Tíminn - 15.12.1982, Blaðsíða 10
10
mtnmm
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982
HJÁLPARTÆKI
bækur
Jólamessa á snældu
JÓLAH APPDRÆTTI
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
1982
Vinningaskrá:
1. APPLE II tölva frá Radíóbúðinni Kr. 40.000,00
2. YAMAHA skemmtari frá
Hjóðfærav. Pouls Bernburg hf. — 12.500,00
3. -7. METABO handverkfæri
frá Þýsk.-ísl. hf. kr. 6.500 hv. vinn. — 32.500,00
8.-10. SPORTVÖRUR frá
Versl. Sportval. Kr. 5 þús. hv. vinn. — 15.000,00
11.-15. SEIKO tölvuúr
frá Þýsk.-ísl. hf. kr. 3.250 hver. vínn. — 16.250,00
16.-25. TAKKASÍMAR
frá RafiSjunni hf. Kr. 2 þils. hv. vinn. — 20.000,00
Kr. 136.250,00
DREGIÐ 23. DESEMBER
Depill
Svart á hvítu hefur gefið út barnabókina
Depill, eftir hinn vinsæla barnabókahöfund
Margret Rey.
Depill er lítil kanína sem er öðruvísi en
allir aðrir í fjölskyldunni. 1‘ess vegna er hann
skilinn eftir einn heima þegar öll hin fara í
afmælisveislu til afa. En óvæntir atburðir í
lífi Depils verða til þess að hann tekur gleði
sína á ný og allt fer vel að lokum. Þetta er
bók sem vekur til umhugsunar. Bókin er
prýdd fjölda litmynda.
Þýðandi er Guðrún Ö. Stephensen.
■ Valur Gíslason
■ Jóhannes Helgi
Valur Gíslason - og leikhúsið
■ Amartak hefur sent frá sér bókina Valur
Gíslason - og leikhúsið eftir Jóhannes Helga.
í bókinni er rakinn æviferill Vals og 5 kunnir
leikhúsmenn segja frá kynnum sínum af
honum sem listamanni og manni. Það eru
þau Helga Bachmann, Helgi Skúlason,
Gunnar Eyjólfsson, Klemens Jónsson og
Sveinn Einarsson.
í bókinni er að finna myndir, sem sýna öll
gervi Vals á sviði og í sjónvarpi á meira en
hálfrar aldar leikferli, alls á þriðja hundrað
talsins, en Valur hefur frá fyrstu tíð gert gervi
sín sjálfur.
Valur Gíslason - og leikhúsið er 232 bls.,
unnin í Odda. Hún er tuttugasta verkið, sem
Jóhannes Helgi sendir frá sér, en hann á
tuttugu og fimm ára rithöfundarafmæli í ár.
Þá hefur Arnartak gefið út 211 gamanmál
í samantekt Jóhannesar Helga og Afl vort
og æru eftir Nordahl Grieg í þýðingu
Jóhannesar.
dr. Sigurbjörn Einarsson prcdikar
Dömur, draugar og dándimenn
- æviminningar Sigfúsar á Austfjardarútunni
skráðar af Vilhjálmi Einarssyni
■ Bókaútgáfan örn og Örlygur hf. hefur gefið
út bókina „DOMUR, DRAUGAR OG
DÁNDIMENN“ eftir Vilhjálm Einarsson. Bók-
in hefur að geyma æviminningar Sigfúsar
Kristinssonar „Fúsa a Austfjarðarútunni“, en
Sigfús mun flestum Austfirðingum að góðu
kunnur þar sem hann starfaði um langt árabil
sem rútubílstjóri og ók milli Akureyrar og
Austurlands. Kynntist Sigfús fjölda fólks í
ferðum sínum og í bókinni rekur hann eftir-
minnileg kynni m.a. við meistara Kjarval og hina
kunnu Þuru í Garði.
Sigfús segir einnig frá uppruna sínum og
einstæðum hrakningum móður sinnar sem send
var hreppaflutningum yfir Atlantshafið, ekki
einu sinni, heldur tvisvar. Hún ætlaði að gerast
Vesturfari og fór með skipi til Ameríku. Þaðan
var hún send heim aftur, en Reykvíkingar
neituðu að taka við henni þar sem þeir óttuðust
að hún ætti ekki fyrir ferðakostnaði austur á land
og að heimahreppur hennar myndi neita að
greiða slíkan kostnað. Var hún því send aftur
til Ameríku og í seinni ferö sinni þangað
eignaðist hún tvíbura á leiðinni yfir Atlantshafið.
í bókinni segir Sigfús frá erfiðri æsku sinni og
hrakningum, frá því hvernig vonin um skóla-
göngu dó í kreppunni miklu, frá því er hann
bjargaðist naumlega úr Lagarfljóti um hávetur
en besti vinur hans fórst og frá því hvernig hann
gerðist atvinnubílstjóri og stofnaði síðar fyrir-
tækið Austfjarðaleið hf. Eru eftirminnilegar
frásagnir hans af mörgum svaðilferðum á fyrri
tímum og óbilandi viljaþreki og krafti við að
brjótast áfram hvort heldur var í lífinu eða á
snjóþungum og hálf ófærum vegum.
í bókinni „DÖMUR, DRAUGAR OG
DÁNDIMENN" kynnast lesendur manni sem
hefur yfir að ráða þolgæði, rósemi og sálarþreki
ásamt óbilandi bjartsýni. Lestur bókarinnar er
því sálubót á tímum kvartana og kröfugerðar
þegar flestir virðast heima allt af öðrum og
óánægja gegnsýrir þjóðfélagið.
DÖMUR, DRAUGAR OG DÁNDIMENN
er sett, filmuunnin, prentuð og bundin í
Prentsmiðjunni Eddu hf. Kápuhönnun annaðist
Sigurþór Jakobsson.
Nr. 007831
Útgefnir miðar alls 25 þús.
Verð hvers mlða kr. 40,00
Vinningsmiðum skal fram-
vísað Innan árs
Uppl. Rauðarárstíg 18 —
sími 24483
Frá Happdrætti Framsóknarflokksins
Óðum líður að næstu alþingiskosningum, sem óhjakvæmi-
lega munu kosta mikil fjárútlát, umfram annan reksturs
kostnað flokksins og kjördæmissambandanna. Verður
því að leggja mikia áherslu á þýðingu happdrættisins.
Dregið verður 23. desember n.k. og drætti ekki frestað. Eru þeir, sem
fengið hafa heimsenda miða vinsamlega beðnir að gera skil sem fyrst.
Greiða má samkvæmt meðfylgjandi gíróseðli í næstu peningastofnun
eða á pósthúsi. Einnig á Skrifstofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstíg
18, Reykjavík.
■ Útgáfan Skálholt hefur bryddað upp á
þeirri nýjung aö gefa út jólamessu á snældu.
Það er dr. Sigurbjörn Einarsson sem
predikar og Hamrahlíðarkórinn, undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur, sér um sönginn.
Snældan er gefin út með góðfúslegu leyfi
Ríkisútvarpsins, en jólamessan var upphaf-
lega flutt í sjónvarpssal,
Margir hafa spurt eftir jólaefni, sem þessu
til að senda ættingjum og vinum, sem eru
staddir erlendis um jólin.
Snældan verður m.a. fáanleg í Kirkjuhús-
inu, Rammagerðirtni, íslenskum heimilisiðn-
aði og Kjötbúð Tómasar.
NÆTURFERÐ ný Ijóöabók
eftir Jón Óskar
NÆTURFERÐ,
Ijóð Jóns Óskars um frelsi.
ANDVARI 1982.
Aðalgrein ritsins er
ævisöguþáttur Ásmundar
Guðmundssonar biskups.
ALMANAK ÞJÓÐVINA-
FÉLAGSINS 1983,
með árbók íslands 1981.
BÆKUR OG LESENDUR.
Rit um lestrarvenjur
íslendinga.
Studia Islandica 40.
Bókaúlgöfa
/MENNING4RSJÓÐS
Skálholtsstíg 7 - Reykjavík
PYLSUSTUTUR
SMÁKÖKUMÓT
RAFBÚÐ
SAMBANDSINS
Ármúta 3 Reykjavík Simi 38900
DOMUS Laugavegi
Kaupfélögin um allt land
FYLGIHUJTIR: STÁLSKÁL HNOÐARI HRÆRARI ÞEYTARI-