Fréttablaðið - 12.12.2008, Page 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Í dag er föstudagurinn 12.
desember, 347. dagur ársins.
11.12 13.21 15.31
11.27 13.06 14.46
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Gott kvöld, góðir gestir, og verið velkomin í Útsvar. Þátt-
urinn í kvöld verður með dálítið
breyttu sniði. Einu sinni sprakk
ríkisstjórn í beinni útsendingu, en
nú verður ríkisstjórn mynduð í
beinni útsendingu. Næstu þrjá
föstudaga munu fjórir stjórnmála-
flokkar keppa um hverjir komast í
næstu stjórn. Þetta er í fyrsta sinn
sem ríkisstjórn er valin með þess-
um hætti og kemur ýmislegt þar
til, til dæmis sú staðreynd að það
er víst ekki hægt að boða til auka-
kosninga um vetur og ekki síður
sú staðreynd að RÚV bráðvantar
ódýrt sjónvarpsefni eftir sárs-
aukafullan niðurskurð – ekki satt
Þorgerður Katrín? Haha! Neinei,
þetta er nú bara létt grín.“
JÁ, eins og Sigmar benti á keppa
fjórir flokkar í þessari sérútgáfu
af Útsvari, en eins og glöggir
áhorfendur kannski vita eru fimm
flokkar á þingi. Útvarpsráð ákvað
hins vegar að stigalægsta tapliðið
í síðustu alþingiskosningum kæm-
ist ekki í undanúrslit. Hér gildir
sem fyrr útsláttarfyrirkomulag;
sigurvegararnir í fyrri umferðum
mynda saman ríkisstjórn en í
úrslitaþættinum verður keppt um
sjálft forsætið.“
TAKK fyrir þetta, Þóra. Þið þekk-
ið þetta. Við byrjum á bjölluspurn-
ingum og að því loknu dembum
við okkur í látbragðsleikinn. Þar
verða keppendur að gera grein
fyrir stefnumálum með látbragði
og handapati. Það er svo undir
áhorfendum komið að giska á
hvaða málaflokk verið er að lýsa.
Þetta gefur Geir kannski smá for-
skot; sama hvaða málaflokk er
verið að tala um þarf hann ekki að
gera annað en að yppta öxlum!“
ALVEG rétt, Sigmar, alveg rétt,
nema kannski þegar spurt er um
vanhæfi Seðlabankans, þá hristir
Geir nú bara höfuðið, haha! En
jæja, næst snúum við okkur að
valflokkunum en þar eiga liðin að
svara þremur miserfiðum spurn-
ingum um hina flokkana. Út frá
þeim verður svo hægt að meta
hversu vel viðkomandi flokkar
eiga heima saman í ríkisstjórn.“
LAUKRÉTT, Þóra. En þetta er
ekki búið. Að lokum geta liðin
valið sér fimm, tíu eða fimmtán
prósenta fylgisaukningu, en þess
ber að gæta að að spurningarnar
verða erfiðari eftir því sem stig-
unum fjölgar. En hér eru auðvitað
stjórnmálamenn að keppa og
ósanngjarnt að neyða þá til að
svara á grundvelli samvisku sinn-
ar eða skynsemi. Þannig að ef ein-
hver spurning er svínslega erfið
má alltaf hringja í vin, sem bíður
átekta á flokkslínunni.“
Hví að kjósa?