Tíminn - 24.10.1982, Síða 3
» » 4 4 « I ■> » ’ v ' ' ' •
SUNNUDAGUR 24, OKTÓQ£R 1982
hafði áður verið heldur þóttist hann vilja
að fara að hafa áhrif á stjórnmál og
annað þvíumlíkt og ánetjaðist mjög
Kúbu. Það varð til þess að rithöfundar
snerust gegn honum því það vita allir að
á Kúbu er einræði, og þar hefur mjög.
verið hert að rithöfundum og þeim
varpað í fangelsi. Ég var að lesa það í
morgun að Armando Vallardares hefði
verið sleppt úr haldi. Marquez ætlaði
sjálfur að leysa hann út og kvað vináttu
sína við Fídel Castró á því byggða að
hann ætlaði að halda vemdarhendi yfir
rithöfundum. En nú kemur í ljós að það
var fyrir orðastað Mitterands Frakk-
landsforseta að Vallardares er látinn
laus, en ekki vegna áhrifa Marquez.“
Guðbergur kvað Marquez hafa á
síðari árum mjög farið inn í heim
auglýsinganna. „Þegar þessir rithöfund-
ar eru orðnir frægir fara þeir ósjálfrátt
að lifa mjög hátt og það er sífellt verið
að bjóða þeim í veislur og þeir lifa eins
konar þotulífi. Það er eins með
Marquez. Hann sagðist ekki ætla að gefa
nýju bókina sína Frásögn um margboð-
að morð út fyrr en Pinochet, einræðis-
herra í Chile, væri fallinn. Þannig er
skapaður áhugi á bókinni og nú þegar
hún kemur út er sagt að þótt Pinochet
sé enn við völd þá gefi Marquez bókina
út vegna þess að hún beri sannleikanum
vitni og sé tákn um frelsi sem var kæft í
Chile. Þar með hefur verið notuð tvenns
konar auglýsing. Marquez er fangi í
fangelsi frægðarinnar og það er hræðileg
vist.“
Nýjustu bók Gabriel Garcia Marquez
kvað Guðbergur vera eins konar
millistig milli Hundrað ára einsemdar og
Liðsforingjans; fremur vottur um íþrótt
höfundar en að þar væri á ferðinni
djúpsætt verk. „Þetta er miklu fremur
íþrótt manns sem er orðinn mjög
þjálfaður, og verkið er ekki stórbrotið
eins og höfuðrit Marquez Hundrað ára
einsemd; en jú sannarlega góð íþrótt og
hann mundi jafnvel fá silfurverðlaun eða
gullverðlaun á Ólympíuleikunum" segir
Guðbergur hlæjandi.
Eins og nafn hinnar nýju bókar
Frásögn um margboðað morð bendir til
fjallar hún um morð. Maður nokkur
gengur að eiga stúlku og þegar hann er
búinn að giftast henni og ætlar að fara í
rúmið með henni kemst hann að því að
hún er ekki hrein mey þannig að hann
skilar henni aftur. Hún er spurð hver
hafi afmeyjað hana og hún nefnir bara
eitthvert nafn. Síðan eru bræður hennar
að eltast við þennan vesalings mánn sem
á kannski enga sök á því að hafa
afmeyjað hana, og á endanum er hann
drepinn.
Guðbergur kvað Gabriel Garcia
Marquez halda skáldskap og stjórn-
málum aðskildum. Róttæk vinstri stefna
hans kemur ekki fram í skáldverkum
hans. Aftur á móti viðrar hann
stjórnmálaskoðanir sínar í fjölmörgum
blaðagreinum sem hann skrifar fyrir
stórblöð í Suður-Ameríku.
Guðbergur var að lokum spurður að
því hvort hann héldi að verðlauna-
veitingin mundi breyta einhverju um
feril Marquez. „Það held ég ekki“, sagði
hann, „þetta er frægð á frægð ofan, og
hann skrifar hvorki betur né verr eftir
að hann hefur fengið slík verðlaun. En
hann er vel að þeim komin.“
-GM
Dressed Operatmg
Program
Meira en 3500 CRTronic setningar-
tölvur eru nú í notkun í prent-
stofum og á dagblöðum ... alltfrá
Hong Kong til Reykjavíkur. Og það er stað-
reynd að CRTronic tölvurnar eru mest seldu
setningartölvurnar í heiminum í dag, enda
langt á undan sinni samtíð.
í þessum pistli yrði of langt mál að telja upp
alla þá möguleika sem CRTronic setningar
tölvurnar bjóða setjaranum upp á að nýta
sér til sparnáðar á fé og fyrirhöfn.
En vertu ekki feimin að hringja í ACO og fá
upplýsingar um CRTronic tölvurnar.
I | I I v VI l’tUI'lKllllllUMX
M|*;i ki 11 s - uv»|s \»
ti\is v\ n \u tjiópm \uvt
i x«. i ii v' 11»; 11 v 111»í n suvl
V ' \ |IXI \tn\yl»."N I 4^1 II
\ \ 11 \ VS• K 11 í 1 UltlM
acohf LAUCAVEG 168, REYKJAVlK, SÍMI: 27333
CRTromc
Linotype
T KTEANDT11QO ÁR
ASETNINC
NYR
Verð aðeins
Eigum nokkur eintök af
ssum stórgóða
Iskyldubíl sem
f
o
a gotuna
Tökum gamla bíla upp f nýja
FIAT
UMBOÐIÐ
Enn er tækifærí á b/s. 25 ,
SMIÐJUVEGI 4 KÓPAVOGI SIMI 77200 - SÖLUMENN í SÍMA 77720