Tíminn - 29.05.1983, Side 14
14
SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
■ Upphaf vísindalegra rannsókna á tcngslum heila og huga er rakið til ársins 1861 þegar franski taugalæknirinn Paul Broca
uppgötvaði að ákveðnir örðugleikar við að tala eða skilja m:elt mál (málstol-aphasia) voru ávallt samfara skeninidum í
ákveðnum hluta vinstra heilahvelis. Þessi uppgötvun gat af sér nýja vísindagrein, taugafneði hcilans, sem setti sér m.a. það
verkefni að „kortleggja" mannsheilann, iinna staðsetningu stjórnstöðva æðri hugarstarfsemi í ákveðnum hlutum heilans.
Undir lok aldarinnar varð vísindamönnum æ Ijósara að slík kortlagning var of einfeldingsleg, og að hugarstarfsemi manna
heimtaði flóknari skýringar sem sækja yrði til lífeðlisfræði. Freud ruddi brautina á þessu sviði með bók sinni Málstol (1891),
og það var einkum rannsókn hans á túlkunarstoli (agnosía), vangctu til að túlka skynhrif, sem lciddi til þessara efasemda
hans. Hann áleit að til að skilja málstol og túlkunarstol til hlítar þyrfti nýja og nákvæmari vísindagrein.
Þessi nýja vísindagrein sem Freud
hafði í huga varð til í Rússlandi á árum
Seinni heimsstyrjaldar. Höfundar henn-
ar voru sálfræðingarnir A.R. Luria (og
faðir hans R.A. Luria), Leontev,
Anokhin, Bersteon o.fl. Þeir nefndu
hana „taugasálarfræði." Það varævistarf
A.R. Luria að koma þessari grein til
þroska, og þegar haft er í huga hve
byltingarkenndar niðurstöður hennar
áttu eftir að verða er undarlegt hve
langan tíma það tók hana að ná fótfestu
á Vesturlöndum. Viðhorf taugasálar-
fræði voru fyrst sett fram á skipulegan
hátt í hinu mikla fræðiriti Luria Æðri
stjórnstöövar mannsins (sem kom út á
ensku 1966), og á alþýðlegan hátt í bók
hans Maður í hrundum heimi (sem kom
út á cnsku 1973), en sú bók var ævisaga
cða sjúkrasaga eins manns. Enda þótt
báðar þessar bækur séu fullkomnar á
sinn hátterþarekki vikiðaðmikilvægum
atriðum. 1 fyrri bókinni erckkert fjallað
um hugarstart'semi í hægra heilahveli, og
í seinni bókinni er sagt frá skemmd í
vinstra heilahveli sjúklings Zazetskys,
hægra hvcl hans var í lagi. Raunar fna
sem hér hafa verið ræddar“, skrifaði
hann, „leiða okkur að grundvallarvanda-
máli - hlutverki hægra heilahvelis í hinu
beina vitundarlífi... Rannsóknir á þessu
mikilvæga sviði hafa fram að þessu verið
vanræktar." Sjálfur reyndi Luria að
sinna slíkum rannsóknum, og skrifaði
nokkrar rannsóknarritgerðir síðustu
mánuðina sem hann lifði. Þær voru
aldrei birtar í Rússlandi; Luria sendi þær
til breska sálfræðingsins Richard Grc-
gory og niðurstöður þeirra verða birtar
i bók hans Oxford Companion to the
Mind sem væntanleg er innan tíðar.
Þegar um skemmd í hægra heilahveli
er að ræða getur verið ógerlegt fyrir
sjúklinginn að vita hvað að honum
gengur. Eins eiga aðrir en sjúklingurinn
í miklum erfiðleikum með að setja sig í
spor hans og skilja hvaða áhrif skemmd-
in hefur á vitundarlíf hans. Öfugu máli
gegnir um sjúkdómseinkenni sem rakin
eru til vinstra heilahvelis, við cigum flest
auðvelt með að átta okkur á því hvernig
þau eru, Enda þótt sjúkdómseinkcnni
hægra hvclis séu jafn algeng og vinstra
hvelis - hví skyldu þau ekki vera það? -
engin voru, stundum klappaði hann
góðlátlega á „kollinn" á vatnshana eða
stöðumæli og hélt að þar væru börn á
ferð, eða stóð í hrókasamræðum við
útskorna hnúða á stólum og var forviða
þegar þeir svöruðu honum ekki. í fyrstu
hlógu menn af þessum mistökum, ekki
síst dr. P. sjálfur. Hann hafði alltaf haft
sérstakt skopskyn og haft gaman af
þverstæðum og ráðgátum. Tónlistar-
hæfileikar hans voru ekkert síðri en
áður, honum leið ekki illa, raunar hafði
honum aldrei liðið betur, og þau mistök
sem hann gerði voru svo furðuleg og
afkáraleg að þau gátu varla verið til
merkis um alvarlegan sjúkdóm. Það var
ekki fyrr en þremur árum eftir að fyrstu
einkenni komu í ljós og dr. P. hafði fengið
sykursýki sem hann óttaðist að hefði
áhrif á sjón sína, að hann leitaði til
augnlæknis sem skráði sjúkrasögu hans
og rannsakað hann af nákvæmni. „Það er
ekkert að augunum þínum“ sagði læknir-
inn. „En það er aftur á móti eitthvað af
þeim parti heilans sem ræður sjón-
skynjun. Ég get ekki hjálpað þér, þú
vcrður að leita til taugasjúkdómafræð-
hans - með því að byrja á venjulegri
rútínurannsókn á taugaviðbrögðum.
Það var þá þegar ég hafði orðið var við
lítilsháttar afbrigðileika í viðbrögðum
hans á vinstri hlið að undarlegur atburð-
ur gerðist. Ég hafði látið hann fara úr
skó á vinstra fæti - meðan ég var að
rannsaka taugaviðbrögð á il hans - og
bað hann að fara í skóinn aftur meðan
ég lagði tæki mín til hliðar. Þegar ég leit
til hans einni mínútu síðar var hann enn
skólaus.
„Á ég að hjálpa þér?“ spurði ég.
„Hjálpa við hvað? Hjálpa hverjum?"
„Hjálpa þér að fara í skóinn.“
„0,“ sagði hann, „ég var búinn að
gleyma skónum,“ og tautaði við sjálfan
sig, „skórinn, skórinn." Hann virtist
ringlaður.
„Skórinn þinn“, sagði ég enn.
„Kannski að þú farir í hann aftur.“
Hann leit á ný niður, en ekki á skóinn,
virtist einbeita sér, en ekki á réttum
stað. Að lokum leit hann á fót sinn og
sagði: „Þarna er skórinn minn, já þarna
er hann.“
Heyrði ég rétt? Sá hann ekki rétt?
„Augun á mér,“ sagði hann, og færði
höndina að fót sínum. „Er þetta ekki
skórinn minn?“ spurði hann.
„Nei, þetta er ekki hann. Þetta er
fóturinn þinn. Þarna er skórinn þinn.“
„Ó, ég hélt að það væri fóturinn
minn.“
Var hann að gera
að gamni sínu?
Var hann að gera að gamni sínu? Var
hann geðveikur? Var hann blindur? Ef
Hélt að konan
sín væri hattur
Ég hlýt að hafa verið forviða á svip,
en hann virtist halda að sér hefði tekist
nokkuð vel upp. Það voru engar bros-
viprur í andliti hans. Hann virtist einnig
telja mál að Ijúka rannsókninni nú, því
hann leit í kringum sig eftir hattinum.
Hann fálmaði út í loftið, og tók um
höfuð konu sinnar, reyndi að lyfta því
upp, og setja það á sig. Augljóslega
hafði hann haldið að konan sín væri
hattur! Svipbrigði konu hans bentu til
þess að hún væri slíku vön.
Innan ramma hefðbundinnar tauga-
sjúkdómafræði var ekki unnt að gera sér
nokkra grein fyrir því hvað var á seyði.
Hvernig gat hann verið sumpart svo
eðlilegur, og sumpart svo óeðlilegur?
Hvernig gat hann annars vegar haldið að
kona sín væri hattur, og samt starfað
nokkurn veginn eðlilega sem tónlistar-
kennari við skóla?
Nokkrum dögum seinna heimsótti ég
þau hjónin og hafði með mér nótnahefti
með Dichterliebe (ég vissi að hann var
aðdáandi Schumanns), og auk þess
margs konar einkennilega lagaða hluti
til að prófa sjónskyn hans á. Frú P.
vísaði mér inn í rúmgóða íbúð þeirra, í
dagstofunni var stórt píanó og allt í kring
nótnastatíf, hljóðfæri og nótnahefti.
Þarna gat einnig að líta bækur og
málverk, en tónlistin skipaði öndvegi.
Dr. P. gekk inn í stofuna, álútur og utan
við sig, rétti höndina í átt að stofuklukk-
unni, en þegar hann heyrði rödd mína
áttaði hann sig á mistökunum og tók í
hönd mér. Við heisuðumst, og spjölluð-
um svolítið saman um tónleikana sem
Etnkennileg saga úr heimi taugasjúkdómafræði:
eftir dr. Oliver Sacks
segja að gervöll saga taugasjúkdóma-
fræði og taugasálarfræði hafi verið saga ’
um rannsóknir á vinstra hveli heilans.
Rannsóknir vanræktar
Ein mikilvæg ástæða fyrir vanrækslu á
hægra heilahvelinu, „minna“ hvelinu
eins og það hefur alltaf verið kallað, er
sú að auðvelt er að sýna áhrif margvís-
lcgra skemmda á vinstra hveli, en hið
sama gildir ekki um hægra hvelið. Hægra
heilahvelið cr einnig mipna sundurgreint
en hið vinstra, og er á yfirborðinu
sléttara og samfelldara. Álitiö hefur
verið að það væri vinstra hvelinu óæðra.
og að í hinu síðarnefnda hveli væru
stjórnstöðvar æðri hugarstarfsemi. í
vissum skilningi er þetta rétt, vinstra
hvelið er sérgreindara, og hefur orðið
seinna til á þróunarskeiði mannsins. Á
hinn bóginn er það hægra heilahvel sem
stjórnar skynjun okkar á veruleikanum,
og án þeirrar skynjunarstjórnar getur
enginn maður lifað. En þekking manna
á starfsemi þar eru mikil takmörk sett,
og þegar fyrstu sjúkdómseinkenni sem
rakin voru til hægra heilahvelis uppgötv-
uðust;áttu menn í miklum erfiðleikum
mcð að skilja þau og meðhöndla.
Fyrr á árum höfðu menn gert tilraunir
til að rannsaka starfsemi í hægra heila-
hveli, t.d. Anton á síðasta áratug 19.
aldar og Pötzl á fjórða áratugnum, én
lengi vel hefur fram hjá þeim verið horft.
í síðustu bók sinni Heilinn að starfi
fjallaði Luria lítilsháttar um sjúkdóms-
einkenni sem rakin verða til hægra
heilahvelis. „Þær skemmdir í hvelinu
eru opinberar sjúkrasögur af því tagi af
einhverjum ástæðum þúsund sinnuni
færri í tímaritum um taugasjúkdóma og
taugasálarfræði. Kannski er það vegna
þess að skýringar á þessu sviði krefjast
meiri hugvitscmi, kannski vegna þess að
þær heimta nýja tegund taugasjúkdóma-
fræði, „rómantísk vísindi" cins og Luria
komst eitt sinn að orði. Luria hafði
áhuga á því að stofna til slíkrar vísinda-
greinar og fyrsta skrefið var að birta
sjúkrasögur þess fólks sem þjáðst hefur
vegna skemmda í hægra heilahveli. í
einu af síðustu bréfunum sem hann
skrifaði sagði hann: „Birtið slíkar
sögur, enda þótt þær séu aðeins drög.
Þær heyra til ríkis undranna."
Dr. P. heilsar
stöðumæli
Dr. P. bjó á austurströnd Bandaríkj-
anna. Árum saman var hann kunnur
söngvari, og síðar kennari viö tónlistar-
skóla í heimabæ sínum. Það var þar sem
nokkuð einkennilegt kom í Ijós. Stund-
um þegar nemandi dr. P. heilsaði
kennara sínum áttaði hann sig ekki á því
hver var þar á ferð af því hann skynjaði
ekki andlit hans. En þegar nemandinn
talaði og kennarinn heyrði röddina vissi
hann strax hver hann var... Slíkum
atvikum fjölgaði og þau ollu leiðindum,
misskilningi og ótta, en stundum var
hent gaman að þeim. Vandi dr. P. var
ekki sá einn að hann tæki ekki eftir
andlitum þar sem þau var að finna,
heldur fór hann líka að sjá andlit þar sem
ings." Og það var þess vegna sem dr. P.
kom til mín.
Hvað amaði að dr. P.?
Það var augljóst strax við fyrstu kynni
að dr. P. var mikill hæfileika- og kúltúr -
maður. Hann átti auðvelt með að tjá sig
og sagði skemmtilega frá og á mjög
heillandi hátt. Égskildi ekki hvers vegna
honum hafði verið ráðlagt að leita til
mín.
Og þó, mér fannst eins og eitthvað
væri að í framsögn hans og viðmóti.
Hann horfði á mig, og þó var eins og...
„Hvað er það sem amar að?“ spurði ég
rólega.
„Ekkert sem ég veit af" svaraði hann
brosandi, og bætti við: „En fólk heldur
að það sé eitthvað athugavert við augun
á mér."
„Verður þú sjálfur ekki var við neina
sjónörðugleika?"
„Nei, ekki beint, en ég geri stundum
mistök."
Ég fór fram stutta stund til að tala við
eiginkonu hans. Þegar ég kom aftur inn
í viðtalsherbergið sat dr. P. viðgluggann
og hlustaði frekar en að hann væri að
horfa út. „Umferðin", sagði hann. „Há-
vaði frá götunni, lestir í fjarska - þetta
er eins konar symfónía, ekki satt? Kann-
astu við Kyrrahafssymfóníu Honegg-
ers?" Elskulegur maður, hugsaði ég með
sjálfum mér. Getur eitthvað alvarlegt
virkilega verið að honum? Mundi hann
vilja leyfa mér að rannsaka sig um tíma.
„Já, auðvitað, dr. Sacks" svaraði hann.
Ég sefaði kvíða minn - og kannski líka
þetta var eitt hinna einkennilegu mis-
taka sem hann hafði minnst á, þá var
um að ræða eitthvert hið furðulegasta
sem ég hafði nokkru sinni orðið vitni að.
Ég hjálpaði honum með skóinn
(fótinn) til að gera málið ekki flóknara.
Dr. P. virtist áhyggjulaus og standa á
sama, kannski var honum skemmt. Ég
fór yfir niðurstöður rannsóknarinnar.
Sjónskerpa hans var góð, hann átti í
engum erfiðleikum með að greina prjón
á gólfinu, en sá hann ekki alltaf glögglega
ef hann var vinstra megin.
Sjón hans var í lagi, en hvað var það
sem hann sá? Ég opnaði eintak af
tímaritinu National Geographic Maga-
zine, og bað hann að lýsa fyrir mér því
sem hann sæi á nokkrum myndum þar.
Augu hans hvörfluðu frá einum hlut til
annars á myndunum, og hann nefndi
smáhluti sem hann sá eins og prjóninn
áður.
Hann veitti athygii birtu, litum eða
lögun og sagði mér frá því, en það var
eins og hann sæi aðeins smáatriðin en
aldrei heildarmyndina.
Ég bað hann að Líta á forsíðumynd
tímaritsins sem sýndi dökkmórauða
sanda Sahara-eyðimerkurinnar. „Hvað
sérðu?" spurði ég.
„Ég sé á“, svaraði hann. „Og lítið
sumarhús sem liggur að því. Fólk situr
að snæðingi á svölunum. Ég sé líka
marglitar sólhlífar hér og þar." Hann var
að horfa, ef það var rétt-nefni, rétt
framhjá tímaritskápunni, út í loftið, og
nefna hluti sem ekki voru þar í raun.
voru haldnir um þessar mundir. Var-
færnislega spurði ég hann hvort hann
mundi vilja syngja.
„Dichterliebe" hrópaði hann upp.
„En ég get ekki lengur lesið nótur. Þú
verður að spila nóturnar." Ég kvaðst
mundu reyna. Hljómur píanósins var
svo góður að jafnvel leikur minn virtist
í lagi. Söngur dr. P. reyndist frábær og
mér varð ljóst að það var ekki fyrir
góðgerðarstarfsemi tónlistarskólans að
hann var þar enn við kennslu.
Bilun í hvirfil-
og hnakkageira?
Það var augljóst að gagnaugageiri dr.
P. var óskemmdur, en ég velti fyrir mér
hvað gæti verið að í hvirfil- og hnakka-
geira hans, og þó einkum í hægri hluta
sjónsviðs í heilanum. Ég dró nú fram
kubbana sem ég hafði tekið með mér og
spurði hann hvort hann þekkti þá einn
af öðrum.
„Hvað er þetta?" spurði ég og sýndi
honum fyrsta kubbinn.
„Auðvitað ferningur," svaraði hann.
„Og þetta?“
Hann bað um að fá að skoða hlutinn,
og það gerði hann af nákvæmni og á
kerfisbundinn hátt. Svarið var enn rétt.
„Ég þekki þessa hluti auðveldlega."
Hlutir með óhlutstæða lögun virtust
ekki valda honum neinum erfiðleikum.
En hvað um andlit? Ég lagði spil fyrir
hann. Hann þekkti strax kónginn,
drottninguna, gosann og jókerinn. En
hafa verður í huga að þessum myndum
SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
eru menn vanir, og ómögulegt að segja
hvort hann sá andlitin sjálf eða bara
útlínur sem nægðu. Enn sýndi ég honum
teikningar sem ég dró upp úr töskunni
minni. Hann þekkti vindil Churchills,
nefið á Schnozzle. Strax og hann kom
auga á einhver þekkt einkenni vissi hann
hvað var á ferðini. En hvernig mundi
hann bregðast við raunverulegum and-
litum?
Ég kveikti á sjónvarpinu, en lét ekkert
hljóð heyrast; það var verið að sýna
gamla mynd með Bette Davis. Ástar-
atriði stóð yfir. Dr. P. þekkti ekki
leikkonuna - en kannski var það vegna
þess að hann hafði aldrei séð myndir
með henni áður. En það sem kom mér
meira á óvart var að hann tók ekki eftir
svipbrigðum á andliti hennar og elskhug-
ans, enda þótt þau væru hin fjölbreyti-
legustu. Hann áttaði sig ekki á því hvað
var að gerast í myndinni, og hver var
hvað þar. Hann vissi jafnvel ekki hvers
kyns leikararnir voru. Það sem hann
sagði um myndina hefði Marsbúi eins
getað sagt.
Þekkti ekki fólk
á f jölskyldumyndum
Ég prófaði að láta hann skoða myndir
af eigin fjölskyldu með það í huga að
kannski væri vanskynjun hans í einhverj-
um tengslum við óraunveruleika mynd-
spólunnar sjálfrar. Á veggnum í stofunni
voru myndir af ættingjum iians.vinum og
samstarfsmönnum, og ncmendum. Ég
sýndi honum myndirnar og hann bar
yfirleitt ekki kennsl á neina manneskju.
Hann kannaðist við Einstein á mynd, en
það var vegna þess að hann veitti
kunnum dráttum í andliti hans athygli,
og sama gilti um eina eða tvær aðrar
myndir. „Þetta er Paul“, sagði hann t.d.
og þekkti bróöur sinn. „Þessar líka stóru
tennur", bætti hann við.
Ég hafði komið við hjá blómasala á
leiðinni til dr. P. og keypt hjá honum rós
í hnappagat mitt. Ég tók hana nú af mér
og sýndi honum. Hann tók við henni
eins og þar færi grasafræðingur eða
jurtafræðingur, en ckki maður sem gefið
hefur verið blóm.
„Þetta er um scx þumlungar að
lengd," sagði hann, „samanvafið, rautt
að lit og við það er fcst bein græn stöng."
„Já,“ sagði ég með uppörvandi röddu,
„og hvað heldurðu að það sé?"
„Það er ekki auðvelt að segja til um
það.“ Hann virtist ringlaður. „Þetta líkist
ekki hinni einföldu lögun hlutanna sem
þú sýndir mér áðan, en þeta gæti verið
blómaskraut eða blóm." )
„Gæti verið?" spurði ég.
„Já, gæti verið", svaraði hann.
„Lyktaðu af því" sagði ég, og enn varð
hann svolítið ringlaður á svip. Það
lifnaði yfir honum þegar hann hafði
fundið lyktina.
„Dásamlegt! Nýútsprungin rós",
hrópaði hann. Hann raulaði fyrir munni
sér „Die Rose, die Lillie..Svo virtist
sem unnt væri að átta sig á veruleikanum
með lyktarskyni en ekki sjónskyni.
Síðasta sem ég gerði þennan dag var
að sýna honum einn hanska minn sem ég
hafði lagt í sófa í stofunni. „Hvað er
þetta?" spurði ég.
„Yfirborðið er slétt, en hægt að vöðla
því saman. Svo virðist scm fimm pokar
hangi á því."
„Já, núna ertu búinn að lýsa hlutnum.
Segðu mér þá hvað þetta er."
„Eitthvað til að setja L“_
„Já, og hvað mundi það vera?“
„Það er margt sem kemur til greina",
svaraði dr. P. „Það gæti verið budda
fyrir fimm tcgundir af mynt...“
„Finnst þér hluturinn ekki líta kunn-
uglega út?“ spurði ég. Gæti ekki verið
að hann væri notaður tilað setja einhvern
part af líkama þínum í?“
Engin merki í andliti dr. P. um að
Ijós rynni upp fyrir'honum.
Sjón dr. P.
minnir á tölvu
Lýsing dr. P. á hlutnum var þroskaðri
en barn gæti gefið, en hvaða barn sem er
mundi aftur á móti strax átta sig á því að
þetta væri hanski. Dr. P. gerði það aftur
á móti ekki. Honum kom ekkert
kunnuglega fyrir sjónir. í sjónheimi hans
voru aðeins til óhlutstæð form. Hann gat
talað um hluti, en hann sá þá ekki eins
og venjulegt fólk. Sjónskynjun hans var
eins og tölvu. Hann sá hluti á sama
vélræna háttinn og þær gera, og þekkti
hiuti á sama hátt og þær læra að gera,
með því að einbeita sér að áberandi
einkennum.
Þau próf sem ég.hafði lagt fyrir dr. P.
fram að þessu sögðu mérekkert um hinn
innri heim hans. Var hugsanlegt að
sjónminni hans og ímyndunarafl væri
enn óskemmt? Ég bað hann um að
ímynda sér að hann væri að ganga inn á
eitt torgið í bænum úr norðurátt, og bað
hann að lýsa þeirn byggingum sem hann
sæi. Hann gat nefnt allar byggingar á
hægri hlið, en engar á vinstri hlið. Þá bað
ég hann að ímynda sér að hann gengi inn
á torgið úr suðurátt. Nú lýsti hann enn
rétt byggingum á hægri hlið, en engum á
vinstri hlið. Byggingarnar sem nú voru á
hægri hlið voru áður á vinstri hlið og þá
hafði hann ekki þekkt neina þeirra. Það
var augljóst að eitthvað mikið var bilað í
ákveðnum sjónstöðum heilans.
Dr. P. gat hæglega munað söguþráð í
bókum sem hann las, og hvað söguper-
sónur höfðu sagt, en hann gat ekki
munað útlitseinkenni þeirra. Það kom
mér á óvart að hann gat auðveldlega teflt
við mig skák í huganum, sá þá fyrir sér
skákborðið, og vann mig! Luria skrifaði
um sjúkling sinn Zazetsky að hann hefði
tapað hæfileikanum til að taka þátt í
leikjum, en fjörugt imyndunarafl hans
væri í engu skert. Þeir Zazetsky og dr.
P. bjuggú í heimum sem voru spegil-
myndir hvors annars. Sá var hryggileg-
asti munurinn á þeim að Zazetsky reyndi
hvað hann gat að komast á réttan kjöl
og yfirvinna sjúkdóm sinn, en dr. P. vissi
ekki cinu sinni af því að Itann hafði
tapað einhverjum hæfileikum.
Þegar rannsókninni var lokið bauð
frú P. okkur í kaffi-drykkju. Á borðinu
voru líka gómsætir súkkulaðimolar. Dr.
P. greip strax mola, og raðaði á diskinn
sinn, um leið og hann raulaði lag^túf.
Allt í einu heyrðist skellur í hurð og það
truflaöi hann. Hann hætti að borðaogsat
hreylingarlaus, blindur og ringlaður í
sæti sínu. Hann sá, en sá þó ekki,
borðið; skynjaði það ekki lengur sem
kaffiborð. Kona hans hellti kaffi í bolla
hans, og lyktin af því vakti hann til
veruleikans á ný. Hann hélt áfram að
borða súkkulaðimolana.
Heimurinn er tónlist
Hvernig fer hann yfirleitt að? hugsaði
ég með mér. Hvað gerist þegar hann
klæðir sig, þarf að fara á salernið, baðar
sig? Ég fylgdi konu hans fram í eldhúsið
og spuröi hana hvernig hann færi t.d. að
því að klæða sig.
„Hann gerir það á sama hátt og hann
boröar" svaraði hún „Eg legg fötin hjá
honum þar scm hann cr vanur að hafa
þau, og Itann klæöir sig sjálfur án
crfiðlcika og syngur þá. Hann gerir allt
syngjandi. En ef hann cr truflaður og
tapar þræðinum, þá stoppar hann alger-
lcga, þekkir ckki lengur fötin sín, eða
líkama sinn. Hann syngur alltaf, og er
annars hjálparlaus."
Við fórum aftur inn í dagstofuna.
„Jæja, dr. Sacks," sagði dr. P. „Þér
viröist að ég sé merkilegt tilfelli. Get-
urðu sagt mér hvað amar að, komið með
einhverja tillögu?"
„Ég get ekki sagt þér hvað er að, en
ég get sagt þér hvað er ekki að. Þú ert
stórkostlegur tónlistarmaður, og tónlist-
in cr þitt líf. Það sem ég mæli með í
tilfelli af þessu tagi er að þú helgir líf þitt
gersamlega tónlistinni. Tónlistin hefur
fram að þessu verið í öndvegi hjá þér,
en nú verður þú að láta allt snúast um
hana.“
Þetta var fyrir fjórum árum. Ég hitti
dr. P. aldrei aftur. En ég velti því oft
fyrir mér hvernig han skynjaði heiminn í
kringum sig þegar ímyndunarafl hans
og sjónskyn var svo skemmt sem raun
bar vitni, en tónlistarskyn hans í
fullkomnu lagi. Eg held að tónlistin hafi
komið í staðinn fyrir ímyndunaraflið:
þann var líkamslaus en hafði tónlistar-
líkama. Þess vegna gat hann hreyft sig
og farið ferða sinna svo auðveldlega, en
stansaði þegar hin „innri tónlist" hætti.
Á bók sinni Die Welt als Wille und
Vorsfellung (1819) talar Schopenhauer
um tónlist sem hinn hreina vilja. Án vafa
hefði hann orðið heillaður af dr. P.,
manni sem tapað hafði hinni sýnilegu
veröld en varðvcitti heiminn í tónlist-
inni, eða viljanum. Og það gerði hann
allt til hinstu stundar, því enda þótt
sjúkdómurinn færðist í aukana - stórt
æxli eða hrörnun í sjónskyni heilans -
kenndi dr. P. tónlist og lifði í heimi
hennar fram á hinsta dag.
Höfundurinn dr. Oliver Sacks er pró-
fessor i taugasjúkdómafræöi við Einstein
læknaháskólann í New York. Greinin birt-
ist upphaflega i timaritinu London Re-
view of Books Vol. 5, No. 9, 1983. GM
þýddl lausl. og endursagði.