Tíminn - 07.09.1982, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982.
7
erlent yfirlit
■ Sérstakar sveitir innan lögreglunnar í Stokkhólmi hafa það hlutverk að koma í veg fyrir að upp úr sjóði milli sænskra
unglinga og innflytjenda. Hér er lögreglan á taii við nokkra „skalla“.
Svíþjód:
Kynþáttavanda
mál skjóta upp
kollinum
■ í Kaupmannahöfn hafa staðið yfir
óeirðir um nokkurt skeið þar sem dönsk
ungmenni og tyrkneskir innflytjendur
eigast við. Sérstök deild innan lögregl-
unnar hefur verið styrkt mjög og reynir
að koma í veg fyrir að hópunum slái
saman. Danir eru felmtri slegnir yfir því
að í þeirra eigin landi eru kynþáttaó-
eirðir að verða daglegt brauð. Því óraði
þá ekki fyrir þegar þeir opnuðu
landamæri sín fyrir erlendu vinnuafli.
í Svíþjóð er ástandið enn verra, og
Svíar botna hvorki upp né niður í því
ástandi sem þar er að skapast. Þar í landi
eru 1 milljón útlendinga búsettir. Þar af
eru 400 þúsund Finnar, en þeir hafa
löngum sótt atvinnu til Svíþjóðar. En
andúðin beinist ekki gegn Finnum. Þeir
samlagast sænsku þjóðlífi. Það eru þeir,
sem lengra eru að komnir, sem verða
fyrir barðinu á kynþáttaandúðinni.
í Svíþjóð eru það ekki aðeins
unglingar sem efna til óspekta sín á milli,
sem menn hafa áhyggjur af. Félög eru
stofnuð, sem hafa það á stefnuskrá sinni
að Svíþjóð verði fyrir Svía, og að allir
útlendingamir, sem flust hafa til lands-
ins verði sendir til síns heima.
Það er margt sem bendir til mjög
aukinnar útlendingaandúðar í Svíþjóð,
og aðfarirnar gegn þeim eru iðulega
ruddalegar.
í júlímánuði s.l. flutti fjölskylda frá
Chile í hús í einu af úthverfum
Stokkhólms. Skömmu síðar var fjöl-
skyldan vakin upp um miðja nótt er
rúður hússins voru brotnar. í garðinum
brann kross. Það teikn er ekki óþekkt
annars staðar. Þeir sem aðförina veittu
hurfu út í náttmyrkrið.
Samtök sem nefnast „Bevar Sveriga
Svensk“, eða höldum Svíþjóð sænskri,
hafa sent frá sér dreifibréf þar sem segir
m.a.:
„Að fjórum kynslóðum liðnum verð-
ur sænsk Svíþjóð ekki lengur til.
Aðkomufólk og afkomendur þeirra
munu leggja Svíþjóð undir sig, og þá
verður Tyrki kannski einræðisherra og
svertingi utanríkisráðherra. Þjóðin
verður súkkulaðibrún blanda, sem ekki
mælir á sænska tungu, en á hrafli úr
mörgum málum.“
Andúðin er aðallega gegn þeim
innflytjendum, sem hafa annan litarhátt
en Svíar og eru upprunnir úr gjörólíkri
menningu. Þetta fólk verður að láta sér
lynda að búa í fjandsamlegu umhverfi.
Það leitar skjóls hvað hjá öðru og gjáin
milli innflytjendanna og heimamanna
breikkar.
í Stokkhólmi eru það aðallega
svokallaðir „skallar" sem standa að
árásum á innflytjendur. Um svipað leyti
og ráðist var á diskótek í eigu Tyrkja í
Kaupmannahöfn um næstliðna helgi,
réðust skallar í Stokkhólmi á diskótek í
miðborginni, en sá skemmtistaður er
aðallega sóttur af innflytjendum. Mólo-
tofkokteil var kastað að inngangi
diskóteksins og um 50 skallar réðust á
gestina með hnífa, rörbúta og keðjur að
vopnum.
Skallarnir og áhangendur þeirra
safnast saman í miðborg Stokkhólms um
helgar og sérstök deild lögreglunnar
hefur það hlutverk að halda þeim í
skefjum. Séu þeir með keðjubúta eða
hnífa í fórum sínum er það gert upptækt.
Með lögreglumönnunum eru félagsráð-
gjafar sem reyna að tala um fyrir unga
fólkinu. Þeir, sem eru undir 15 ára aldri
í þessum hópum, eru teknir í umsjón
opinberu starfsmannanna, sem reyna að
fá foreldrana til að koma og ná í börn
sín og tala um fyrir þeim. Að öðrum
kosti eru krakkarnir keyrðir heim og
skýrslur samdar.
Sænsk yfirvöld eru þess vel meðvit-
andi að í óefni stefnir í þessu efni. Mikill
áróður er hafður í frammi til að koma í
veg fyrir kynþáttaóeirðir. Veggspjöld,
þar sem varað er við kynþáttahatri eru
að verða áberandi í Stokkhólmi. Þar er
m.a. lögð áhersla á að þeir sem eru
hræddir grípi fyrstir til vopna. Ofbeldi
sýnir hugleysi.
Foreldrum unglinga eru send bréf, þar
sem þeir eru beðnir að tala um fyrir
börnum sínum, og foreldrum er ráðlagt
að láta ekki börn undir 13 ára aldri fara
ein síns liðs í miðborgina á kvöldin. En
skólakrakkar taka iðulega þátt í slags-
málunum sem út brjótast milli kynþátt-
anna.
Eitthvað er farið að bera á kynþátta-
andúð í skólunum, því skólastjórum er
ráðlagt af yfirvöldunum að beita
áhrifum sínum til að ekki komi til
neikvæðrar afstöðu milli sænskfæddra
nemenda og þeirra sem aðfluttir eru.
Sænska sjónvarpið mun vera að hefja
endursýningar á þáttunum „Flolocaust",
sem fjalla um útrýmingarherferð á
gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni.
Ríkisstjómin hefur boðað, að um
áramót verði lagt fram lagafrumvarp um
ný og strangari lög um kynþáttamisrétti.
Kosningar fara fram í Svíþjóð í
desember n.k. Kynþáttavandamálið er
þegar orðið eitt af áróðursmálum í
kosningabaráttunni. Þekktur sósíal-
demókrati heldur því fram að kynþátta-
andúðin sé til komin vegna cfnahags-
stefnu borgaraflokkanna. Fálldin for-
sætisráðherra svaraði þegar með því að
leggja fram stefnuskrá um innflytjenda-
vandamál, sem Dagens Nyheter segir
að sé ekki nema innihaldslaust málæði.
En málæði og góður ásetningur leysir
ekki þau vandamál sem eru að skapast
í Svíþjóð. Aukin og ófalin andúð á
innflytjendunum fylgir í kjölfar öryggis-
leysis, sívaxandi atvinnuleysis og efna-
hagslegra örðugleika.
Þótt hingað til hafi allt verið slétt og
fellt á yfirborðinu í sænsku þjóðfélagi,
sem löngum hefur verið talið eitt hið
umburðalyndasta í heimi, er bersýnilegt
að hatrið og óttinn blundar undir
yfirborðinu.
Oddur Ólafsson
skrifar
Norrænn starfsmenntunarstyrkur
Laus er til umsóknar einn styrkur ætlaður Islendingi til
starfsmenntunarnáms í Svíþjóð skólaárið 1982-83. Fjárhæð
styrksins er um s.kr. 8.500 miðað við styrk til heils skólaárs. -
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í menntamálaráðu-
neytinu (Hverfisgötu 6,101 Reykjavík), og skulu umsóknir hafa borist
þangað fyrir 18. þ.m.
Menntamátaráðuneytið, 2. september 1982.
Laus staða
Staða framkvæmdastjóra Sjúkrasamlags
Reykjavíkur er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf sendist Sjúkrasamlagi Reykja-
víkur fyrir 27. september n.k.
Raflagnir Raflagnir
Fyrsta flokks
þjónusta
Þurfirðu að endurnýja raflagnir,gera við,
bæta við eða breyta, minnir Samvirki á
fullkomna þjónustu sína.
Harðsnúið lið rafvirkja er ævinlega reiðubúið
til hjálpar.
samvirki
SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI - SÍMI 44(566
Rauði kross íslands heidur
barnagæslunámskeið
í kennslusal Rauöa krossins Nóatúni 21,
Reykjavík 20.-23. sept. n.k. Námskeiöið er
ætlað unglingum 12 ára og eldri. Kennt er kl.
18-21.
Umsóknir sendist skrifstofu Rauða kross
íslands Nóatúni 21 fyrir 14. sept.
Nánari upplýsingar um námskeiðið eru veittar
í síma 26722.
Rauði kross íslands.
;;;
Orðsending frá
Hitaveitu
Reykjavíkur
Þeir húsbyggjendur og aðrir sem ætla að fá tengda hitaveitu í haust
og í vetur þurfa að skila beiðni um tengingu fyrir 1. okt. n.k..
Minnt er á, að heimæðar verða ekki lagðar í hús fyrr en þeim hefur
verið lokað á fullnægjandi hátt, fyllt hefur verið að þeim lóð jöfnuð
sem næst því í þá hæð sem henni er ætlað að vera.
Heimæðar verða ekki lagðar ef jörð er frosin nema gegn greiðslu
þess aukakostnaðar sem að því leiðir en hann er verulegur.
Hitaveita Reykjavíkur.