Tíminn - 29.05.1983, Blaðsíða 7
7
Þemað er menntun
„Rúnar tekur síðan við af Steinaspili
með einþáttungnum Skýrsla flutt aka-
demíu eftir Franz Kafka. Þetta er
upphaflega smásaga um apa sem flytur
fyrirlestur í háskóla. Þegar apinn held-
ur fyrirlesturinn eru fimm ár liðin frá
því að hann var fangaður og slitinn úr
upprunalegu umhve fi sínu.
Hann lýsir fyrra lífi sínu sem apa og
segir síðan frá reynslu sinni í mannfé-
laginu. Fyrirlesturinn fjallar aðallega
um menntun og þroska, til hvers við
lærum, hvernig við gerum það og hvert
það leiðir okkur. Um leið er hann að
vissu leyti ákveðin þróunarsaga
mannsins. Þetta er mjög margræður
fyrirlestur og er ymprað á ýmsum
hugmyndum.
Að loknu eintali apans tekur við
verkið Aðeins eitt skref eftir spænska
tónskáldið og kennarann Luis de
Pablo, flutt af Kolbeini og Jóhönnu V.
Þórhallsdóttur. Verkið greinir á yfir-
borðinu frá átökum kennara og nem-
anda. Kennarinn er harður og beitir
ýmsum aðferðum til að kúga nemand-
ann. Því er haldið fram í verkinu að
allt nám feli í sér kúgun og að kennslan
byggi á kúgun en þá staðhæfingu hefur
apinn reifað áður í fyrirlestri sínum.
Þetta er mjög óvenjulegt verk fyrir
tónlistarfólkið og sérstaklega krefjandi
fyrir söngkonuna sem þarf að fást við
gífurlega mikinn leik í þessu verki.
Auk þess að syngja þarf hún að
hlaupa, tala, stjórna eins og hljóm-
sveitarstjóri og öskra. Þetta bætir fleiri
víddum við hlutverk tónlistarfólksins
sem verður að fara út úr því mynstri
sem þau eru vön og takast á við aðra
tjáningarmiðla."
- Hvers vegna völduð þið þetta
þema?
„Við - Kolbeinn, Jóhanna og Rúnar
- vorum með þessa sömu hugmvnd en
þó sitt í hvoru lagi. Síðan sáum við að
þetta passaði mjög vel saman og erum
sífellt að sjá það betur og betur. Síðan
kom Steinaspil sem mjög jákvæður
tónn inn í þetta.
Þetta þema, menntun, hlýtur að
henta Stúdentaleikhúsi mjög vel þó að
við höfum nú eiginlega slysast til að
vera með þetta öll saman. En síðan er
ýmislegt fleira undir yfirborðinu, það
má túlka þessi verk á allt annan hátt,
t.d. sem frelsi og aga í einni persónu,
muninn á austri og vestri eða svoköll-
uðum frumstæðum þjóðfélögum og
vestrænni menningu, nú eða bara sem
innri baráttu einstaklingsins," sögðu
Listatrimmararnir um leið og þau
trimmuðu til æfinga - nú má engan
tíma missa en: það ku vera hollt að
trimma...
- sbj
Spilar þú með? Gleymdu þá ekki gíróseðlinum.
LUKKULEIKUR. HAPPDRÆTTI
SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS.
SHLAR ÞÚ MEÐ? (E3 VTÐÞÖRFNUMSTÞÍN- ÞÚOKKAR
STORGLÆSEjEGIR
MAZDA BÍLAR
Lukkuleikurinn snýst um það hverjir hreppi
5 Mazdabíla, þ.á.m, þrjá Mazda 626, þessa frœgu,og
120 ELECTROLUX ÖREYLGJUOFNA
Allir þessir vinningar eru skattfrjálsir.