Tíminn - 29.05.1983, Blaðsíða 10
10
SUNNUDAGUR 29. MAÍ1983
Tosca
a
Akureyri
■ Óperan Tosca eftir Puccini verður
flutt í íþróttahöllinni á Akureyri laugar-
daginn 28. maí n.k. og hefst flutningur-
inn kl. 19.00. Pessi flutninguróperunna,
sem er í könsertformi, var fyrirhugaður
12. marss.l. cn fcll niðurvegna veðurs.
Flytjcndur auk Sinfóníuhljómsveitar
Islands: Sieglinde Kahnian, sem syngur
Toscu, Kristján Jóhannsson, Cavara-
dossi, Robert Becker, Scarpia, en í
minni hlutverkum eru þau Elín Sigur-
vinsdóttir, Guðmundur Jónsson, Krist-
inn Hallsson og Már Magnússon, enn-
frernur Söngsveitin Fílharmónía, en
sveitina skipa 70 manns.
Flogið verður mcð þotu Fluglciða frá
Reykjavík til Akureyrar en þotan bíður
mcð flutningurinn stendur yfir.
Óperan verður endurtckin í Háskóla-
bíói þriðjudaginn 31. maí n.k. kl. 20.00.
Stjórnandi á báðum tónleikunum er
aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
svcitar íslands Jean-Pierrc Jacqulliat.
Hestamannamót á Melgerðismelum
Ljóða-
dagskrá
— Mál og menning
efnir til
ljóðadagskrár í
tilefni af nýjum
ljóðabókum
■ Nýlega komu út tvær nýjar Ijóða-
bækur hjá Bókaforlagi Máls og menning-
ar, eftir þau Ingibjörgu Haraldsdóttur
og Einar Ólafsson. Af því tilefni efnir
Mál og menning til Ijóðadagskrár í
Norræna húsinu, laugardaginn 28. maí
kl. 4 síðdegis. Auk höfunda nýju bók-
anna koma fram skáldin Helgi Hálfdán-
arson, Nína Björk Árnadóttir, Vilborg
Dagbjartsdóttir, Ólafur Haukur Símon-
arson, Norma E. Samúelsdóttir og Olga
Guðrún Árnadóttir. Hjalti RögnValds-,
son leikari les úr verkum Snorra Hjartar-
sonar ög Ólafs Jóhanns Sigurðssonar.
Kynnir er Silja Aðalsteinsdóttir.
■ Slappað af milli atriða á Melgerðismelum: F.v. Jóhann Friðgeirsson, Ragnar
Hinriksson, Reynir Aðalstcinsson og Eyjólfur ísólfsson.
■ Margir fallegir gæðingar reyndu með sér á íslandsmótinu í hcstaíþróttum á
Mclgerðismclum sumarið 1981.
bilinu. Þá þurfa hlaupahrossin að hafa
stokkið 250 metrana á 21 sek., 350
metrana á 28 sek. og 800 metrana á 65
sek. Brokkararnir verða að hafa 300
metrana á 39 sek. Að sjálfsögðu sakar
ekki þótt hrossin hafi farið þessar vega-
lengdir á skemmri tíma, þar sem um
lágmarkstíma er að ræða!
Unglingar hafa á undanförnum árum
unnið sér sess á ölium helstu stórmótum
hestamanna. Á Fjórðungsmótinu á
Melgerðismelum verður lögð áhersla á
unglingakeppnina, en það hefur viljað
brenna við að unglingarnir hafi verið
einskonar „aukanúmer" á mótum.
Keppt verður í yngri og eldri flokki og
keppnin fer fram á aðalvellinum.
Búist við fjölmenni
Reikna má með 300-400 keppnis-
hrossum á Melgerðismelum á Fjórð-
ungsmótinu, en auk þess verða þar
ferðahestar mótsgesta og aðrir hafa með
sér hesta til útreiða á meðan á mótinu
stendur. Hvað mótsgestir verða margir
er erfitt að spá um, það fer eftir veðri og
öðrum aðstæðum. Mótssíjórnin gerirsér
vonir um að sjá 5-6 þúsund manns á
svæðinu, sem er ekki óraunhæft miðað
við aðsókn að Landsmótinu í fyrra.
Ef vel tekst til má því búast við að vísir
að hestamannaþorpi rísi á Melgerðis-
melum í sumar. Lögð verður áhersla á
að þorpsbúum geti liðið sem best, við að
skoða falleg liross, hrossakaup, skemmt-
:anir og útreiðar, síðast en ekki síst,
enda liggja reiðvegir til allra átta á
Melgerðismelum.
Þá er stefnt að því að þjónustan við
þorpsbúa verði með þeim hætti, að þeir
þurfi sem minnst að leita út af móts-
svæðinu á meðan mótið stendur. Reist
verður stórt þjónustutjald, þarsem m.a.
verður kjörbúð frá Kaupfélagi Eyfirð-
inga, sem Jens Ólafsson ætlar að sjá um
að standi undir nafni, eins og hans er von
og vísa. Og þó að slitni gjörð eða annað
tilheyrandi reiðtygjum þá kemur það ekki
að sök, því slíkt verður hægt að fá í
verslun mótsins. Þar verða einnig seldir
veggplattar og aðrir minjagripir tengdir
mótinu.
Mikil vinna hefur þegar farið fram
við undirbúning Fjórðungsmótsins á
Melgerðismelum í sumar, en rneira þarf
til og nú er lokaátakið framundan. Allt
er unnið í sjálfboðaliðavinnu. Sem dæmi
má nefna. að þessa fjóra mótsdaga þurfa
norðlenskir hestamenn að vinna um 500
stundir við sjálft mótið, samkvæmt
vaktaskrá sem þegar hefur verið gengið
frá.
Það er því Ijóst, að mikið verður um
að vera á Melgerðismelum í sumar,
enda stærsta hestamannamótið hérlendis
í ár. Þangað liggja leiðir hestamanna og
annarra landsmanna, sem una sér með
glöðu fólki og fallegum hrossum.
Þátttökutilkynningar skulu hafa borist
á skrifstofu mótsins hjá Búnaðarsam-
bandi Eyjafjarðar, Akureyri, eða til
Landssambands hestamanna í Reykja-
vík.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Egilson, vinnusími 23012,
heimasími 25896
Ævarr Hjartarson, vinnusími 22455,
heimasími 21159
Gísli Sigurgeirsson, vinnusími 24222,
heimasími 21986
■ Sýnishorn af verkum Árna Ingólfs-
sonar.
■ Fjórðungsmót norðlenskra hesta-
manna verður haldið á Melgerðismelum
í Eyjafirði dagana 30. júní til 3. júlí í
sumar. Það eru hestamannafélög allt frá
Hrútafirði austur um til Þistilfjarðar,
sem standa að mótinu. Hestamenn úr
þessum félögum sýna gæðinga sína á
kynbóta- og gæðingasýningum mótsins,
en öll fótfráustu kappreiðahross landsins
reyna með sér á hlaupabrautinni.
Undirbúningur fýrir mótið hefur stað-
ið allt frá því um áramót. Framkvæmda-
nefndin, sem skipuð er fulltrúum frá
öllum félögunum á svæðinu, hefur haldið
fundi nær mánaðarlega. Þess á milli
hefur framkvæmdaráðið komið saman
og hiti og þungi undirbúningsins hvílir á
framkvæmdastjóranum, Ævari Hjartar-
syni, og formanni undirbúningsnefndar-
innar, Gunnar Egilsyni.
Melgerðismelar vel gerðir
fyrir hestamannamót
Mótssvæðið á Melgerðismelum er
sameign hestamannafélaganna við Eyja-
fjörð, Funa í Eyjafirði, Léttisá Akureyri
og Þráins á Grenivík. Félögin hafa
landið á leigu, en það er í eigu hreppsins.
Auk hestamannafélaganna er ung-
mennafélag hreppsins aðili að uppbygg-
ingu á svæðinu.
Framkvæmdir á Melgerðismelum hóf-
ust sumarið 1975 og árið cftir var haldið
þar fjórðungsmót, sem lengi verður i
minnum haft, enda vefðiusæld einstök í
Eyjafirði mótsdagana. Síðan hafa verið
haldin þar árlega stór sem smá mót, m.a,
íslandsmót í hestaíþróttum. Árlega hef-
ur aðstaðan á melunum verið bætt og nú
á næstu vikum verður lokaátakið gerf í
þeim efnum. Stærsta byggingin í sumar
verður bygging 300 metra hringvallar,
sem er vel á veg komin. Auk þess verður
byggt nýtt hús fyrir mótsgesti og starfs-
menn stórbætt. Þá má geta þess, að á
undanförnum árum hefur markvisst ver-
ið unnið að uppgræðslu á melunum með
mjög góðum árangri. Það er mál hesta-
manna, að eftir framkvæmdirnar fyrir
mótið í sumar verði Melgerðismelar
íullkomnasta mótssvæðið fyrir hesta-
mannamót hér landi.
Fáir útvaldir
Á Melgerðismelum verða sýndir allir
bestu gæðingar Norðlendinga, sem vald-
ir verða a úrtökumótum, sem þegar eru
hafin. Þorkell Bjarnason sérum aðvelja
kynbótahrossin og hefur hann yfirreið
sína í vestur Húnvatnssýslu 30. maí.
Daginn eftir verður hann í austursýsl-
unni, en 2. júní á Dalvík og Ólafsfirði.
4. júní fer Þorkell um Eyjafjörð, 6. júní
um Suður-Þingeyjarsýslu, 7. júní um
Þistilfjörð, 8. júní um Öxarfjörð og
Kelduhverfi og 10. og 11. júní verður
Þorkell á Vindheimamelum.
Kappreiðahross verða að ná ákveðn-
um lágmarkstímum til að hafa þátttöku-
rétt á Fjórðungsmótinu. Þau verða að
hafa runnið 150 metra skeið á 17 sek og
250 metra skeið á 26 sek. á keppnistíma-
■ Hún er traustvckjundi moldin þeirra I.ionsmanna.
Moldarsala
Lionsmanna
■ Lionsklúbburinn Muninn i Kópa- tjarnarnesi verður btlhlassið af mold
vogi verður með hina árlegu moldar- sclt á 800 kr., en l(KK) kr. í Garðabæ,
söiu sína um helgina, laugardag og Hafnarfirði og Mosfellssveit.
sunnudag. Nú er tíminn til að sinna Allur ágóði af moldarsölunni rennur
vorverkunum og vafalaust margir sem til líknarmála.
vilja notfæra sér þessa þjónustu nú Nánari upplýsingar og pantanir í
eins og áður. st'mum 44983 - 76759 - 72316 - frá kl.
í Reykjavík, Kópavogi og á Sel- 9 laugardag og sunnudag.
Ljósmyndasýning
Harðar Geirssonar
í Listsýningarsalnum
■ Laugardaginn 21. maí opnar Hörður
Geirsson sína fyrstu Ijósmyndasýningu í
Listasýningarsalnum að Glerárgötu 34 í
Akureyri.
Á sýningunni verða 45 litmyndir auk
nokkurra svart/hvítra mynda og eru þær
allar nýjar af nálinni. Viðfangsefni sækir
höfundur í sitt nánasta umhverfi sem oft
eru hvcrsdagsleg, en eru tekin óvenju-
legum tökum.
Höfundur vinnur allar myndir sínar
sjálfur með svokallaðri Kodak ektaflex
aðferð. Sýningin verður opin alla virka
daga frá kl. 20.00-22.00 og helga daga
frá kl. 14.00-22.00 og lýkur sunnudaginn
29. mai.
Arni Ingólfsson
í Nýlistasaf ninu
■ Árni lngólfssonopnar sina 3. einka-
sýningu í Nýlistasafninu við Vatnsstig 3b
laugardaginn 28. mai kl. 16.0(1.
Arni hcfur tekið þátt í IJölinörgum
sýningum á íslandi og utan; hannvart.d.
einn af þremur fulltrúu.m íslands á
Ungdömshienalnum i Paris 1980.
Hann stundaði nám við Myndlista og
handiðaskóla íslands árin 1973-77 og
framhaldsnám í Hollandi frá 1977-80,
Arni hcfur kennt við Myndlista og
handiðaskóla íslands fraárinu 1980.
Sýningin er opin frá kl. 16.00-20.00
virka daga, cn 14.00-22.00 um helgar.
liún stcndur til $unnudagsins5. júní.