Tíminn - 04.06.1983, Page 6
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1983
Ínw V- •• v ■. s ss's sv^
• .•••:• ••• • •« ••.;.•.• •
í --A •\v.;y; ggý
>• ssv sv,
^VVSN -\<.
'WSX \ s **•>£*. sj
zm+m
ÍSiíiSS!
<■ ■■ •
mmm
•í -$>m
•■: ' • ::: :-.- ■<<<<:
■ Isabella, yzt til hægri með systur sinni og móðurinni, Ing rid Bergman
Hryggknýtt sem barn
- „Topp-módel“ í dag
■ Isabella Rosselini í dag.
Ljósmyndafyrirsæta með 40
milljónir króna í árstekjur.
■ Sem barn var hún
hryggknýtt, en í dag er hún ein
tekjuhæsta Ijósmyndafyrirsæta
í heiminum. Ferill Isabellu
Rosselini kemur fram í þessari
einu setningu.
Þessi þrítuga mær hefur
skrifað undir fimm ára samning
hjá franska snyrtivörufyrirtæk-
inu Lancome. Samningurinn
tryggir henni livorki meira né
minna en ca. 40 milljónir ísl.
króna í árstekjur.
Strax og sjúkdómur Isabellu
var foreldrum Isabellu Ijós,
þeim Ingrid Bergman og Ro-
berto Rosselini, var strax farið
að leita hcnni lækninga. Þau
fóru frá lækni til læknis, frá
sérfræðingi til sérfræðings, en
sjúkdómurinn vék hvergi þótt
hinum ýmsu aðferðum væri
bcitt. Hryggjasjúkdómur þessi
er mjög sjaldgæfur.
Loks var þeim hjónum bent
á frægan sérfræðing í Róm, dr.
Scaglietti. Fóru þau með Isa-
bellu til hans. Dr. Scaglietti
sagði, að ef stúlkan yrði ekki
skorin upp tafarlaust gæti farið
svo að hún yrði kryppiingur.
En uppskurðurinn cinn var
ekki nóg, hún þurfti að ganga í
gegnum ákveðna meðferð eftir
uppskurðinn, oftar en einu
sinni og oftar en tvisvar. Með-
ferðin var afar sársaukafull, en
Isabella sýndi mikinn dugnað
og þolinmæði í þessari erfiðu
viðureign.
Isabella var skorin upp fyrir
15 árum síðan og cnn þarf hún
að gera ákveðnar æfingar til að
allt fari ekki á sama veg.
Látum hana eiga síðasta
orðið: „Þegar fólk talar um
sársauka þá veit ég við hvað
það á. Þetta mun e.t.v. hjálpa
mér til að hjálpa öðrum sem
þjást.
Allt fyrir
frelsið
■ Frank Ross, 27 ára gamall, sat inni fyrir citurlyfjasölu. Eftir að hafa afplánað hluta af tíma
sínum í fangelsi var hann látinn laus til að vinna ákveðið verkefni í skamman tíma.
En hann vildi ekki aftur inn fyrir rimlana og faldist í íbúð systur sinnar í Harlem-hverfmu
illræmda. Lögreglan komst þó fljótt að því hvar hann var.
Þessar myndir sýna hvað gerðist næst. Ross reyndi að flýja út um gluggann þrátt fyrir að
hann væri á 9. hæð. Lögrcglan náði þó að grípa í hann áður en hann lagði af stað niður eftir
húsinu. Það má c.t.v. segja að hann hafi verið heppinn að þeir náðu honum.
Rætt við Ríkarð Valtingojer myndlistarmann
■ í dag verður opnuð á Kjar-
valsstöðum næsta sérstæð sýning
mynda og Ijóða. Það er myndlist-
armaðurinn Ríkharður Valting-
ojer, sem hefur gert myndtil-
einkanir við 14 Ijóð cftir 11
íslensk Ijóðskáld og safnað í
möppu, sem seld verður í 60
eintökum og verða myndirnar til
sýnis á Kjarvalsstöðum frá deg-
inum í dag til 12. júní. Og ekki
aðeins myndirnar heldur Ijóðin
líka, því skáldin hafa handskrif-
að Ijóðin við myndirnar og hvort
tveggja síðan unnið í steinþrykk,
ýmist í lit eða svarthvítu. Aðeins
eitt Ijóðanna hefur birst áður og
eitt skáldanna, Herdís Bene-
diktsdóttir hcfur aldrei birt Ijóð
eftir sig fyrr. Auk llerdísar eru
skáldin sem eiga Ijóð á sýning-
unni þessi: Baldur Óskarsson,
Einar Bragi, Guðbergur
Bergsson, Ingibjörg Haralds-
dóttir, Sigfús Daðason, Sigurður
A. Magnússon, Steinar Sigur-
jónsson, Thor Vilhjáimsson,
Þórarinn Eldjárn og Þorstcinn
frá Hamri.
„Ég kalla þessa möppu sam-
■ Ríkharður Valtingojer
aldin, en það stendur í orðabók-
inni að samaldin sé ávöxtur sem
sé orðinn til úr mörgum fræjum,"
sagði Valtingojer þegar við hitt-'
um hann þar sem hann var að
undirbúa sýninguna.
„Ég veit ekki til að bók hafi
verið unnin í steinþrykk fyrr á
Islandi, en ég man eftir því að
fyrir alimörgum árum gáfu þeir
Halldór Laxness og danski
myndlistarmaðurinn Asker Jorn
út eina af smásögum Laxness,
Söguna af brauðinu dýra, unna