Fréttablaðið - 14.12.2008, Síða 18
18 14. desember 2008 SUNNUDAGUR
Á
þessu ári hafa sjó-
ræningjar frá
Sómalíu gert meira
en hundrað tilraun-
ir til að ræna skip-
um. Í fjörutíu skipti
tókst þeim ætlunarverk sitt, og
krefjast jafnan lausnargjalds í
skiptum fyrir skip, farm og áhöfn.
Sjórán eru engan vegin útdauð
atvinnugrein. Sómalir eru ekki
einir um hituna. Indónesar, Níger-
íumenn, Tansaníubúar og Indverj-
ar hafa á þessu ári einnig verið
stórtækir.
Þetta er ábatasöm iðja. Á þessu
ári er talið að sómalskir sjóræn-
ingjar hafi „unnið sér inn“ meira
en þrjá milljarða króna með þess-
um hætti. Þeir krefja útgerð og
eigendur skipanna um lausnar-
gjald, sem oft skiptir hundruðum
milljóna króna.
Vel búnir tækjum
Sjóræningjarnir frá Sómalíu eru
vel búnir tækjum og vopnum,
enda eiga þeir auðvelt með að fjár-
magna kaup á slíkum búnaði. Þeir
eru með staðsetningartæki og
gervihnattarsíma, sprengjur og
riffla og sigla um á hraðskreiðum
bátum.
Aðalbækistöð þeirra er bærinn
Eyl á austurströnd Sómalíu, í hér-
aðinu Puntland. Þangað sigla þeir
ránsfeng sínum, flytja áhöfnina í
land þar sem yfirleitt er vel hugs-
að um hana þangað til lausnar-
gjald er greitt.
Á fréttavef bresku útvarps-
stöðvarinnar BBC var nýverið
fullyrt að sjóræningjarnir í Sómal-
íu skiptust í þrjá megin hópa, sem
starfa saman. Sjómenn sem þekkja
siglingaleiðir og kunna á skipin,
fyrrverandi hermenn sem áður
börðust fyrir stríðsherra, og loks
tæknimenn sem kunna á staðsetn-
ingartæki og samskiptabúnað.
Þeir eru einnig í góðum tengslum
við alþjóðleg glæpasamtök, fá þar
upplýsingar um skipaferðir og
margvíslega aðstoð, svo sem við
þýðingar.
Sjóræningjarnir njóta þess að í
Sómalíu er engin starfhæf ríkis-
stjórn. Auðfengið fé þeirra hefur
sett svip sinn á bæjarlífið í Eyl og
nágrannasveitunum. Efnahagsleg
uppbygging hefur þar verið hröð,
sjóræningjarnir byggja sér stór
og dýr hús, kaupa sér glæsibif-
reiðar, lifa hátt og berast mikið á.
Afskiptaleysi umheimsins
Eftir því sem sjóræningjarnir
verða auðugri færa þeir sig meira
upp á skaftið. Á þessu ári hefur
sjóránum fjölgað gífurlega og þau
hafa orðið æ bíræfnari. Í septemb-
er tókst þeim að ræna úkraínsku
flutningaskipi, sem var með 33
skriðdreka um borð, og í nóvem-
ber rændu þeir risastóru olíuskipi
frá Sádi-Arabíu, með fulla tanka
af hráolíu.
Ríki heims hafa þó látið sjórán
að miklu leyti afskiptalaus. Nokk-
ur ríki hafa reyndar sent herskip
til að vernda skip á þessum slóð-
um, en þær aðgerðir hafa verið
ómarkvissar og engin samstaða
verið um þær.
Þetta hefur þó verið að breytast
á síðustu vikum.
Síðbúin viðbrögð
Á mánudaginn sendir Evrópusam-
bandið fjögur herskip á sjóræn-
ingjaslóðir út af Sómalíu, á Aden-
flóa og á Indlandshafi.
Evrópusambandið tekur þar við af
Atlantshafsbandalaginu, sem
undanfarnar vikur hefur verið
með viðbúnað á þessum slóðum
síðan Sameinuðu þjóðirnar báðu
um aðstoð við að vernda flutninga-
skip, sem sigldi með hjálpargögn
frá Kenía til Sómalíu.
Fjögur til sex skip verða síðan
notuð að jafnaði til eftirlits á
vegum Evrópusambandsins,
ásamt tveimur til þremur eftirlits-
þotum. Einnig verða notuð
ómönnuð flugför til að taka loft-
myndir af Indlandshafi og strönd-
um Sómalíu.
Á þriðjudaginn verður einnig
lögð fyrir öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna tillaga að ályktun, sem
heimilar erlendum hersveitum að
ganga á land í Sómalíu til að elta
uppi sjóræningja.
Erfitt verkefni
Ítalski aðmírállinn Giovanni Gum-
iero hefur verið yfirmaður NATO-
skipanna, sem hafa séð um eftirlit
á sjóræningjaslóðum út af Sómalíu
síðustu vikurnar. Hann segir hætt-
una vera vaxandi og samhæfðar
aðgerðir ríkja heims séu nauðsyn-
legar til að ná árangri.
Hann segir meðal annars að
margt sé til að torvelda eftirlits-
starf, ekki síst hve erfitt er að
greina á milli sjóræningjanna og
venjulegra sjómanna sem stunda
veiðar á sömu slóðum.
„Þeir nota sams konar báta,
klæðast sams konar fötum, og ef
maður sér þá líta þeir út fyrir að
vera venjulegir sjómenn,“ segir
Gumiero í viðtali við fréttastofuna
Associated Press.
© GRAPHIC NEWS
Bíræfni sjóræningja nútímans
Sómalskir sjóræningjar hafa fengið að athafna sig lítt áreittir, en nú virðist sem alþjóðasamfélagið sé að bregðast við. Í Sómalíu
lifa sjóræningjar hátt og gerast æ bífærnari. Guðsteinn Bjarnason kynnti sér þessa atvinnugrein, sem er engan veginn útdauð.
SJÓRÆNINGJAR HANDTEKNIR Í nóvember gerðu sjóræningjar frá Sómalíu tilraun til að ræna dönsku skipi. Breska herskipið HMS Cumberland kom til bjargar. Hermenn á
tveimur gúmmíbátum sigldu að fleytu sjóræningjanna og voru þeir handteknir. NORDICPHOTOS/AFP
SIGLT Á HÆTTUSLÓÐUM Þessi tvö hollensku flutningaskip
sigldu nýverið um Adenflóa, sem er ein fjölfarnasta siglingaleið
heims og jafnframt ein sú hættulegasta vegna þess hve sjórán
eru þar tíð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FYRIR RÉTTI Í KENÍA Átta sómalskir sjóræningjar voru hand-
teknir nýverið, sakaðir um að hafa rænt flutningaskipi og settir
í fangelsi í Kenía þar sem réttarhöld standa nú yfir. Á myndinni
hlýða þeir á þýðanda, sem hjálpar þeim að skilja hvað fram fer
við réttarhöldin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Í Sómalíu hefur nánast algert stjórnleysi ríkt síðan 1991 þegar herstjórn Siads Barre
var steypt af stóli. Abdullahi Yusuf Ahmed hefur verið forseti bráðabirgðastjórnar
landsins í fjögur ár, en áhrif þeirrar stjórnar í landinu eru afar takmörkuð. Hörð
átök af ýmsu tagi hafa geisað í landinu árum saman. Meðal annars hafa íslamistar
átt í átökum við stjórnarherinn og stríðsherrar hafa barist innbyrðis. Eitt stórt
hérað, Sómaliland, hefur lýst yfir sjálfstæði, og annað hérað, Puntland, vill vera
sjálfstjórnarhérað án þess þó að krefjast fulls sjálfstæðis. Í Sómalíu búa nærri níu
milljónir manna, og eru flestir þeirra múslimar.
Sómalía
Sú alþjóðastofnun sem best fylgist með sjóránum
um heim allan er Alþjóða siglingamálaskrifstofan,
International Maritime Bureau, sem er deild innan
Alþjóða viðskiptaráðsins. Skrifstofan hefur aðsetur
í Kuala Lumpur, höfuðborg Malasíu, tekur þar við
tilkynningum um sjórán og birtir reglulega skýrslur
um fjölda sjórána víðs vegar um heim. Í síðustu viku
bárust henni tilkynningar um sex sjórán, þar af tvö út
af ströndum Sómalíu. Á þeim slóðum hafa sjórán verið
langalgengust á þessu ári, en einnig hafa sjóræningjar
látið mjög til sín taka út af ströndum Indónesíu og í
Karíbahafinu.
Alþjóða siglingamálaskrifstofan