Fréttablaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 47
23 14. desember 2008 SUNNUDAGUR
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafað-
ir, afi og langafi,
Bjarni Sigurðsson
bifreiðastjóri og ökukennari,
Heiðargerði 56, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grensáskirkju mánudaginn
15. desember kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Kristniboðssambandið.
Kristín Ólafsdóttir
Fríða Bjarnadóttir Kristín Bjarnadóttir
Ólafur Bergmann Bjarnason Ólafía Aðalsteinsdóttir
afa- og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jónheiður Björg
Guðjónsdóttir
Krummahólum 6, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn
15. desember kl. 13.00.
Steinar Ásgrímsson Patricia Otman
Egill Ásgrímsson Svava Svavarsdóttir
Jón Þór Ásgrímsson Arnleif Alfreðsdóttir
Guðjóna Ásgrímsdóttir Jón Magni Sigurðsson
Ólafur Ásgrímsson Hanna Erlingsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum öllum sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför ástkærs eig-
inmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
bróður, afa og langafa,
Kristins Óskarssonar
fyrrverandi lögreglumanns,
Hæðargarði 35, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 13G á
Landspítala við Hringbraut fyrir kærleiksríka umönn-
un í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ágústa Jónsdóttir.
Okkar bestu þakkir til þeirra fjölmörgu
sem sýnt hafa okkur hlýhug, vináttu og
samúð við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
Erlendar Steingrímssonar
Prestbakka 9, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við Jakobi Jóhannssyni
krabbameinslækni, starfsfólki Landspítalans við
Hringbraut, deild 11E og líknardeildinni í Kópavogi
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Guðný Björg Guðmundsdóttir
Steingrímur Erlendsson
Ingibjörg Erlendsdóttir Ómar Ingi Gylfason
Henrik Erlendsson
Ásgeir Erlendsson
og barnabörn.
Okkar ástkæri
Jón Halldórsson
húsasmíðameistari, frá Arngerðareyri,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðjudaginn
16. desember. Athöfnin hefst klukkan 13.
Steinunn Jónsdóttir
Halldór Jónsson Rannveig Jónsdóttir
Kristín S. Jónsdóttir Óli Hilmar Briem Jónsson
Guðrún S. Jónsdóttir Þórður Ingvi Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
70 ára afmæli
Faðir minn,
Gunnar
Guðmundsson
verður 70 ára þann 14. desember.
framkvæmdastjóri Guðmundar
Jónassonar ehf
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vin-
arhug vegna fráfalls okkar elskulega eigin-
manns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
Björns K. Örvar
Innilegar þakkir færum við starfsfólki lyflækninga-
deildar St. Jósefsspítala í Hafnarfirði fyrir frábæra
umönnun og hlýju í veikindum hans.
Hanna Marta Vigfúsdóttir
Björg Örvar
Kjartan Örvar Anna Birna Björnsdóttir
Björn Lárus Örvar Unnur Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000.
„Safnaðarsalurinn verður vígður í dag
en hlé verður gert á byggingafram-
kvæmdum þegar þessum áfanga er
lokið,“ segir Guðmundur Karl Brynj-
arsson sóknarprestur Lindasóknar. Þar
með fer síðasta guðsþjónusta safnað-
arins í Salaskóla fram klukkan 11 í dag
en messað hefur verið, fyrst í Linda-
skóla og svo í Salaskóla, þau sjö ár sem
Lindasókn hefur verið starfandi.
„Við höfum verið með lítið hús á
kirkjulóðinni sem gegnir hlutverki
safnaðarheimilis. Það hefur oft verið
kallað húsið á slétttunni og í því hefur
allt safnaðarstarf farið fram, kóræfing-
ar, barna- og æskulýðsstarf, mömmu-
morgnar og fleira.“
Guðmundur hefur starfað sem sókn-
arprestur síðan sóknin var stofnuð árið
2002. Séra Guðni Már Harðarson hóf
svo einnig störf sem prestur í Linda-
sókn 1. september í ár en söfnuðurinn
telur hátt í 11.000. Guðmundur segir
sóknarstarfið fjölbreytt og fagnar því
að fá þak yfir höfuðið. „Starfið hefur
verið mjög öflugt og bæði framboð og
þátttaka með svipuðu móti og í stærstu
söfnuðum höfuðborgarsvæðisins, þó
aðstöðuna hafi skort. Messusókn hefur
verið mjög góð öll árin í skólahúsinu
og sérstaklega í haust. Fjöldinn hefur
ekki farið undir 200 manns. Það verð-
ur því mikil breyting að geta gert allt
undir sama þaki í stað þess að þeytast
um bæinn, út af ýmsum uppákomum.“
Lokafrágangur safnaðarsalarins
hefur verði í fullum gangi undanfar-
ið. Salinn munu prýða steindir glugg-
ar eftir Gerði Helgadóttur, teknir úr
þýskri kapellu sem var rifin fyrir
nokkru. Þeir rötuðu í Lindasókn og er
söfnuðurinn þakklátur Gerðarsafni og
bæjaryfirvöldum í Kópavogi fyrir að fá
að hýsa þá. „Þetta er eins og að fá Kjar-
val hingað inn en það er mjög sérstakt
að það séu verk eftir Gerði Helgadóttur
í nýrri kirkju í Kópavogi.“
Spurður hvort tengja megi vaxandi
kirkjusókn við þá umhleypingatíma
sem Íslendingar standa frammi fyrir
vill Guðmundur lítið gefa út á það. „Ég
held að það fari bara gott orð af starfinu
hjá okkur á sunnudögum og hugsa að
það megi alveg eins tengja kirkjusókn-
ina við það.“ Opið hús verður í Linda-
kirkju frá klukkan 13 til 16 í dag og Karl
Sigurbjörnsson biskup mun vígja salinn
klukkan 17.
heida@frettabladid.is
KIRKJUVÍGSLA: BISKUP ÍSLANDS VÍGIR SAFNAÐARSAL LINDAKIRKJU Í DAG
Starfið skilar sér í kirkjusókn
GOTT AÐ FÁ ÞAK YFIR HÖFUÐIÐ Séra Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindasókn,
er að vonum ánægður með að fá salinn vígðan í dag undir fjölbreytt safnaðarstarf.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MERKISATBURÐIR:
1287 Grandi milli Norðursjáv-
ar og grunns stöðuvatns í
Hollandi gefur sig og veld-
ur fimmta stærsta flóði
sögunnar. 50.000 manns
láta lífið.
1542 María Stúart verður
drottning Skotlands.
1890 Eyrarbakkakirkja vígð. Lov-
ísa Danadrottning málar
altaristöflu fyrir kirkjuna
árið 1891.
1911 Norðmaðurinn Roald
Amundsen kemst fyrstur
manna á Suðurpólinn.
1935 Tuttugu og fimm manns
farast í ofviðri um allt
land, reykháfar fjúka af
húsum í Reykjavík.
1977 Einhver mestu flóð hér
á landi valda tjóni víða á
suðurströnd landsins.
Söngkvintettinn Jackson Five
með Michael Jackson fremst-
an í flokki kom fram í skemmti-
þætti Eds Sullivan þennan dag
árið 1969.
Kvintettinn skipuðu fimm
bræður: Jackie, Tito, Jermaine,
Marlon og Michael Jackson og
reis frægðarsól þeirra hæst á
áttunda áratugnum. Lög eins
og I Want You Back, ABC, The
Love You Save og I’ll Be There
ruku strax í efsta sæti ameríska vinsældalistans
og einnig átti söngflokkurinn mörg lög í efstu
fimm sætunum. Þeir voru fyrstu þeldökku ungl-
ingastjörnurnar til að höfða jafnt til hvítra áhorf-
enda. Faðir bræðranna, Joseph Jackson, setti
kvintettinn saman eftir að hafa heyrt drengina
syngja og spila á gítar sem vantaði einn streng
á þegar hann kom heim úr
vinnunni. Joseph var sjálfur
fyrrum tónlistarmaður og sá
hæfileikana í sonum sínum.
Sérstaklega í yngsta bróð-
urnum Michael sem var að-
eins átta ára.
Sögur fóru af harðræði
Josephs við syni sína. Eink-
um var hann kröfuharður
við Michael og það reynd-
ist drengnum erfitt. Kvint-
ettinn starfaði þó allt til ársins 1989 þegar hann
leystist upp vegna dræmrar sölu plötunnar 2300
Jacksons Street. Michael söng ekki á þeirri plötu
nema í einu lagi. Hann hóf eftirminnilegan sóló-
feril og skaust rækilega upp á stjörnuhimininn
með fyrstu sólóplötu sinni Off the Wall sem kom
út árið 1979.
ÞETTA GERÐIST: 14. DESEMBER 1969
Jackson Five koma fram hjá Sullivan
timamot@frettabladid.is
LEIKKONAN MYRNA LOY LÉST
ÞENNAN DAG 1993.
„Lífið snýst ekki um að hafa
og að fá, heldur um að vera
og verða.“
Leikkonan Myrna Loy var 88
ára þegar hún lést. Hún var
kosin drottning Hollywood
árið 1938 og Clark Gable var
kosinn konungur. Henni voru
oft fengin hlutverk vampíru
vegna útlits síns.