Tíminn - 30.10.1983, Side 6
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1983
bridge
umsjón: Guömundur Sv. Hermannsson
Helgar-Tíminn kennir Nákvæmnislaufið
\/Actnr nnn'ir q 1 hiQrtQ rin Kqt CAm
■ Síðan Precision Club eða Ná-
kvæmnislaufið var fundið upp af auðjöfr-
inum C.C. Wei fyrir um 15 árum hafa
vinsældir þessa sagnakerfis aukist og
margfaldast eins og hagvöxtur Japana.
Um leið hefur kerfið þróast og breyst í
meðförum spilara, ýmsir vankantar ver-
ið sniðnir af og sífellt bætt flóknari
sagnvenjum á kerfisgrindina. Það eru
því til ýmsar útfærslur af kerfinu og í
raun geta allir spilarar, frá byrjendum
upp í heimsmeistara fundið sér útfærslu
við hæfi.
Sú útfærsla á kerfinu, sem á næstu
vikum verður kynnt hér í Helgar-Tíman-
um er að mörgu leyti einföld enda er hún
frekar miðuð við þá sem eru að kynnast
kerfinu í fyrsta skipti. í rauninni er
Precision einfalt kerfi sem allir geta lært
og skilið, þó hægt sé að gera það flókið
eins og raunar öll sagnkerfj. Hér verður
beðið með það en ef undirtektir lesenda
verða jákvæðar kemur vel til greina að
kynna ýmsar flóknari útfærslur kerfisins
seinna sem þá er hægt að bæta inn í
grunnkcrfið.
Það skal tekið fram að sú kerfisút-
færsla sem hér verður sýnd byggist á
hugmyndum margra aðila og margt er
ólíkt því sem C.C. Wei setti fram
forðum. Helgar-Tíma kerfið er byggt
upp eftir mínum smekk og er því að
mestu á mína ábyrgð.
Fyrirhugað er að þessir þættir verði
8-9 talsins og í hverjum þætti verði tekin
fyrir ein opnunarsögn, svör við henni og
síðan áframhald sagna eftir því sem rúm
gefst. Þessi fyrsti þátturverðurhinsvegar
helgaður kerfinu almennt og er hugsaður
sem einskonar inngangur.
Punktatalning
í kerfinu eru notaðir svokallaðir
miltonpunktar til að meta gildi háspil-
anna. Þannig er ás talinn jafngilda 4
punktum, kóngurinn 3 punktum, drottn-
ingin 2 punktum og gosinn 1 punkti.
Þannig eru alls 40 hápunktar í hverjum
spilastokk. Til að hefja sagnir, opna,
þarf minnst 11 punkta og 25 punkta þarf
samanlagt til að hægt sé að spila geim í
gröndum og hálitum (3 grönd og 4
hjörtu/spaða). 28 punkta þarf til að spila
geim í láglitum (5 lauf/tígla), 33 punkta
til að spila hálfslemmu og 36-7 punkta til
að spila alslemmu.
Þegar tromplitur hefur verið fundinn
(8 spila samlega eða meira) er hægt að
bæta við skiptingarpunktum fyrir stuttliti
og hugsanlega trompunarmöguleika á
þann hátt að 3 punktar bætist við fyrir
eyðu, 2 punktar fyrir einspil og 1 punktur
fyrir tvíspil
Uppbygging kerfisins
Hornsteinn kerfisins er opnunin á 1
laufi. Þessi opnun er sterk og sýnir að
opnarinn á a.m.k. 16 hápunkta, sem
gerir það að verkum að nær allar aðrar
opnanir takmarkast við 15 hápunkta
(undantekningar eru opnanir á 1 grandi
og 1 gröndum en að því verður vikið
síðar). Laufopnunin sýnir í fyrstu ekkert
annað en að þessi punktastyrkur sé fyrir
hendi en síðan er spilunum lýst nánar.
Hugmyndin með því að opna á 1 laufi
með sterkar hendur er að þannig geti
mótspilararnir skipst á sem mestum
upplýsingum á sem lægstu sagnstigi,
þegar styrkur spilanna er mestur. í
flestum tilfellum vita spilararnir það
eftir 2-3 sagnhringi hvort eigi að spila
bút, geim eða hvort óhætt sé að leita að
slemmu.
Þar sem flestar aðrar opnanir kerfisins
eru takmarkaðar við 15 punkta eru
engar afmeldingar í kerfinu, á aðrar
sagnir en eitt lauf. Og svör við opnunum
í lit eru flest mjög eðlileg sem gerir
kerfið auðlært. Þar er aðeins stuðst við
nokkrar reglur sem gera það að verkum
að samherjarnir geta skipst á nokkuð
nákvæmum upplýsingum tiltölulega
snemma í sögnum.
Þar sem svarhendi passar niður opn-
unarsögn með lítil spil eru flestar sagnir
hennar krafa um minnst einn sagnhring.
Venjulega er miðað við að svarhendi
eigi að minnsta kosti 8 hápunkta fyrir
svari. En nokkrar sagnir svarhandar
takmarka spil hennar einsog í öðrum
kerfum. Eftir t.d. opnanir á 1 hjarta og
1 spaða, sem lofa a.m.k. 5-lit í opnunar-
litnum, eru svörin 2 hjörtu og 2 spaðar
takmörkuð við 7-10 punkta og 3-4
litarstuðning við opnunarlitinn. Ogsvör-
in 3 hjörtu eða spaðar eru takmörkuð
við 11-12 punkta og stuðning við opnun-
arlitinn og sýna um leið tiltölulega jafna
skiptingu. Með þessar upplýsingar er
það opnara að ákveða hvort nægur
styrkur sé fyrir hendi til að spila geim á
spilið.
A KD874
V A73
0 A84
4 G8
Þessi hendi er með 14 hápunkta og
5-lit í spaða og þessvegna heiðarleg
opnun á 1 spaða. Ef svarhendi segir 2
spaða við opnuninni þarf opnarinn þó
ekki að hugsa sig um áður en hann
passar, því mjög ólíklegt er að geim
standi í spilinu, þetta eru hugsanlegar
* A932
V K65
0 DG102
4 107
2.
* G932
KDIO
0 107
* AD83
Þarna er raðað upp tveim höndum,
einni lágmarkshendi og annarri há-
markshendi og á móti þeim báðum á
sagnhafi ekki í neinum vandræðum með
að fá 10 slagi og vinna geimið.
f meginatriðum byggist kerfið síðan á
venjulegum reglum: svarhendi þarf fleiri
punkta eftir því sem hún segir á hærra
sagnstigi, til að svara 1 hjarta með 1
spaða þarf hún aðeins 8 punkta; til að
svara 1 hjarta með 2 laufum þarf hún
a.m.k. 11 hápunkta og til að svara 1
hjarta með 3 laufum þarf hún a.m.k. 16
hápunkta.
Vestur opnar á 1 hjarta og þar sem
austur á 17 punkta og góðan lauflit
stekkur hann í 3 lauf. Vestur á góða
opnun og stuðning við laufið þannig að
hann styður í 4 lauf og sýnir þar með
slemmuáhuga. Austur segir þá frá tígul-
ásinum með 4 tíglum og vestur segir 4
hjörtu og sýnir þarmeð fyrirstöðu í
hjarta. Þá segir austur 5 lauf og neitar
með því fyrirstöðu í spaða og þá veit
vestur að andstæðingarnir geta tekið 2
spaðaslagi og passar. Það væri ómögu-
legt að segja á þetta spil með einhverri
nákvæmni ef aðeins er notuð ásaspurn-
ing.
Auðvitað er gamla góða ásaspurningin
hluti af kerfinu því á sum spil er ekki
hægt að segja án hennar. Þar er notast
við Blackwood ásaspurninguna, þ.e. 4
grönd. Vonandi gefst betra rými seinna
SpiBaþraut nr. 1. Sudur spilar 6 hjörtu
■ Bridge er ekki sagnkerfið eintómt og því munu spilaþrautir fylgja með þessum kerfiskennsluþáttum til
bragðbætis. Fyrirhugað er að spilaþrautirnar verði milliþungar, hvorki of léttar né of þungar og einnig að til sé
lausn sem gengur upp hvernig sem spil andstæðinganna skiptast.
Á myndinni hér að ofan er fyrsta spilaþrautin. Suður er sagnhafi í 6 hjörtum án þess að andstæðingarnir
hafi gefið frá sér hljóð í sögnum. Vestur spilar út tígulgosanum og nú er spurt: hvernig getur suður gulltryggt
6 hjörtu ef miðað er við að hjörtun liggi ekki ver en 3-1.
Lausnin á þrautinni verður birt í næsta Helgar-Tíma.
hendur meðspilarans
1.
♦ A92
<? G862
O D103
* D7
2.
A G932
K642
O D4
4 D73
Svarhendi getur að vísu átt þannig spil
fyrir 2ja spaða svarinu að unnt sé að
vinna 4 spaða en það er mjög á móti
líkunum og í þessum tveim dæmum er
yfrið nóg að spila 2 spaða á spilin.
Ef svarhendin segir hinsvegar 3 spaða
við spaðaopnuninni þarf opnari heldur
ekki að hugsa sig um áður en hann
hækkar í 4 spaða. Hann veit að a.m.k.
25 punktar eru til staðar og eins er
opnunin nokkuð góð: tveir ásar og
spaðahjónin. Þetta gætu verið hugsan-
legar hendur hjá mótspilaranum, fyrir
3ja spaða sögninni:
Slemmusagnir
Fyrirstöðusagnir eru aðalslemmutæki
kerfisins en þær segja frá fyrirstöðum:
Ás, kóng, einspili eða eyðu í litum sem
sagðir eru eftir að tromplitur hefur verið
fundinn. Þetta kemur í stað ásaspurning-
arinnar sem til dæmis er aðalslemmu-
hjálpartæki Vínarkerfisins.
Þegar trompliturinn hefur verið fund-
inn skiptast meðspilararnir á fyrirstöðu-
sögnum og þá er venjulega fyrst sagt frá
ásum eða eyðum og síðar kóngum og
einspilum. Ef spilari hleypur yfir lit í
þessum sagnröðum er það merki um að
hann eigi ekki fyrirstöðu í þeim lit:
♦ 42
<2 KD1042
O KD
4, AG82
A D8
A
0 ADIO
4, KD109743
til að ræða nánar um þessar sagnir.
Eftir opnun á 1 laufi er í sumurn
stöðum notast við spurnarsagnir. Þessar
spurnarsagnir tröllriðu kerfinu á fyrstu
árum þess en síðan hafa menn fyllst
efasemdum um ágæti þeirra margra og
nú er svo komið að flestir notast aðeins
við tvær tegundir: spurning um háspil
(ása og kónga) og spurning um litargæði.
Nánar verður farið út í þessar sagnir í
kaflanum um opnun á 1 laufi.
Opnunarsagnir og
merking þeirra
Hér á eftir fer listi yfir opnunarsagnir
og hvað þær merkja:
1L : 16f punktar, allar skiptingar nema
jafnskiptar 16 punkta hendur og jafn-
skiptar 20-21 punkta hendur.
1T : 11-15 punktar, annað hvort jafn-
skiptar hendur eða 11-13 punkta hendur
þegar ekki er 5-litur í hálit til staðar, eða
11-15 punkta hendur.með tígullit eða
þannig skiptingu að ekki er hægt að opna
á einu grandi. Þessi opnun er mjög
svipuð laufopnun í Vínarkerfinu og
hefur oft verið kölluð ruslakistan.
1 H/S : 11-15 punktar, minnst 5-litur í
opnunarlitnum. Með 5-liti í báðum há-'
litum er opnað á 1 spaða, hærri litnum.
Með 5-lit í hálit og 6-lit í láglit er opnað
á láglitnum.
1 Gr: 14-16 punktar, jafnskipt hendi og
neitar 5-lit í hálit, en getur haft 5-lit í
láglit. Hugsanlegar hendur eru:
♦ KD5 ♦ AK54 * 74
V AD54 V K654 V KDG
O K54 O K97 O AG987
4, D43 4 G4 4 KG4
2 L : 11-15 punktar með minnst 5-lit í
laufi ef 4-litur í hálit er til hliðar, annars
lofar opnunin 6-lit í laufi. Með 5-lit í
laufi og 4-lit ítígli eropnaðá 1 tígli; með
5-lit í laufi og skiptinguna 5-3-3-2 er
annaðhvort opnað á 1 tígli eða 1 grandi
eftir punktastyrk.
2 T : 11 -15 punktar og sýnir skiptinguna
4-4-1-4 með einlit í tígli eða 3-4-1-5
(4-3-1-5)
2 H/S : 6-10 punktar og 6-litur í
opnunarlitnum. Þessar opnanir hafa
hindrunargildi en eru einnig uppbyggj-
andi því þær lofa vissum punktastyrk og
sæmilegum lit.
2 GR : 20-21 punktur og jafnskipt
hendi. Sama skipting og þegar opnað er
á 1 grandi.
3 L/T/H/S : Hindrunarsagnir sem sýna
7-lit í litnum en lítið annað.
3 GR : Sýnir nákvæmlega þéttan 7-lit í
láglit og neitar hliðarstyrk
4 L/T : Yfirfærslur í 4 H/S og geta verið
sterkar hendur með 8-lit eða þéttan 7-lit
og hliðarstyrk.
4 H/S : Hindrunarsagnir sem sýna
veikari spil en opnanir á 4 L/T.
Ég vona að þessi inngangur hafi gefið
einhverja hugmynd um hvernig sagna-
kerfið er byggt upp. í næsta þætti verður
opnunin á 1 tígli tekin fyrir.
-GSH
BATAVEL
GMC150 ha.
Til sölu bátavél 150 ha. GMC,
með öllu tilheyrandi.
Vélin er í mjög góðu lagi, 24
volta rafkerfi, tveir rafalar
fyigja.
Gott verð ef samið er strax.
Upplýsingar í síma 32101.
31.
OKTÓBER
MFERÐAR