Tíminn - 29.05.1983, Page 26
SUNNUDAGUR 29. MAÍ1983
„Hef gaman af því að spila
sveiflu“
aÉg hef alltaf gaman af því að spila
sveiflumúsík og við hittumst alltaf
nokkrir kallar og strákar og spilum
dálítið saman. Við byrjuðum að hafa
reglulegar æfingar einu sinni í viku árið
1981 og hljómsveitin dregur nafn af því,
Bigband '81. Við höfum gaman af því að
spila svolítið sving. Við höfum gert lítið
af því að spila opinberlpga, kannski
vegna ódugnaðar við að koma okkur á
framfæri en svo er líka erfitt að finna
tíma sem allir hafa lausan, því við erum
allir í einhverjum öðrum hljómsvcitum.
Við spiluðum þó á Hótel Sögu í fyrra,
nokkrum sinnum seint a mánudags-
kvöldum. Einnig hófum við spilað nokk-
ur kvöld í Naustinu núna undanfarið."
- Þú hefur einnig spilað eitthvað
með eriendum jassleikurum?
„Já, eitthvað einu sinni eða tvisvar.
Ég lenti t.d. einu sinni með Lee Conitz
og Tyree Crlenn í jamsession í Aust-
urbæjarbfói, 1954 eða 5. Þeir spil-
uðu hvor sína stefnuna, Conitz lck
nútímajass en Glenn var með gamlan
jass. Reyndar er gamli jassinn ekki
nema um það bil 70 ára gamall.
Ég hef alltaf haft gaman :.f jassi og í
dansbandinu spiluöum við eins mikinn
jass og við gátum. Fplkið vildi aftur á móti
dægurlögin og þetta stjórnaðist af því
sem það vildi. Viö reyndum þó að koma
okkar tónlist að eins og við gátum. Á
meðan við spiluðum sving líkaði fólki
nú yfirleitt viö þetta, en þau dægurlög
sem gengu á hverjum tíma urðu alltaf að
vera með."
- I‘ú hefur líku stundað kennslu?
„Já, ég byrjaði líklcga fyrir einum
fimmtán árum aö kenna á básúnu við
Tónlistarskójann í Reykjavík. Síðar fór
égað kenna íTónlistarskólaGarðabæjar
ogeins íTónlistarskóla FÍH. ÍTónlistar-
skóla Garðabæjar er börnum og ung-
lingum kennt aö leika á hljóðfæri og ég
kenni þar á alls konar málmblásturs-
hljóðfæri. Auk þess stjórna ég þar
lúðrasveit barna. Mér þykir afskaplcga
skemmtilegt að kenna og það fylgir því
ýmislegt, t.d. fer ég nú um næstu hclgi á
barnalúörasvcitamót með hljómsveit-
inni."
- Hvað finnst þér almcnnt um ís-
lenska tónlist i dag?
„Það hefur veriö óhemjumikið að
gerast í tónlistarlífinu og tónskáldskap
nú alvegá síðustu árum. Viðeigum bæði
góða hljóðfæralcikara og nútímatón-
smiði - bara nokkuð marga held ég.
Ég held að poppmúsíkin sé bara ágæt "
■ Ingibjörg og Björn á árshátíð hárskera og hárgrciöslukvenna árið 1960, en
þau lögðu stund á þcssar greinar.
þau hjónin kynntust í Iðnskólanum þar sem
Selur túnþökur á sumrin
- Áttu fleiri áhugamál en tónlist?
„Ég hef mjög gaman af garðrækt en
hef ekki getað stundaö hana eins og ég
hefði gjarnan viljað. Þegar ég var ung-
lingur stundaði ég mikið íþróttir, þá var
nú ekki sjónvarpið svo að unglingarnir
sncru sér frekar að einhverri kvöldiðju.
Ég fór að stunda sund, og gekk í
sundfélagið Ármann. Ég syndi rcyndar
cnn, og við hjónin bæði, við reynum að
komast daglega í sund. Einnig keppti ég
í boxi og hlaupum cn svo hætti ég öllum
íþróttaiðkunum strax og ég fór að blása
- þá fór maður nú bara að blása!
En ég keppti á fyrsta íslands meistara-
móti unglinga í frjálsum íþróttum. Svo
var ég þrjú ár í boxinu, kcppti þrisvar og
vann þrisvar og enginn lá í gólfinu. Það
fannst mér nú best."
- í símaskránni stendur „Sjá Tún-
þökur“ við nafnið þitt - hvað á það að
„Þetta er nú svona smá fjölskyldufyrir-
tæki sem við höfum rekið í nær tuttugu
ár. Þar sameinar maður eitt áhugamálið
vinnunni við það, en það er útivera.
Tveir synir okkar eru nú mest með þetta
núna, en við kaupum tún eða ofanristur
af bændum í nágrannasveitum Reykja-
víkur og scljum hcr í bænum."
- Er þetta góður bísness?
„Þetta eru nú varla nein uppgrip, en
gætu sjálfsagt verið það ef við snerum
okur að þessu í alvöru. Við eigum bara
lítinn vörubíl og eina litla vél til að skera
og svo hendurnar. Enda höfum við
aldrei stefnt að því að verða rík af þessu.
En þetta er ágætis sumarstarf. Við
fáum tveggja mánaða sumarfrí í Sinfóníu-
hljómsveitinni og mér er óhætt að eyða
hluta af því í túnþökurnar. Ég hef tekið
svona mánuð í þetta en svo verður
maður að byrja að hita sig upp aftur til
þess að vera í góðu formi þegar æfingar
hefjast að nýju hjá hljómsveitinni."
- Þið hafið þá ekki haft inikinn tíma
tii fcröalaga?
„Við hjónin höfum farið fjórum sinn-
um saman í sumarfrí til Ameríku, í
heimsókn til yngsta sonar okkar sem er
þar við nám í básúnuleik. Síðan höfum
við farið tvisvar sinnum með Lúðrasveit
Reykjavíkur til Kanada, 1972 og 1975,
en ferðin 1972 var fyrsta sumarfrí Ingi-
bjargar. Svo fórum við líka með
Sinfóníuhljómsveitinni til Austurríkis
árið 1981."
Nú er kominn tími til að slá botninn í
spjallið því að Björn er að verða of seinn
í kennsluna í Tónlistarskóla Garðabæjar
og Ingibjörg er að verða of sein í
bankann - það er hún sem sér um
daglega reksturinn eins og áður segir.
Og ég spyr hana að lokum hvernig hún
kunni við að búa svona alveg í miðbæn-
um.
„Ég hef alltaf átt heima í miðbænum
- í gömlum húsum - nema í fjögur ár.'
Ég get hvergi hugsað mér að búa nema
í miðbænum. Við höfum nú búið hér
síðastliðin 23 ár og hér er ég ánægðust
vegna þess að hér er ég næst Lækjar-
torgi."
- sbj.
þýða?
■ Hér cru Ingibjörg og Björn ásamt börnum sínum fimm, barnabörnunum níu og tengdadætrum. Börnin eru: Gunnar,
sem er prestur og sellólcikari; Björn, verslunar- og slagverksmaður; Ragnar, búfræðingur og framreiðslumaður;
Ragnheiður, optikcr og Oddur, sem nú dvelur við nám í básúnuleik í Boston í Bandaríkjunum.
líka, en reyndar heyri ég lítið af henni.
Öðru hvoru heyrir maður þó alltaf
eitthvað í útvarpinu. Poppið virðist í
miklum uppgangi cins og sést best á
velgengni Mezzoforte, sem mun vafa-
laust rcka á eftir næstu mönnum og
hvetja þá til dáða. En svo er líka
ákaflega mikiö af lélegri popptónlist, nú
cr orðið svo auðvelt að gefa út plötu að
það eru ekki cndilega gæðin sem ráða.
Ég gcri ráð fyrir að í framtíðinni fari allt
á plötur og kassettur, sumu mætti alveg
sleppa en það á nú líka við um ýmsar
gamlar plötur."
„06 SVO FÓR ÉG
AÐ BLÁSA...”
Frá Flensborgarskóla
Flensborgarskóli er framhaldsskóli sem starfar eftir
Námsvísi fjölbrautaskóla. Þar er hægt að stunda nám
á eftirtöldum námsbrautum:
Eðlisfræðibraut
Félagsfræðabraut
Fiskvinnslubraut
Fjölmiðlabraut
Fleilsugæslubraut
íþróttabraut
Latínu- og sögubraut
Málabraut
Náttúrufræðabraut
Tónlistarbraut
Uppeldisbraut
Viðskiptabraut.
Umsóknir nýrra nemenda um skólavist þurfa að
hafa borist skólanum í síðasta lagi föstudaginn 3.
júní n.k.
Innritun í Öldungadeild skólans fer fram eftir 15.
ágúst og verður nánar auglýst síðar.
Skólameistari
I
Westinghouse
hitavatnsdunkar
Höfum fyrirliggjandi Westinghouse
hitavatnsdunka í 4 stærðum:
TR 221 20 gallon - 80 lítrar
TL 522 52 gallon - 200 lítrar
TL 622 66 gallon - 250 lítrar
TL 822 82 gallon - 300 lítrar
Vandlátír velja Westinghouse
KOMIÐ-HRINGIÐ-SKRIFIÐ
við veitum allar nánari upplýsingar.
Kaupfélögin um allt land
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykiavik Simi 38900