Tíminn - 29.05.1983, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 29. MAÍ1983
■ Það sáust þök eins langt og augað eygði. Svo voru hér spanskgrænir og tignarlegir turnar.
■ LiTverðirnir við Amalienborg.
■ Hafmeyjan; fíngerð koparstytta á steini.
rauðar kinnar hans er hann rétti kúnna
innpakkað kjötið yfir búðarborðið.
Maður stóð á götunni og spilaði á
gítar og söng Bob Dylan. Fólk henti
smápcning í gítartöskuna. Einn af þeim
sem lifðienn íblómabyltingunni. Hippa-
klæddar stúlkur höfðu.breitt teppi á
gangstéttarhellurnar og raðað indversk-
um hálskeðjum, armböndum ogsvoleið-
is til að selja. Það lak af manni.svitinn,
mér hitnaði á göngunni og varð að halda
á jakkanum. Á Strikinu er allskonar
fólk, negrar, Kínverjar, Japanirogmað-
ur heyrir ýmis tungumál. Maður í
Sherlok Holmes klæðnaði gekk hjá. Ég
sá bregða fyrir frægum leikara úr Áfram-
myndunum.
Túristar voru að þvælast með kort og
myndavélar. Bakpokaferðalangar
þrömmuðu um í fjallgönguskóm. Stund-
um heyrði maður óm af íslensku. Fólk
sat á útikaffihúsum, drakk öl eða var að
borða spagettí. Ég sá mann klæddan
víkingaklæðnaði, standandi fyrir utan
verslun eða eitthvað og með auglýsinga-
spjald. Ekki hefur það veri skemmtileg
atvinna. Annan sá ég sofandi í blóma-
beði með tóma vínflösku við hlið sér.
Þarna var selt grænmeti í tjöldum og
blóm á miðri götunni. Á veturna, þegar
kalt er í veðri er hægt að fá bakaðar
kastaníuhnetur, sjóðandi heitar. Það er
Indverji sem situr kappklæddur og grillar
hneturnar jafnóðum. Talar framandi
tungumál. Fjölskrúðugt mannlífþarsem
hver hefur sínu hlutverki að gegna. Allir
hafa hlutverk, það er bara að finna það.
í turninum
Næst komum við út á Ráðhústorgið.
Það er stórt torg við endann á Strikinu
þar sem fullt er af dúfum, pylsuvögnum
og strætóum. Upp á húsunum eru ljósa-
auglýsingar, blikkandi dag og nótt.-Við
æddum í átt að ráðhúsinu, sem er svaka
stórt, raðað úr steinum og steinandlitum
utan á. Ætluðum við að fara upp í
ráðhústurninn og sjá yfir.
Stór hópur af fólki lagði af stað upp
tröppurnar á fleygiferð eins og það ætti
lífið'að leysa. En ég tók því rólega.
Þessir túristar flýta sér alltaf að líta það
merkilegasta augum, ekki til að sjá og
njóta, heldur til að geta sagst hafa séð.
Það kostaði tvær krónur að fara upp. Ég
hafði derið fyrir augunum og tók eitt
þrep í einu. Brátt þrengdist stiginn og æ
meir eftir því sem ofar dró. Þetta voru
steinþrep og minntu á Hróa Hattar
myndirnar. Ég furðáði mig á því hvað
Danir voru lagnir við að raða saman
steinum.
Allt í einu var ég kominn upp í
turninn. Þar var hífandi rok. Hárið á
fólkinu þeyttist upp. Krakkarnir spurðu
af hverju ég hefði verið svona lengi,
lögðu af stað niður og ráku á eftir mér.
Djöfulsins læti. Til hvers að príla upp og
gefa sér ekki tíma til að skoða. Það sáust
húsþök eins langt ogaugað eygði. Einnig
út við sjóndeildarhringinn. Flest þökin
voru Ijót, brött og í mótsögn við hvort
annað. Fullkomin óregla. Á þökunum
voru brúnar leirhellur. Ein og ein blokk
eða háhýsi sást í fjarska. En svo var
mikið af tignarlegum, oddhvössum,
spanskgrænum turnum. Falleg sjón.
Kaupmannahöfn er stundum kölluð
borg turnanna, sá ég nú hversvegna. Ég
fylltist lotningu.
Strætó var lengst fyrir neðan og fólkið
eins og maurar. Mig sundlaði. Þorði
ekki að líta niður nema halda mér fast.
Þarna var einkennisklæddur vörður, sem
fylgdist með að enginn fleygði sér niður.
Tívolí var lokað og laufblöðin á trjánum
byrjuð aö gulna. Þarna stóð ég í rokinu
og horfði yfir þessa risastóru borg. Ég
varð heillaður. Þetta var stórkostlegt.
Öll þessi hús. Þetta höfðu mennirnir
byggt í sameiningu og hver þjónað sínu
hlutverki. Ég gat ímyndað mér allan
þennan mannfjölda. Þarna voru bakar:
ar, smiðir og slátrarar, bruggarar,
slökkviliðsmenn og rafvirkjar, banka-
starfsfólk, málarar og leikarar. Og ekki
má gleyma mellunum. Hver þjónaði
vissum tilgangi. Bakarinn bakar brauð,
smiðurinn smíðar hús, leikarinn
skemmtir öðrum. Allt er þetta eins og
keðja. Auðvitað þurfti allt þetta fólk
rithöfund sem skrifar sögur handa ríkum
sem fátækum og færir gleði og afþrey-
ingu.
Ég leit yfir borgina í allar áttir.
Vinnan er hálf ævin, hitt er svefn og
hvíld. Þessvegna verður maður að vera
í vinnu sem maður er ánægður í. Annars
er ævin tóm leiðindi og kvöl. Hverjum
kom það við þó ég vildi frekar safna
andlegum auð sem ég gat geymt í
hjartastað, heldur en vera í góðri stöðu
með gott kaup svo ég gæti keypt allar
heimsins lífsgæðamaskínur. Nei. Ég var
skáld. Kominn í þcnnan heim til að
krydda hversdagsleikann. Hver á að
skrifa sögurnar og leikritin annar en ég.
Skáldið skapar meira að segja atvinnu.
Prenturum, setjurum, bóksölum, útgef-
endum og gagnrýnendum. Hvaða vitleysa
var í mér. Auðvitað var það hlutverk að
vera rithöfundur. Þarna stóð ég innan
um ókunnugt fólk að uppgötva nýtt líf
og vörðurinn farinn að gefa mér illt uuga.
Ég hljóp niður steinþrepin, kominn
með nýja ákvörðun í hjartastað. Hugs-
andi hvað lífið hefði verið snautt cf við
hefðum til dæmis farið á mis við Bítlana,
Chópin, Tolstoy, Strindberg eða Bob
Marley. Ef einhver feitur karl með
axlabönd hefði nú skipað þeim að læra
eitthvað annað, bara af því hann var
pabbi þeirra.
Þau sátu á bekk niðri í ristastórum
steinskreyttum sal og biðu mín. Öll með
rauðu húfurnar sínar. Sumum var heitt
á höfðinu og höfðu tekið þær ofan. En
kaskeitið mitt var opið í skallann, bara
der og teygja. Égsteinþagði, brosandi út
að eyrum, líkt og ég væri nýkominn úr
dönsku nuddi.
Heimsúr Jens Olsens
Við útganginn keyptum við aftur að-
göngumiða og fórum að sjá Jens Olsens
heimsúr. Sem er talið nákvæmasta
klukkuverk í heimi. Ekkert sást nema
heil glás af tannhjólum úr kopar inn í
glerhúsi. Nokkrir pendúlar eins og hamr-
ar í laginu slógu takt. Ég furðaði mig á
því hvað úrsmiðurinn hafði verið klár að
geta mælt tímann með öllum þessum
tannhjólum sem deildu sólarhringnum
niður í mínútur og sekúndur og skeikaði
ekki dropa. Að öll þessi tannhjól gerðu
akkúrat þetta, frábært. Allar aðrar
klukkur eru víst stilltar eftir þessari.
Hvar væru mennirnir ef við hefðum ekki
fengið þennan úrsmið? Pælið í því - ef
honum hefði nú verið skipað að verða
bakari eða gluggaþvottamaður. Allir
stilltu úrin sín, hópmynd var tekin, síðan
þeyst út.
„Hvaða læti eru þetta?“, sagði ég.
„Við verðum að hafa hraðann á ef við
eigum að halda áætlun.“
Fyrir utan klifruðum við öll upp á
H.C. Andersen styttuna og héngum í
henni á meðan mynd var tekin.
Svo æddum við inn í Glyptotekið; stórt
safn, þar sem tvö Ijón standa fyrir utan.
Þangað hafði ég oft komið. Þar voru
allskonar myndastyttur og málvcrk. Þaö
frábærasta voru múmíurscm voru vafðar
inn í hvítan klósettpappír og lágu í
steinkistum. Maður trúði því ekki fyrst
að þetta væru alvöru múmíur síðan úr
fornöld. En þau ætluðu aö líta á postu-
línsvasa með djörfum myndum utan á.
En svo var búið að flytja vasana á
sýningu annarstaðar. Svo við þutum
framhjá marmarastyttum og klöppuðum
steinstúlkum á fallegar rasskinnarnar.
Sumar voru of fallegar til að höfða til
manns. í einum salnum voru brons-
myndir. Dæmi um franska expression-
isman. Þar var mannshöfuð sem stóð citt
á stalli. Nefið á andlitinu var þræl
beyglað. Það kvcikti forvitni mína. Fór
að skoða. Því mcira sem ég skoðaði -
því forvitnari. Ég var sannfærður um aö
þessi maður hafði lifað í alvörunni. En
hann hafði verið hræðilega Ijótur. Aum-
ingja maðurinn. Þá var engin tækni til
plastikskurðlækninga. Kannski hafði
hann verið óvitlaus og kannski góðhjart-
aður. Með nefið svona út á kinn hefur
ekki átt sjans í ncina konu. Það hefur
verið hræðilcgt fyrir hann að lifa svona.
Mér fannst -þetta þrælgott. Ég 'dáöi
listamanninn fyrir að segja mér sannleik-
ann, þó hann væri Ijótur. Akkúrat svona
sannleika vildi ég segja. Skrifa dæmi-
sögur úr lífinu. Þau strunsuðu i gegnum
sali og ganga. Ég var síðastur.
„Komum og skoðum múmíurnar",
sagði ég.
„Það eru engar múmíur hér".
„Vertu ekki með þetta rugl. Þú ert
öðruvísi en aðrir, íslendingur.“
í mellugötunni
Næst fórum við inn á Istedgötu, þar
sem mellurnar eru. Þær standa út á
götunni og.harka hvort sem það er rok
eða rigning. Þarna voru allskonar
gúmmíverslanir, þar sem seldur var
gúmmíklæðnaður meðal annars. Boðið
var upp á Pornóbíó, tattoveringu og
klámblöð. Við sáum engar mellur, enda
hábjartur dagur. Það getur líka verið
erfitt að koma auga á þær ef maður er
óvanur. Sumar líta ekkert öðruvísi út en
aðrar konur. Við strunsuðum þarna í
gegn. Ég var teymdur svo ég gæti ekki
skoðað neitt.
I hliðargötu var tekin hópmynd áður
en við fórum inn á tyrkneskan restau-
rant. Þar áttum viö að fá ódýran og
góðan stcrkkryddaðan mat. En ég bað
um pizzu. Þau gerðu grín aö þrjósku
minni og sögðu að ég vildi alltaf vera
öðruvísi en aðrir. Mig langaði bara í
pizzu. Og nú vildi ég gera það sem mig
langaði. Þetta var mitt fyrsta skref
undan oki annarra. Pabbi hafði alltaf
bannað mér að borða makkarónur
heima, ef ég stalst til að sjóða mér
nokkrar að nóttu þá var ég flengdur.
Pizzan kom og var kúfaður diskur með
pizzuræmum með ofsalcga miklum osti
og allskonar kjöti og nammi. Besta pizza
sem ég hafði smakkað í allri Kaup-
mannahöfn. Þau urðu þræl forvitin og
fengu að smakka bita og bita. Þarna
slöppuðum við af nokkra stund, enda öll
útkeyrö. Og ég svolgraði í mig nokkrum
gómsætum bjórum.
I fátæklegu hverfi gengum við inn í
tyrkneska matvöruverslun. Strákarnir
keyptu sér sérstaka sterkkryddaða
spægipylsu. Þarna var hægt að fá ólífur
scm voru í vökva í tunnu, líkt og síld.
Mér finnst ólífur svo vondar. En þarna
var hægt að kaupa næpur, þið vitið
þessar hvítu. Fckk mér nokkrar, því í
Danmörku fást ekki rófur. Það er ýmis-
legt undarlegt étið í Tyrklandi.
Loks fórum við í leigubílnum heim.
Ég var sárþreyttur í fótunum og slæptur.
En hafði lært eitthvað nýtt og hafði
losnað við nöldrið hans pabba, sem
bergmálaði í bakhluta hugans. Heimur-
inn hafði not fyrir mig þó ég væri með
þessa skáldadrauma. Ég var ákveðinn í
að hætta tölvunámi þó ég missti vasapen-
ingana. Ég meina - Chopin bjó í köldu
og fátæklegu kiaustri á Spáni þegar hann
samdi Sorgarmarsinn. Ég var til í að búa
í kofa og lifa á rúgbrauði og súrmjólk ef
ég bara gæti fengið að skrifa í friði. Það
er alveg á hreinu að manni líður alltaf
illa inn í sér ef maður gerir ekki að
ævistarfi það sem mann sjálfan langar.
Nú svo verða allir fallegri þegar þeir eru
ánægðir.
Eftir svona erfiða og örlagaríka bæjar-
ferð er ekkert betra en að hátta ofan í
rúm ef maður hefur vinkonu.