt,“ sagði Hamilton.
Samþykkt hefur verið áætlun
hjá liðunum sem og stjórnendum
Formúlunnar um að skera niður
kostnað næstu tvö árin. Útfærsl-
an hefur hins vegar ekki enn
verið kynnt. - hbg
Lewis Hamilton:
Ekki eins vélar
í öllum bílum
SENDU SMS ESL WED Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU WALL·E Á DVD, TÖLVULEIKIR,
AÐRAR DVD MYNDIR, PEPSI OG MARGT FLEIRA.
Vin
nin
ga
r v
er
ða
af
he
nd
ir h
já
EL
KO
Li
nd
um
–
Sk
óg
ar
lin
d 2
. M
eð
þv
í a
ð t
ak
a þ
át
t e
rtu
ko
m
inn
í S
M
S k
lúb
b.
14
9 k
r/s
ke
yt
ið.
Dreifing
LENDIR Í ELKO 11. DESEMBER
MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI
FRÁ HÖFUNDUM THE INCREDIBLES OG LEITIN AÐ NEMO
9. HVERVINNUR!
MEÐ HVERJUM DISK FYLGIR
BÍÓMIÐI Á ÆVINTÝRAMYNDINA
CITY OF EMBER!