Fréttablaðið - 24.01.2009, Síða 16
16 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 40 Velta: 76 milljóni
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
315 -1,35% 862 -0,17%
MESTA HÆKKUN
STRAUMUR 1,65%
FØROYA BANKI 0,89%
ICELANDAIR 0,30%
MESTA LÆKKUN
CENTURY ALUMIN. 3,16%
MAREL 1,66%
EIMSKIP 0,77%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,90 +0,00% ... Atlantic
Airways 168,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 570,00 +0,00% ...
Bakkavör 2,05 +0,00% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,25 -0,77% ... Føroya Banki 113,00 +0,89% ... Icelandair Group
13,30 +0,30% ... Marel Food Systems 65,10 -1,66% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,23 +1,65% ... Össur 96,50 -0,21%
Hagvöxtur dróst saman um 1,5
prósent á síðasta fjórðungi nýlið-
ins árs, samkvæmt nýjustu tölum
bresku hagstofunnar frá í gær.
Þetta bætist við 0,6 prósenta sam-
drátt á þriðja fjórðungi og er því
kreppa komin að ströndum lands-
ins, samkvæmt helstu skilgrein-
ingum.
Þetta er talsvert meira en mark-
aðsaðilar höfðu reiknað með, að
sögn breska viðskiptablaðsins Fin-
ancial Times. Búist er við að hag-
vöxtur dragist saman um 2,4 pró-
sent á árinu öllu. Gangi það eftir
hafa aðstæður ekki verið verri
síðan í seinni heimsstyrjöldinni.
Gengisfall breska pundsins,
sem hefur ekki verið lægra gagn-
vart Bandaríkjadal í 23 ár, á sinn
þátt í samdrættinum og bætist við
gríðarlega erfiðar aðstæður á fjár-
magnsmörkuðum, að sögn blaðs-
ins.
Bretar hafa ekki staðið frammi
fyrir jafnmiklum vanda í um 29
ár, eða síðan á öðru ári Margar-
etar Thatcher í stóli forsætisráð-
herra. Á meðal ráða hennar þá var
að draga úr umsvifum hins opin-
bera í atvinnulífinu. Eitt af ráðum
ríkisins nú hafi hins vegar falist í
kaupum eða yfirtöku á heilu bönk-
unum og fjármálafyrirtækjunum
og umfangsmikilli innspýtingu
fjármagns inn í hagkerfið til að
liðka fyrir flæði lánsfjár. - jab
Kreppa í Bretlandi
Bandaríski hugbúnaðarrisinn Mic-
rosoft ætlar að segja upp fimm þús-
und manns í hagræðingarskyni til
að mæta minni eftirspurn eftir hug-
búnaði og öðrum vörum fyrirtækis-
ins. Þetta jafngildir fimm prósent-
um af starfsliði fyrirtækisins.
Tekjur Microsoft námu 4,17
milljörðum Bandaríkjadala, jafn-
virði rúmra 520 milljarða króna,
á öðrum fjórðungi, sem lauk um
áramótin. Þetta er ellefu prósenta
samdráttur á milli ára.
Þetta er fyrsti viðamikli niður-
skurðurinn í sögu fyrirtækisins,
samkvæmt upplýsingum banda-
ríska dagblaðsins New York Times,
sem hefur eftir Steven Ballmer,
forstjóra Microsoft, að aðgerðirn-
ar séu afleiðingar þeirra efnahags-
þrenginga sem séu að ganga yfir
heiminn.
Afkoma fleiri tækni- og netfyr-
irtækja hefur sömuleiðis dregist
saman, svo sem Intel og netrisans
Google.
Gengi hlutabréfa Microsoft
hefur fallið um þrettán prósent
frá því afkomutölur fyrirtækisins
voru birtar á miðvikudag og hefur
það ekki verið lægra í ellefu ár.
- jab
Microsoft dregur
saman seglin
Kenneth Lewis, forstjóri Bank of
America, umsvifamesta banka
Bandaríkjanna, sparkaði í vikunni
John Thain, forstjóra fjárfestinga-
bankans Merrill Lynch.
Thain settist í forstjórastólinn
fyrir rúmu ári þegar hrina for-
stjóraskipta gekk yfir bandarísk-
an fjármálageira. Hann var áður
forstjóri NYSE Euronext-kauphall-
arsamstæðunnar.
Bank of America forðaði Merrill
Lynch frá gjaldþroti í september
og gengu kaup á bankanum í gegn
um áramótin.
Síðan þá hefur komið í ljós að
staða Merrill Lynch er mun verri
en talið var auk þess sem banka-
stjórnin hafi varið því fé sem hún
sótti úr neyðarsjóði hins opinbera
fyrir áramót í bónusgreiðslur til
starfsmanna í desember.
Þá bætti ekki úr skák að Merrill
Lynch, sem nú er eining innan
Bank of America, tapaði 15,4 millj-
örðum dala, tæpum tvö þúsund
milljörðum króna, á fjórða árs-
fjórðungi.
Bank of America neyddist í kjöl-
farið til að sækja sér fjármuni í
neyðarsjóðinn. Þetta var kornið
sem fyllti mælinn, að sögn Bloomb-
erg-fréttaveitunnar.
- jab
Forstjórinn
tekur poka sinn
Ástralski fjárfestirinn Steve Cosser og
hollenskur viðskiptafélagi hans, Ever-
hard Vissers, hafa gert tilboð í Árvakur,
útgáfufélag Morgunblaðsins. Þeir hafa
sömuleiðis sýnt áhuga á tilboði í tónlist-
ar- og ráðstefnuhúsið við Reykjavíkur-
höfn.
„Þeir sýndu málinu áhuga,“ segir Stef-
án Hermannsson, framkvæmdastjóri
Austurhafnar-TR, sem fer með málefni
Tónlistar- og ráðstefnuhússins.
Stefán og fleiri viðmælendur Frétta-
blaðsins segja fjölda erlendra fjárfesta
hafa fundað með fulltrúum banka og fyr-
irtækja hér um kaup á eignum. Fjárfest-
ar sjái hér tækifæri til að fá eignir á hag-
stæðu verði eftir gengishrunið.
Ekki liggur fyrir um tilboð Cossers og
Vissers í Árvakur en ekkert tilboð liggur
á borðinu í tónlistarhúsið. Eftir því sem
næst verður komist horfa þeir til fjár-
festinga hér næstu fimm til tíu árin hið
minnsta.
Skuldir Árvakurs nema 4,2 milljörð-
um króna og benda viðmælendur Frétta-
blaðsins á að Glitnir verði að afskrifa
stóran hluta skulda félagsins gagnvart
bankanum eigi það að verða áhugaverð-
ur fjárfestingarkostur.
Þór Sigfússon, stjórnarformaður
Árvakurs, segir líklegast að tilboðsferli
í Árvakur fari fram fyrir opnum tjöld-
um.
- jab
Skoða Árvakur og tónlistarhús
Fjöldi erlendra fjárfesta hefur áhuga á eignakaupum hér eftir gengishrunið.
HÚS MORGUNBLAÐSINS Tveir erlendir fjárfestar
hafa gert tilboð í útgáfufélag Morgunblaðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MARGARET THATCHER Ráð forsætisráð-
herra Breta árið 1980 gegn kreppu var
að draga úr umsvifum hins opinbera.
Breska ríkið hefur hins vegar gripið inn í
rekstur fjölmargra fyrirtækja í yfirstand-
andi kreppu.
JOHN THAIN Forstjóri bandaríska
fjárfestingabankans Merrill Lynch hefur
verið sparkað vegna óráðsíu. FRÉTTABLAÐIÐ/
AFP
frá: Mossberg, Remington, Marlin, CZ, Sako, Tikka, Weatherby og Fabarm.
Verð frá:
Húsgagnahöllinni Bíldshöfða – sími 585 7239
Lindum Skógarlind 2 – sími 585 7260
VELJUM
ÍSLENSKT