Fréttablaðið - 14.12.2008, Síða 62
38 14. desember 2008 SUNNUDAGUR
Hátt í fimmtíu þúsund eintök hafa
selst af Söngvaborgar-mynddisk-
unum fimm sem Sigríður Bein-
teinsdóttir og María Björk
Sverrisdóttir hafa gefið út á
undanförnum árum.
Síðustu fjórir diskar hafa allir
selst í platínu, eða yfir tíu þúsund
eintökum, og sá nýjasti í röðinni
er þegar kominn í þrjú þúsund
eintök.
„Þetta hjálpar manni þegar
maður er í þessum tónlistar-
bransa,“ segir Sigga, spurð hvort
þetta sé ekki góður peningur í vas-
ann. „Maður þarf að lifa og hrær-
ast í öllu og mér finnst ofboðslega
gaman að vinna með börn-
um. Krakkar eru svo
hreinir og beinir og hjá
þeim er allt annað hvort
æðislegt eða glatað. Við
sjáum á þessu að
þau horfa á þetta
aftur og aftur.
Það er frábært
að vita til þess að
maður sé að gera
rétta hluti,“
segir hún. „Það
er rosalega
gaman hvað
fólk hefur tekið
þessu vel og
krakkar
alveg elska
þetta.“ Disk-
arnir, sem
koma út
annað hvert
ár, eru ekki
tengdir jólun-
um og seljast
því jafnt og
þétt yfir árið
sem gerir
vitaskuld
gæfumuninn
í þessari
miklu sölu.
Á föstudag fóru þær Sigga og
María á Barnaspítala Hringsins
þar sem þær skemmtu börnunum
með leik og söng eins og þær hafa
gert undanfarin jól. „Við erum að
reyna að gera eitthvað gott með
þessu, sérstaklega eins og tímarn-
ir eru núna,“ segir Sigga.
Nýverið var tilkynnt hverjir
yrðu dómarar í næstu Idol-þátta-
röð og var Sigga ekki í þeirra hópi.
Hún segist alls ekki vera svekkt
yfir því. „Að sjálfsögðu hefði ég
viljað vera með enda var þetta
ofboðslega skemmtilegur tími
sem þau eiga eftir að kynnast þau
sem taka þátt í þessu. Þetta verður
ferlega skemmtilegt.“ - fb
NÝJU JÓLASVEINARNIR
Hvað er að frétta? Endurskoðun ýmissa hluta, endur-
skipulagning annarra. Endurhugsun og endurnýjun.
Áhugaverð og skemmtileg verkefni fram undan.
Vonandi umtalsvert og passlega rólegt jólafrí. Vinna,
kökubakstur, át og góðir tímar með góðu fólki fram
að jólum.
Augnlitur: Blár.
Starf: Hönnuður.
Fjölskylduhagir: Mjög fínir.
Hvaðan ertu? Reykjavík.
Ertu hjátrúarfull? Fer eftir dögum og aðstæðum.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Fremur léleg í áhorfi
á sjónvarpsþætti. Í minningunni voru margir góðir
þættir hér áður fyrr svo sem Rætur, Spítalalíf, Húsið
á sléttunni og fleiri. En ábyrgist engan veginn að mér
þætti mikið til þeirra koma í dag, ef mér byðist að sjá
þá aftur.
Uppáhaldsmaturinn: Rjúpur.
iPod eða geislaspilari: Geislaspilari.
Hvað er skemmtilegast? Vera með skemmtilegu
fólki.
Hvað er leiðinlegast? Bókhald og vsk-skil í það
minnsta mjög ofarlega á óvinsældalista.
Helsti veikleiki: Erfitt með að segja nei.
Helsti kostur: Þokkalegt jafnaðargeð að öllu jöfnu.
Helsta afrek: Koma heilbrigðum einstaklingi í
heiminn.
Mestu vonbrigðin? Engin stórkostlega yfirþyrmandi
enn sem komið er, nema ef vera skyldi hvernig hald-
ið hefur verið á málum hérlendis.
Hver er draumurinn? Fyrirmyndarsamfélag á
Íslandi í víðtæku samhengi.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Dóttirin.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Græðgi og
siðblinda.
Hvað er mikilvægast? Fjölskylda og vinir.
HIN HLIÐIN SNÆFRÍÐ ÞORSTEINS HÖNNUÐUR
Er með jafnaðargeð að öllu jöfnu
Leikstjórinn Óskar Jónasson er með
nýja sjónvarpsmynd í burðarliðn-
um sem verður byggð á skáldsögu
Braga Ólafssonar, Gæludýrin. Ólaf-
ur Darri Ólafsson mun fara með
hlutverk aðalpersónunnar Emils en
óvíst er hvenær tökur hefjast.
„Ég er búinn að vera að gæla við
þessa hugmynd í gegnum tíðina.
Sagan er frábær. Það er mjög
óvenjuleg öll uppstilling á henni,“
segir Óskar. „Þetta er svona klípa
sem Emil sekkur í sem verður alltaf
verri og verri. Maður kannast við
hvernig þessir hlutir geta verið og
þróast. Þetta er virkilega vel skrif-
uð og skemmtileg saga sem á fullt
erindi í sjónvarp.“
Óskar hefur átt í viðræðum við
Ríkissjónvarpið um að sýna mynd-
ina og er handritið komið langt á
veg. „Við höfum átt samtal við þá
um að koma þessu á koppinn en það
eru blikur á lofti þarna uppfrá,
maður veit ekki hvað verður,“ segir
hann.
Í Fréttablaðinu á föstudag kom
fram að Gæludýrin væri á meðal
fimmtán bestu skáldsagna ársins
hjá hinu virta útgáfufyrirtæki Bar-
nes & Nobels í Bandaríkjunum. Í
dómi um bókina kom fram að tök
Braga á súrrealískum aðstæðum
aðalpersónunnar gefi skrifum hins
japanska Murakami lítið eftir.
Verði sjónvarpsmyndin að veru-
leika fylgir hún eftir vinsældum
síðustu kvikmyndar Óskars,
Reykjavík Rotterdam, sem var
frumsýnd í sumar við góðar undir-
tektir. Síðasta verk hans í sjónvarpi
var spennuþáttaröðin Svartir engl-
ar sem var einmitt sýnd í Ríkis-
sjónvarpinu fyrr í vetur. -fb
Óskar myndar Gæludýrin
ÓSKAR JÓNASSON Leikstjórinn Óskar
Jónasson er með sjónvarpsmynd í
undirbúningi byggða á bók Braga Ólafs-
sonar, Gæludýrin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Þetta er draumur sérhvers póker-
spilara, ég er auðvitað byrjaður að
æfa enda ætla ég að rúlla þessum
köpppum upp,“ segir Egill „Störe“
Einarsson. Einkaþjálfaranum
kunna virðast allir vegir færir því
hann er á leiðinni á risastórt
alþjóðlegt mót í póker um miðjan
febrúar. Félagsskapurinn sem
Egill verður í er ekki amalegur
því góðvinur hans, Auðunn Blön-
dal, verður einnig meðal þátttak-
enda. Mótið sem um ræðir er hald-
ið á einu stærsta spilavíti Evrópu,
Estoril í Portúgal. Sagan segir að
Ian Flemming, höfundur bókanna
um James Bond, hafi dvalist þar
og fengið hugmyndina að þessum
þekktasta leyniþjónustumanni
heims sem var ekkert síður
lunkinn pókerspilari. Agli líst vel
á að halda á slóðir James Bond
enda eigi þeir ýmislegt sam-
eiginlegt.
Ferðin er farin á vegum veð-
málafyrirtækisins Betsson. Fyrir-
tækið hyggst jafnframt blása til
mótaraðar á netinu nú í desember
þar sem menn geta unnið sér sæti
á glæsilegu pókermóti á skemmti-
staðnum Rúbín í Öskjuhlíðinni
þann 17. janúar. Sigurlaunin á því
móti eru þó ekki peningaseðlar
heldur þrír farseðlar með öllu á
mótið í Portúgal að verðmæti
fimmhundruð þúsund krónur.
Engar smáupphæðir eru í boði á
mótinu en heildarverðlaunaféð er
ein milljón dollara. Sú fjárhæð
dreifist á efstu menn en sigurveg-
arinn fær að launum 236 þúsund
dollara eða þrjátíu milljónir
íslenskra króna. „Þetta er að fara í
vasann hjá mér, ég er íþróttamaður
með keppnisskap og ætla mér að
sjálfsögðu að vinna þetta.“ Egill
viðurkennir samt sem áður að
fyrsta takmarkið sé að komast á
lokaborðið þar sem níu spilara
heyja lokabardaga um sigurlaun-
in. „Þá fer þetta auðvitað að snú-
ast svolítið um að hafa heilladís-
irnar á sínu bandi eins og í öðrum
íþróttagreinum,“ útskýrir póker-
spilarinn.
Egill segist hafa stundað póker
á þriðja ár. Hann viti varla um
nokkrun mann sem ekki grípi í
spil við og við. Hann er ekki í vafa
um hvert sé hans sterkasta vopn.
„Þolinmæði, já án gríns, ég er
mjög þolinmóður við borðið og bíð
eftir réttu tækifærunum. Og svo
er ég með all svakalegt pókerfés,
það er gjörsamlega ómögulegt að
lesa mig.“ freyrgigja@frettabladid.is
EGILL STÖRE: MEÐ SÉRSNIÐINN SMÓKING OG AUDDA BLÖ Í FARTESKINU
Störe á pókermót í Portúgal
EKKI LEIÐUM AÐ LÍKJAST Egill gæti hugsanlega tekið við af Daniel Craig sem James
Bond miðað við hvernig hann tekur sig út í sérsniðna smókingnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Sigga Beinteins sel-
ur fimmtíu þúsund
Steini í Kók hét þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í millu,
þegar kostur var á.
Hann keyrði í burtu með hana
á glæsikerru, pent,
og rúntaði um bæinn
og blastaði 50 cent.
05.04.1968
MEÐ MASA Sigga
Beinteins og María
Björk með vini
sínum Masa.
Þær hafa selt
Söngvaborg-
ar-diskana í
hátt í fimm-
tíu þúsund
eintökum.
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is