Tíminn - 29.05.1983, Blaðsíða 2
2
SUNNUDAGUR 29. MAÍ1983
fæti
■ Elsta borg Þýskalands, Trier heldur
upp á tvö þúsund ára afmæli sitt á næsta
ári, og ef að líkum lætur, verður þar
mikið um hátíðarhöld á því herrans ári.
Skelfingar hvítvoðungur virkar nú bless-
uð höfuðborgin okkar, Reykjavík þegar
hún er borin saman við elstu borg
Þýskalands, og þá á ég ekki bara við
samanburð í aldri, en Rcykjavík mun
vonandi halda upp á tvö þúsund ára
afmæli sitt árið 3786, heldur á ég einnig
við sögulegar menjar og arkítekúr, því
Tríer hlýtur að teljast hinn ágætasti skóli
í arkítektur, svo fjölbreytilegur er hann
í borginni, og beinlínis frá öllum bygg-
ingartímabilum.
Ég fékk tækifæri til þess að heimsækja
þessa fögru borg, nú í vor, ásamt
nokkrum íslenskum kollegum mínum,
og vorum við þar í góðu yfirlæti í boði
Flugleiða og Þýska ferðamálaráðsins.
Það er skcmmst frá því að segja, að
Trier, að mínu mati, sameinar flest það
sem borg þarf að hafa, til þess að laða
ferðamenn að. Hún er stórkostlega
falleg, fjölbreytileiki þess sem hún hefur
Séð yfir Trier.
■ Rústir Rómversku baðanna
- er GÖTUNAFN í TRIER, OG ER ÞAB SVO SANNARLEGA RÉTTNEFNI
upp á að bjóða er mikill - verslanir eru
fallcgar, með mikið og vandað-vöruúr-
val, cnda fcr það orð af þeim, að sumir
ferðamenn sem þangað koma (sagði
leiðsögukonan okkur í Trier) einkum
bandarískar konur segja þegar þær koma
til borgarinnar: „Við getum skoðað
Rómversku böðin og Porta Nigra seinna,
en vertu nú svo væn að fylgja okkur í
nokkrar af þessum víðfrægu verslanir
ykkar!"
Það er ekki af ástæðulausu sem ein
smágatan í grennd við Dómkirkjuna
heitir „Sieh um dich“ sem útleggst á
íslensku „Skoðaðu þig um,“ eða
„Horfðu í kringum þig“ því þetta ætti í
rauninni að vera einkunnarorð hvers og
eins sem heimsækir Trier.
Ég ætla ekki að lýsa í löngu máli því
sem fyrir augu bar, í stuttri skoðunarferð
minni um Tríer, en beini þeim tilmælum
til lesenda, sem einhvern tíma eiga eftir
að heimsækja þessa gömlu borg, að
„Horfa nú í kringum sig“. Einni heim-
sókn má ég þó tii með að greina frá, en
það var heimsókn á fæðingarstað Karls
Marx, Karl-Marx-Haus, sem hefur nú
verið gert upp og breytt í minjasafn um
þennan föður kommúnismans, sem
fæddist í Trier 5. maí 1818. Leiðsögu-
kona okkar um þetta fallega hús, sem
stendur við Bruckenstrasse 10; sýndi
■ Guðlaugur Bergmundsson, hlaðamaður Helgarpóstsins við anddyri Karl Marx
Hússins, sendir blaðamanni Tínians viðcigandi baráttukveðju.
Fyrir framan Porta Nigra í Trier.
Tímamyndir - Agnes
■ Leiðsögukona okkar, á svölum Karl Marx hússins.
okkur skjöl og heimildir um líf Marx.
Þar voru handrit hans, sendibréf og
fleira og var öllu haganlega og smekk-
lega fyrirkomið. Það verður að segjast,
eins og er, að leiðsögukona okkar var
svo frá sér numin af hrifingu, þegar hún
rifjaði upp liðna tíma, að annarlegur
glampi kom í augu hennar og var næsta
ljóst af öllum hennar viðhorfum, að
henni þótti lítið til hins ósögulega nútíma
koma. Það var því, þrátt fyrir góða
heimsókn í Karl-Marx-Haus, hálfgerður
léttir að koma á nýjan leik út áBrucken-
strasse, og upplifa iðandi mannlíf göt-
unnar, og verslananna í kring. Svo miklir
nútímamenn eru íslenskir blaðamenn
nú einu sinni, enda kannski ekki annað
viðeigandi í þessari stétt.
Við skoðum einnig heillegar rústir
Romönsku baðanna, sem rekja sögu
sína allt aftur til fyrri hiuta fjórðu aldar.
Þetta hafa verið feiknarlega mikil mann-
virki og leiðsögumaður okkar sagði að
böðin hefðu verið í hópi þeirra alstærstu
í öllu Rómarveldi. Samkvæmt því sem
hún sagði okkur, þá réðu tvö meginsjón-
armið því á hvaða hátt Rómverjar byggðu
böðin: Þau urðu að vera stór í sniðum
og symmetrísk varð byggingin að vera.
Heita baðið (Caldarium) stór salur með
risastórri laug, með heitu vatni og tvær
minni laugar eru sá hluti baðanna sem
best hefur varðveist.
Það er sérstæð reynsla að ganga um
þessar vel varðveittu rústir, vitandi um
að þær eru a.m.k. 15 hundruð ára
gamlar, og hugleiða hversu skammt
okkur hefur í raun miðað á þessum langa
tíma á mörgum sviðum, þó svo okkur
hafi fleygt fram á öðrum.
Annað mannvirki frá dögum Róm-
verja í Trier, én þeir stofnuðu reyndar
borgina árið 16 fyrir Krist, er borgarhlið
Porta Nigra.
Sagan hermir að Porta Nigra hafi
verið byggt á annarri öld eftir Krist,
þegar borgin Trier; sem frá stofriun
hafði verið opin borg, varð lokað borg-
riki, umkringd.borgarvegg, og var Porta
Nigra eitt hliðið inn í borgina.
Annars er best að láta myndirnar frá
þessari fögru borg tala sínu máli, því
eins og ávallt er sjón nú sögu ríkari.