Tíminn - 30.10.1983, Side 2
SUNNUDAGUR 30. OKTOBER 1983
eldhúskrókurinn
umsjón: Agnes Bragadóttir
Tveir fiskréttir kynntir í dag:
Rækjnrúil-
ur og
baconfars
— sem hun Abba,
nýútskrifaður
kokkur matreiðir
fyrir okkur
Abba med rækjurúllurnar góðu, tilbúnar í ofninn eða í djúpsteikingarpottinn.
■ Abba úrbeinar og vinnur kjöt af miklum krafti í Hvammseli, enda útbýr hún hvorki meira né minna en 30 hálftilbúna
rétti daglega. Nóg að gera hjá henni. ' Tímamyndir GE
■ Girnilegir fiskréttir, svo sem
ysurullur með ýmsum fyllingum, ýsa
í orly-deigi, fylltur hryggur með epl-
um og sveskjum, girnileg salöt, af
ýmsum tegundum brosa til þin úr
kæliborðinu í versluninni
Hvammsel, við Smárahvamm i
Hafnarfirði og eftir að hafa reynt
eina tvo þessara rétta kom ég að
máli við kokkinn sem starfar í þess-
ari verslun og falaðist eftir smá-
spjalli og að sjálfsögðu einni eða
tveimur uppskriftum. Kokkurinn,
Aðalbjörg Þorvarðardóttir, nýút-
skrifuð, aðeins tvítug og full af
ferskum hugmyndum tók malaleit-
an minni bara vel. Ég má til með að
greina lesendum frá því, áður en
spjall mitt við kokkinn fer á þrykk,
að Aðalbjörg gengur undir gælu-
nafninu Abba, og finnst mér alveg
sjálfsagt að rita það allt með upp-
hafsstöfum, ABBA.
- Hvenær útskrifaðist þú sem kokkur?
„Það var núna síðastliðið vor. Ég
lærði í Gaflinum og vann þar alveg
þangað til ég réðst hingað í haust, en þá
urðu eigendaskipti hér í versluninni."
- Hvernig kanntu svo við starfið?
„Ég kann mjög vei við starfið, og það
er alveg prýðileg tilbreyting að vera
komin hingað, því það er jú talsverður
munur á að vinna í eldhúsi á veitinga-
húsi, samkvæmt föstum matseðli, eða
vera sinn eigin herra, ef svo má að orði
komast hér í versluninni. Ég hef mun
meira frjálsræði hér, og ákveð hvers
könar rétti ég er með. Auðvitað verð ég
að ganga í svo til öll störf sem viðkoma
matargerð, eins og kjötvinnslu og þess
háttar."
- Nú eru þetta hinir gimilegustu réttir
sem þú ert með hér í kæliborðinu, hvaða
rétti útbýrð þú aðallega?
Snjóruðningstæki:
Framleiðum snjóruðnings-
tennur fyrir vörubíla og
dráttarvélar. Pantanir þurfa að
berast sem fyrst svo hægt
verði að afgreiða
þær fyrri part vetrar.
StálIækni sf.
Sföumúla 27, sfml 30662 ; ,
31.
OKTÓBER
FERÐAR
„Ég geri hálftilbúna rétti, sem annað
hvort á eftir að bregða á pönnu eða í ofn.
Aðallega erum við með ýmsa fiskrétti,
svo sem fiskrúllurnar, fisk í orly og
fleira. Ég útbý svona 30 rétti að öllu
meðtöldu, þannig að það er nóg að
gera.“
- Nú er þetta ný þjónusta hvernig hafa
undirtektir viðskiptavinanna verið?
„Undirtektir hafa verið mjög góðar.
Við höfum heyrt fjölda ánægjuradda, og
að fólki þyki gaman að prófa svona nýja
rétti. Vinsælasti rétturinn eru þessar
mismunandi fiskirúllur, sérstaklega sú
með camenbertostinum inn í, og fiskförsin
hafa einnig verið vel látin. Nú svo hafa
rækjurúllurnar verið mjög vinsælar, og
fiskfarsið sem hefur skorið sig úr í
vinsældum er Baconfars, og ég held bara
að ég gefi þér uppskrift að þessum
tveimur réttum.“
Ég hef engar athugasemdir fram að
færa við það, og hér koma því uppskrift-
Rækjurúllur —
uppskrift fyrir 2
2 lítil ýsuflök
150 grömm rækjur
Rasp
Salt og pipar
Flökin eru roðflett, og skorin til
helminga. Þeim er velt upp úr raspi og
kryddað. Rækjurnar settar á mitt flakið,
flakinu síðan rúllað upp og tannstöngli
stungið í gegn. Rúllan er annað hvort
djúpsteikt, eða bökuð í ofni. Ef hún er
bökuð í ofni.þá er rifnum osti stráð yfir,
og síðan bakað í um 20 mínútur við 150
gráðu hita.
Rúllurnar eru bornar fram með
hvítum kartöflum, hrásalati og karrý-
sósu.
Baconfars -
uppskrift fyrir 4
2 stór ýsuflök
2egg
150 grömm hveiti
2 dl mjólk
6 baconsneiðar
Salt og pipar
Flökin og baconið er hakkað. Síðan er
hveiti, mjólk egg og krydd hrært saman
við og öllu blandað vel saman.
Bollur mótaðar og steiktar, eða
bakaðar í eldföstu móti í 20 mínútur við
150 gráðu hita.
Bollurnar bornar fram með hvítum
kartöflum, hrásalati og bræddu smjöri
eða coktailsósu.
Semsagt, allir ættu að ráða við þessa
matreiðslu, og hljóta að fagna því að fá
hugmyndir að því hvernig matreiða má
fiskinn okkar góða á nýjan máta. Upp-
skriftirnar eru alls ekki flóknar, en þær
eru ljúffengar, og ég get óhrædd mælt
með þeim. Verði ykkur að góðu.