Fréttablaðið - 14.12.2008, Page 11
SUNNUDAGUR 14. desember 2008 11
UMRÆÐAN
Pétur Pétursson skrifar um
RÚV og fjölmiðlamarkað
Frumvarp menntamálaráð-herra sem takmarkar umsvif
RÚV á auglýsingamarkaði miðar
að því að gera starfsemi stofnun-
arinnar gagnsærri og bæta sam-
keppnisumhverfi fjölmiðla. Hér
er stigið jákvætt skref, en frum-
varpið þyrfti að styrkja með
ákveðnum áherslubreytingum.
Þótt forsvarsmenn RÚV haldi
því fram að frumvarpið verði til
að skerða auglýsingatekjur Sjón-
varpsins um 350 til 400 m.kr. má
með sterkum rökum halda því
fram að það feli í sér sóknarfæri
fyrir félagið og geti aukið tekjur
þess um 600 m.kr. Eina sem ráða-
menn RÚV þurfa að gera er að
fylgja eigin verðskrá og veita
afslætti í samræmi við eigin
afsláttarskrá. Það hafa þeir ekki
gert til þessa heldur stundað und-
irboð skv. nýlegu áliti Samkeppn-
iseftirlitsins.
Verðskrá RÚV er birt á vef
félagsins. Sömu sögu er að segja
um reglur um afslætti stofnunar-
innar. Í frumvarpinu er hins
vegar að finna útfærslu á lengd
auglýsingatíma á hverri klukku-
stund. Því eru allar forsendur
fyrir hendi til að reikna út tekju-
möguleika RÚV samkvæmt nýja
frumvarpinu. Samkvæmt mínum
útreikningum getur félagið aflað
sér um 740 m.kr. með auglýsinga-
sölu á kjörtíma (frá 19 til 22) og
geri ég þá einungis ráð fyrir
þokkalegum árangri söludeildar
RÚV við að fylla þá auglýsinga-
tíma sem þeir hafa til ráðstöfunar
á kjörtíma. Utan kjörtíma geta
tekjurnar numið milli 500 og 600
m.kr. Þar geri ég í mínum útreikn-
ingum ráð fyrir almennt slakri
nýtingu þeirra auglýsingatíma
sem eru til ráðstöfunar. Ég hvet
menntamálaráðherra og þing-
menn til að skoða tekjumöguleika
RÚV skv. frumvarpinu og gild-
andi reglum. Geri þeir það sann-
færast þeir vafalítið um að allt tal
um að frumvarpið verði til að
skerða stórlega tekjur stofnunar-
innar á ekki við.
Þverpólitísk nefnd skipuð af
menntamálaráðherra hefur unnið
gott starf og frumvarp mennta-
málaráðherra byggir á störfum
hennar. Forsenda skipunar nefnd-
arinnar er erfið staða einkarek-
inna fjölmiðla sem treysta á aug-
lýsingatekjur í
rekstri sínum
og undirboð
RÚV á auglýs-
ingamarkaði.
Niðurstaðan
verður því að
vera sú að bæta
stöðu einka-
reknu fjölmiðl-
anna og að
umsvif RÚV á
auglýsinga-
markaði verði reistar raunveru-
legar skorður. Stofnunin fær líka
3ja milljarða króna meðgjöf frá
ríkinu á ári hverju og 3,6 millj-
arða skv. núverandi áformum.
Hætta er hins vegar á því að í
núverandi mynd hjálpi frumvarp-
ið einkareknum fjölmiðlum minna
en að var stefnt. Þá gæti blasað
við ástand sem Samkeppniseftir-
litið lýsir svo vel í fyrrnefndu
áliti sínu:
„Samkeppniseftirlitð telur að
þátttaka RÚV á auglýsingamark-
aði í sjónvarpi sé veigamikil
ástæða þess að ekki eru fleiri öfl-
ugar sjónvarpsstöðvar hér á landi
en raun ber vitni og eignarhald
þeirra ekki dreifðara. ... Ef einka-
reknar sjónvarpsstöðvar geta
ekki lengur keppt við RÚV og
hætta sjónvarpsrekstri dregur
það úr fjölbreyttni í fjölmiðlum
og skaðar augljóslega lýðræðis-
lega umræðu.“
Sama hætta blasir við í útvarps-
rekstri. Samkeppniseftirlitið
bendir á í sömu skýrslu að sölu-
starf RÚV í útvarpi sé gróðrar-
stía ógagnsæis og óheilbrigðra
viðskiptahátta hjá ríkisstofnun.
Það er því mat Samkeppniseftir-
litsins að það sé algjörlega nauð-
synlegt að í nýjum reglum um
RÚV verði kveðið skýrt á um
bann við kostun, vöruinnsetningu
og slíku í öllu sölustarfi RÚV ohf.
– hljóðvarpi líka.
Það er vissulega ánægjulegt að
frumvarpið sé komið fram. Sér í
lagi að ákvæði um takmarkanir
auglýsinga verði tekið til endur-
skoðunar fyrir 1. júlí 2009. Ég
geri líka ráð fyrir að endurskoð-
un fari fram ef í ljós kemur að
þær takmarkanir sem stefnt er að
því að setja reynast ekki styðja
við tilgang frumvarpsins um að
bæta samkeppnisstöðu á fjöl-
miðlamarkaði. Slíkt væri til að
draga enn frekar úr fjölbreytni í
fjölmiðlum og skaða lýðræðislega
umræðu.
Höfundur er framkvæmdastjóri
sölusviðs 365 miðla ehf.
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Við hvetj um les end ur til að senda
okk ur línu og leggja orð í belg um
mál efni líð andi stund ar. Grein ar
og bréf skulu vera stutt og gagn-
orð. Ein göngu er tek ið á móti efni
sem sent er frá Skoð ana síð unni
á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein-
ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni
birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða
í báð um miðl un um að hluta eða
í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt-
inga og til að stytta efni.
PÉTUR PÉTURSSON
Frumvarpið færir RÚV auknar tekjur
Ég hvet menntamálaráðherra
og þingmenn til að skoða
tekjumöguleika RÚV skv. frum-
varpinu og gildandi reglum.
Geri þeir það sannfærast þeir
vafalítið um að allt tal um að
frumvarpið verði til að skerða
stórlega tekjur stofnunarinnar
eiga ekki við.
Auglýsingasími
– Mest lesið