Tíminn - 24.10.1982, Side 20
20____
erlend
SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1982
Borgarstjori Parísar
gegn Frakklandsforseta
Átök í Frakklandi:
■ Frá Frakklandi berast þær fregnir að
mikil átök séu í gangi milli ríkisstjórnar
Mitterands og borgarstjórnar Parísar
undir forystu Jacques Chiracs, sem
jafnframt er leiðtogi
stjórnarandstöðuflokks Gaullista.
Ágreiningurinn snýst um
umfangsmikla breytingu sem Mitterand
vill koma á varðandi stjórnun Parísar.
Breytingin felst í því að í stað eins
aðalborgarstjóra verði kosnir 20
borgarstjórar sem skipti með sér
yfirráðum í borgarhverfum Parísar.
Pessi breyting er liður í stefnu franskra
sósíalista að draga úr miðstýringu í
landinu, og slíkur háttur á borgarstjórn
er hafður í London og Tokyó.
Ríkisstjórn Mitterands hefur sakað
Chirac um að misnota aðstöðu sína sem
borgarstjóri Parísar. Hann hygli m.a.
pólitískum samherjum sínum og hafi
sctt eitt hundrað ráðgjafa sína á
launaskrá borgarinnar.
Chirac og samherjar hans telja
breytingarnar hins vegar vera pólitískar
ofsóknir og bcnda á að reynt sé að
skerða völd borgarstjóra Parísar en
sama eigi ekki að ganga yfir aðrar
stórborgir, Frakklands, s.s. Lyon og
Marseille.
■ Chirac borgarstjóri Parísar.
■ Mitterrand Frakklandsforseti.
Lýðræðisstjórn tekin við í Bólivíu en:
Gestapóforinginn
Altmann
gengur laus í La Paz
■ Hópur hægri smnaðra útlaga, of-
beldismanna og kókaínsmyglara hrað-
aði för sinni inn í frumskóga Bólivíu í
síðustu viku þegar spurðist út að
ítalskur fasisti, Pierluigi Pagliai sem
talinn er einn þeirra er stóð að
hryðjuverkunum á járnbrautarstöðinni
í Bologna á Ítalíu á sínum tíma, hefði
verið handtekinn og framseldur til
heimalands síns.
Nasistaforinginn Klaus Barbie, öðru
nafni Klaus Altmann, sem sekur var
fundinn um stríðsglæpi í lok síðari
heimsstyrjaldar fyrir óhæfuverk í borg-
inni Lyon f Frakklandi þar sem hann
stjómaði Gestaposveitum, virðist á hinn
bóginn ekki ýkja áhyggjufullur yfir
fréttunum af framsali Pagliai sem hin
nýja lýðræðisstjórn Bólivíu stendur að.
Að vísu hermdu óstaðfestar fréttir í
vikunni að Altmann hefði flúið til
Brasilíu, en að sögn Jan Rocha
fréttaritara The Observer í La Paz er
líklegt að hann sé enn í höfuðborg
Bólivíu. Rocha hitti að máli mann sem
kvaðst vera einkaritari Altmanns og
sagði sá að yfirmaður sinn hefði ekkert
að óttast og því skyldi hann þá leggja á
flótta.
„Altmann hefur verið bólivískur
ríkisborgari í meir en aldarfjórðung, og
engir samningar gilda um framsal manna
milli Bólivíu og Frakklands eða Vestur-
Pýskalands. Og þótt slíkir samningar
væru til brcytti það cngu því glæpir
fyrnast á tíu árum í Bólivíu" sagði þessi
einkaritari Altmanns.
Altmann hefur notið verndar herfor-
ingjastjórna í Bólivíu um árabil, og að
launum hefur hann aðstoðað við að
skipuleggja dauðasveitir hersins, og
annast vopnakaup.
Altmann hefur bólivískt ríkisfang og
vegabréf, og notaði það til að ferðast
undir hinu nýja nafni sínu til Frakklands
fyrir nokkrum árum. Hann heimsótti
m.a. Lyon og kom að leiði andspyrnu-
foringjans Jean Moulin, sem hann er
sakaður um að hafa pyntað og myrt.
Borin voru kennsl á Altmann árið
1972 og var þar að verki Beate Klarsfeld
sem leitað hefur uppi nasistaforingja um
langt skeið. Tilraunir til að fá hann
framseldan hafa hins vegár ekki borið
árangur, og lengst af naut Altmann
verndar Hugo Banzers fyrrum forseta
Bólivíu.
Ef það reynist rétt að Altmann telji
sig enn geta um fjálst höfuð strokið í
Bólivíu þegar þar er komin til valda
lýðræðisleg stjórn er það örugg vísbend-
ing um að hann á enn vini í háum
embættum.
■ Gestapóforinginn og stríðsglæpamaðurinn Klaus Altmann
■ Gonzalez sósíalistaforíngi á fjöldafundinum í Oviedo. Fólkið fagnaði honum eins og rokkstjömu.
Þingkosningar á Spáni í miðri vikunni:
SIGUR SOSIAL-
ISTA í AUGSÝN
Stefna ekki að víðtækum þjóðfélagsbreytingum
■ Tugir þúsunda sósíalista troðfylltu
áhorfendastæði á knattspyrnuvellinum í
Oviedoborg í Asturiashéraði á Norður-
Spáni fyrir skömmu og fögnuðu þar for-
ingja sínum Felipe Gonzalez sem mætt-
ur var á kosningafund. Asturiashérað er
mikið námasvæði og á borða sem
strengdur var á vellinum var letrað
„Námuverkamenn fagna forsætisráð-
herra alþýðunnar.“
Þegar hinn granni, strákslegi og frjáls-
lega klæddi sósíalistaforingi birtist í
ræðustólnum var honum fagnað með
gífurlegu lófataki og minntu viðtök-
umar frekur á rokkstjömu en verðandi
forsætisráðherra. „Felipe, Felipe;“
hrópaði mannfjöldinn. Og þegar hann
yfirgaf svæðið þustu konur á öllum aldri
að honum til að líta hann augum og
snerta.
Það eru aðeins þrír dagar til kosninga
á Spáni, þeirra mikilvægustu síðan 1977,
og Gonzalez líkist hlaupara á fullum
spretti sem þegar hefur borðann í
augsýn. Skoðanakannanir benda til þess
að hann verði næsti forsætisráðherra
Spánar og sá fyrsti úr röðum sósíalista
frá því lýðveldi leið undir lok á fjórða
áratugnum.
Eini Þrándur í Götu Gonzalezar er
herinn. Vamarmálaráðherra núverandi
stjórnar skýrði spánska þinginu frá því
fyrir skömmu að verið væri að kanna
tilraun nokkurra foringja í hemum til að
hrifsa til sín völdin daginn fyrir kosning-
amar. Að sumum hefur læðst efi um
heilindi stjórnarinnar þegar tekið er tillit
til þess að aðeins þrír undirforingjar
hafa enn verið handteknir, enda þótt
stjómin viðurkenni að um mjög alvar-
legt samsæri hafi verið að ræða. Og hve
alvarlegt sem það í rauninni var er það
vísbending um afl sem framtíðarstjóm
sósíalista á Spáni þarf að glíma við.