Tíminn - 29.05.1983, Blaðsíða 27
SUNNUDAGUR 29. MAÍ1983
27
Athuga-
semd við
skrif um
andatrú
eftir Águstu P.
Snæland
■ I greininni „Andatrú" (með stríðs-
letri) í sunnudagsblaði Tímans þ. 15. 5.
vitnar G.M. til setningar í bók próf.
•Haralds Schjelderups „Furður sálarlífs-
ins“.
Setningin kom mér á óvart, því mig
minnti, að niðurstöður H.S. þar væru
allt aðrar en hún gefur í skyn. Klausa
þessi er birt með stækkuðu letri á
rastagrunni svo áberandi, að freistast
mætti til að álíta hana n.k. mottó
greinarinnar. Hún hljóðarsvo: „Megnið
af spiritistunum trúa og (trúðu) án
verulegra heilabrota, þeir bera barnalegt
traust til „fyrirbæranna" og eru gjör-
sneyddir skilningi á ströngum sannana-
kröfum vísindanna11 skrifar norski sál-
fræðingurinn Harald Schjelderup í bók-
inni Furður sálarlífsins."'
Ein og sér gefur þessi setning til kynna
að próf. Schjelderup hafi álitið „fyrir-
bærin“ óskyggju einfeldninga svo ekki
sé meira sagt. I lokakafla bókarinnar
stendur hinsvegar (á bls. 252-3) „Mörg
svonefnd „yfirnáttúruleg" fyrirbæri stafa
af svikum og sjálfsblekkingu, önnur af
rangri athugun eða rangminni. En raun-
verulegur reynslukjarni, sem ekki er
hægt að skýra á þann veg, verður samt
sem áður eftir“. Síðan segir: „Ásamt
niðurstöðum ESP tilraunanna hefur
þetta rennt þeim stoðum undir tilgátuna
um ESP, að hún er hafin yfir allan
rökstuddan efa“. Á öðrum stað segir:
„En þeir, sem fordómalaust hafa kynnt
sér efnið, eru í dag sammála um höfuð-
niðurstöðuna: „Með áður óþekktum
hætti - án hjálpar skilningarvitanna -
getur fólk komist í samband hvað við
annað og við ytri atburði og hluti“.
í kaflanum „Fræðileg gagnrýni eða
fordómar" segir próf. Schjelderup: „í
deilunni um ESP endurtekst það, sem
gerst hefur hvað eftir annað í sögu
vísindanna. Andstæðingar Galileis neit-
uðu að horfa í sjónauka hans, til þess að
verða ekki vitni að þcirri hneykslanlegu
sjón, sem ekki hafði rétt til að vera til
samkvæmt opinberlega viðurkenndum
vísindum þeirra tíma. Vinir Liebéaults
fóru að efast um að hann væri með öllum
mjalla af því að hann helgaði krafta sína
málefni, sern læknavísindi hans tíma
kærði sig ekki um að sinna. Vísindin eru
auðmjúk frammi fyrir staðreyndum. En
vísindamennirnir eru það ekki ávallt - ef
staðreyndirnar fara í bága við rótgróna
hugsunarvenju þeirra. Framfarabraut
vísindanna hefur oft legið þvert á for-
dóma vísindamannanna sjálfra".
Pað væri forvitnilegt að vita. hver
tilganguf greinar sem þessarar er. Ef
ætlunin er að skoða efnið og fræða
lesandann, þá eru slík skrif verri en
engin, þar sem eingöngu eru tínd til þau
gögn, ér styðja neikvæða afstöðu höf-
undar. Nöfn alvarlegra rannsóknar-
manna á efninu jafnvel misnotuð á sama
hátt, eins og að ofan greinir.
„Strangar sannanakröfur vísindanna
eru nauðsynlegar til að tryggja réttar
niðurstöður þess, sem þar er ieitað. - En
þar með er ekki gefið, að hvaðeina, sem
ekki hefur verið rannsakað á þann hátt
sé ekki til.
Er nokkur munur á þeirri afstöðu í
dag og var þegar vísindamenn fyrri tíma
neituðu að horfa í kíki Galileis?
Hér er um málefni að ræða, sem
megnið af hugsandi mönnum velja fyrir
sér - og varðar okkur öil. Allt, sem við
kemur vitundarlífi mannsins, lífi hans og
dauða hlýtur að vera ofurflókið. En
vísindi geimaldar nálgast meir og meir
hugmyndir þeirra, sem þora - og hafa
þorað - að horfa í kíkinn. Pótt „tækin"
séu ekki fullkomin. frekar en sjónauki
Galileis var. er sém betur fer ekki
bannað að horfa á það, sem þar birtist
og nota skynsemina eftir því, sem efni
standa til.
Útboð
Samband íslenskra samvinnufélaga óskar eftir tilboði í
jarðvinnu, sprengingar, malbikun o.fl. vegna bílastæða við
Holtagarða, Reykjavík.
Helstu magntölur:
Gröftur
Sprenging
Fylling
Malbik
13000rúmmetrar
lOOOrúmmetrar
7000rúmmetrar
8700fermetrar
Utboðsgagna má vitja gegn 1000,- kr. skilatryggingu á
Verkfræðistofu Braga Þorsteinssonar og Eyvindar Valdi mars-
sonar, Bergstaðastræti 28 A.
Tilboðum skal skila á sama stað miðvikudaginn 8. júní 1983.
Stóra FAHR heybindivélin er ein afkasta-
mesta heybindivél sem völ er á í dag. Mikil
afköst - örugg hnýting - sjálvirk öryggi á
matara - vökvalyft sópvinda. Eigum vélar til á
verksmiöjuveröi fyrra árs.
n a M
ÁRMÚLA11 SfMI 81500
BHBHH
Eigum á lager
GARÐ TRAKTORA
með sláttuvél og öðrum aukabúnaði.
Leitið upplýsinga.
VELADEILD SAMBANDSINS
BÚVÉLAR Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
Sumartími
Athygli viðskiptavina Bmnabótafélags íslands er vakin
á því aö á tímabilinu frá 1. júní til 1. september n.k.
verður aöalskrifstofa félagsins aö Laugavegi 103,
Reykjavík opin
frá ki. 8:00-16:00
mánudag til föstudags
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
— OA0NKVÆMT TRYOGINGARFÉLAG —
Laugavegi 103,105 Reykjavík, sími 91-26055
uernila lakkið -varna ryð
Svartir og úr stáli. Hringdu í síma 44100.og pantáðu, þú færð þér svo
hbm kaffi meðan við setjum þá undir.
% Sendum einnig í póstkröfu.
ZZJblikkver
Skeljabrekka 4. 200 Kópavogur. Sími 44100