Tíminn - 30.10.1983, Side 5
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1983
upp á því við þá hjá útvarpinu að taka
slíkt upp hér, en fékk góðlátlegar ábend-
ingar um að ungum mönnum væri nær
að hugsa um sjálfstæðisbaráttu þjóðar-
innar en svona skemmtimúsík. Nei, það
var enginn áhugi á því þar að gera svona
þætti, þótt þeir hafi í rauninni aldrei
verið í útvarpinu. Þess í stað eru þættir
með allra lélegasta poppglundrinu sem
er á markaðinum og stefnan sú að hafa
tónlist sem engum leiðist og skemmtir
engum heldur, - bara til þess að fólk
slökkvi ekki. Þetta er eins og í hátölurum
í stórmörkuðum.“
Þegar menn sitja við ritstörf utan land-
steinanna, - sjá þeir þá ekki íslenskt
þjóðlíf undir nýju sjónarhomi?
reyndist þetta klár misskilningur og
þegar ég færði þetta í tal við Dag
Sigurðarson, skáld, þá sagði hann að
þetta kynni að vera rétt í vissum skiln-
ingi, en ísland væri þá eins og sambland
af Svíþjóð og Kanada!"
Reyndist þér erfitt að rita þess bók?
„Það var að minnsta kosti gaman að
því, þótt auðvitað sé þetta hræðilega
erfitt þegar illa gengur og mánuðum
saman finnst manni sem ekkert hafi
gerst. En svo lifnar yfir manni, þegar
skár gengur.
Ætli ég hafi ekki ákveðið að leggja út
á rithöfundarbraut haustið 1978. Þá
hafði maður gengið með þetta í magan-
um lengi, dútlað við að yrkja Ijóð f
frístundum frá skóla og vinnu. En það
■ Braggar í Laugarnesi. Holdsveikraspitalinn í baksýn.
„Jú, þarna úti var ég farinn að sjá
ísland frá talsvert nýju sjónarhorni, sem
ég tel reyndar mjög jákvætt. En það
merkilega er að ég var farinn að fegra
fyrir mér landið eða gera mér jákvæðari
hugmyndir en ætla hefði mátt af þessu
viðfangsefni. Það var til dæmis lega
landsins: Það má segja að skilin milli
Evrópu og Ameríku liggi um mitt Atl-
antshafið eða Atlantshafshrygginn og
helmingur íslands er vestan við hrygginn
og helmingurinn austan við hann. Þótt
þetta í sjálfu sér segi ekki neitt, þá var
ég farinn að spyrja mig hvort þetta lýsti
ekki menningarsamblandinu líka. Var
hér ekki sambland af hinni gömlu og
frekar kyrrlátu evrópsku menningu og
svo amerísku menningunni? Mér datt í
hug að ísland væri ef til vill sambland af
Amsterdam og Berlín annars vegar og
svo New York hins vegar. En auðvitað
var nokkuð sem maður sagði hvorki
sjálfum sér né öðrum að maður ætlaði
sér að fara að skrifa. Fyrir fjórum árum
kom svo út Ijóðabók eftir mig sem hét
„Loftræsting" og nú hefur þetta verið
mitt aðalstarf í fimm ár, þótt ég hafi
skroppið inn á vinnumarkaðinn öðru
hvoru. Nú er ég í byggingavinnu.
Auðvitað ætla ég að sitja áfram við
ritvélina ef ég mögulega get, en það eru
engin ný tíðindi að það sé erfitt að lifa á
þessum tímum. En ef bók skáldsagna-
höfundar nær meðalsölu, þá eru tekjurn-
ar sem svarar hálfum launum á lægsta
verkamannataksta. Svo eru líka sporslur
eins og launasjóður rithöfunda og fleira,
en þar er nú ekki á vísan að róa.
Jú, auðvitað er þetta erfitt og Reykja-
vík er erfiður staður fyrir rithöfunda að
lifa á. En það má mikið ganga á áður en
maður gefst upp.“ -AM
Ferða stereotæki á kostaverði
með kostakjörum
RT-150 S
Stereo kasettuferðaútvarp
Með: FM-, mið-, stutt- og langbylgju.
Hringspólun á kasettu (Auto reverse)
Verð kr. 8.775.-
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SIMI 16995
leikfimifatnaður
fimleikafatnaður
jazzballett
——
v aW urfl
Svo ^em 6
fÖtJuroW“5SÓWd
Fööulpéte^
RaíeÍo^
PÓSÍtróU 9
129 ReY^am
, MK»W*oU’'r
íKnm«ar
Sa,a .aWurK°'Warpa
■SSSmS^ <*w'