Tíminn - 30.10.1983, Side 8
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1983
a
Útgefandi: Framsóknarflokkurlnn.
Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason.
Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnusson. Afgrelðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson.
Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V.
Ólafsson. Fréttastjórl: Kristinn Hallgrímsson.
Umsjónarmaður Helgar-Timans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir,
Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv .
Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson,
Jón Ólafsson, Kristin Leifsdottir, Samúei Örn Erlingsson (íþróttir), Skaftl Jónsson, Sonja
Jónsdóttlr, Þorvaldur Bragason. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson.
Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn:
Eygló Stefánsdóttir.
Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, Sigurður Jónsson.
Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavik. Sími: 86300. Auglýsingasimi
18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306.
Verð í lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00.
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf.
Reynt að takmarka
erlendar lántökur
■ Fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir næsta ár hefur
verið lögð fram á Alþingi. Meginstefnan þeirrar áætlunar
ríkisstjórnarinnar er að stilla fjárfestingu hins opinbera og
annarra aðila í það hóf, sem samrýmst getur viðunandi
jafnvægi í viðskiptum við önnur lönd og áframhaldandi
hj öðnun verðbólgu á næsta ári. Ákvarðanir um fj árfesting-
arstefnuna mótast einnig af viðleitni til þess að beina
fjárfestingu í arðbærar framkvæmdir, sem best munu
tryggja atvinnu manna til frambúðar. Jafnframt er þess
gætt að tefla ekki atvinnuástandi í tvísýni á næsta ári með
of harkalegum samdrætti. Fetta er vandasamt viðfangsefni
og mikils um vert að teknar séu í þessum efnum
fjárhagslega ábyrgar ákvarðanir af fyllsta raunsæi, segir í
greinargerð um áætlunina.
Þar kemur einnig fram, að eitt helsta viðfangsefni
áætlunarinnar er að takmarka svo sem frekast er kostur
erlendar lántökur á næsta ári og auka innlenda fjáröflun.
Fað er markmið áætlunarinnar að erlendar skuidir þjóðar-
innar hækki ekki í hlutfalli við þjóðarframleiðslu á árinu
1984, en þær eru þegar orðnar hættulega miklar.
Eðlilega gætir samdráttar víða í lánsfjáráætluninni,
bæði í opinberum framkvæmdum og fjárfestingu atvinnu
veganna. Þó er gert ráð fyrir því að íbúðahúsabyggingar
verði óbreyttar frá fyrra ári. Fjármunamyndunin mun
minnka um 6.3%, en nær allur samdrátturinn er í
svonefndum stórframkvæmdum og innfluttum skipum og
flugvélum, þar sem önnur fjármunamyndun mun aðeins
minnka um 1.2%. Fjárfesting atvinnuveganna mun hins
vegar minnka um 6.2%. Þannig er reiknað með um 10%
samdrætti framkvæmda í landbúnaði, og að fjármuna-
myndun í fiskveiðum minnki um 22%, en fiskvinnslufyrir-
tækja um 5%. Á sviði iðnaðar er gert ráð fyrir að bygging
steinullarverksmiðju á Sauðárkróki hefjist á næsta ári, en
hins vegar ekki reiknað með framkvæmdum við kísiljárn-
verksmiðju. Fjárfesting í verslunar- og skrifstofuhúsnæði
mun minnka um 5%.
í áætluninni er gert ráð fyrir að íbúðabyggingar verði
eins miklar á næsta ári og í ár, og ákveðið hefur verið að
auka lánveitingar til íbúðarmála verulega á næsta ári sem
kunnugt er.
Atvinnuhorfur
á næsta ári
■ í fjárfestingar-og lánsfjáráætluninni er fjallað sérstak-
lega um atvinnuhorfur á næsta ári, og segir þar m.a.:
ní þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir að landsframleiðsla
og þar með umsvif í landinu dragist saman um 1.5% á
árinu 1984. Þessar horfur fela í sér að nokkuð dragi úr
eftirspurn á vinnumarkaði almennt og fjárfestingaspáin
bendir til að umsvif í byggingarstarfsemi og mannvirkja-
gerð minnki heldur meira. Atvinnuástand ætti þó að geta
haldist þolanlegt við þessi heildarskilyrði, ef ekki kemur
til nein óvænt truflun í atvinnustarfsemi í landinu. Enn
sem komið er hefur ekkert komið fram sem bendir til þess
að atvinna sé ónóg.“
Það er eitt meginmarkmið núverandi ríkisstjórnar að
tryggja áframhaldandí fulla atvinnu í landinu. Þær róttæku
ráðstafanir, sem grípa varð til á s.l. vori, voru ekki síst til
þess að koma í veg fyrir stöðvun atvinnuveganna og
fjöldaatvinnuleysi. Ríkisstjórnin mun því fylgjast vand-
lega með þróuninni á vinnumarkaðinum í því skyni að
tryggja að atvinnuöryggi verði áfram daglegur veruleiki
íslensks launafólks, þótt tugir milljóna-verkafólks gangi
atvinnulausir í nágrarnalöndum okkar.
■ í straumi daganna síðustu vikuna eða hálfan mánuðinn
hefur ýmislegt rekið á fjörur og er það vogrek í þjóðlífinu
margt hvað meira en smáskrítið, svo að ekki sé meira sagt -
enda lifum við á afbrigðilegum tímum, eins og fjármálaráð-
herrann segir þegar hann gengur fram fyrir lýðinn til þess að
sýna sig á réttri leið og beina öðrum á hana eins og leiðtoga ber.
Tvær þjóðbjörgunarsamkundur hafa setið á rökstólum
síðasta hálfan mánuðinn - Alþingi íslendinga og kirkjuþing
sömu þjóðar - önnur einbeitir sér við að bjarga veraldargeng-
inu fyrir horn, en hin andlegum verðmætum - báðar á
afbrigðilegum tímum. Og það má nú með sanni segja að
yfirbragð og inntak beggja þessara þjóðþinga hafi verið tákn
þeirra tíma.
Pennastrik Alberts
og nafn frelsarans
Furðulegasta tilllaga, og líklega merkilegasta, sem fram
kom á Alþingi þessa daga var „pennastrik" fjármálaráðherr-
ans, þ.e. að leysa vanda aðalatvinnuvegar þjóðarinnar með
því að strika yfir meginhluta skulda hans, og láta útgerðar-
mennina síðan byrja (að safna) upp á nýtt.
Pennastrik Kirkjuþings íslendinga var ekki alveg eins
geníalt en það bætti úr skák að þau voru raunar tvö - annað um
heimsfriðinn á friðarári kirkjunnar, hitt hvernig stafsetja
skyldi nafn frelsarans Júsúsar Krists. Um hvorugt strikið
fékkst niðurstaða.
Kirkjuþing íslendinga er undarleg samkunda. Þar sitja
saman geistlegir og leikir fulltrúar, eins konar öldungaráð sem
telur sig hafa kristilega velferð þjóðarinnar (og fjármunavel-
tillaga um að hverfa aftur til gömlu beygingarinnar á
frelsaranafninu upp á hreinni latínu, og hefst þar lotan langa
á þinginu.
Það verður auðvitað að segjast eins og er, að þessi einföldun
var ofur barnaleg hálfvelgja. í henni fólst réttmæt viðurkenn-
ing á því, að latnesk beyging þessa tungutíðasta orðs
íslenskrar kristni væri ekki viðhl ítandi lengur. Hins vegar náði
skilningurinn ekki nógu djúpt til þess að sjá, að eina færa og
sæmilega leiðin væri að taka skrefið til fulls og íslenska nafn
frelsarans alveg, létta útlegðinni af barnavininum mesta og
gera nafn hans að íslenskum málþegni en dæma þjóðina ekki
lengur til málspjalla ef húb bæri sér það á tungu. Þetta var
aðeins spurning um það hvort Jesús ætti að vera rómverskur
gestur hér á landi lengur eða gerast íslenskur málborgari með
fullum réttindum. Hér varð annað hvort að láta sitja við sama
eða stíga skrefið til fulls. En tungubrjótur klerka virðist helst
sá að beygja nafnið í þágufalli og eignarfalli eins og lög málsins
bjóða - Jesúsi, Jesúsar- eins og við leyfðum okkur að íslenska
guðspjallamanninn Markús t.a.m.
Einfalt og sjálfgefið mál
Þótt þetta mál vefðist svona illa og lengi fyrir þrætubókar-
þinginu, er það í raun og veru lítið, einfalt og sjáflgefið
hvernig með skuli fara. Það verður aðeins fyrirferðarmikið
vegna þeirrar óeðlilegu tregðu sem lögð er á eðlilega
þróunarbraut þess í málinu. Glöggskyggn prestur benti á þetta
á þinginu og sagði að væri skrefið stigið til fulls ætti eignarfallið
A frelsarinn að
vera rómverskur
eða íslenskur
málþegn kér?
ferð kirkjunnar) á herðum sér. Hópur leikra manna á þinginu
cr líklega afturhaldssamasta lijörð sem saman hefur verið sett
á Fróni, prestarnir þar sundurleitari eins og stéttin öll, sumir
afturgengir, aðrir Iftið eitt framsæknari.
Nú er sagt véra heimsfriðarár í samanlagðri kristninni, og
ýmsir klerkar kenna strangt úr stól gegn djöfli samtínians,
stríðum og kjarnorkusprengjum, og megi þeir sem þá tungu
hræra mæla heilastir manna. En Kirkjuþing íslendinga var ekki
á 'einu máli um það, hvort vert væri að hafa orð á þessu og
enn skiptari voru skoðanir um það hvaða orð skyldi velja.
Átök urðu allhörð um þetta og gafst ekki tími til að jafna
ágreining né ráða málinu til sæmilegra lykta, þar sem aðalmál
þingsins kallaði mjög að - stafsetning og fallbeyging á nafni
frelsarans í munni þjóðarinnar. Færðist þá enn fjör í ieikinn
og vógust menn þar ýmislega á eins og í Heljarslóðarorrustu
og fylkingar riðluðust nokkuð.
Tillaga um afturhvarf til hreinni latínu
Umræðan um fallbeygingu á nafni trúarleiðtoga íslendinga,
eða um það hvort hann skyldi teljast rómverskur eða íslenskur
málþegn í kirkju og bænum þjóðarinnar stóð daglangt og
náttlangt og urðu þetta „nokkuð snarpar deilur“ eins og
Moggi segir í ýtarlegri skýrslu, sem ekki dugði blaðsíða undir,
enda varla annað markverðara að tíunda frá kirkjuþinginu.
Kirkjuþing þóttu löngum á öldum áður æðsti vettvangur í
þeirri hugljómun sem kallast þrætubókarlist, og eru mörg
lýsandi dæmi .um það hvernig þar var deilt af upphafinni
andagift um skegg kcisarans eða parruk páfans. Kirkjuþing
íslendinga bregst ekki hefðinni, það sýna m .a. glöggt hinar
langvinnu deilur þar í þetta skipti um nafnbeygingu frelsarans
á íslenskri tungu.
Allt frá því að fagnaðarerindið var flutt þjóðinni á latínu úr
predikunarstólum á myrkustu öldum þjóðarinar hefur nafn
frelsarans verið beygt upp á latínu alveg fram á okkar daga.
Þetta kunnu álmúgamenn og börn, sem vildu bera sér nafnið
í munn, heldur báglega, svo að af varð stundum klám og
klaufska. Raddir komuuppumeinföldunogjafnvel íslenskun,
sem prelátum hefur flestum þótt ganga guðlasti næst fram á
þennan dag. Þó fór svo fyrir síðustu útgáfu bibiíu og
sálmabókar á íslensku, að innleidd var einföldun, einhvers
konar millistig latínu og íslensku.
Nú bregður svo við á þessu háfleyga kirkjuþingi, að flutt er
að vera Jesúsar. í þessu efni getum við vel tekið Færeyinga
okkur til fyrirmyndar. Þeir hafa fyrir löngu boðið trúarleiðtoga
sínum fullan borgararétt í máli sínu.
Á það var bent á kirkjuþinginu, að við þctta sfðasta hálfkák
hefði kristnum hugverkum, svo sem sálmum, verið breytt
heimildarlaust í nýrri útgáfu sálmabókar. Þetta er auðvitað
hárrétt, en á því var engin þörf. Þótt beygingu nafnsins sé
breytt í íslenskri biblíu og mæltu máli er auðvitað sjálfsagt að
láta gömlu beyginguna halda sér í gömlum sálmum, hvort sem
þeir eru eftir Hallgrím eða aðra. Þetta er skáldskapur á máli
síns tíma og við látum það tungutak alla jafna óhreyft. Það
málfar er barn síns tíma og á allan rétt til að halda sér og spillir
í engu nýjum myndum málsins.
Það hvarflaði sem betur fór að einstaka kirkjuþingsmanni
að eiginlega væri nafnbeyging Jesúsar Jósefssonar kannske
ekki aðalatriði íslenskrar kristni á þessum afbrigðilegu tímum,
og ef til vill væri ekki úr vegi að víkja heldur orði að kenningu
hans, sem kannske skipti nokkru máli líka, en það komst ekki að
sem varla var von!
Nafnmálinu var síðan vísað til kirkjuráðs til undirbúnings
framhaldsumræðu á næsta kirkjuþingi. Megum við fá meira
að heyra? Enda málið langt frá því útrætt!
Því má þó ekki gleyma, að kirkjuþingsmenn gáfu sér
andartak til þess að rétta upp hendur í þeirri kröfu að stofnað
skyldi hcilt, sjálfstætt, virðulegt og umsvifamikið kirkjumála-
ráðuneyti, Minna má ekki gagn gera þegar kirkjuþing eru
svona málefnarík.
Þannig lauk hinu merka Kirkjuþingi íslendinga á því
herrans heimsfriðarári 1983.
Andrés Kristjánsson R
skrifar W&M
-E.S.J.