Fréttablaðið - 14.12.2008, Síða 12

Fréttablaðið - 14.12.2008, Síða 12
12 14. desember 2008 SUNNUDAGUR UMRÆÐAN Grímur Hákonarson skrifar um Byr Eftir að íslenska bankakerfið hrundi fyrir um tveimur mán- uðum hefur mikið af fólki fært viðskipti sín yfir til sparisjóðanna. Fólk leitar í öryggið á þessum óvissutímum og sparisjóðirnir eru þekktir fyrir að vera hófsamar fjármála- stofnanir sem bera hag almenn- ings fyrir brjósti. Mestur hefur flóttinn verið yfir til Byrs Spari- sjóðs og tilkynntu stjórnendur hans um daginn að innlánaaukn- ingin frá hruni bankanna væri komin upp í 60 milljarða. Eflaust spilar auglýsingaherferð Páls Óskars þar inn í en ég held að aðalástæðan sé samt sú að fólk lítur á Byr sem traustan og heiðarlegan sparisjóð. En þegar rýnt er í eigendalista Byrs kemur í ljós að hann er ekki alveg jafn saklaus og hann gefur sig út fyrir að vera. Nokkur eign- arhaldsfélög sem tengjast Baugi og FL-Group hafa nánast étið sparisjóðinn upp til agna, eiga samtals um 20-30% stofnfjárins. Þetta eru sömu fjárglæframenn- irnir og misnotuðu og blóðmjólkuðu Sterling, FL-Group, Glitni og öll hin skúffufyrirtækin. Mennirnir sem eiga stóran þátt í því hvern- ig komið er fyrir íslensku þjóðinni í dag. Sparisjóður eða spari- baugur? Hvernig fer maður að því að finna sér heiðarlegan banka í dag þegar meira að segja sparisjóðirnir eru komnir í hend- urnar á fjárglæframönnunum? Þetta er spurning sem margir spyrja sig og það er mikil eftir- spurn í samfélaginu eftir slíkri stofnun. Slíka stofnun er helst að finna úti á landi, t.d í Þingeyjar- sýslu, en ég efast um að Þingey- ingar hafi áhuga á að fjármagna lífsstíl latte-lepjandi 101-rottu eins og ég er. Sparisjóðir höfuðborgarsvæð- ins, Byr og SPRON, eru ekki lengur sparisjóðir nema að nafn- inu til. Á undanförnum árum hefur farið fram mikil eignatil- færsla innan beggja þessara sjóða. Hópi fjárfesta hefur tekist að sölsa undir sig nær allt stofn- féð, sem lögum samkvæmt átti að vera eign almennings á starfs- svæðum sjóðanna og óseljanlegt. En með illa ígrunduðum lögum frá Alþingi árið 2001 urðu spari- sjóðirnir „óvart“ að markaðs- vöru, þ.e. lögum um hlutafélaga- væðingu sparisjóðanna. Eins og alltaf þegar almenningseigur eru hf-aðar þá var tekið skýrt fram að það ætti ekki að selja þá, en einhvern veginn enduðu þeir samt í höndunum á fjárglæfra- mönnunum. Nýju eigendur Byrs eru þegar byrjaðir að sýna sitt rétta andlit og hafa engu gleymt frá dögum FL-Group. Í apríl síðastliðnum tóku þeir 13,5 milljarða út úr sparisjóðnum og greiddu sér sem arð, en erfitt er að sjá hvernig sú aðgerð samrýmist þeim lögum sem gilda um sparisjóði í landinu. Fjármálaeftirlitið gerði ekki neitt í málinu og hefur eflaust nóg annað að rannsaka þessa dagana. Stærsti eigandi Byrs í dag er fyrrverandi strippbúllueigandinn Magnús Ármann. Magnús komst í kastljós fjölmiðla um daginn þegar fyrirtæki hans, Imon ehf., fjárfesti í Landsbankanum fyrir 9 milljarða rétt fyrir hrun bankans. Þessi dularfullu viðskipti hafa enn ekki verið upplýst og enginn veit hvaðan peningarnir komu. Magnús situr ennþá í stjórn Byrs en samkvæmt öllum pappírum og réttlætislögmálum ætti hann að vera gjaldþrota. Ég var viðskiptavinur Spari- sjóðs Kópavogs í mörg ár áður en hann sameinaðist Byr. Nú er ég sjálfkrafa orðinn „sparigrís“ þessara manna. Hvers á ég að gjalda? Hvað segir gamla fólkið við þessu, sem hefur verið í við- skiptum við SPK alla ævi? Hvers eiga börnin að gjalda sem Byr ætlar að gefa 5.000 krónur í jóla- gjöf fyrir þessi jól, inn á sérstak- an „Framtíðarsjóð Byrs“? Eru sparisjóðir úreltir? Það eru mörg rök fyrir því að við- halda sparisjóðunum í sinni upp- runalegu mynd. Sérstaklega núna þegar gallar hlutafélagaformsins blasa við okkur. Sparisjóðirnir voru stofnaðir á samfélagslegum forsendum og hafa alltaf verið í almenningseign, þ.e. eign spari- fjáreigendanna. Fjöldi sparisjóða hafa verið reknir á Íslandi í um heila öld með mjög góðum árangri. Þeir hafa einbeitt sér að hefðbundinni fjármálastarfsemi og bankaþjónustu en ekki verið í áhættufjárfestingum. Það hefur ekki verið markmið sparisjóða að stækka bara til að stækka, eins og var hjá gömlu útrásarbönkunum. Það merkilega er að þeir spari- sjóðir sem gengið hafa lengst í hlutafélagavæðingunni og tútnað hafa mest út á undaförnum árum, þeir standa verst að vígi í dag. Þeir sparisjóðir sem héldu í gömlu hefðirnar eru aftur á móti í ágætis málum. Sá hagfræðilegi rétttrúnaður sem vaðið hefur uppi síðustu árin um „hagkvæmni stærðarinnar“ er því algjört bull. Hlutafélagaformið er ekki endi- lega hagkvæmasta og besta rekst- arformið eins og haldið hefur verið fram. Það hefur ýmsa ókosti í för með sér. Það býður upp á sjálftöku auðs, samþjöppun valds, óhóf og bruðl, áhættufíkn og útrásargeðveiki: Það býður upp á það að örfáir menn steypi heilli þjóð í glötun, eins og við Íslend- ingar eru að upplifa núna. Ég heyrði eitt sinn útrásarvíking kvarta yfir því að sparisjóðsform- ið væri „þungt í vöfum“. En kannski er það einmitt það sem þarf til að beisla útrásarvíking- inn, og beina kröftum hans inn í samfélagið? Við þurfum að hafa fjölbreytni á fjármálamarkaðnum og þess vegna þurfum við að hafa spari- sjóði. Ef við látum það gerast að Byr falli endanlega í hendur auð- mannanna, þá þurfum við alla- vega að tryggja það að hér á höf- uðborgarsvæðinu verði starfandi að minnsta kosti einn „decent“ sparisjóður. Stjórnvöld hafa ennþá tækifæri til að stöðva þessa þróun þar sem Byr er ekki orðinn hlutafélag með formleg- um hætti. Byr þarf að fá sam- þykki helstu lánadrottna til að hlutafélagavæðingin gangi í gegn, en gera má ráð fyrir, í ljósi atburða síðustu vikna, að ríkið sé orðið stærsti lánadrottininn. Ég skora því á viðskiptaráðherra og íslensk stjórnvöld að bjarga Byr úr höndum fjárglæframannanna og einnig að slá skjaldborg um þá sparisjóði sem eftir eru í landinu. Höfundur er kvikmyndagerðar- maður og viðskiptavinur Byrs Sparisjóðs. GRÍMUR HÁKONARSON Sparisjóðirnir í höndum fjárglæframanna UMRÆÐAN Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar um Evrópumál Brýr eru stórkost-leg uppfinning. Þær tengja saman lönd og landsvæði á snilld- arlegan hátt. Brúin yfir Skeiðar- ársand er gott dæmi hérlendis, sem og Borgarfjarðar- brúin, en hún er gott dæmi um vel heppnaða fjárfestingu í sam- göngum. Niðurstaðan er kannski í stuttu máli sú að brýr skapa möguleika. Carl Bildt, utanríkisráðherra Svía (úr flokki hægrimanna, Moderaterna) er duglegur blogg- ari og notandi nútíma samskipta- tækni. Á bloggi hans fær lesand- inn sjaldséða innsýn í heim háttsetts stjórnmálamanns, Evr- ópu- og alþjóðasinna. Í einni af nýlegri færslum sínum skrifar hann um brúna yfir Eyrarsund, á milli Danmerk- ur og Svíþjóðar. Hann var frá upphafi fylgismaður hennar, en það voru ekki allir. Olof Johans- son, ráðherra umhverfismála (og formaður sænska Miðflokksins), var á móti brúarsmíðinni og vildi meðal annars rannsaka betur umhverfisáhrif hennar. Alþjóð- leg nefnd sérfræðinga hafði þó komist að þeirri niðurstöðu að brúin væri ekki hættuleg umhverfinu. Olof var hins vegar ósáttur og sagði af sér árið 1994 vegna málsins. Þetta gerðist ein- mitt á þeim tíma þegar Svíar voru að klára aðildarviðræður við ESB, en landið gekk í sam- bandið 1. janúar 1995. Nú er brúin hins vegar stað- reynd, var formlega vígð árið 2000. Allir eru sammála um að um stórkostlega framför sé að ræða. Brúin hefur búið til nýtt atvinnusvæði og tækifæri sem áður voru ekki til eða að mörgu leyti takmörkuð. Danmörk og Svíþjóð eru nú tengd varanlega með brúnni og hefur þetta skap- að mikil tækifæri fyrir báðar þjóðirnar. Það má segja að EES-samningurinn hafi verið eins konar „brú“ okkar Íslendinga inn í Evrópu og Evr- ópusambandið (ESB) á sínum tíma. Hann veitti okkur tækifæri sem ekki höfðu áður þekkst. Um 80% af útflutningi okkar fer til ESB og þaðan koma 70% þess sem við flytj- um inn. Svo náin eru viðskiptaleg tengsl okkar við Evrópu. En þessi brú er nú byrj- uð að eldast og á henni eru að margra mati vankantar. Þó held ég að það sé enginn á því að rífa hana niður. Þarf ekki bara að bæta við hana og gera hana betri? Með fullri aðild að ESB tel ég að Ísland myndi eignast fyrir alvöru þá „brú“ sem landið þarf á að halda til framtíðar. Vera heils- hugar þátttakandi í samstarfi 27 fullvalda og sjálfstæðra ríkja, sem í raun berjast fyrir framför- um á flestum sviðum mannlífsins og hafa ákveðið að taka sameig- inlega á þeim vandamálum sem augljóslega þarf að glíma við í framtíðinni. Íslendingar eru Evrópubúar og tilheyra Evrópu, bæði landfræði- lega og menningarlega, en ekki síst stjórnmálalega. Við höfum frá upphafi haft samskipti við aðrar þjóðir. Þannig hefur það verið og þannig mun það verða. Nú er kannski komið að því að ákveða hvert við viljum stefna sem þjóð í þessum efnum. Sá á kvölina sem á völina. En til þess að hægt verði að taka upplýsta ákvörðun þarf þjóðin upplýsingu. Þar komum við að hlutverki stjórnvalda, hagsmunasamtaka og kannski almennings sjálfs. Upplýsingarn- ar eru þarna úti; í dagblöðum, bókum, tímaritum, internetinu svo eitthvað sé nefnt. Íslenska þjóðin getur, rétt eins og aðrar þjóðir, vegið og metið þetta brýna hagsmunamál. Höfundur er stjórnmálafræðingur og situr í stjórn Evrópusamtak- anna. Að byggja brú GUNNAR HÓLMSTEINN ÁRSÆLSSON Keramik eldavél EC65121AX Ryðfrí hönnun. Nýtanlegt rými í ofni: 60 l. Mál (HxBxD): 90x60x60 cm. Orkunotkun: 0,79 kWt (blæstri), 0,87 kWt (undir- og yfirhita). Gorenje eldavél Reykjavík . Borgartún 24 . Sími 562 4011 Akureyri . Draupnisgata 2 . Sími 460 0800 Reyðarfjörður . Nesbraut 9 . Sími 470 2020 Reykjanesbær . Hafnargata 52 . Sími 420 7200 P IP A R • S ÍA • 8 23 41

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.